Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2003, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2003, Side 9
9 FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 2003 I>V Fréttir Metár hjá íbúðalánasjóði: Greiðsluerfiðleikamál tvöfölduðust milli ára Árið 2002 var metár hjá íbúða- lánasjóði hvað varðar húsbréfaút- gáfu, sölu húsnæðisbréfa, útlán við- bótarlána og leiguíbúðalána. Alls nam útgáfa íbúðalánasjóðs á hús- bréfum og húsnæðisbréfum 50,6 milljörðum króna á reiknuðu verði húsbréfa og söluverði húsnæðis- bréfa. Sjóðurinn greiddi hins vegar 35,5 milijarða króna í afborganir, vexti og verðbætur af skuldum sín- um. Þrátt fyrir metútgáfu voru affoll húsbréfa á síðustu mánuöum ársins 2002 lægri en verið hafði frá því í byrjun árs 2000. Ástæður þess eru betra upplýsingaflæði íbúðalána- sjóðs og stóraukin kaup erlendra fjárfesta á íslenskum húsbréfum og húsnæðisbréfum. Vanskil við sjóð- inn voru i sögulegu lágmarki á ár- inu 2002. Greiðsluerfiðleikamál hins vegar tvöfölduðust á milli ára þótt enn sé nokkuö í það að fjöldi slíkra mála nái því sem var á árunum 1995 og 1997. Hagræðing og aukin fram- leiðni sem stefnt var að við stofnun sjóðsins náðist á árinu sem meðal annars sést á styttri afgreiöslutíma lánsumsókna. íbúðalánasjóði bárust í lok árs 2002 kvartanir frá fólki í Reykjavík sem fallið hefur undir skilyrði um viðbótarlán en fengið timabimdna synjun frá Félagsþjónustunni í Reykjavík. Ástæða synjunarinnar er sú að Reykjavík hefur fullnýtt lánsheimildir sínar til viðbótarlána og íbúðalánasjóður hefur ekki feng- ið svigrúm frá Alþingi til að auka enn við viðbótarlánsheimildir Reykjavíkur á þessu ári. Reykjavík- urborg sótti um lánsheimildir að fjárhæð 1,5 milljarðar króna vegna ársins 2002 en fyrri hluta árs kom í ljós að það myndi ekki duga og sótti borgin því um 700 milljónir króna aukalega. íbúðalánasjóður veitti Reykjavíkurborg 600 milljónir til viöbótar og var sú fjárhæð upp urin fyrir áramót. Bið þeirra sem ekki fengu viðbótarlán í lok árs 2002 ætti hins vegar að vera á enda innan tíð- ar þar sem nýtt fjárhagsár er hafið en hins vegar er slík tímabundin synjun mikið óhagræði fyrir það fólk sem gert hef- ur tilboð í eignir með fyrirvara um samþykki húsnæðisnefndar um viðbótarlán. Vandamál þessa fólks er sú stað- reynd að það fór Guömundur ekki eftir eðli- Bjarnason. legu umsóknar- ferli um lán íbúðalánasjóðs. íbúðalánasjóður segir fasteignasala bera hér einnig nokkra ábyrgð því þeir eigi að vita hvemig umsóknarferillinn á að vera. 6 milljarðar til viðbótarlána í ár Guðmundur Bjamason, forstjóri íbúðalánasjóðs, segir að Reykjavík- urborg hafi hætt að gefa út ný við- bótarlánsloforð um miðjan nóvem- ber en nú hafi öll sveitarfélög veriö beðin um skýrslu um stöðu loforða vegna viðbótarlána um áramótin. Á síðasta ári hafði íbúðalánasjóður heimild til að veita 5 milljónir króna til viðbótarlána sem verða þó aldrei hærri en 90% af kaupverði fasteignar og koma til viðbótar 65 til 70% láni. Reykjavíkurborg hafi ver- ið eina sveitarfélagið sem hafi farið fram yfir heimildir á sl. ári en ein- hver nýttu ekki að fullu sínar heim- ildir. Heimildir fyrir árið 2003 eru 6 milljarðar króna og er þegar búið að lofa 5,5 milljörðum króna af þeirri upphæð, þar af fékk Reykjavíkur- borg 2,5 milljarða króna. Guðmund- ur segir að félagsmálaráðherra gefi aðeins út reglur um eigna- og tekju- mörk en það er á valdi hvers sveit- arfélags að ákveða lágmarksaldur þess sem fær viðbótarlán en undan- þágur má veita ef t.d. er um heilsu- spillandi húsnæði að ræða eða fjöl- skyldustærð. Björk Vilhelmsdóttir, borgarfull- trúi og formaður félagsmálaráðs Reykjavíkurborgar, segir að fyrir- huguð sé samræming milli sveitar- félaga á höfuðborgarsvæðinu hvað varðar lágmarksaldur þeirra sem fá viðbótarlán íbúðalánasjóðs. Næstu 3 mánuði verði reglur Reykjavíkur- borgar óbreyttar, þ.e. lágmarksald- ur verði 23 ára sem hafl verið sett til þess að takmarka fjölda viðbótar- lána. Þau hafi upphaflega verið sett til þess aö mæta félagslegri þörf en séu nú komin langt umfram þau markmið sem sett voru um þau lán. Björk segir að mörg sveitarfélög setji ekki neinar hömlur á viðbótar- lán, þ.e. þau séu aðeins bundin við fjárráð einstaklinga sem eru 18 ára en önnur hafi gengið mun lengra um tíma, t.d. Mosfellsbær sem setti takmörk við 28 ár. -GG Um sex hundruð manns eru í Ásatrúarfélaginu: Trúboð með öllu óþarft - segir Kjalnesingagoði - margt frægra í félaginu Ásatrúarfélagið hefur verið mikið í umræðunni að undanförnu en eins og flestir vita er Hilmar Öm Hilmarsson tónlistarmaður nýr allsherjargoði í Félagi ásatrúarmanna. Félagið var stofnað árið 1972 en Hilmar öm gekk í það tveimur árum eftir stofnun þess, árið 1974, þá aðeins 16 ára og hefur verið í þvi síðan eða í 28 ár. í félaginu eru nú um 600 manns en það er aðeins skráð sem löggilt trúfélag hér á landi þó þaö sé starfrækt víða um heim, eins og í Bretlandi, á Norðurlöndum og í Þýskalandi. „Félagið hefur verið hálflamað að undanförnu en nú eru breyttir tímar og munum viö hefja hinn foma sið til vegs og virðingar á ný,“ segir Hilmar. Trúarlíf ásatrúarmanna snýst um rétta breytni og að hefja gamla siði til vegs og virðingar. Virðing fyrir nátt- úrunni og öllu sem lifir er eitt af því sem ásatrúarmönnum finnst sjálfsagt og eðlilegt að rækta, sem og góða hugsun og rétta framkomu. „í dag er verið að setja upp feiki- lega dagskrá fyrir árið sem er rétt haf- ið, þ. á m. fræðslu og skemmtun fyrir heiðið fólk á öllum aldri. Við erum náttúrutrúar og höfum einsett okkur að einbeita okkur að hinu jákvæða í lífrnu og byggja upp styrk og gleði í kringum okkur eins og trú okkar ger- ir ráð fyrir. Við viljum líka leggja áherslu á okkar fomu menningu," Hilmar Örn Jóhanna Erpur Þórunn Hilmarsson. Harðardóttir. Eyvindarson. Valdimarsdóttir. ----— seg'r Jóhanna Harðardóttir, jgSBKmb, stjóri og nýkjör- inn Kjalnesinga- goði Ásatrúarfé- I lagsins. Þá segir Mk Jóhanna að mikill I mannauður sé í fé- » 'H laginu og að mikið Biörk vor so 1 ásatrúar- J ‘ félaginu núna. „Krafturinn og vinnugleðin eru feiki- mikil og þetta ár verður ár landvinn- inga hjá okkur,“ segir Jóhanna. Með- limir i ásatrúarfélaginu eru um 600 eins og fyrr segir og koma þeir úr öll- um hópum þjóöfélagsins. í stjóm félagsins sitja þau: Lára Jóna Þorsteinsdóttir, sérkennari og kennari nýbúa, Sigurjón Þórðarson, framkvæmdastjóri heilbrigðiseftirlits í Skagafirði, Ólafur Sigurðsson mat- vælafræðingur, Katla Sigurðardóttir, háskólanemi og leiðsögumaður á Þingvöllum í sumar, og Júlíus Samú- elsson, myndlistarmaður úr Keflavík. „Þetta er ungt og kröftugt fólk með báða fætur á jörðinni," segir Jóhanna. Meðal nýju goðanna eru: Hilmar Örn allsherjargoði og Jóhanna Harðardótt- ir, blaðamaður, ritstjóri og dagskrár- gerðarmaður hjá útvarpi og sjónvarpi. Meðal þekktari manna í félaginu má nefna þau Hauk Halldórsson myndlist- armann, Erp Eyvindarson rappara, Steindór Andersen kvæðamann, Am- þrúði Karlsdóttur dagskrárgerðar- mann, Þórunni Valdimarsdóttur sagn- fræðing, Þorstein Þorsteinsson eðlis- fræðing og Daníel Engilbertsson, vél- stjóra á Hólmavík. Auk þess sem Björk Guðmundsdóttir hefur verið viðloð- andi félagið en hún er heiðin. Ólíkt öðrum trúfélögum fmnst ása- trúarmönnum að trúboð sé með öllu óþarft og reyndar sé það meginregla að fólk komi til þeirra en þeir ekki til fólks. -ss Lágmarkskauptaxti launa: Hefur hækkað um 58% á átta árum Frá því í janúar 1995 hefúr lágmarks- kauptaxti hækkað um 106%, úr 43.116 krónum í 88.794 krónur. Á sama tíma hækkaði visitala neysluverðs um 31% og því hefur kaupmáttur lágmarks- kauptaxta hækkað um 58% á þessu 8 ára tímabili. Á sama tíma hækkaði lág- markstekjutrygging úr 43.116 krónum í 93.000 krónur, eða um 116%, og því hef- ur kaupmáttur lágmarkstekjutrygging- ar hækkað um 65% á þessu tímabili. Um siðustu áramót tóku gildi ný lög um atvinnuréttindi útlendinga. Lögin taka til útlendinga sem eru ríkisborg- arar í ríkjum utan Evrópska efnahags- svæðisins. Þó eru vísindamenn, lista- menn, íþróttaþjálfarar og ýmsir sér- hæfðir starfsmenn undanþegnir kröfu um atvinnuleyfi, vegna vinnu í allt að fjórar vikur á ári. I nágrannalöndunum heyrir veiting dvalar- og atvinnuleyfa undir sömu sto&iun en á íslandi undir tvær stofiianir, Útlendingastofnun og Vinnumálastofnun. Útlendingastofiiun gefur út dvalarleyfi en Vinnumála- stofnun atvinnuleyfi. Vinnumálastofhun er óheimilt að veita útlendingi atvinnuleyfi sem dvelst hér á landi án dvalarleyfis. Út- lendingur getur því ekki komið til landsins sem ferðamaður og ráðið sig síðan í vinnu. Ákvörðun um veitingu atvinnuleyfis ræðst fyrst og fremst af þörfum atvinnulífsins og að því til- skyldu að ekki sé hægt að útvega inn- anlands þá starfsmenn sem þörf er á. Atvinnurekanda er skylt að sjúkra- tryggja erlendan starfsmann sinn þannig að hann njóti vemdar til jafiis við ákvæði almannatryggingalaga. Fé- lagsmálaráðherra skal skipa samstarfs- nefnd sem kalla skal saman vegna al- mennra álitamála varðandi útgáfu at- vinnuleyfa og þegar beiðnir berast til Vinnumálastofnunar um atvinnuleyfi fyrir hópa útlendinga. -GG UTSALA - UTSALA Ekki missa af þessu. Útsalan hefst í dag! 10»70% afsláttur! á hestavörum, reið- og útivistarfatnaði. Dæmi: ^ Ástundarreiöbuxur, verð frá kr. 12.599. Úlpur, ótrúlegt úrval, verö frá kr. 5.999. Sælu-skaflaskeifur, verð kr. 899. | fi^TLJfifi Ath.: Opið sunnudaginn 12. jan. , frákl. 13.00 tilkl. 17.00. _ Póstsendum. Háaleitisbraut 68 (Austurver) Sími 568 4240

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.