Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2002, Side 29
29
FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 2002
Hjörvar til Start
Markvörðurinn Hjörvar Hafliðason,
sem lék ellefu leiki með Val í 1. deild-
inni í sumar, hélt í gær til norska úr-
valsdeildarliðsins Start þar sem hann
verður til reynslu næstu tvær vikumar.
Hjörvar, sem er 22 ára, fer að
undirlagi Guðjóns Þórðarsonar,
núverandi þjálfara Start, og hefur
mikinn áhuga á því að komast að hjá
liði á erlendri grundu. -ósk
Howard Wilkirtson, knattspymu-
stjóri Sunderland, fær ekki eitt pund
til leikmannakaupa og þarf að selja
átta leikmenn til að rétta af bágan
fjárhag. Sunderland tapaði 2,7 millj-
ónum punda á síðasta ári og eftir að
framherjarnir Tore Andre Flo og
Marcus Stewart voru keyptir til liðs-
ins ekki alls fyrri löngu eru sjóðir fé-
lagsins uppurnir.
Haröjaxlinn Julian Dicks, sem var
fyrirliði West Ham til margra ára,
segir að Roy Keane hafl verið hepp-
inn að sleppa með fimm leikja bann
fyrir gjörðir sínar gagnvart Norð-
manninum Aif Inge Haaland. Dicks,
sem kallaði ekki allt ömmu sina í
þessum efnum, sagði að Keane hefði
átt að fá lifstíðarbann fyrir að reyna
að meiða kollega sinn og sagði jafn-
framt að enn merkilegra væri að
hann skyldi viðurkenna það opinber-
lega.
Svo gœti farió að vonir Austurríkis-
manna um að halda Ólympíuleikana
áriö 2010 fari út um gluggann áður en
umsókn þeirra þar af lútandi verður
tekin fyrir. Ástæðan er sú að styrkur
austurríska flughersins þykir ekki
upp á marga fiska og setur Alþjóða
Ólympiunefndin spurningarmerki
við getu hans til að verja flughelgi
landsins meðan á leikunum stendur.
Austurríska stjórnin hefur ekki end-
umýjað flugflota hersins i langan
tima og að átta árum liðnum verða
þær þotur sem nú eru til staðar
hvorki fugl né fiskur.
italskir fjölmidlar krefjast nú þess
að Giovanni Trappatoni, landsliðs-
þjáifari Ítalíu, segi af sér eftir smán-
artap gegn Wales á miðvikudaginn.
Þetta er ekki í fyrst sinn sem ítalskir
fjölmiðlar krefjast afsagnar
Trappatoni en þeir vildu fá höfuð
hans á fati eftir að liðið datt út í 16-
liða úrslitum í heimsmeistarakeppn-
inni í sumar. Trappatoni sjálfur læt-
ur sér þó fátt um finnast og segist
ekki ætla að hætta þar sem hann sé
með fullan stuðning ítalska knatt-
spymusambandsins.
Borötenniskappinn Guömundur E.
Stephensen lék með liði sínu B-72 frá
Osló í fyrrakvöld i annarri umferð
norsku úrvalsdeildarinnar í borð-
tennis gegn Kiu’land. Leikar fóra
þannig að B-72 sigraði með miklum
yfirburðum, 10-0. Guðmundur lék
mjög vel þar sem hann vann tvo ein-
liðaleiki 3-1 og 3-0. Guðmundur sigr-
aði að auki í tvíliðaleik þar em hann
lék með Dananum Joakim Sorensen.
Framherjinn Antonio McDyess,
sem gekk til liðs við New York
Knicks frá Denver Nuggets i sumar,
mun ekkert leika með liöinu á kom-
andi tímabili eftir að hann braut á
sér hnéskelina á vinstra hné í æfmga-
leik síðastliðinn laugardag. Hann var
skorinn upp i gær og búast læknar
við að hann veröi orðinn heili eftir
ár. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
McDyess meiðist alvarlega en hann
spilaði aðeins tíu leiki með Denver
Niiggets vegna hnémeiðsla. McDyess
kom til New York í skiptum fyrir
Marcus Camby, Mark Jackson og val-
rétt á nýliöanum Nene HUario.
Gríska félagiö Panathinaikos hef-
ur rekið Portúgalann Fernando
Santos úr starfi sem þjálfari liðsins í
kjölfar verstu byrjunar liðsins í sög-
unni í grísku 1. deUdinni þar sem lið-
ið tapaði þremur fyrstu leikjum sin-
um. Santos, sem stýrði AEK Aþenu á
síðasta keppnistímabili, tók við af Úr-
úgvæanum Sergio Markarian en
hann hefúr verið orðaður viö starfið
á nýjan leUc. Yasminko Zelic og Jose
Rosario munu sjá um að stjóma lið-
inu tímabundið.
Þórsarar frá Þorlákshöfn unnu
góðan útisigur á Ármanni/Þrótti,
94-82, í LaugardalshöUinni í gær í 1.
deUd karla í körfuknattleik. Þór
leiddi 45-36 í hálfleik og náði mest 25
stiga forystu í seinni hálfleik.
Halldór Gunnar Jónsson var stiga-
hæstur hjá Þór með 33 stig, Birgir
Mikaelsson, þjálfari liðsins, skoraði
14 stig og Jason Harden var með 12
stig. Hjá Ármanni/Þrótti skoraði
Einar Hugi Bjarnason 27 stig, Leon
Purdue 24 stig og Halldór Úlriksson
skoraði 19 stig. Bæði lið hafa leikið
tvo leiki í 1. deUdinni í vetur og hafa
bæði unnið einn leik og tapað einum
leik. -ósk/ÓÓJ
- 4188 áhorfendur mættu aö meðaltali á landsleiki ársins
Þrátt fyrir auknar kröfur í ís-
lensku þjóöfélagi og meiri pressu á
íslenska karlalandsliðið í knatt-
spyrnu vantar þó nokkuð upp á að ís-
lenska þjóðin fjölmenni á leikina og
styðji við bakið á strákunum í að ná
þessum háu markmiðum.
4188 manns mættu að meðaltali á
Qóra heimaleiki ársins sem er lægsta
meðaltal á Laugardalsvellinum í heil
fimm ár eða fyrir uppgang íslenska
landsliðsins frá 1998. Aðeins þrjú ár
eru verr sótt á síðasta áratug og þetta
er þriðja árið í röð sem meðalaðsókn-
inni á landsleiki íslenska landsliðs-
ins á Laugardalsvöll hrakar.
Þessar tölur koma til þrátt fyrir að
miðar hafi selst upp á leikinn við
Skota en það var ekki uppselt á
neinn landsleik á Laugardalsveflin-
um í fyrra.
Aðeins 3513 manns mættu á 3-0
sigurleikinn gegn Litháum í fyrradag
og það þarf að fara heil fjögur ár aft-
ur í tímann til að finna verr sóttan
landsleik i undankeppni HM eða EM.
Það komu aðeins 2982 á fyrsta heima-
leik ársins sem var gegn Andorra og
3190 mættu á leikinn við Ungverja.
Besta aösóknin 1999
Besta aðsóknin á síðasta áratug
var 1999 þegar þrír landsleikir
trekktu að 17.504 manns eða 754 fleiri
en á fjóra leikina sem voru spilaðir í
ár. Meðalaðsóknin á þessa þrjá leiki,
sem voru aflir í undankeppni Evr-
ópumótsins, var 5.835.
Á næsta ári eru aðeins áætlaðir
tveir leikir eins og staðan er í dag.
„Risaleikur" gegn Þjóðveijum í októ-
ber og langþráður heimaleikur gegn
Færeyjum sem er ekki vináttulands-
leikur. Það má þá búast við að liðið
muni spila einhveija vináttuleiki en
allir fjórir útileikur islenska liðsins í
undankeppni EM fara fram á næsta
ári.
Stuðningur áhorfenda hlýtur að
vera eitt aö lykflatriðum í að ná
settum markmiðum og það er
vonandi að íslenska þjóðin fari að
vakna á ný og mæti á landsleiki
komandi árs af krafti. -ÓÓJ
Aðsóknarmestu
leikir síðustu 10 ár
Island-Svíþjóð (1994) ...... 14.361
Ísland-Frakkland (1998)...... 12.004
Ísland-Sviss (1995).......... 9.043
Ísland-Úkraína (1999) ........ 7.072
Ísland-Danmörk (2000)........ 7.072
Ísland-Skotland (2002)....... 7.065
ísland-Norður-lrland (2000) . . . 6.762
Island-Noregur (1997) ....... 6.323
Ísland-Tékkland (2001).......6.011
1994 og 1995 var leyft að selja i stæði
og gegn Frökkum 1998 vora settar
upp aukastúkur á völlinn.
Sven Göran Eriksson, þjálfari Englands:
Heldur tryggð
viö Seaman
- þrátt fyrir ítrekuð mistök markvarðarins
Sven Göran Eriksson, landsliðs-
þjálfari Englendinga í knatt-
spyrnu, ætlar að halda tryggð við
hinn aldna, taglhnýtta markvörð,
David Seaman, þrátt fyrir að mis-
tök hans hafi sennilega kostað Eng-
lendinga sigurinn gegn Make-
dóníumönnum í undankeppni EM
á miðvikudagskvöldið.
Makedóníumaðurinn Artim
Sakiri skoraði beint úr horn-
spyrnu og eru menn sammála um
að Seaman hafl ekki litið vel út
þegar boltinn sveif yfir hann.
Markinu svipaði mjög til marksins
sem Seaman fékk á sig gegn Brasil-
iu í heimsmeistarakeppninni þegar
Ronaldinho vippaði fyfir hann af
löngu færi og batt enda á þátttöku
Englendinga í keppninni.
Eriksson neitar hins vegar að
ásaka markvörð sinn.
„Því fer fjarri að Seaman hafi
misst sæti sitt í liðinu. Ég er ekki
þeirrar skoðunar í dag. Hann varði
einu sinni mjög vel í seinni hálf-
leik og bjargaði okkur þá. Horn-
spyrnan var frábær og David mis-
reiknaði boltann. Hún var mjög
fost en það er búið og gert. Auðvit-
að er leiðinlegt að fá svona mark á
sig en það skrifast frekar á óheppni
og góða spyrnu Sakiri,“ sagði
Eriksson í gær.
Eriksson sagði jafnframt að
Seaman hefði átt stórkostlegan fer-
il og jafnvel þó að hann væri orð-
inn 39 ára gamall þá væri enginn
markvörður sem kæmist með
tærnar þar sem hann hefði hælana
á Englandi.
„Ég á von á því að Seaman haldi
áfram að spila fyrir England því að
það væri mikifl missir að honum,“
sagði Eriksson við breska fjölmiðla
í gær. -ósk
David Seaman geröi enn ein mistökin í marki enska landsliösins í
fyrrakvöld og spurning hvort hann ætti ekki að hætta. Reuters
Áhorfendur á
Laugardalsvelli
síðustu tíu árin
2002 (4 leikir) .... 16.750 (4.188)
Island-Andorra .... 2.982
Island-Ungverjaland 3.190
Ísland-Skotland . .. 7.065
Island-Litháen 3.513
2001 (4 leikir) .... 18.226 (4.557)
Ísland-Malta 3.554
Ísland-Búlgaría . . . . 4.316
Island-Pólland 4.345
Ísland-Tékkland .. . 6.011
2000 (4 leikir) .... 16.750 (4.188)
Ísland-Malta 2.390
Ísland-Svíþjóö 5.169
Ísland-Danmörk ... 7.072
fsland-Norður-írland 6.762
1999 (3 leikir) . . 16.750 (4.188)
1998 (3 leikir) . . 16.750 (4.188)
1997 (4 leikir) . . 16.750 (4.188)
1996 (3 leikir) . . 16.750 (4.188)
1995 (3 leikir) . . 16.750 (4.188)
1994 (3 leikir) . . 16.750 (4.188)
1993 (4 leikir) . . 16.750 (4.188)
Ekki færri í 5 ár
kepprii í hverju orði
ISand í nokcs