Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2002, Side 26
26
FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2002
Gerrard
Liverpool varö fyrir miklu áfalli á
miövikudagskvöldiö þegar einn af lykil-
mönnum liðsins, Steven Gerrard,
meiddist illa á mjööm í landsleik Eng-
lendinga og Makedóíumanna.
meiddur
Líklegt þykir að Gerrard missi bæði
af leik gegn Leeds í ensku úrvalsdeild-
inni um helgina og leik gegn Spartak
Moskvu í Rússlandi í meistaradeildinni
á þriðjudaginn. -ósk
Hamar auðveldlega
áfram gegn Val:
létt
æfing
Þetta var aldrei spurning um
hvemig leikurinn færi heldur að-
eins hve stór sigur Hamars yrði.
Valsmenn höfðu aldrei roð við
þeim, þó að þeir næðu að saxa lít-
ils háttar á þá í fyrsta leikhluta,
náðu að minnka muninn i tvö
stig en síðan ekki söguni meir.
Hamarsmenn náðu mest þrjátíu
og tveggja stiga mun, staðan í
hálíleik var 65-49, Hamar í vil.
„Fínn æfingarleikur," sagði
Bergur Emilsson, þjálfari Vals,
er DV-Sport ræddi við hann að
leik loknum.
„Þeir voru alitof hraðir fyrir
okkur, þeir eru með mjög hratt
lið og við náðum ekki að halda í
við þá, fáliðað lið, margir meidd-
ir, en það er engin afsökun, við
ætluðum að nota þennan leik vel,
við vissum að þetta yrði erfítt, en
ég sá jákvæöa hluti í þessu. Ham-
arsliðið er með góða leikmenn og
Kaninn hjá þeim er að minu mati
sá besti á landinu og eitt af þeim
stærri nöfnum sem komið hafa
hingað. Hann er gríðalega öflug-
ur og hann á eftir að hjálpa þeim
mikið i vetur. Kaninn hjá okkur
hefur verið að vaxa, hann var
ekki í góðri þjálfun í fyrstu leikj-
unum en þetta er allt að koma og
við verðum tObúnir er við mæt-
um KR í næsta leik,“ sagði Berg-
ur að lokum.
„Við vorum tilbúnir í þetta,
þeir eru kannski ekki besta liðið
á landinu, við keyrðum hratt á
þá og þá brotnuðu þeir. Við vor-
um að hafa gaman af þessu, allir
fengu að spila og allir stóðu sig
vel, þetta er það sem við höfum
veriö gera á æfingum, ná liðinu
saman, og þetta lítur vel út,“
sagði Pétur Ingvarsson, þjálfari
Hamars. -EH
Hamar-Valur ..........H7-95
Stig Hamars: Robert O’Kelly 30,
Svavar Birgirsson 19, Gunnlaugur Er-
lendsson 17, Ægir Gunnarsson 14,
Marvin Valdimarsson 10, Pétur Ingv-
arsson 10, Svavar Pálsson 9, HaUgrím-
ur Brynjólfsson 4, Hjalti Pálsson 2,
Magnús Sigurðsson 2.
Stig Vals: Laverne Smith jr. 45, Ólaf-
ur M. Ægisson 24, Ragnar Steinsson
10, Ægir Hrafn Jónsson 9, Hinrik
Gunnarsson 7.
Hamar vann samanlagt, 233-193.
Njarövík-ÍS...............111-50
Stig Njarðvíkur: Halldór Karlsson
28, Ragnar Ragnarsson 17, Sigurður
Einarsson 16, Páli Kristinsson 16,
Ágúst Dearbom 13, Friðrik Stefánsson
8, Guömundur Jónsson 5, Amar
Smárason 4, Pete Philo 4.
Stig IS: Hermann Birgisson 20,
Leifur Ámason 9, Þór Ámason 6, Ámi
Ámason 4, Kristinn Harðarson 4,
Stfgur Þórhallsson 3, Aðalsteinn
Pálsson 3, Guðni Einarsson 1.
Njarövík vann samanlagt, 183-122.
Tindastóll-Snæfell :.......85-82
Stig Tindastóls: Clifton Cook 21,
Murice Carter 21, Kristinn Friöriks-
son 17, Michail Andropov 8, Óli Barð-
dal 8, Axel Kárason 8, Helgi Rafn
Viggósson 2.
Stig Snæfells: Hlynur Bæringsson 27,
Lýður Vignisson 20, Jón Ólafur
Jónsson 12, Helgi Guðmundsson 11,
Clifton Bush 10, Daði Sigþórsson 2.
Tindastóll vann samanlagt, 167-153.
^^16-liða úrslit í Kjörísbikar karla:
Oruggir
sigrar
- Njarðvík og Tindastóll áfram
Þrír leikir fóru fram í 16-liða úr-
slitum Kjörísbikars karla í
körfuknattleik í gærkvöld. Þetta
voru seinni leikir liðanna og
tryggðu Njarðvík, Hamar og Tinda-
stóll sér sæti í 8-liða úrslitum en að
auki hafa KR-ingar og Keflvíkingar
tryggt sér sæti í 8-liða úrslitum, KR
án keppni þar sem Stjarnan dró sig
úr keppni og Keflavík eftir sigurfór
á ísafjörð um síðustu helgi.
í kvöld fara fram þrír leikir í
Kjörísbikamum. Grindavik tekur á
móti Skallagrími í Grindavík, ÍR
sækir Breiöablik heim í Smárann
og Haukar fá Þór í heimsókn á
Ásvelli. Allir leikimir þrír heíjast
kl. 19.15.
Stólarnir í kröppum dansi
Það var hörkuleikur sem fram fór
á Sauðárkróki í gærkvöld í Kjörís-
bikarnum. Snæfellingar mættu
mjög ákveðnir til leiks og voru
greinilega ákveðnir í því að vinna
upp níu stiga forskotið sem Tinda-
stófl hafði eftir fyrri leikinn fyrir
vestan. Lengi vel voru þeir með
þetta takmark innan seilingar en
meö góöum leik á síðasta þriðjungi
leiksins tókst Tindastólsmönnum að
snúa taflinu sér í vil og eftir hörku-
spennu á síðustu fjórum mínútum
leiksins tókst heimamönnum að
knýja fram sigur í leiknum og þar
með áframhald í keppninni.
SnæfeU byrjaði betur í gær og var
mun betra liðið í fyrri hluta leiks-
ins. Hlynur Bæringsson fór fyrir
sínum mönnum og var kóngur á
vellinum á þessum tíma.
Lýöur Vignisson var líka mjög
heitur í þriggja stiga skotunum og
þessir tveir voru að skora bróður-
partinn fyrir gestina. Tindastóls-
menn áttu hins vegar í erfiðleikum,
sóknin gekk Ula og SnæfeUingar
voru sterkari undir körfunni á báð-
um endum. SnæfeU náði mest 15
stiga mun í öðrum leikhluta og í
hálfleik var staðan 42-30 þeim í vfl.
Fram í miðjan þriðja leikhluta
hélst þessi munur, en þá lagaðist
vörnin hjá Tindastóli og þeir Clifton
Cook og Kristinn Friðriksson fóru í
gang. Munurinn minnkaði jafnt og
þétt og hún var mikUvæg karfan
sem Kristinn skoraði í hraðaupp-
hlaupi á síðustu mínútu leikhlutans
og lagaði stöðuna í 54-58.
Strax í byrjun seinasta leikhluta
komust Tindastólsmenn yfir, 59-58,
en Snæfell svaraði með góðum
leikkafla og komst yfir að nýju,
67-59. Tindastólsmenn skyrptu þá í
lófana og breyttu stöðinni í 71-69.
Eftir það var jafnt eða TindastóU að-
eins yfir og lokatölur urðu 85-82 fyr-
ir Tindastól.
Clifton Cook var bestur i liði
Tindastóls, Kristinn drjúgur, sem
og Maurice Carter, Óli Barðdal og
Axel Kárason.
Hjá SnæfeUi var Hlynur Bærings-
son bestur á veUinum. Lýður átti
mjög góðan leik og þeir Bush, Jón
Ólafur Jónsson og Helgi Guðmunds-
son stóðu fyrir sínu.
Stórsigur Njarövíkinga
Njarðvíkingar tryggðu sér sæti í
8-liða úrslitum Kjörísbikarsins er
þeir sigruðu Stúdenta 109-51 í síðari
leik liðanna í Ljónagryfjunni í gær-
kvöld.
Fyrri leik liðanna lauk með jafn-
tefli, 72-72, og Njarðvíkingar af-
greiddu leikinn á fyrstu 10 minút-
um leiksins því staðan eftir fyrsta
leikhluta var 32-10. Heimamenn
héldu áfram að bæta í með stífri
pressuvöm og höfðu 53-25 forystu í
hálfleik. BUiö breikkaði svo áfram
er leið á leikinn og eftir 3. leikhluta
Njarðvíkingurinn Siguröur Einarsson og Stúdentinn Kristinn Harðarson
berjast hér um boltann í leik iiöanna í gærkvöld. DV-mynd Víkurfréttir
var staðan orðin 79-44 og lokatölur mynda lék Pete PhUo aðeins fyrstu
urðu 110-51. Njarðvíkingar léku 7 mínútur leiksins.
mikið á ungu strákunum og tU að -ÞÁ/EÁJ
Ásgeir Guðnason meö rjúpur á Öxnadalsheiöinni en
margir veiöimenn hafa veriö þama. DV-mynd Ámi H.
Rjúpnaveiðin gengur rólega:
Ágæt veiði í
kringum Húsavík
Rjúpnaveiðitíminn hefur
núna staðið yflr í fjóra daga
og veiðimenn hafa farið víða
og labbað mikið. Á þessum
fjórum dögum hafa veiðst á
milli 1500 og 2000 þúsund fugl-
ar. En margir ætla að byrja
veiðitímann núna helgina og
fór fjöldi veiöimanna í morg-
un á rjúpnaslóðir.
„Veiðiskapurinn gengur
rólega, þetta eru engar stórar
tölur sem veiðimenn eru að
fá, góðir veiðimenn hafa ver-
ið aö fá 10-12 fugla,“ sagði Jó-
hann Vilhjálmsson, er við
heyrðum í honum í gærkvöld
og könnuðum stöðuna.
Feögar fengu 25 fugla
„Mest hafa veiðimenn ver-
ið að fá í kringum Húsavík og
nágrenni. Enn þá austar hafa
veiðimenn mest verið að fá 14
fugla. Ég heyrði af feðgum
sem fóru í Borgarfjörðinn og
þeir fengu 25 fugla, það þykir
vist gott þar,“ sagði Jóhann i
lokin.
„Það er rólegt núna á Öxar-
fjarðarheiðinni en þar hafa
margir verið að skjóta fyrstu
dagana sem má veiða. Rjúpan
dreifir sér rosalega," sagði
Árni Halldórsson, en hann
var á rjúpnaslóðum í gær
með fleiri veiðimönnum.
Við skulum aðeins kikja á
veiðitölur, þrír veiöimenn
fóru vestur í Dali og fengu 24
fugla, aðrir þrír fengu 8 fugla
á Bröttubrekkunni og síðan
fengu tveir á Holtavörðuheið-
inni 15 fugla. Á Öxarfjarðar-
heiðinni fengu tveir veiði-
menn 12 fugla.
-G.Bender