Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2002, Page 8
8
____________________________________FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2002
Fréttir DV
Sumarhús í þjóðgarðinum á Þingvöllum eru „in“ hjá ungu peningafólki:
Ekki þjóðgarður í strang-
asta skilningi laga
- segir Össur Skarphéðinsson, nefndarmaður í Þingvallanefnd
Sérkennileg byggð myndast í þjóð-
garðinum á Þingvöllum, nýtískuleg
hús sem ailt eins geta þjónað sem heils
árs hús. Þar eru gömul hús að hverfa
en önnur ný og glæsileg birtast í stað-
inn. Svæðið vestur af Valhöll er „in“
hjá ungu og ríku fólki, elítunni sem er
tUbúin að opna pyngjuna upp á gátt fá-
ist lóð á þessu svæði. Talað er um fjár-
festingar upp á milljónatugi í bygging-
um einstakra húsa á svæðinu þrátt fyr-
ir það óöryggi sem fylgir leigulóð með
10 ára samningi. Menn vita sem er að
opinberir aðilar munu ekki raska ró
fólksins sem hreiðrar um sig í þjóð-
garðinum. Þama eru býsna öflugir ein-
staklingar á ferð og það verður ekki
svo glatt hróflað við búsetu þeirra.
Auglýsingar í Morgunblaðinu sýna
niðumídda bústaði sem síðan seljast á
allt að 14 milljónir króna án landrétt-
inda eða réttindi til afar stutts tíma.
Sumum finnst að hrófatildur í þjóð-
garðinum hafi skapað verðmæta eign á
svipuðum forsendum og eigendur
kvóta í fiskveiðum eða landbúnaði.
Aðrir benda á að þessi búseta fólks í
hjarta þjóðgarðsins rýri gildi hans
veruiega. Sumir hafa orðið fyrir því að
eigendur bústaða banna að fótgangandi
þjóðgarðsgestir séu á ferli við vatns-
bakkann, hann sé þeirra eign og privat-
umráðasvæði. Bústaðimir era afgirtir
niður að vatni sem þykir afar óþjóð-
garðslegt athæfi.
Ekki þjóðgarður
„Þingvellir era ekki þjóðgarður sam-
kvæmt strangasta skilningi laga,“ segir
össur Skarphéðinsson alþingismaður
sem er einn þriggja þingmanna í Þing-
vallanefhd. Nefiidin er skipuð alþingis-
mönnum enda heyra Þingvellir lögum
samkvæmt undir Alþingi en Náttúra-
vemd annast um önnur skyld störf.
Hinir tveir nefndarmennirnir eru
Bjöm Bjamason og Guðni Ágústsson.
Á þjóðgarðssvæðinu og í Kárastaðanesi
eru 93 sumarbústaðir ásamt stórum
lóðum, sem einstaklingar eiga, að sögn
Sigurðar Oddssonar þjóðgarðsvarðar.
I margra augum era þessir bústaðir
óvelkomnir í þessum elsta þjóðgarði
landsmanna. Sumpart ræður stundum
öfund en rétt er þó að bústaðimir eiga
ekki þama heima. Þetta er þjóðgarður.
Þingvallanefiid hvers tíma er ekki al-
veg um að kenna. Og í dag er nefndin
almennt talað að vinna góð störf, enda
er formaðurinn, Bjöm Bjamason,
þekktur fyrir annað en iðjuleysi. Hann
er mjög vakandi og leggur sig allan
fram, sumir húseigenda á svæðinu
kvarta yfir ströngum skilmálum Þing-
vallanefhdar en þá er Bimi að mæta og
hans starfsmönnum á Þingvöllum. Vit-
að er að Bjöm Bjamason og hans nefhd
hefur reynt að fá lögum breytt, meðal
annars til að ná tökum á vatnsréttind-
um á svæðinu sem mælist misvel fyrir,
til dæmis hjá nágrönnum í Nesjavalla-
virkjun sem selja heitt Þingvaiiavatn í
vatnskrana á höfuðborgarsvæðinu. En
auðvitað má hugsa sér að nefndin fari
að vinna að því að hreinsa svæðið af
sumarbústöðum. Það ætti henni að
vera í lófa iagið.
Mistök fortíöar
Guðni Ágústsson landbúnaðarráð-
herra er nokkuð sammáia Össuri: „Við
búum við þau mistök fortíðar að allt of
lengi var einstaklingum hleypt inn í
þjóðgarðinn með byggingar. Það er
minn draumur að hægt verði að kaupa
þetta upp. Þingvellir era heilög jörð,
heilög vé, staður allra Islendinga. Það
er mikilvægt að varðveita staðinn
þcinnig að íslenskar fiölskyldur geti
komið þar samansagði Guðni, þing-
maður Sunnlendinga, um þessa perlu
síns landsfjórðungs.
Ríkiö getur ekki keypt
Já, hvers vegna ekki að kaupa upp
bústaði, eða segja upp samningum?
DV-MYNDIR GVA
Nýtískulegt
Meirihluti Þingvallanefndar samþykkti teikningu Páimars Kristmundssonar arkitekts að þessu húsi í þjóögaröinum en
haföi hafnaö mörgum áöur. Þetta er sannarlega nýtískulegt hús.
„Auðvitað væri æskilegt að þama
væru engir bústaðir, ríkið hefur for-
kaupsrétt að bústöðum þegar þeir
skipta um hendur en það mundi kosta
mikla peninga úr vösum almennings
að kaupa þessa bústaði upp,“ sagði Öss-
ur. Hann segir aö hann vilji sjá aivöru-
þjóðgarð á Þingvöllum, fimmfalt
stærra svæði en nú er. Hann segir viss-
ar sögulegar forsendur liggja að baki
leyfum til manna að byggja í þjóðgarð-
inum en slík búseta er lítt þekkt í þjóð-
görðum annarra þjóða. Jónas Jónsson
frá Hriflu var framkvöðull að lögum
um þjóðgarð á Þingvöllum 1928 sem
gengu í gildi 1930. Þingvellir voru tals-
vert afskekkt svæði þá, staður sem
menn heimsóttu ekki oft. Með því að
veita leyfi til byggingar bústaða í þjóð-
garðinum taldi Jónas að verið væri að
laða fólk að svæðinu. Bústaðir hafa
verið í landinu í rúma sjö áratugi.
„Það má deila um það, en ég tel erfitt
að taka eignamámi bústaði sem staðið
hafa í næstum hálfa öld. Um þetta held
ég að sé góð sátt í Þingvallanefiid,“
14 milljónir fyrir þetta!
Þessi sumarbústaöur í þjóögaröin-
um er aö falli kominn - en engu að
síöur fékk seljandinn 14 milljónir
króna fyrir hann.
sagði Össur
Helgistaöur íslendinga
I lögum um þjóögarðinn á Þingvelli
við Öxará frá 1928 segir að þar skuli
vera friðlýstur helgistaður allra Islend-
inga og að landið skuli ævinlega vera
eign íslensku þjóðarinnar undir vemd
Alþingis, landið megi ekki selja eða
veðsetja. Það er hins vegar nokkuð
ljóst að erfingjar
þeirra sem fengu
leyfi á sínum tíma, Jl®n Birgir
hafa „eignast" Pétursson
vænar spildur úr blaöamaöur
þjóðgarðinum og
hagnast vel á þess- ,ví,
ari almannaeign. HMIWHH
Úr sér gengnir
sumarbústaðir eru samt mikils virði -
en uppbygging þeirra, nýjar byggingar,
er upp á náð og miskunn ráðamanna á
þessum slóðum. Hægt væri án efa að
slíta samningum. Þeir vora gerðir með
ákvæði um 50 ára búsetu í upphafi en
era nú til 10 ára. Varla era það hald-
bær rök að ríkið geti ekki leyst til sín
einn og einn bústað, ef þess gerist yfir-
leitt þörf. Upphæðimar era ekki skelfi-
legar í augum æðri fjármálayfirvalda.
Hægt er að láta búsetuna fjara út smátt
og smátt og skapa alvöra þjóðgarð á
Þingvöllum.
Sigurður Oddsson þjóðgarðsvörður
segir að Þingvallanefnd veiti leyfi til að
endumýja bústaði. Einn bústaðanna í
næsta nágrenni Valhallar var endumýj-
aður fyrir mikið fé nýlega en eigandi
hans er Páll Pálsson, útgerðarmaður í
Vísi í Grindavík. Hann og synir hans,
Páll og Pétur, hafa náð miklum árangri
í útgerð og fiskverkun á undanfómum
árum, enda harðduglegir athafnamenn
og hafa ekki verið þekktir fyrir mikinn
munað.
Til verksins fékk útgerðarmaðurinn
Pálmar Kristmundsson arkitekt. Bú-
staðurinn er nú með mikilli álframhlið
sem fer fyrir brjóstið á sumum sem telja
að útlit hans sé úr takti við íslenska
náttúra. Lesandi sem hringdi i DV sagði
húsið líkjast „bensínstöð í eyðimörk" og
bætti við að þama heíði verið sólundað
50 milljónum króna til að reisa sumar-
höll í þjóðgarði íslendinga. Sú tala er án
ábyrgðar en ljóst að byggingin hefur
kostað mikið fé.
Bústaðurinn sem þama stóð áður var
gamalt, hlaðið hús, sem hafði verið
dæmt ónýtt. Sigurður segir að Þing-
vallanefnd veiti leyfi fyrir bústöðum
sem eru í hæsta lagi 90 fermetrar að
grannflatarmáli. Slíkir bústaðir geta
orðið verulega reisulegir ef koma má
við kjallara og rishæð.
Mörgum teikningum hafnað
Pétur Pálsson hjá Vfsi hf. í Grindavík
sagði blaðihu að þeir feðgar hefðu farið
eftir auglýsingu í Morgunblaðinu fyrir
3-4 árum og keypt bústað við Þingvalla-
vatn sem þurfti mik-
ið viðhald. Verð bú-
staðarins var 4 millj-
ónir króna. Bústað-
inn höfðu átt versl-
unarmenn úr Reykja-
vík sem ánöfhuðu
skógræktinni eign-
ina eftir sinn dag.
„Þetta var fyrsti sumarbústaður okk-
ar fjölskyldu," sagði Pétur. „Við létum
teikna og Þingvallanefnd hafnaði mörg-
um teikningum, sumum með risi, öðr-
um án, áður en þessi var samþykkt með
tveim atkvæðum gegn einu, að ég held.
Síðan tók við húsbyggingin á þessu 90
fermetra kassalaga húsi með álíramhlið
- það tók 10 eða 11 mánuði," sagði Pét-
ur en fjölskyldan hefur notað bústað-
inn á þessu umdeilda sumarbústaða-
svæði undanfama mánuði.
Músasafn í Bolungarvík
Músafni hefur verið komið upp á
Náttúrustofu Vestfjarða í Bolungar-
vík. Þorleifur Eiríksson forstöðu-
maður segir í samtali við Bæjarins
besta að tilgangur músasafnsins sé
annars vegar að kanna hvort hægt
sé að hafa lifandi mýs í búrakerfi og
hins vegar sé það hugsað sem fram-
tíðarviðbót við náttúrugripasafniö.
Að sögn Bæjarins besta eru fjórar
venjulegar hagamýs úr Svefneyjum,
hvítingi frá Hanhóli og þrjár húsa-
mýs í safninu.
Mótmæla turnum
Yfir 100 íbúar við Sigtún og í
næsta nágrenni skrifuðu undir við-
lagt skjal þar sem skorað er á skipu-
lags- og byggingarnefnd Reykjavík-
urborgar að taka til endurskoðunn-
ar ákvörðun sina frá 11. september
2002 um að leyfa byggingu tveggja
13 hæða turna við Grand Hótel á
lóðinni Sigtún 38 í Reykjavík. Und-
irskriftarlistarnir hafa verið lagðir
fram bæði á skrifstofu Reykjavíkur-
borgar og eins á skrifstofu úrskurð-
amefndar skipulags- og byggingar-
mála, sem nú fær málið til umfjöll-
unar.
Tuskudýr innkölluð
IKEA hefur innkallaö tuskudýrið
Snuttig. Saumar á poka sem inni-
heldur plastperlur á dýrinu geta
raknað upp og verið hættulegir
bömum. Ekki er vitað til að óhöpp
hafi orðið vegna gallans en um 20
þúsund tuskudýr hafa verið seld
víðs vegar um heim - þar á meðal
hérlendis.
Skarphéðinn sækir um
Skarphéðinn Gunnarsson, fráfar-
andi skólastjóri Áslandsskóla í
Hafnarfirði, er í hópi níu umsækj-
enda um starf skólastjóra. Skarp-
héðinn lét af störfum skólastjóra
þegar Hafnarfjarðarbær tók yfir
rekstur skólans nýverið en áður
höfðu íslensku menntasamtökin
rekið hann. Auk Skarphéðins sækja
um starfið Anna Margrét Ákadóttir,
Reykjavík, Hannes Fr. Guðmunds-
son, Reykjavík, Helga Sigrún Harð-
ardóttir, Reykjavík, Leifur S. Garð-
arsson, Hafnarfirði, Sigurlín Svein-
bjamardóttir, Hafnarfirði, Sturla
Kristjánsson, Danmörku, og Vigfús
Hallgrímsson, Kópavogi.
Fylgjast með kosningum
Þrír íslending-
ar, Þuríður Back-
man alþingis-
maður, Telma L.
Tómasson frétta-
maður og Berg-
dís Ellertsdóttir
sendifuUtrúi
verða í hópi
þeirra sem ann-
ast skipulag, framkvæmd og eftirlit
með sveitarstjórnarkosningunum
sem fram fara í Kosovo laugardag-
inn 26. október nk. Rúmlega 1,3
miUjónir manna em á kjörskrá en
þremenningamir frá íslandi verða í
hópi 900 manna frá aðUdarríkjum
Öryggis- og samvinnustofnunar
Evrópu. -aþ