Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2003, Qupperneq 2
2
FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 2003
DV
Fréttir
Suöurkjördæmi:
Konur sækja að
ísólfi Gylfa
Að minnsta
kosti tvær konur
sækja að ísólfi
Gylfa Pálmasyni
í þriðja sæti á
lista Framsókn-
arflokksins í Suð-
urkjördæmi, þær
Drífa Sigfúsdóttir
og Helga Sigrún
Harðardóttir. Á
laugardag eftir
rúma viku verður kosið um fram-
boðslista flokksins.
Að öllum líkindum mun Guðni
Ágústsson landbúnaðarráðherra
sitja í fyrsta sætinu og Hjálmar
Ámason i öðru. Ekki er líklegt að
viðlika samstaða verði um þriðja
sætið og er um fyrstu tvö sætin.
í Sunnlenska fréttablaðinu í gær
neitar Árni Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Framsóknarflokks-
ins, því ekki að leitað hafi verið til
hans um að taka sæti á listanum.
Hann telur þó vafasamt að hann
taki áskoruninni.
„Það eru nokkrir sem sækjast eftir
þriðja sætinu og ég er þar á meðal. Ég
er búinn að kanna vel stöðu mína hér
í heimabyggð og var á fundi með um
100 stuðningsmönnum mínum í gær-
kvöld. Þar fann ég að stuðningur við
mig hér í heimabyggð er mikill, öfugt
við það sem sumir hafa haldið fram,“
sagöi ísólfur Gylfi Pálmason við DV í
gær. -NH
EFTA-kostnaðurinn:
ísland á nokkra
möguleika
„Þessi upphæð
ESB er náttúrlega
út úr öllu korti og
þeim dettur ekki
einu sinni sjálfúm
í hug aö þetta sé
raunhæf krafa.
Nálgun þeirra er
að EES-ríkin eigi
Eiríkur B. að gefa jafn mikið
Einarsson. °S önnur ríki í
ESB og þetta er
bara viðmiðunin sem þeir leggja af
stað með,“ segir Eirikur Bergmann
Einarsson, prófessor í stjómmála-
fræði við Háskóla íslands, um þær
framlagskröfur sem framkvæmda-
stjóm ESB lagði fram til EFTA-ríkj-
anna í fyrradag. Kröfurnar samsvara
því að framlög EFTA myndu 38-fald-
ast og samkvæmt því ættu íslending-
ar að greiða 3,8 milljarða í sjóðina ár-
lega í stað 100 milljóna áður.
En Eiríkur segir að ísland eigi
nokkra möguleika í þeirri flóknu
stöðu sem upp er komin.
„Ég lít þannig á að það sé hægt að
ná saman. íslensk stjómvöld ættu
t.d. að nýta tækifærið nú og setja þá
mótkröfu við auknar greiðslur í þró-
unarsjóði ESB að koma á fullri frí-
verslun á öllu EES-svæðinu,“ segir
Eiríkur en bætir við að ef íslensk
stjómvöld haldi til streitu afstöðu
sinni um að ekki komi til greina að
stórauka framlag íslands í þróunar-
sjóðinn virðist málið komið í alvar-
legan hnút.
„Ef ekki tekst að finna pólitíska
lausn á deilunni þá setur það EES-
samninginn í uppnám.“ -vig
Viðbrögð ASÍ við könnun SA á atvinnulífinu:
Vandinn langtum
meiri en viö héldum
Að meðaltali hyggjast fyrirtæki
fækka starfsfólki um 1,55% á næstu
tveimur tU þremur mánuðum, sam-
kvæmt könnun Samtaka atvinnu-
lífsins sem gerð var í desember sl.
Þetta er talsverð breyting frá síð-
ustu mælingu sem SA gerðu í júní,
en þá hugðust fyrirtæki að meðal-
tali fækka fólki um 0,8%. Áform eru
uppi um fækkun fólks í flestum
greinum, utan ferðaþjónustu þar
sem fyrirtæki hyggjast fjölga fólki
um 0,3%. Mest hyggjast fyrirtæki í
útgerð og flskvinnslu fækka fólki,
eða um 4%, en fyrirtæki í iðnaði og
í verslun og þjónustu hyggjast
fækka fólki um 2%. Fjármálafyrir-
tæki hyggjast fækka um 0,5% og raf-
verktakar um 0,3%. Fyrirhuguð
fækkun fólks í sjávarútvegi getur
m.a. átt rætur að rekja til niður-
skurðar aflaheimilda, einkum í
þorski, og til sameininga í greininni
og hagræðingar þeim samfara.
Enn eru þaö stærri fyrirtækin,
með yflr 40 starfsmenn, sem virðast
öðrum fremur ætla að fækka fólki,
en hið sama kom fram í mælingum
SA í júní 2002 og í júní og desember
2001. Þetta veldur nokkrum áhyggj-
um hjá SA, því reynslan kennir að
allajafna eru það stærri fyrirtækin
sem eru leiðandi í aðlögun að sveifl-
um í efnahagslífmu, en smærri fyr-
irtækin eru gjarnan undirverktakar
hjá þeim stærri og selja þeim vörur
og þjónustu. Fimmtungur stærri
fyrirtækjanna boðar hópuppsagnir,
þ.e. tíu starfsmanna eða fleiri. Líkt
og í síðustu mælingu SA, i júní 2002,
mælist nú minni eftirspum eftir
starfsfólki á landsbyggðinni en á
höfuðborgarsvæðinu. Að meðaltali
hyggjast nú fyrirtæki með starfs-
svæði á landsbyggðinni fækka fólki
um 1,9%, en fyrirtæki á höfuðborg-
arsvæðinu hyggjast fækka fólki um
0,6%. Fyrirtæki með starfssvæði á
landinu öllu hyggjast fækka fólki
um 1,8%.
Ari Edwald, framkvæmdastjóri
SA, segir að könnunin sé gerð til
þess að fylgjast með þróun atvinnu-
lífsins. Niðurstaðan komi ekki mjög
á óvart en fyrirtæki séu þó svart-
sýnni á þróunina en búast hefði
mátt við en á síðasta ári var gert
ráð fyrir að haustið 2001 væri at-
vinnuleysið líkegt til að tvöfaldast
fram yfir síðustu áramót, sem gekk
eftir.
„Sérstaklega fannst okkur stjórn-
endur peningamála seinir að átta
sig á því í hvað stefndi. Það er
áhyggjuefni. Það virðist að stjórn-
endur stærri fyrirtækja leggi áætl-
anir fyrir sér lengra fram í tímann
en þau minni og taki meira mið af
efnahagsumhverfinu, séu meiri út-
verðir ástandsins," segir Ari Ed-
wald.
Gylfi Ambjörnsson, skrifstofu-
stjóri ASÍ, segir það koma á óvart
að umfangið sé svona mikið, eða
1,55% sem sé gríðarlega mikið, og
meira en þeir héldu. ASí hafi hins
vegar óttast að dökkt væri fram
undan á vinnumarkaðnum. -GG
DV-MVND HAFDÍS ERLA
Gangamunninn
Vinnuvélar eru mættar á athafnasvæöi Landsvirkjunar viö Axará noröan Vatnajökuls, þar sem undirbúin er
aöalframkvæmd Kárahnjúkavirkjunar.
Iðnaðarráðherra bjartsýnn á niðurstöðu stjórnarfundar Alcoa í dag:
Austfirðir breytast í dag
- líklegt að Alcoa bíti á agnið, segir Steingrímur J.
„Austfirðingar bera í brjósti
miklar væntingar gagnvart álveri.
Það fann ég vel sjálf þegar ég var
fyrir austan í gærdag. Því má vænta
að fólk eystra fylgist vel með frétt-
um þegar líða tekur á daginn,"
sagði Valgerður Sverrisdóttir iðnað-
arráðherra í samtali við DV í morg-
un.
Allt gengið eðlilega
Stjórn bandariska álfyrirtækisins
Alcoa fundar í dag og mun þar taka
lokaákvörðun um hvort á þess veg-
um verði ráðist í stóriðjufram-
kvæmdir við Reyðarfjörð. Fyrir
fram er búist við að niðurstaða
fundarins verði jákvæð og að næsta
gulltryggt sé að í framkvæmdir
verði farið. Búist er við fregnum af
niðurstöðu fundarins kl. 17 í dag.
Valgerður Sverrisdóttir segist
_____j_________ L—
Stelngrímur J. Valgerður
Sigfusson. Sverrisdóttlr.
vera bjartsýn á niðurstöðu fundar-
ins. „Það er engin ástæða til annars.
í viðræðum stjómvalda við Alcoa
hefur allt gengið eðlilega fyrir sig og
samskipti við fyrirtækið hafa verið
góð,“ sagði Valgerður. Hún kvaðst
aukinheldur hafa trú á því aö málið
gæti farið nokkuö greiðlega í gegn-
um þingið, það er heimildarfrum-
varp vegna þessarar miklu fjárfest-
ingar. Þrír stjórnmálaflokkar
styddu málið - og væri tryggur
meirihluti því fyrir hendi.
Bjóða kostakjör
Steingrímur J. Sigfússon, formað-
ur VG, segir að margt bendi til þess
að niðurstaða fundarins í dag verði
ákvörðun um framkvæmdir. Sé
enda líklegt að Alcoa bíti á agnið sé
til dæmis tekið tillit tU þeirra kosta-
kjara í orkuverði sem íslensk
stjórnvöld bjóði. Segir Steingrímur
þetta enn frekar vekja með sér
spumingar um efnahagslega skyn-
semi þessara framkvæmda, sem
þess utan séu óverjandi með um-
hverfissjónarmið í huga. Nær hefði
verið að efla atvinnu og byggð á
Austurlandi með öðrum og nærtæk-
ari aðgerðum, sem þess utan gætu
þá nýst á landsvisu. -sbs
mmiŒM: i
Bætt líöan
Lyfið Glivec hefur gefið góða
raun í meðferð hvítblæðissjúklinga.
Lyfið hefur sárafáar aukaverkanir
og hefur stórbætt líðan sjúklinga.
Þaö besta við umrætt lyf er þó það
að það ræðst einvörðungu gegn
krabbameinsfrumum en lætur heil-
brigðar frumur í friði. mbl.is sagði
frá.
Kaupmáttur aukist
Gunnar Páll Páls-
son, formaður VR,
kynnti í gær stefnu-
mótun í kjaramál-
um en félagið und-
irbýr nú næstu
kjarasamninga.
Formaðurinn
kynnti hugmyndir
um að félagið setti sér markmið í
kjaramálum til næstu tíu ára. Hann
sagði það m.a. fela i sér markmið
um að kaupmáttur félagsmanna
myndi aukast 30% á tímabilinu.
Lungnabólga herjar
Alls var 171 greindur meö lungna-
bólgu í desember. Það er að sögn
Þórðar G. Ólafssonar yfirlæknis það
mesta sem hann hefur séð. Nýliðinn
desember var sem kunnugt er sá
hlýjasti síðan mælingar hófust en
að sögn Þórðar þarf lungnabólga
ekki að tengjast köldu veðri.
RÚV sýnir HM
Leikir íslenska landsliðsins á
heimsmeistaramótinu í handknatt-
leik í Portúgal verða sýndir í Ríkis-
sjónvarpinu. Fyrsta viðureign ís-
lenska liðsins verður 20. janúar en
þá mætir liðið Áströlum.
Styttist í undirskrift
Samningaviðræður Einkavæðing-
amefndar og S-hópsins vegna sölu á
tæpum helmingshlut í Búnaðar-
banka íslands munu vera á loka-
stigi. Jafnvel er búist við aö samn-
ingurinn verði undirritaður á morg-
un eða næstu daga.
Pressumáliö tekið upp
Farið verður fram á að svokallað
Pressumál verði aftur tekið upp fyr-
ir dómstólum eftir úrskurð sérfræð-
inga um að málverk, sem sögð voru
eftir Sigurð Guðmundsson, séu
fölsuð. Tveir blaðamenn Pressunn-
ar, Kristján Þorvaldsson og Þóra
Kristín Ásgeirsdóttir, voru dæmdir
í hæstaréttir til að greiða fjársektir
vegna þess að þeir héldu því fram
að verkin væru fólsuð. Blaðamanna-
félag íslands hefur falið lögfræðingi
sínum, Atla Gíslasyni, að reka mál-
ið. -aþ
122^ helgarblaö
Hver er Ingi-
björg Sólrún?
1 Helgarblaði DV er ítarleg póli-
tísk nærmynd af Ingibjörgu Sólrúnu
Gísladóttur borgar-
stjóra sem mikill
pólitískur styr
stendur um þessa
dagana. Reynt er að
skyggnast í pólitísk-
an bakgrunn henn-
ar og leitað álits
samferðamanna til
þess að svara því hverjar hennar
hugsjónir í rauninni eru.
í blaðinu er einnig rætt við Guð-
mund Jónsson gítarleikara, hug-
myndasmið söngleiksins um Sól og
Mána. DV ræðir við Jóhannes Ge-
orgsson sem ætlar að fljúga ódýrt
með íslendinga og Guðrúnu Stellu
Gissurardóttur sem gekk úr kjör-
nefnd Sjálfstæðisflokksins i Norö-
vesturkjördæmi. Blaðið fjallar um
megrun, veitir veisluráðgjöf og rifj-
ar upp daginn sem gengið var á
Heröubreið í fyrsta sinn.