Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2002, Síða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2002, Síða 21
21 FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2002 DV Tilvera Chuck Berry 76 ára Rokkarinn frægi, Chuck Berry, á afmæli i dag. Hann fæddist i St. Louis. Eftir að hafa setið í fangelsi smá- tíma 18 ára gamall fór hann að pikka á gítar og komst fljótt upp á lagið. í fyrstu lagði hann fyrir sig blús, en þegar rokkið hélt inn- reið sína breytti hann tónlist sinni. Hann var orðinn þrítugur þegar fyrsti smellurinn frá honum, Maybeline, kom út. I kjölfarið fylgdi hvert snilld- arlagið af öðru. Chuck Berry er enn að og segir sjáifur í ferskeytlu: While I’m still kickin’ / I’m gonna keep pickin’ my tunes / I love what I’m doing / I hope it don’t end too soon. Gildir fyrir iaugardaginn 19. október Vatnsberlnn (20. ian.-i8. fehr.r J-k Dagurinn verður róleg- ur og þú færð næði til g*J8 að hugsa um næstu daga. Hugaðu að pen- ingamálum. Flskamlr (19. febr.-20. mars): «Þér er fengin einhver ábyrgð á hendur í dag. Þú skalt vera skipu- lagður svo að þú drag- ist ekki aítur úr. Hrúturlnn . mara-19. aprill: . Þó þú heyrir orðróm 'um einhvem sem þú þekkir ættirðu að taka honum með fyrirvara. Happatölur þínar era 5, 19 og 23. Nautið 120. april-20. mait: Vertu þolinmóður við yngri kynslóðina og leyfðu öðrum að njóta ____ sin. Kvöldið verður líf- legt og eitthvað kemur þér á óvart. Tvíburarnir (21. maí-21. iúní): Þú þarft að vera mjög 'skipulagður í dag til að missa ekki tökin á verkefnum þínum. Það borgar sig ekki að taka áhættu þessa dagana. Krabblnn (22. iúní-22. iúii); Þú flnnur fyrir áhuga i hjá fólki í dag og ættir ' að nýta þér hann óspart. Vertu óhrædd- ur við að sýna tilfinningar þínar. i viuuidniii íz. Uónlð (23. iúlí- 22. ágúst): . Ekki einbeita þér of mikið að smáatriöum, þú gætir misst sjónar Jggj á aðalatriðunum. Vinir þínir þurfa meiri athygli. Mevian (23. áeúst-22. sent.l: Seinkanir valda því að þú ert á eftir áætlun í 'ludag og það kemur sér * f illa. Tillitssemi borgar sig. Happatölur þínar eru 8,13 og 24. Vogin (23. seot.-23. oKt.l: J Þú verður að sætta þig við takmörk annarra Vog mátt ekki gera of miklar kröfúr. Hafðu þetta hugfast í dag. Sporðdrekinn (24. okt.-2l. nóv.): WjSSSM Eitthvað nýtt vekur \ \ áhuga þinn snemma \\ \J)dags og hefur truflandi * áhrif á vinnu þína það sem eftir er dagsins. Bogmaðurinn (22. n6v.-2l. des.l: SViðskipti ganga vel í Idag og þú átt auðvelt með að semja vel. Fjöl- skyldan er þér ofar- lega í huga, sérstaklega samband þitt við ákveðna persónu. Steingeltin (22. des.-19. ian.t Þú verður að gæta þess að særa engan með áætlunum þínum. Þó að þú hafir mikið að gera verður þú að taka tillit til fólksins í kringum þig. Lesiö í hús Bæjarlind 4 • E01 Kópavogur • Sími 544 5514 Allir íþráttaviáburdir í buinni á risaskjám. Pool. Góður matseðill. Tökum að okkur hópa, starfsmannafálög. Stórt og gott dansgólf. ^ /\ Fyrsta pósthúsið Það er útbreiddur misskilningur að Pósthússtræti dragi nafn sitt af pósthúsinu sem við, Reykvíkingar á miðjum aldri, nefnum gamla póst- húsið, þ.e. Pósthússtræti 5, á homi Austurstrætis og Pósthússtrætis. Stræti pósthúsanna Við stofnun landshöfðingjaemb- ættisins 1872 var jafnframt stofnað póstmeistaraembætti hér á landi. Fyrsti póstmeistarinn átti heima í timburhúsi við strætið sem þá var fljótlega farið að kenna við hús hans. Pósthústræti dregur því nafn sitt af húsi sem gamla fólkið í gamla daga nefndi gamla pósthúsið, húsi sem var fyrsta opinbera pósthúsið á íslandi og sem stóð þar sem Hótel Borg er í dag. Þetta hús hefur tví- vegis verið rifið, flutt og byggt upp aftur. Við skulum nú rifja upp sitt- hvað úc langri sögu þess. Yfirkennari við Austurvöll Þegar Latínuskólinn var fluttur frá Bessastöðum til Reykjavíkur, 1846, var dr. Hallgrímur Scheving Hannesson skipaður yfirkennari skólans. Hann fékk útmælda bygg- ingarlóð á norðanverðri Smiðsbæj- arlóð 1847 og byggði þar íbúðarhús sama ár. Húsið var einlyft grindar- hús með risi og múrsteini hlaðið í grindina. Það var borðaklætt og hellur á þaki þess. Þama átti Hall- grímur heima til dauðadags. Smiðsbæjarlóð dró nafn sitt af litlum torfbæ sem Bjarni G. Lund- berg járnsmiður hafði látið reisa fyrir austan Dómkirkjuna árið 1800 en sá bær var rifmn um 1820. Hallgrímur var sonur Hannesar Schevings Lárussonar, prests á Grenjaðarstöðum. Hann var mikill námshestur, lauk málfræðiprófum frá Kaupmannahafnarháskóla, fékk tvívegis verðlaunagullpening fyrir úrlausnir verkefna og varð doktor í heimspeki við Hafnarháskóla 1817. Hallgrímur hafði kennt við Bessa- staðaskóla frá 1810. Hann þótti af- burðalatínukennari og var settur rektor við Reykjavikurskóla í leyfi Sveinbjöms Egilssonar eftir pereat- ið 1850. Sama ár fékk hann lausn frá störfum fyrir aldurs sakir og lést áttræður að aldri, 1861. Fyrsti póstmeistarinn Árið 1865 eignaðist Ole P. Finsen hús Hallgríms. Hann stækkaði það töluvert, lengdi til norðurs og lét setja kvist á vesturhlið þess. Ole var sonur Ólafs Finsens, yfir- dómara í Landsyfirdómnum, sonar Hannesar Finnssonar biskups, en sonur Ole var Vilhjálmur Finsen, fyrsti ritstjóri Morgunblaðsins. Ole hafði verið verslunarstjóri hjá Waldemar Fischer í Reykjavik og stofnaði bóka- og pappírsverslun sem hann rak í húsinu en við stofn- un póstmeistaraembættisins varð hann fyrsti póstmeistarinn landsins og hafði þá póstafgreiðslu í norður- enda hússins. Eftir að Ole eignaðist húsið var það fyrst kallað Finsenshús en er hann varð póstmeistari leið ekki á löngu þar til húsið var nefnt Póst- húsið og strætið kennt við það. Ole var mikill áhugamaður um málefni bæjarins, sat m.a. í bygging- amefnd og í bæjarstjóm í tíu ár. Hann lést 1897 og skömmu síðar flutti pósturinn aðsetur sitt í gamla bamaskólahúsið sem síðar var lög- reglustöð um langt árabil. Thor Jensen Athafnamaðurinn frægi, Thor Jensen, flutti til Reykjavíkur 1901 og hóf þar mikla verslun i Godthaab, á horni Austurstrætis og Pósthússtrætis. Hann eignaðist gamla pósthúsið skömmu eftir alda- mót og bjó þar um skeið áður en hann flutti í sitt glæsilega einbýlis- hús, nú Fríkirkjuvegur 11, sem var fullgert 1908. Sum bama Thors eru því fædd í Póst- húsinu, s.s. Thor Thors sendiherra. Thor Jensen var einn eigenda Milljónafélagsins og skrifstofur þess vom þvi í húsinu um skeið. Síðan eignaðist húsið Carl Olsen stór- kaupmaður og bjó þar í nokkur ár. Þá voru skrifstof- ur Morgunblaðs- ins þar skamma hríð 1916 og versl- un Hjálmars Guð- mundsens. Hótel Borg Árið 1928 samþykktu byggingar- nefnd og bæjarstjóm teikningu af glæsilegu hóteli sem reisa átti í Reykjavík fyrir Alþingishátíðina. Hótelið skyldi standa þar sem gamla pósthúsið stóð. Það var ævintýra- maðurinn Jóhannes Jósefsson glímukappi sem reisti hið nýja hót- el en hann hafði farið skoðunarferð til útlanda til að kynna sér nýtísku hótelbyggingar. Og Jóhannes lét hendur standa fram úr ermum því hótelið stóð full- búið við Austurvöllinn sumarið 1930. Ekki fór á milli mála að Hótel Borg var fyrsta alvöru, nýtísku hót- elið hér á landi. Suður í Skerjafjörð... Er farið var að huga að byggingu Hótel Borgar hafði íslandsbanki eignast gamla pósthúsið. Jón Krist- jánsson nuddlæknir festi nú kaup á húsinu, lét rífa það og byggja það upp við Reykjavíkurveg í Skerja- firði. Þá voru gerðar nokkrar breyt- ingar á því. Fyrsta pósthúslð á íslandi, nú glæsilegt íbúöarhús að Brúnavegi 8 í Laugarásnum DV-MYND KJK Reykjavík. Þuríður nokkur Sigurðardóttir hafði bamaheimili í húsinu um skeið en síðan eignaðist Tómas Hallgrímsson bankamaður það. Hann átti húsið til 1941 er Hallur Hallsson tannlæknir eldri eignaðist það. Hann var nýfluttur í gamla pósthúsið er það þurfti að víkja fyr- ir Reykjavíkurflugvelli sem Bretar voru að leggja. ...og þaðan í Laugarásinn Hallur fékk nú lóð fyrir húsið í vestanverðum Laugarásnum. Enn var húsið rifið og byggt upp á nýj- um stað þar sem það stendur enn og sá breska setuliðið um alla verk- þætti. Nýja lóðin var nokkuð stór- grýtt en afar stór enda byggði Hall- ur yngri sér hús á lóðinni, Kleifar- veg 4. Gamla pósthúsið stóð eitt sér í brekkunni í nokkur ár en skömmu síðar komst það í alfaraleið er hafin var íbúðarbyggð í Kleppsholtinu. Enn breyttist húsið eftir flutninginn er hækkað var undir loft í stofu, byggð hliðarálma að austanverðu og Gamla pósthúslð á sínum upprunalega stað á þriðja áratug 20. aldar Skömmu síöar reis þar Hótel Borg en pósthúsiö fór suöur í Skerjafjörö. forskyggni við útidyr. Þá var húsið forskallað. Hallur tannlæknir eldri lést 1968 og nokkru síðar keyptu húsið hjón- in Hrafnhildur Tove Kjarval og Robin Lökken sem bæði eru leir- kerasmiðir og höfðu þar verkstæði. Hrafnhildur er dóttir Sveins Kjar- vals og sonardóttir Jóhannesar Kjarvals en móðir Hrafnhildar er Guðrún Hjörvar, dóttir Helga Hjörv- ar útvarpsmanns. Móðurbróðir Hrafnhildar, Tryggvi, fyrsti tölvu- fræðingur Landsbankans, keypti húsið með þeim og eignaðist síðan allt húsið er Hrafnhildur og Robin fóru utan í lok áttunda áratugarins. Húsið fært í fyrra horf Tryggvi seldi húsið 1982 tvennum hjónum og núverandi eigendum og íbúum þess, Nikulási Hall, eðlis- fræðingi og tölvufræðingi, og k.h., Áslaugu Helgadóttur grasafræðingi, og þeim Bergi Benediktssyni verk- fræðingi og k.h., Ragnheiði Þórar- insdóttur matvælafræðingi. Þau hafa sýnt þessu sögufræga húsi mikla ræktarsemi, létu gera allt húsið upp og færa það í sem upp- runalegast horf. Endurbyggingin tók um sjö ár og kostaði mun meira en að byggja nýtt hús. Múrinn var brotinn af og sett i staðinn stand- andi klæðning og seinni tima við- byggingin rifin og byggð að nýju en í sama stíl og húsið var áður. Áriö 1997 varð gamla pósthúsið 150 ára. Póstur og sími færðu þá eig- endum hússins fánastöng og eir- skjöld sem festur er á framhlið hússins. Þar kemur fram hvenær þetta gamla hús var fyrsta pósthús- ið á íslandi. Skömmu síðar var Póst- ur og sími lagður niður. Það var því ekki seinna vænna að heiðra minn- ingu gamla pósthússins sem Póst- hússtræti dregur nafti sitt af. -KGK < v k *■

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.