Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2002, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2002, Qupperneq 18
18 FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2002 Tilvera DV Alþjóðavika hefst í Kópavogi í dag: Eg var að leita frelsis segir Baltasar Samper, verndari vikunnar Aðalvandamálið hjá mér er að ég veit ekki hvort ég á að segja „við ís- lendingar" eða „við útlendingar"! segir Baltasar Samper myndlistar- maður og hlær við en Baltasar er vemdari alþjóðavikunnar sem hefst í Kópavogi í dag. Hann kom hingað frá Spáni fyrir rúmum 40 árum og hefur skotið rækilega rótum. „íslendingar furða sig stundum á því að ég skuli vera svona ánægður að búa hér en syngja svo sjálfir ættjarðarsöngva þar sem þeir dásama landið og frost- ið og funann," segir listamaðurinn brosandi. Enginn gat sér um frjálst höfuð strokið Margt hefur breyst í íslensku sam- félagi frá því áriðl961 þegar Baltasar steig hér fyrst á land. Þá voru fáir út- lendingar búsettir á íslandi og hann kveðst hafa verið annar Katalóníubú- inn sem hér settist að. Þótt Baltasar hafi fljótlega eftir komuna hingað hitt konuna í lífi sínu, Kristjönu Samper, þá var það ekki hún sem dró hann hingað í upphafi. „Ég var að •** leita frelsis," segir hann. Stjóm Frankós var þannig að enginn gat sér um frjálst höfuð strokið og lögreglan var alls staðar. Við Kristjana fórum til Jerúsalem fyrir tveimur og hálfu ári og ástandið þar þá minnti mig mjög á aðstæður í Barcelóna á mín- um unglingsárum. Ails staðar voru hermenn, gráir fyrir jámum og aö sumu leyti vora Katalónar þá eins og Palestínumenn síðar. Þeir máttu ekki tala sitt tungumál né fara frjáls- ir feröa sinna.“ v\ Eitt af því sem Baltasar segir erfitt við að vera langt frá sínu uppruna- landi er aö tengslin rofna við skólafé- laga og aðra samferðamenn í upp- vextinum og foreldrar og aðrir ætt- ingjar verða afskiptir. „Ég var svo heppinn að giftast góðri konu sem gaf mér hlutdeild í sinni fjölskyldu og vinum og það urðu vinir mínir. Þetta hlýtur að vera mun erfiðara fyrir þá útlendinga sem flytja hingað sem hjón eða að minnsta kosti að taka lengri tíma fyrir þá að samlag- ast íslendingum og eignast góða vini meðal þeirra," segir hann. Nafnalögin voru vanviröing Baltasar segir fáar hindranir hafa mætt sér fyrst þegar hann kom til DV-MYND ÞOK Listamaðurinn “Þiö urðuð íslendingar af því pabbi ykkar og mamma áttu stundargaman en ég valdi það, “ segir Baltasar um muninn á okkur innfæddum íslendingum og honum. landsins og hann hafi strax fengið pláss á togara og síðan síldarbát. „Samt var það þá eins og nú að mað- ur gat ekki fengið atvinnuleyfi nema hafa dvalarleyfi og ekki dvalarleyfi nema hafa atvinnuleyfi sem auðvitað er fáránlegt. Þetta var samt aðailega á pappíranum á þessum tíma,“ segir hann. Kerfið var þyngra i vöfum þegar kom að ríkisborgararéttinum. „Mér fannst alltaf ranglátt að Norður- landabúar þyrftu að búa mun styttra í landinu til að mega skrifast íslend- ingar en þeir sem komu sunnar úr álfrnmi og lögin um að fólk yrði að leggja niður skímamöfnin og taka upp íslensk nöfn voru mikil vanvirö- ing við það. íslendingar nefndu allt íslenskum nöfhum þegar þeir komu til Kanada og sýna öfum og ömmum virðingu með því að skíra bömin eft- ir þeim. Ég varð hins vegar að skipta um nafn og skrifast Davíð á tímabili. Það fór mjög illa í mig. Mér fannst eins og verið væri að svipta mig trúnni eða öðrum persónulegum gild- um. Það varð mikið baráttumál hjá mér að halda nafninu mínu enda var ég þá orðinn þekktur sem listamað- urinn Baltasar og bömin mín voru öll fædd og skrifuðust Samper. Allt í einu lentu þau í að skrifa sig Davíðs- böm og það var ekki gert án tára. Nú Bíógagnrýni ffl wKKmmmmœm Regnbogtnn/Biófélagið 101 - Hljóðlát sprenging Leikur að hlutum Hljóðlát sprenging er heimildar- mynd um Magnús Pálsson, einn mesta og framlegasta listamann þjóðarinnar. Magnús hefur alltaf farið eigin leiðir í listsköpun sinni hvort sem það er í myndlist, töluðu máli eða tónlist. Það tók Þór Elís Pálsson, leikstjóra myndarinnar, og Gunnar J. Ámason, sem skrifaði handritið ásamt Þór og samdi þular- texta, tíu ár að fullgera myndina. Og það er rétt sem Þór sagði í aðfar- arorðum að sýningu myndarinnar að þeim veitti ekki af þessum tíma NOTADAR VINNUVELAR T6-001 Rat Benatti traktorsgrafa, 80 ha. skotbóma, 4 skóflur. Ingvar Helgason hf. VÉLADEILD þó lagt hafi verið af stað með styttri tíma í huga. Ástæðan er sýnileg, Magnús er ávallt að endumýja sig, koma meö nýjar hugmyndir og hef- ur kannski aldrei verið jafn ferskur og nú eins og kemur fram á sýningu hans i Gerðarsafni á þessu ári, en myndin hefst á myndskeiðum um þessa sýningu og hugleiðingum hans um hana. Magnús á að baki ákaflega fjöl- breyttan listamannsferil. Hann var einn aðalþátttakandinn, bæði sem hugmyndasmiður og lærimeistari, í þeim umbreytingum sem áttu sér stað á sjöunda áratugnum í íslensku listalífi og allar götur síðan hefur Magnús þróað á persónulegan hátt hugmyndalega listsköpun þar sem hefðbundin landamæri milli list- greina eru óljós. Það sem gerir Magnús að heill- andi verkefni fyrir kvikmyndagerð- armenn er hversu myndrænn hann er í list sinni. Við eram að fylgjast með honum í myndmáli sem lista- manni allt frá því hann hélt sýn- ingu á sjöunda áratugnum og þar til nú. Og ekki í eitt einasta skipti má sjá endurtekningu hjá honum. Þá hefur hann mikinn og góðan húmor sem bæði birtist í myndum og texta, Magnús Pálsson Frumlegur listamaður með fullt af húmor. húmor sem gerir Hljóðláta spreng- ingu mun skemmtilegri en flestar aðrar kvikmyndir um myndlistar- menn. Þór Elís og Gunnar hafa lagt höf- uðáherslu á listamannsferil Magn- úsar og þegar fylgst er svona vel með Magnúsi í gegnum list hans þá er ekki laust við að það hefði mátt vera meira kjöt á beininu um hann sjálfan og viðhorf hans til ýmissa mála fyrir utan listina, fá innsýn loksins er fólki af erlendum uppruna frjálst að nota nafniö sitt hér á landi sem er hreint mannréttindamál. Ef- laust lenda margir útlendingar sem koma hingað í mun erfiðari aðstæð- um en þetta mál skapaði samt and- lega pressu á mér,“ segir Baltasar. Valdi aö vera íslendingur Þrátt fyrir þetta mótlæti segist Baltasar Samper ákaflega sáttur við ísland og íslendinga og segir í lokin að munurinn á sér og innfæddum sé ljós. „Þið urðuð íslendingar af því pabbi ykkar og mamma áttu stundar- gaman en ég valdi það!“ kGun. Hilmar Karlsson skrifar gagnrýni um kvikmyndir. inn í manninn sjálfan og einkalíf hans. Það eina sem kemur fram í þeim efnum er að hann hefur átt tvær eiginkonur, átti fimm böm með fyrri konu sinni og einn son með seinni eiginkonu sinni. Eina fjölskyldutengda myndskeiðið í myndinni er af honum með yngsta syni sínum. Viðmælendur í mynd- inni era einnig eingöngu fólk sem hefur tengst honum í gegnum list- ina. Þar kemur að vísu fram hversu hugmyndaríkur og einstakur kenn- ari hann var, en fátt annað um manninn sjálfan. Hljóðlát sprenging ber það með sér að vera gerð fyrir sjónvarp og er ég ekki frá þvi hún njóti sin betur þar. Það er þó sjálfsagt aö hvetja alla þá sem hafa áhuga á frumlegri og áhugaverðri list að sjá hana. Það verður enginn fyrir vonbrigðum. Magnús Pálsson er maður sem allir fá áhuga á eftir að hafa séð mynd- ina. Hllmar Karlsson Lelkstjórn og kllpping: Þór Elís Pálsson. Handrlt: Gunnar J. Árnason og Þór Elís Pálsson. Þulartextl: Gunnar J. Árnason. Kvikmyndataka: Haraldur Friöriksson. Hljóöupptaka: Pétur Einarsson og Óskar Eyvindur Arason. Samsetning: Sigríöur Bergsdóttir. The Zookeeper HHh í felum The Zookepper gerist á Balkanskaga með- an á stríðinu stóð og Júgóslavia var að gliðna í srmdur. Aðalpersónan er dýragarðsvörður- inn Ludovic, fyrr- um kommúnisti, sem á sér fortíð sem ekki þolir dagsljósið. Hann sér hag sinn í að láta fara lítið fyrir sér. Þegar árásarsveitir nálgast yfirgefa allir dýragarðinn. Ludovic verður eflir ásamt einum öðrum verði sem fljótt er drepinn. Það lendir því á Ludovic að passa upp á að dýrin haldi lífi en fæða er af skomum skammti. Hann kann vel við einsemdina og er því lítið hrifmn þegar ungur drengur birtist. Sá hafði orðið vitni að því þegar faðir hans var drepinn og þar sem hann er mikill dýravinur leitar hann skjóls hjá dýrun- um. Dag einn hverfur drengurinn, en þó aðeins stutta stund. Hann kemur aftur með móður sína sem, ólíkt Ludovic, er á flótta undan hemum. Myndin lýsir síðan að mestu samband- inu milli þessara þriggja einstaklinga og hvemig tortryggni verður að vin- áttu. Eins og oft er um austantjalds- myndir þá er The Zookeeper þung í vöfum, líður áfram í hægagangi og er ekkert gert til að létta á öllu því tilfinn- ingaflóði sem við verðum vitni að. Hún er samt um leið áhrifamikil lýsing á samfélagi sem hefur gengið sér til húð- ar og skilur eftir villuráfandi einstak- linga sem eiga hvergi heima. Sam Neil er leikari sem alltaf má treysta að standi fyrir sínu og hann sýnir hversu hann er megnugur í erfiðu hlutverki, passar vel að ofleika ekki þegar dram- að er mest. -HK Útgefandi: Góöar stundir. Leikstjóri: Ralph Ziman. Bretland/Tékkland/Hol- land, 2001. Lengd: 103 mín. Leikarar: Sam Neil, Gina McKee, Om Puri og Javor Loznica. Bönnuö börnum innan 12 ára. Dödlig Dríft HHH Löngun til aö drepa Sænska kvik- myndin Dodlig drift er uppfull af góðum hugmynd- um og hefði getað orðið sakamála- mynd í fremsta flokki hefði úr- vinnslan verið góð og sögusviðið verið þrengra. Það er of mikið að gerast sem erfitt er að útskýra og ekki vinnst tími til. Myndin hefúr mjög áhugavert upp- haf. Sögumaðurinn er maður sem hef- ur mikla löngun til að drepa. Hann lýs- ir fýrir okkur tilfinningum sínum bæði fyrir og eftir fyrsta morðið og við vit- um að hann á eftir að drepa aftur. Með- an á þessu stendur fýlgjumst við með tveimur mönnum. Annar þeirra er morðinginn sem hefur haldið uppi samræðum við áhorfandann, hinn er það ekki. Það kemur svo fljótt í ljós hver er morðinginn. Það vill bara svo til að hinn aðilinn, sem er lögreglumað- ur og hefúr átt við geðræn vandamál að stríða, er á staðnum þegar líkið finnst. Morðinginn, sem ekki nægir að myrða vill einnig leika sér og kemur því svo fyrir að lögreglumaöurinn fmn- ur einnig næsta lík og nú fara augu fé- laga lögreglumannsins óhjákvæmilega að beinast að honum. Hann á jú við geðræn vandamál að stríða, sem eru af- leiðingar þess að hann kennir sjálfum sér um dauða eiginkonu sinnar. Dodlig drift inniheldur mörg góð at- riði en er í heildina laus í rásinni og flakkar óskipulega úr einu í annað. Að- alleikaramir, Mikael Persbrandt og Stefan Sauk halda okkur við efhið með sterkum og góðum leik. -HK Útgefandi: Myndform. Leikstjóri: Rolf Björlind. Svlþjóö 2000. Lengd: 105 mín. Lelkarar: Mikael Persbrandt, Stefan Sauk og Kjell Bergquist. Bönnuö börnum innan 16 ára. %x Dödlig Orift

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.