Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2003, Page 7
FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 2003
DV
7
Fréttir
Upplýsingar og tímapantanir alla daga í síma 561 8585
Vitnaleiðslur í Hafnarstrætismálinu fóru fram í gær:
„Slepptu mér eöa ég
höfuðkúpubrýt þig“
- sagði annar ákærðu við hinn látna að sögn vitnis
Minna verðmæti loðnu
Flest bendir til þess að verðmæti á
hveija þyngdareiningu loðnumjöls og
lýsis verði 9% laegra í ár en í fyrra. Verð
á loðnumjöli og lýsi var nokkuð stöðugt
á síðasta ári miðað við undangengin ár
og er ekki gert ráð fyrir miklum sveifl-
um. Sé því miðað við óbreytt verð á
loðnumjöli og lýsi frá sama tímabili í
fyrra og að gengi krónunnar muni hald-
ast í kringum 125 á næstu mánuðum
mun 9% styrking krónunnar frá sama
tíma í fyrra skýra alla verðmætabreyt-
inguna milli þessara tímabila.
Guðmundur Ragnarsson hjá grein-
ingardeild Búnaðarbankans sagðist
telja að verð á loðnumjöli og lýsi til ís-
lenskra fiskimjölsframieiðenda verði
svipað og það var í fyrra. „Ég hugsa að
jafhvel geti það hækkað eitthvað miðað
við verðið í fyrra. Það hefur verið nokk-
ur jafli vöxtur í fiskeldi í heiminum en
fiskeldisfyrirtæki eru stórir kaupendur
á mjöli. Þá hefur framboð frá Suður-Am-
eríku verið að dragast saman en frá
Perú og Chile kemur mest fiskimjöl og
lýsi og verðið fylgir mjög framboði það-
an. Það sem gæti einnig komið íslensk-
um sjávarútvegsfyrirtækjum (fiski-
mjölsframleiðendum) til góða er að
loðnukvótinn í Noregi verður skorinn
niður um 50% á þessu ári en Norðmenn
eru okkar helsta samkeppnisþjóð í sölu
á fiskimjöli og lýsi til fiskeldisbænda í
Evrópu,“ sagði Guðmundur.
www.gauilitli.is
Þátttakendur mæta 3-5 sinnum í viku
og allir fá kennslugögn, eftirlit með
matarræði, vatnsbrúsa ásamt frjálsum
aðgangi að líkamsræktarstöðvum
World Class í Fellsmúla og Spöng.
Aðalmeðferð Hafharstrætismálsins
hélt áfram í Héraðsdómi Reykjavíkur í
gær og komu þá m.a. fram hrottalegar
lýsingar fjölmargra vitna að líkams-
árásinni sem gerð var á 22 ára gömlum
karlmanni, Magnúsi Frey Gíslasyni,
þann 25. maí á síðasta ári. Hnéspörk,
hnefahögg, skallar og fótspörk voru
meðal þeirra barsmíða sem áttu sér
stað í árásinni að sögn vitna. Magnús
Freyr hlaut í kjölfarið höfuðáverka
sem drógu hann til dauða viku seinna.
Hinir ákærðu eru tveir, 21 og 23 ára
gamlir. Er sá eldri ákærður fyrir að
hafa ráðist á manninn og veitt honum
fjölmörg höfuðhögg, m.a. á meðan
hann lá í götunni. Eftir þá atlögu tókst
honum að standa upp á ný en þá spark-
aði yngri sakbomingurinn í hann með
þeim afleiðingum að maðurinn féll í
götuna á ný og lá óvígur eftir.
Hinir ákærðu mættu fyrir dóm í
fyrradag og bar talsvert á miili frá-
sagna sakbominganna á því sem gerst
hafði. Viðurkenndi sá yngri að hafa
sparkað í manninn eftir að sá eldri
hafði slegið og sparkað í höfuð hans
10-15 sinnum. Hinn eldri sagði hins
vegar sjálfur að höggin hefðu verið
mun færri. Eftir þetta misræmi í fram-
burði sakbominga var ljóst að vitnis-
burður sjónarvotta mun vega þungt í
málinu.
Misræmi í frásögnum vitna
Nokkuð ber á milli frásagna þeirra
sem vitni urðu að árásinni. Flestum
bar þeim þó saman um að þeir hefðu
slegið hvor annan i upphafi en fljótlega
hefði hinn ákærði náð undirtökunum
og látið bæði hefðbundin spörk og hné-
spörk, sem og hnefahögg, dynja á hin-
um látna. Mikið
misræmi var þó í
lýsingum á því vignir Guðjónsson blaðamaður
mörg
sig“. Því næst hefðu slagsmál hafist þar
sem Magnús hefði fljótlega lent undir
og hafnað í jörðinni þar sem sakbom-
ingur sló hann oftar en einu sinni. Síð-
an hafi vegfarandi rifið hann af Magn-
úsi sem stóð þá upp. Þá hafi yngri sak-
bomingurinn hlaupið að honum og
högg vinstra megin og var brotið
dæmigert fyrir högg á hnakka. Ein af
meginspumingunum í réttarhaldinu er
hvort heilablæðing Magnúsar hafi
myndast vegna högganna frá þeim
eldri eða eftir að hafa skollið í götuna
eftir sparkið frá þeim yngri. Kvaðst
Kenna hvor öðrum um
Stóra spurnlngin í Hafnarstrætismállnu er hvor hlnna ákeröu hafl valdlö hellablæöingunnl sem síöan lelddl Magnús
tll dauöa viku selnna.
DV-MYNDIR HARI
Herferð gegn ofbeldi
Eins og DVgreindi frá í gær sendi eldri sakborningurinn, sem sést á
myndinni, forseta íslands bréfþar sem hann hvatti til herferðar gegn ofbeldi.
Forsetinn vitnaöi í bréfið í áramótaávarpi sínu.
meinafræðingurinn ekki geta sagt með
fúllri vissu hvemig höggið kom en lík-
legast er talið að hinn látni hafi fallið
með höfuðið á sléttan flöt. Hann sagði
að ekki væri líklegt að sá er verður fyr-
ir svo miklum skaða á heila haldi með-
vitund og því ólíklegt að Magnús hefði
getað staðið upp. Hann útilokaði þó
ekki að þung högg, t.d. hnéspörk, gætu
myndað heilablæðingu.
Meinaffæðingurinn átti erfitt með
að svara spumingum lögmanna og vís-
aði þá til þess að krufhing hefði farið
fram átta dögum eftir slysið. Magnús
hefði farið í aðgerð strax eftir árásina
og væri læknirinn sem framkvæmdi þá
aðgerð hæfari til aö svara spumingum
sem varða ástand Magnúsar strax eftir
árásina.
Guðjón St. Marteinsson úrskurðaði
að í ljósi vitnisburðar meinafræðings-
ins væri ekki hægt að halda málsmeð-
ferð áfram fyrr en læknirinn sem ffarn-
kvæmdi aðgerðina á Magnúsi hefði
borið vitni. Það sé nauðsynlegt að hægt
sé að meta ástandið á heila Magnúsar
strax eftir höggið. Málinu var því
frestað til 14. janúar og mun aðalmeð-
ferð þá ljúka.
hversu
högg hinn látni hlaut og eins hvar á
líkamann þau komu. Eins kváðust
nokkur vitni ekki muna greinilega eft-
ir árásinni.
Þau vitni sem sáu Magnús falla eftir
síðasta sparkið, sem yngri sakboming-
urinn hefur tekið ábyrgð á, vom þó
flest sammála um að hann hefði fallið
beint aftur og hátt hljóð hefði heyrst
þegar höfuðið skall á gangstéttinni.
„Hann féll beinn eins og þegar verið er
að höggva tré,“ sagði eitt vitnið.
Nokkur vimi kváðust hafa heyrt
eldri sakbominginn kalla eitthvað í lík-
ingu við: „Beijið hann!“ í átt til fjög-
urra félaga sinna sem vom með hon-
um. Einn af þeim, yngri sakbomingur-
inn, hafi þá sparkað í Magnús með
• fyrrgreindum afleiðingum. Það er því
spuming hvort sá eldri hafi hvatt til
aukinna líkamsmeiöinga með hrópum
sínum.
„Ég höfuðkúpubrýt þig“
Næst vora þrír félagar sakboming-
anna, sem allir vom á vettvangi kvöld-
ið afdrifaríka, kallaðir til vitnis. Þeir
sögðu allir að Magnús Freyr hefði átt
frumkvæðið að átökunum - hann hefði
klætt sig úr jakkanum sínum og beðið
eldri sakbominginn um að „koma í
sparkað í hann svo hann féll. Eftir það
hafði sá eldri farið að Magnúsi þar sem
hann lá og slegið hann með opnum
lófa. Sagði sakbomingur sjálfur að það
hefði verið til þess
að reyna að vekja
Magnús sem lá
meðvitundarlaus.
Einn félaginn kvaðst hafa heyrt eldri
sakbominginn segja: „Slepptu mér eða
ég höfúðkúpubrýt þig,“ við Magnús
’ þegar þeir tókust á. Þá hafi Magnús
haldið í yfirhöfli hans og neitað að
sleppa. Jón Egilsson, veijandi yngri
sakbomingsins, spurði þá vitnið hvort
sá eldri hefði veitt Magnúsi höfuðhögg
eftir þessar yfirlýsingar. Vitnið játti
því.
Annar félagi sagði að engin sam-
skipti hefðu átt sér stað á milli Magn-
úsar og þess sem ákærður er fýrir að
sparka í hann og ekkert hefði gerst
áður sem hefði gefið tilefrii til sparks-
ins. Eins höfðu sjónarvottar sem sáu
sparkið sagt að Magnús hefði verið
vankaður og ekki í neinu ástandi til aö
veita viðnám né ógnun sem er þvert á
þá fullyrðingu sem yngri sakboming-
urinn hélt fram fyrir réttinum í fyrra-
dag, þar sem hann sagði að Magnús
hefði horft „illum augum á sig“ og þess
vegna hefði hann sparkað i hann.
Málinu frestaö
Að sögn meinaffæðings sem kallað-
ur var til vitnis var það heilablæðing
og bjúgur i heila sem var banamein
Magnúsar. Áverkar á höfuðkúpu benda
til þess aö hinn látni hafi hlotið þungt
Lifum
■ vetur
6 ára afmælistilbod
öll námskeið á 14.500 kr. í janúar.
6 ára gamalt verð!
Yogaspuni
Gauja litla
Aðhaldsnámskeið með hjólatímum,
sérstökum æfingum byggðum á
hathajóga, öndun og teygjum. í boði
eru morgun- og kvöldtímar.