Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2002, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2002, Side 11
11 FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2002 PV__________________________________________________ Útlönd Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna: Telur Noröur-Kóreumenn þegar ráöa yfir kjarnavopnum - Bush lýsir áhyggjum sínum en segir ógnina af allt öðrum toga en í írak Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna Rumsfeld segist trúa því aö Norður-Kóreumenn ráöi þegaryfir fáeinum kjarnorkusprengjum. Donald Rumsfeld, vamarmálaráð- herra Bandaríkjamanna, segist trúa því að Norður-Kóreumenn ráði þegar yflr fáeinum kjarnorkuvopnum. Þetta kom fram á blaðamannafundi sem Rumsfeld hélt í Pentagon í gær í kjöl- far frétta um að Norður-Kóreumenn hefðu viðurkennt fyrir bandarísku samninganefhdinni, sem sótti þá heim fyrr í mánuðinum, að hafa haldið áfram að þróa kjamavopn á laun, þrátt fyrir að hafa undirritað sam- komulag árið 1994 um að hætta slíku í skiptum fyrir efnahagsaðstoð Banda- ríkjamanna. Bush Bandaríkjaforseti sagði þetta áhyggjuefni en bætti við að reynt yrði að leita diplómatískra leiða til þess að leysa málið. Aðspurður um muninn á þessu máli og íraks-málinu sagði Bush að þetta mál væri af allt öðrum toga. Scott McClellan, talsmaður Hvíta hússins, sagði þetta alvarlegt brot á samkomulaginu frá 1994 en tók undir orð Bush og sagði stjómvöld líta ógn- ina öðrum augum heldur en í írak. „Þetta er annar heimshluti og vand- inn allt annars eðlils. Við munum leita friðsamlegra lausna á því,“ sagði McClellan og bætti viö að Saddam Hussein væri ekkert annað en morð- óður einræðisherra með sjúklegar væntingar um að koma sér upp gjöreyðingarvopnum. Talsmaður utanriksráðuneytisins viðurkenndi í fyrradag að norður- kóresk stjómvöld hefðu viöurkennt að hafa unnið áfram að þróun kjarna- vopna fyrr í mánuðinum eftir aö James Kelly aðstoðarvarnarmálaráð- herra hefði komist yflr sönnunargögn um að Norður-Kóreumenn hefði orðið sér úti um auðgað úranium sem er lykilefni við framleiðslu kjarnavopna. Byggir Rumsfeld umrætt álit sitt á þessum upplýsingum og segist trúa að Norður-Kóreumenn hafi þegar komið sér upp litlu magni kjarnavopna eins og áður segir en einn embætismanna Hvíta hússins lét hafa eftir sér í gær að hann teldi að sprengjumar væru tvær. Þessar nýju fréttir hafa valdið miklum titringi í nágrannaríkjunum og hafa yfirvöld bæöi í Suður-Kóreu og Japan lýst áhyggjum sínum. REUTERSMYND Brytinn ákærður fyrir þjófnað Paul Burrell, fyrrum bryti Díönu prinsessu, er ákæröur fyrir aö hafa stoliö munum úr íbúö hennar. Hagsmunir prins- anna verndaðir Dómarinn í réttarhöldunum yfir fyrrum bryta Díönu prinsessu, sem er ákærður fyrir að stela hundruð persónulegra muna úr íbúð hennar, úrskurðaði í gær að saksóknara væri heimilt að halda sönnunum leyndum frá opnu réttarhaldinu til að vemda hagsmuni prinsanna Vil- hjálms og Harrýs. Lögmenn fjölmiðla höfðu farið fram á að öll gögn yrðu lesin upp- hátt í réttarsalnum. Brytinn Paul Burrell hefur neitað öllum ákærum um þjófnað á mun- um prinsessunnar skömmu eftir dauða hennar 1997. Dómarinn skipti um kviðdóm á miðvikudag og því fóru réttarhöldin aftur á byrjunarreit í gær. Jemenar vilja fá meiri aðstoð Abdul Qader Bagammal, forsætis- ráðherra Jemens, hvatti Banda- ríkjamenn og arabaríki í gær til að leggja Jemenum meira lið í baráttu þeirra gegn íslömskum harðlínu- mönnum sem fara huldu höfði í landinu. Bagammal sagði á ráöstefnu í París að stjómvöld i Jemen hefðu til muna hert alla öryggisgæslu í land- inu frá því sautján bandarískir sjóliðar fórust í sprengjutilræði við herskipið Cole í Adenhöfn fyrir tveimur árrnn. ForsætisráðherrEmn sagði að til- ræðið við franska olíuskipið undan ströndum landsins væri til marks um umfang baráttunnar. Jemen hefur haft orð á sér fyrir að vera griðastaður hryðjuverka- manna en stjómvöld em að reyna að hreinsa til í eigin ranni. REUTERSMYND Særðri stúlku komiö undan Félagi í Rauöa krossinum kemur ungri stúlku, sem særöist í átökum í borginni Medellin í Kólumbíu, undan. Aö minnsta kosti tíu manns týndu lífi I átökunum í Medellin og átján særöust. Kveikja átakanna var sú ákvöröun forseta landsins aö endurheimta fátækrahverfi úr höndum ólöglegra vopnaöra hópa sem berjast gegn stjórnvöldum. Frakkar jákvæðir í garð nýrrar ályktunar um írak Svo virðist sem Frakkar séu já- kvæðir i garð nýrra tillagna Banda- ríkjamanna um uppkast að ályktun Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna þar sem ekki er minnst á tafarlausa heimild til hemaðaraðgerða gegn írak, nema stjórnvöld í Bagdad komi í veg fyrir að vopnaeftirlits- menn SÞ geti sinnt störfum sínum. Frakkar hafa verið fremstir í flokki andófsmanna gegn fyrstu til- lögum Bandaríkjamanna. Sam- komulag viö þá myndi því greiða leiðina fyrir samþykkt ríkjanna fimmtán í Öryggisráðinu, hugsan- lega fyrir lok þessa mánaðar. Bandarísk stjórnvöld gera sér vonir um að dreifa uppkasti sínu að ályktun til fulltrúa Öryggisráðsins í dag eða fljótlega eftir helgi. „Frakkar geta til þessa sætt sig við breytingamar sem Bandaríkja- menn hafa gert,“ sagði stjómarer- indreki hjá SÞ í gærkvöld. Hann REUTERSMYND Hlustar af athygli Sendirherra íraks hjá SÞ, Mo- hammed Aldour, punktar hjá sér at- riöi úr ræöu sendiherra Bandaríkj- anna í umræöum um irak á fundi Ör- yggisráðsins í gær. sagði aö samningaviðræður ráða- manna í Paris og Washington stæðu þó enn yfir. Vegna mikillar andstöðu víðs vegar um heiminn ákváðu Banda- ríkjamenn að breyta lykilatriðum fyrra uppkasts síns að ályktun þar sem hvaða aðildarríki SÞ sem er var heimilað að beita öllum tiltæk- um ráöum ef írakar reyndust hafa brotið af sér. Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði að ný ályktun kæmi þó ekki í veg fyrir að Banda- ríkjamenn gætu farið með her á hendur Irökum. Tillögur Bandarikjamanna gera ráð fyrir að Hans Blix, yfirmaður vopnaeftirlitssveita SÞ, tilkynni þegar í stað ef írakar standa ekki við skilyrði sem þeim eru sett í af- vopnunarmálum, að því er fram kemur í gögnum sem Reuters-frétta- stofan hefur undir höndum. NOTAÐAR VIIMNUVÉLAR Abu Bakar Bashlr. Stjórnvöld lofa aðgerðum gegn hryðjuverkunum Stjómvöld i Malasiu hafa látið und- an alþjóðlegun þrýstingi í kjölfar sprengjuárásarinnar á Balí á laugar- dagskvöldið og lofað auknum og skjót- um aðgerðum gegn hryðjuverka- mönnum í landinu, sem þegar muni verða sýnilegar í dag. Að sögn talsmanna stjómarinnar hefur þingstuðningur verið tryggður fyrir því að aðgerðimar geti þegar hafist og mun Megawati Sukarnoputri forseti undirrita neyðartilskipun þess efnis strax í dag. Að sögn lögregluyfirvalda hefur harðlínuklerkurinn Abu Bakar Bas- hir, sem grunaður er um að vera helsti leiðtogi Jemaah-samtakanna, sem talin eru hafa staðið að Balí-árás- inni, þegar verið boðaður til yfir- heyrslu á laugardag þrátt fyrir að hafa neitað öllum ásökunum um tengsl við hryðjuverkamenn. Tl-018 Massey Ferguson 860 traktorsgrafa, 80 ha. skotbóma, 60 cm bachoskófla, 5300 vst. Ingvar Helgason hf. VÉLADEILD Tenet varar við aukinni ógn George Tenet, yfirmaður banda- rísku leyniþjónustunnar, CIA, varaði í gær bandarisku þjóðma við aukinn hættu á alvarlegum hryðjuverkum og sagði ógnina ekki minni en fyrir hryðjuverkaárásirnar 11. september. Þetta kom fram þegar Tentet sat fyrir svörum hjá bandarískri þing- nefnd í gær, þar sem hann var spurð- ur spjörunum úr varðandi ásakanir um það að CIA hafi ekki tekið mark á endurteknum viðvörunum um áður- nefnd hryðjuverk. Hann viðurkenndi viss mistök en varði öflugt starf CIA gegn hryðju- verkum og notaði um leið tækifærið til þess að vara þingið við yfirvofandi hættu. „Þeir hafa endurskipulagt sig og þeir munu láta til skarar skríða fyrr en seinna,"' sagði Tenent og minnti á nýlegar hótanir al-Qaeda- samtakanna um að ráðast gegn bandarískum hagsmunum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.