Dagblaðið Vísir - DV - 18.10.2002, Síða 32
R BÍLAVIÐGERÐIR
H BÍLHÚSIÐ SmiSjuvegi 60 (Rauð gata) - Kópavogi
Allar almennar bílaviðgerðir
á öllum tegundum bifreiöa
Vönduö vinna - aöeins unnin af fagmönnum
Viðbótarlífeyrissparnaður
FRJALST, OHAÐ DAGBLAÐ
FOSTUDAGUR 18. OKTOBER 2002
Heilsugæslan á ísafiröi í uppnámi:
Fjórir af sex
læknum hætta
Algjört uppnám viröist fram undan
í heilsugæslumálum i ísafjarðarbæ, en
fjórir af sex læknum á heilsugæslu-
sviði Heilbrigðisstofnunarinnar í
bænum hafa sagt upp störfum og
hætta á næstunni, og enginn hefur
fengist í þeirra stað.
Af sex heilsugæslulæknum hjá
stofnuninni eru nú fjórir á ísafirði,
einn á Flateyri og einn á Þingeyri.
Heilsugæslustöðvunum i Súðavík og
Suöureyri er þjónað frá ísafirði. Yf-
irlæknir heilsugæslusviðs, Hall-
grímur Kjartansson, hættir 31. októ-
ber og á sama tíma lætur Guðni Á.
Sigurðsson á ísafirði af störfum fyr-
ir aldurs sakir, Kristin Theodóra
* Hreinsdóttir á Þingeyri fer í bams-
burðarleyfi og Andri Konráðsson á
ísaftrði hverfur á braut til sérnáms í
skurðlækningum. I desembermán-
uði verða þá aðeins eftir þeir Lýður
Ámason, læknir á Flateyri, og Ólaf-
ur Sigmundsson, læknir á ísafirði.
Heilsugæslulæknarnir segja upp
vegna óánægju með það misræmi sem
er á kjörum og starfsumhverfí heilsu-
gæslulækna, einkum þeirra sérfræð-
inga í heimilislækningum sem starfa
innan heilsugæslunnar, og annarra
lækna í landinu. Úrskurður kjara-
nefndar í málefnum heOsugæslulækna
um síðustu helgi breytir þar engu um,
heOsugæslulæknarnir telja sig ekki í
launabaráttu heldur réttindabaráttu
þar sem þeir vOja samræmhigu á kerfi
sjúkrahúslækna og heimOislækna.
Vandinn sé því heObrigðisyfirvalda
landsnis sem em með tvö kerfi í heO-
birgðisþjónustunni, annað fyrir sér-
fræðOækna en hitt fyrir heimOis-
lækna. Það bitni verst á þeim sem
þurfa á þjónustunni að halda. Þetta
kerfi hafi leitt tO þess að ungir læknar
velji frekar annað sémám en heimOis-
lækningar, s.s. skurðlækningar. -GG
DV-MYND ÞOK
Regnboginn rís
Leikarinn Stefán Karl Stefánsson hefur unniö þrekvirki á sviöi samfélagsmála á síöustu mánuðum og fyllt hvern
salinn af öörum um allt land þar sem fólk hefur kynnst raunum förnarlamba eineltis. Ný samtök gegn einelti,
Regnbogabörn, voru kynnt í gær á skólalóð í vesturbænum en þau veröa formlega stofnuö 9. nóvember. Tvö öflug
fyrirtæki leggja samtökunum liö, Búnaöarbankinn og Vífilfell og sjást forsvarsmenn þeirra, Árni Tómasson og
Þorsteinn M. Jónsson, hér hvor til sinnar handar Stefáni Karli. Og börnin eru vitaskuld ekki langt undan.
Síldardeila er
í uppsiglingu
í gær slitnaði upp úr viðræðum
Rússa, íslendinga, Færeyinga,
Norðmanna og Evrópusambands-
ins i St. Pétursborg um sameigin-
lega síldarkvóta landanna. MikU
óánægja var í hópi Færeyinga og
sömuleiðis í íslensku sendinefnd-
inni með afstöðu Norðmanna sem
kröfðust verulegrar aukningar á
sínum kvótum samhliða minnkun
á kvótum Færeyinga, Islendinga
og ESB. Lögðu Norðmenn einnig
til að rússneski kvótinn skyldi
vera óbreyttur. -HKr.
Ástand rjúpnastofnsins ekki hábölvað:
Drjúg veiði víða um land
segir Robert Schmidt rjúpnaskytta
SECURITAS
VELDU ÖRYGGI í STAÐ ÁHÆTTU!
Sími 580 7000 | www.securitas.is
Róbert Schmidt sem er þaulreynd
rjúpnaskytta sagöi í samtali við DV
í morgun að ástand rjúpnastofnsins
virtist ekki vera eins hábölvað og af
hefur verið látið. Hann hefur að
undanfórnu fengið fregnir víða af
landinu sem hann birtir á vefnum
sportbud.is. Hann sagðist t.d. hafa
verið að heyra af veiði á 60 rjúpum
á Grímstunguheiðinni fyrir norðan,
en sjálfur er hann að fara ásamt
fleirum norður í land tO veiða um
helgina.
Á Vestfjörðum hafa menn verið
að fá mjög misjafna veiði, aOt frá 5
tO 14 fugla eftir daginn. Þrír voru
með 36 rjúpur eftir fyrsta veiðidag-
inn og fregnir voru af tveim öðrum
með 26 fugla eftir daginn.
Á Norðurlandi segir Róbert að mest
veiði hafi verið hjá 4 mönnum sem
voru með 200 fugla sem þeir fengu
upp við jökul. Þá munu þeir hafa séð
„rjúpnafleka" í allt að 150-300 fugla
hópum sem voru mjög styggir. Aðrir
voru að fá frá 6 tO 20 fúgla.
Á Vesturlandi voru fregnir af
rjúpnaskyttum á Holtavörðuheiði.
112
EINN EINN TVEIR
NEYÐARLÍNAN
LÖGREGLA SLÖKKVILIÐ SJÚKRALIÐ
Aberandi bráð
Rjúpan er aö færa sig í vetrarskrúöa sinn og sést því vel á auöri jörð. Góö
veiöi er víöa þvert á mikla umræöu um aö stofninn sé í hættu.
Tveir menn fengu þar 44 fugla og
þrír fengu 60 fugla fyrsta daginn.
Aðrir voru aö kroppa frá 3 tO 15
fugla á svæðinu. Síðan hefur lítið
sést af rjúpu á Holtavörðuheiði.
Dræm veiði var í Borgarfirði og ná-
grenni. Tveir menn veiddu þó vel,
eða tæplega 50 fugla eftir daginn.
Á SnæfeOsnesi var fremur lítO
veiði, eða frá 3 tO 12 fuglum á mann
eftir daginn á auöri jörð. Rjúpurnar
virðast halda sig nokkuð ofarlega og
í stórgrýti. Þar var hún gríðarlega
stygg og erfitt að nálgast hana.
Á Austfjörðum fréttist af þekkt-
um skotveiðimönnum með hunda á
Fljótsdalsheiði í þoku. Fengu þeir
enga rjúpu fyrsta daginn. Svipaða
sögu er að segja um fjölmarga aðra
veiðimenn þar um slóðir. Á svokaU-
aðri Öxi voru menn að fá 4-15 fugla
og sumir meira.
Á Suðurlandi er fáar fréttir að
hafa enn sem komið er, annað en fá-
einar rjúpur fyrsta daginn á veiði-
menn.
Mönnum ber saman um að að-
stæður hafi verið rjúpunni í hag,
því fuglinn var styggur og mjög
dreifður. Ekki var gott að sjá hann
þar sem hann kúrði í stórgrýtinu.
-HKr.
I V
PB\R ERU BJARTIR
.SUMARHÚSUNUM!
Mikil ásókn í sumarbústaði á Þingvöllum:
14 milljónir fyrir ónýtt sumarhús
Menn á fasteignamarkaði segja að
mikill áhugi sé á sumarhúsalóðum
við ÞingvaUavatn, einkum í næsta
nágrenni ValhaUar en einnig við
Gjábakka. Peningamenn séu tObún-
ir að opna pyngjur sínar upp á gátt
bjóðist þeim fasteign á þessum stað.
Ný kynslóð lóðarhafa er óðum aö
setjast að við vatnið og nú síðast
keypti Kristján Gíslason fram-
kvæmdastjóri bústað, sem var að
hruni kominn, af Geir Viðari VO-
hjálmssyni sálfræðingi og fleiri og
hyggst byggja nýtt hús. Fyrir bú-
staðinn og aðstöðuna, lóðaleigu-
samning tO 10 ára, voru greiddar 14
miUjónir króna. Eigendur sjávarút-
vegsfyrirtækishis Vísis í Grindavík
eru sestir að í dýru sumarhúsi sem
reist var á rústum húss sem dæmt
var ónýtt.
Mörgum þykir elsti þjóðgarður
DVWYND GVA
Onýtt á vinsælum staö
Þaö hefur alltaf þótt flott aö búa í
þjóögaröi. Hér er bústaður á Þingvöll-
um sem var aö hruni kominn. Hann
var seldur á 14 milljónir, veröur rifinn,
og nýtt hús byggt í hans staö.
landsins rísa vart undir nafni. Þar
eru 93 sumarbústaðir á stórum, af-
girtum lóðum sem torvelda um-
gengni almennings um stór svæði.
Auk þess er bent á að bústaðaeig-
endur við vatnið fari um vatnið á
bátum sinum á sama tima og gest-
um er bannað að setja fram báta og
eru stöðvaðir af þjóðgarðsvörðum
sem benda á lög og reglur þjóðgarðs-
ins.
„ÞingveUir eru ekki þjóðgarður
samkvæmt strangasta skOningi
laga,“ segir Össur Skarphéðinsson,
alþingismaður og formaður Sam-
fylkingarinnar, í samtali við DV.
„Við búum við þau mistök fortíðar
að aUt of lengi var einstaklingum
hleypt inn í þjóðgarðinn með bygg-
ingar,“ segir Guðni Ágústsson land-
búnaðarráðherra en þeir Össur og
Guðni eru í ÞingvaUanefnd ásamt
Birni Bjamasyni sem er formaður
nefndarinnar. -JBP
Nánar á bls. 8
Bensínverðstríð
á Hornafirði
Olíufélögin Olís og Essó beijast
hart um viðskiptavini þessa dagana
og bjóða tíu krónu afslátt af
lítranum af bensíni og dísOolíu. Olís
reið á vaðið í tilefni þess að nýjar
dælur voru settar upp á
athafnasvæði félagsins og svöruðu
Esso-menn um hæl.
„Þetta er fint og mikið stuð búið
að vera í aUan dag,“ sögðu Olís-
menn í gærdag en búist er við að
verðstríðið haldi áfram í dag. -JI
Ryskingar við MK
TU ryskinga kom við Mennta-
skólann í Kópavogi í gærkvöld.
Voru ungmenni þar á ferð og gekk
um stund mikið á. Var lögregla
köUuð tO og tókst henni að stiUa tU
friðar með því að taka þá þrjá er
verst létu úr umferð. Vora þeir sett-
ir á „harða hótelið".
CAFE
P R EST0
- Góö tónlist -
Margrómaður súpur í hódeginu
- Hádegisréttir -
Opiö virka daga 10-23
laugardaga og sunnudaga 12—18
- Nœg búastœöi -
Hlíðarsmári 15, sími 555-4585,
sama húsi og Úrval/Útsýn
jf'’ "X
!
BYSSU
| VIÐGERÐIR
SPORTVORUGERÐIN
SKIPHOLT 5 562 8383
4
4
4
I
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4
4