Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2003, Qupperneq 8
8
FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 2003
DV
Fréttir
Fylgi stjórnmálaflokkanna misjafnt eftir kyni og búsetu:
Sjálfstæðisflokkur stærstur
á höfuðborgarsvæðinu
- Samfylkingin með yfirburði meðal kvenkyns kjósenda
Fylgi stjórnmálaflokkanna er
misjafnt eftir basði kyni og búsetu.
Þannig er Sjálfstæðisflokkurinn
stærstur sé einungis litið til íbúa
höfuðborgarsvæðisins en Samfylk-
ingin er hins vegar með yfirburði ef
einungis er tekið tillit til afstöðu
kvenkyns kjósenda. Þetta kemur
fram þegar niðurstöður skoðana-
könnunar DV, sem gerð var á
þriðjudagskvöld, eru greindar eftir
kyni og búsetu, þ.e. hvort sá er svar-
ar býr á höfuðborgarsvæðinu eða
úti á landi. Niðurstöðurnar má sjá í
meðfylgjandi gröfum en úrtakið í
könnun DV var 1200 manns. Spurt
var: Hvaða lista mundir þú kjósa ef
þingkosningar færu fram núna?
Það sem strax vekur athygli þeg-
ar niðurstöðurnar eru skoðaðar
nánar er hve Samfylkingin er sterk
meðal kvenkyns kjósenda. Ef aðeins
er litið til þeirra kvenna sem af-
stöðu tóku sögðust 45,5 prósent
mundu kjósa Samfylkinguna ef kos-
ið yrði nú en 35,2 prósent Sjálfstæð-
isflokkinn. Framsókn fengi 8,7 pró-
senta fylgi meðal kvenna, Vinstri
grænir 7,9 prósenta og Frjálslyndir
2,1 prósents fylgi.
Hjá körlunum kveður við annan
tón. Sjálfstæöisflokkurinn er þar
stærstur með 38,7 prósenta fylgi en
Samfylkingin fengi þar 34,3 prósent.
Framsókn er einnig mun sterkari
meðal karla, fær 15,3 prósenta fylgi.
Ekki er marktækur munur á af-
stöðu kynjanna til Frjálslyndra eða
Vinstri grænna.
Karlar voru mun ákveðnari í könn-
un DV en konur. 75,3 prósent karla
tóku afstöðu en aðeins 63 prósent
kvenna.
Fylgi flokkanna eftir afstööu kynjanna
■ skv. skoðanakónnun DV 7. januar 2003
50%
40%
30%
20%
10%
** - • "* " *
Fylgi flokkanna eftir búsetu
- skv. skoðanakonnun DV 7. januar 2003
Höfuðborgarsvæölð Landsbyggðin
Frá Alþingi
Karlar voru mun ákveönari í könnun DV
en konur. 75,3 prósent karla tóku af-
stööu en aöeins 63 prósent kvenna.
Framsóknarfylgi úti á landi
Þegar aðeins er litið til afstöðu
kjósenda á höfuðborgarsvæðinu er
Sjálfstæðisflokkurinn langstærstur
en fylgi hans mælist 45,6 prósent. Sé
hins vegar horft til kjósenda á
landsbyggðinni er fylgi Sjálfstæðis-
flokksins aðeins 25,8 prósent. Þessu
er þveröfugt farið með Framsóknar-
flokkinn. Á höfuðborgarsvæðinu er
hann með 6,8 prósenta fylgi en fylg-
ið rýkur upp í 19,7 prósent ef horft
er til kjósenda á landsbyggðinni.
Vinstri grænir eiga meira fylgi á
landsbyggðinni þar sem það mælist
10,1 prósent en ekki nema 6,5 pró-
sent á höfuðborgarsvæðinu. Frjáls-
lyndir sækja að sama skapi meira
fylgi út á land en á höfuðborgar-
svæðið.
Ekki er marktækur munur á fylgi
Samfylkingar á höfuðborgarsvæð-
inu annars vegar og á landsbyggð-
inni hins vegar.
Kjósendur á landsbyggöinni voru
áræðnari í svörum en 74,2 prósent
þeirra tóku afstöðu á móti 65,8 pró-
sentum á höfuðborgarsvæðinu.
-hlh
DV-MYND HARI
Viðrar vel til útiveru
Veöriö leikur viö landann þessa daga, á sama tíma og frost og fimbulkuldi ríkir víöast í Skandinavíu. Víöa má sjá fólk í gönguferöum, grasiö ergrænna en
menn eiga aö vernjast á þessum árstíma og eitthvaö mun vera um aö ýmsar plöntur hafí látiö á sér kræla.
Þrjár villtar kvígur fundust á afrétti
- búnar að vera týndar frá því í haust er þær ruddust yfir girðingar
Þrjár kvígur frá Berghyl í
Hnmamannahreppi fundust inni á
Flóaafrétti eftir að hafa sloppið úr
greipum bónda í haust. Þær eru
mjög aflagðar en hafa enn ekki
náðst þar sem þær eru ljónstyggar.
Fyrirhugaö er aö reyna aö hand-
sama þær um helgina og koma
þeim i hús.
Jón G. Eiriksson, bóndi á Berg-
hyl, kvaðst hafa verið að taka tiu
kvígur í hús i haust. Þær hefðu ver-
ið í girðingu í sumar þar sem lítið
var um mannaferðir og því orðnar
styggar. Þegar verið var að reka
hópinn að stukku þrjár kvígur út úr
honum, ruddust yfir landamerkja-
giröingu og hurfu út í buskann.
Svipast var um eftir þeim en svo
virtist sem jörðin hefði gleypt þær.
Talið er að þær hafi farið yflr Stóru-
Laxá hjá Hrunakróki og komist
þannig inn á afréttinn.
Fyrir þrem dögum fundu svo menn,
sem voru á ferð um Flóaafrétt á bil,
kvígumar þar sem þær höfðu hafst
við. Þeim var stuggað í átt til byggða
og er nú vitað hvar þær halda sig þótt
ekki hafl þær komið að bæjum enn.
Jón sagðist ætla að freista þess að ná
þeim með því að setja niður heyrúllu
til að spekja þær. Möguleiki væri að
gefa þeim í gjafagrind sem lokaðist
þegar þær færu inn í hana til að éta.
Þannig væri hægt að ná þeim.
„Þaö er ansi mikið mál að ná
nautgripum þegar þeir eru orðnir
svona rosalega villtir," sagði hann.
„Ég hefði getað verið að eltast við
þær í viku inni á afrétti með fjöld-
ann allan af mönnum án þess að ná
þeim. Ég ætlaði að leita þeirra á
snjósleða en það hefur bara vantað
snjóinn.“
Jón saknar einnig tveggja hrossa
sem hurfu á gamlárskvöld. Um er
að ræöa trippi og fullorðinn hest
sem voru í sjö hesta hópi heima við
bæinn. Þessi tvö virðast hafa
hræðst flugeldaskothríð meira held-
ur en hin, því þau voru horfm úr
hópnum á nýju ári. -JSS
Smíði aö Ijúka
Hér er Norröna hin færeyska í skipa-
smíöastööinni í Lubeck í Þýskalandi.
Eftir nokkrar vikur siglir skipiö burt
frá stööinni og heldur í noröur.
Ný Norræna kem-
ur í heimsókn til
Reykjavíkur
Smíði færeysku ferjunnar Nor-
rænu gengur vel. Stefnt er að þvi að
hún komi til íslands í jómfrúferðina
seinni partinn í mars frá skipa-
smíðastöðinni Flender Werft í
Lúbeck. Ekki er búið að ákveða end-
anlega ferðir hennar en hugmyndin
er að Norræna sigli til Reykjavíkur
og ef til vill fleiri hafna og kynni sig
íbúum höfuðborgarsvæðisins. Við-
komustaður hér á landi verður sem
fyrr Seyðisfjörður og aka höfuð-
borgarbúar um fallegar lendur ís-
lands, 700 kílómetra leið, til að kom-
ast um borð. Það er hluti af ferða-
laginu og að margra mati ekki
slæmur hluti þess.
Jónas Hallgrímsson í Austfari á
Seyðisflrði sagði að mikill hugur
væri í mönnum á þessum tímamót-
um. Hér væri að koma glæsiskip,
þrefalt stærra en gamla Norræna
sem hætti siglingum hingað á síð-
astliðnu hausti. Um borð í nýju Nor-
rænu er rými fyrir 1.482 farþega í
klefum af ýmsu tagi, allt upp í
lúxusíbúðir. Gamla Norræna tók
1.050 farþega. Mest munar þó um að
flutningsgeta á ökutækjum er mun
meiri en á gamla skipinu því bíla-
þilfór eru vegleg og taka 800 bila.
Um borð eru verslanir, barir, veit-
ingahús og dansstaðir; líka sund-
laug, líkamsrækt og bamapössun
svo nokkuð sé nefnt. -KÞ
Raufarhöfn:
Tónlistarnám
í uppnámi
Tónlistarskólinn á Raufarhöfh er í
tölverðu klemmu þar sem skólastjór-
inn hefur látið af störfum og haldið til
annarra starfa. 25 nemendur stunda
nám við skólann. Sveitarstjóri Raufar-
hafnarhrepps, Guðný Hrund Karls-
dóttir, segir að kennslan liggi niðri
meðan leitað er nýs tónlistarskóla-
stjóra. Rætt mun hafa verið við aðila
á Þórshöfn.
„Það er gert ráð fyrir starfsemi tón-
listarskóla á fjárhagsáætlun Raufar-
hafiiarhrepps en því miður fékk tón-
listarskólastjórinn starf annars staðar
þar sem boðin voru betri kjör. Ég trúi
ekki öðru en það flnnist einhver til
starfans. Við skólann starfar auk þess
stundakennari." Tónlistarskólastjór-
inn, Stefania Sigurgeirsdóttir, heldur
til Hólmavíkur. -GG
Lögreglan fór
réttað
Lögreglan í Reykjavík vill koma
því á framfæri að þann 30. desember
síðastliðinn leitaði lögreglan í
Reykjavík aðstoð-
ar lögreglunnar á
Keflavíkurflug-
velli vegna hvarfs
Guðrúnar Bjargar
Svanbjömsdóttur
og óskaði hún eft-
ir því að athugað
yrði hvort Guð-
rún hefði farið úr
landi fyrir þann
tíma en síðar kom
í ljós að hún hafði farið úr landi þann
29. desember síðastliðinn. Til að forð-
ast allan misskilning vill Geir Jón
Þórisson yfirlögregluþjónn aö það
komi fram að skjót úrlausn lögregl-
unnar á Keflavíkurflugvelli var að
öllu leyti í samræmi við verkbeiðni
lögreglunnar í Reykjavik. -ss
Geir Jón
Þórisson.