Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2003, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2003, Page 10
10 Útlönd FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 2003 DV Ariel Sharon. Slökkt á Sharon í beinni útsendingu Mishael Cheshin, formaður ísra- elsku yfirkjörstjórnarinnar, skipaði í gær ísraelskum útvarps- og sjón- varpsstöðvum að rjúfa útsendingu í miðri flmmtíu mínútna ræöu Ariels Sharons, forsætisráðherra ísraels, þar sem málflutningur hans þótti brjóta í bága við ísraelsk kosninga- lög sem banna einhliða kosninga- áróður síðasta mánuðinn fyrir kosningar. í ræðu sinni neitaði Sharon ákaft ásökunum ísraelska dagblaðsins Haaretz um meinta fjármálaspill- ingu sína og sona sinna fyrir leið- togakjörið í Likud-bandalaginu árið 1999. „Ég hef ekkert að fela,“ sagði Sharon og bætti við að staðiö hefði verið að öllum málum á löglegan hátt. Hann notaði einnig tækifærið til að veitast harkalega að Verka- mannaflokknum og sagði liðsmenn hans beita öllum brögðum til þess að koma höggi á Likud-bandalagið og sverta mannorð fjölskyldu sinn- ar með því að sá lygum og slúðri. Hegðan þeirra væri glæpsamleg og óábyrg. „Ég kom hingað til að svara þessum svívirðilega rógi liðsmanna Verkamannaflokksins gegn mér og fjölskyldu minni í þeim eina til- gangi að komast tO valda með lyg- um,“ sagði Sharon sem þar með mátti þola þá niðurlægingu að slökkt var á útsendingunni. Time Magazine greinir frá áætlun vopnaeftirlitsmanna í írak: Vísindamenn íraks yfirheyrðir á Kýpur Hans Blix, formaður vopnaeftir- litsnefndar SÞ, sagði fréttamönnum í höfuðstöðvum Öryggisráðs SÞ að sín- ir menn myndu innan næstu viku ræða við íraska vísindamenn um hugsanlega ólöglega vopnaeign íraks. Hann sagði ekkert um hvort þeir yrðu teknir úr landi, eins og segir frá í frétt á heimasíðu Time Magazine. Þar er því haldið fram að stjórnvöld á Kýpur hafi þegar samþykkt aö vera vettvangur viðtalanna, en þar er að finna eina af stöðvum vopnaeftirlits- mannanna í Irak. Irösk yflrvöld í Bagdad voru innt eftir viðbrögðum við frétt Time í gær og sagði Hussam Mohammed Amin að ekkert formlegt hafl átt sér stað tO að af því verði, þó svo að sú hug- mynd hafi verið borin upp. „Þetta var einungis munnleg beiöni vopna- eftirlitsmannanna," sagði hann. „Það eru ýmsir möguleikar að haga viðtölunum sem hafa verið kynntir okkur af Öryggisráðinu og við munum nota þann möguleika sem er við hæfl í hvert skipti," sagði Hans Blix í gær. Það er í sjálfu sér undir vísindamanninum sjálf- um komið hvort hann verður við beiðni um að fara úr landi tO að svara spurningum vopnaeftirlits- mannanna sé hann beöinn um það. Það er hins vegar ekkert i álykt- un Öryggisráðsins um vopnaeftirlit- ið í írak sem stríðir gegn því að vís- indamennimir verði teknir tO við- tals utan íraks. Blix og E1 Baradei gagnrýndu hins vegar skýrslu íraks um vopna- eign þeirra harkalega og sögðu þeir að „írakar svöruðu ekki fjölda spuminga" í þessari 12 þúsund blaðsíöna skýrslu. Þrátt fyrir það sögðu þeir að vopnaeftirlitsmenn hafa enn ekki fundið neitt grunsam- legt í leit sinni í landinu. Það kem- ur væntanlega áætlunum ríkis- stjómar Bush í Bandaríkjunum um innrás í írak mjög Ola að Blix og E1 Baradei skuli hafa boðað þolinmæði á meðan eftirlitsmennirnir sinna sínu starfi. Þeir sögðu að það gætu liðið nokkrir mánuðir þar tO niður- staða er komin í málið. Bandaríkjamenn segja hins vegar að ekkert hafi breyst í afstöðu þeirra. „Vandamálið er að sönnun- argögnin eru falin,“ sagði Ari Fleischer, talsmaður Hvíta hússins, í gær. „Við vitum fyrir vist að ger- eyðingarvopn er að fmna í írak.“ Sendiherra Þýskalands hjá Samein- uðu þjóðunum sagði að engin ástæða væri fyrir stríði í írak, þar sem engin sönnunargögn væru því tO stuðnings. Mohamed El Baradei og Hans Blix Forstjóri Alþjóða kjarnorkumálastofnunarínnar og formaöur vopnaeftirlitsnefndar SÞ svara nokkrum spurningum frétta- manna eftir að hafa flutt Öryggisráði SÞ bráðabirgðaskýrslu um starf eftiríitsmannanna í írak. UPPBOÐ Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Skógarhlíð 6, Reykjavík, sem hér segir á eftir- ________farandi eignum:__________ Álftamýri 58, 0001, 2ja herb. íbúð á jarðhæð t.v., Reykjavík, þingl. eig. Braut ehf., gerðarbeiðendur íbúða- lánasjóður og Tollstjóraembættið, þriðjudaginn 14. janúar 2003, kl. 10.00. Bakkastaðir 167, 0202, 99,8 fm íbúð á 2. hæð m.m., Reykjavík, þingl. eig. Haraldur Eiríksson, gerðarbeiðandi Tollstjóraembættið, þriðjudaginn 14. janúar 2003, kl. 10.00. Dalaland 11, 0201, 2. hæð t.v., Reykja- vík, þingl. eig. Aldís G. Einarsdóttir og Birgir Örn Birgisson, gerðarbeiðandi Tollstjóraembættið, þriðjudaginn 14. janúar 2003, kl. 10.00. Faxafen 12, 0103, 298,8 fm f SA-hluta kjallara, Reykjavík, þingl. eig. Nicolai ehf., gerðarbeiðendur Reykjavíkur- borg, Tollstjóraembættið og Vátrygg- ingafélag íslands hf., þriðjudaginn 14. janúar 2003, kl. 10.00. Fífurimi 1,0101, Reykjavík, þingl. eig. María Hrönn Magnúsdóttir, gerðar- beiðandi Tollstjóraembættið, þriðju- daginn 14. janúar 2003, kl. 10.00. Flétturimi 23,0202,107,1 fm íbúð á 2. hæð og bílstæði, merkt 0004, í bílskýli, Reykjavík, þingl. eig. Elín Guðfríður Kristjánsdóttir, gerðarbeiðandi Toll- stjóraembættið, þriðjudaginn 14. jan- úar 2003, kl. 10.00._____________ Fluggarðar 31D, 0103, flugskýli nr. 31D, Reykjavík, þingl. eig. Jórvík hf., gerðarbeiðendur Árvirkinn ehf. og Tollstjóraembættið, þriðjudaginn 14. janúar 2003, kl. 10.00. Flugvélin TF-TAL, sem er Cessna 206, þingl. eig. Sverrir Þóroddsson, gerðar- beiðandi Tollstjóraembættið, þriðju- daginn 14. janúar 2003, kl. 10.00. Fossagata 13, 50% ehl., Reykjavík, þingl. eig. Gunnhildur Björg Emils- dóttir, gerðarbeiðandi Tollstjóraemb- ættið, þriðjudaginn 14. janúar 2003, kl. 10.00. Grýtubakki 8, 0301, 76,9 fm 3ja herb. íbúð á 3. hæð m.m. ásamt geymslu í kjallara, merkt 00-04, Reykjavík, þingl. eig. Ásdís Ásmundsdóttir, gerð- arbeiðendur fbúðalánasjóður og Toll- stjóraembættið, þriðjudaginn 14. jan- úar 2003, kl. 10.00,________________ Hraunbær 60, 130302, 54,8 fm íbúð á 3. hæð f.m m.m. ásamt geymslu, merkt 0014, Reykjavík, þingl. eig. Örlygur Vigfús Árnason, gerðarbeiðendur íbúðalánasjóður og Tollstjóraembætt- ið, þriðjudaginn 14. janúar 2003, kl. 10.00.______________________________ Hringbraut 46, 0101, 4ra herb. fbúð á 1. hæð, Reykjavík, þingl. eig. Herdís L. Storgaard, gerðarbeiðandi Tollstjóra- embættið, þriðjudaginn 14. janúar 2003, kl. 10.00. Hverfisgata 74, 0001, vinnustofa á baklóð í matshluta 02, Reykjavík, þingl. eig. Gerpla ehf., gerðarbeiðandi Tollstjóraembættið, þriðjudaginn 14. janúar 2003, kl. 10.00. Hörðaland 16, 0302, 81,6 fm íbúð á 3. hæð m.m., Reykjavík, þingl. eig. Helga Þórey Jónasdóttir, gerðarbeiðandi Tollstjóraembættið, þriðjudaginn 14. janúar 2003, kl. 10.00. Klapparstígur 13, 0101, 50% ehl. í 2ja herb. íbúð á 1. hæð t.v. í steinhúsi, Reykjavík, þingl. eig. Hafsteinn S. Grétarsson, gerðarbeiðandi Tollstjóra- embættið, þriðjudaginn 14. janúar 2003, kl. 10.00. Laufengi 112, 0201, 4ra herb. íbúð, 101,89 fm m.m., Reykjavík, þingl. eig. Bryndís Gertrud Hauksdóttir og Ólaf- ur Gunnar Gunnarsson, gerðarbeið- endur Greiðslumiðlun hf., íbúðalána- sjóður, Sparisjóður Rvíkur og nágr., útib., og Tollstjóraembættið, þriðju- daginn 14. janúar 2003, kl. 10.00. Laufengi 160, 0101, 5 herb. íbúð á tveimur hæðum, 115,7 fm m.m., Reykjavík, þingl. eig. Úlfhildur Elís- dóttir og Snæbjörn Tryggvi Guðnason, gerðarbeiðandi Tollstjóraembættið, þriðjudaginn 14. janúar 2003, kl. 10.00. Lyngrimi 9, Reykjavík, þingl. eig. Jón Guðlaugsson, gerðarbeiðendur íbúða- lánasjóður, Lífeyrissjóðurinn Fram- sýn, Sparisjóður vélstjóra og Toll- stjóraembættið, þriðjudaginn 14. jan- úar 2003, kl. 10.00,________________ Maríubakki 4,0302,3ja herb. íbúð á 3. hæð t.h., Reykjavík, þingl. eig. Leifur Guðmundsson og Jóhanna Birna Ein- arsdóttir, gerðarbeiðendur Kreditkort hf., Sparisjóður Kópavogs og Toll- stjóraembættið, þriðjudaginn 14. jan- úar 2003, kl. 10.00,________________ Mjölnisholt 12, Reykjavík, þingl. eig. Svanhvít Friðriksdóttir, gerðarbeið- andi Tollstjóraembættið, þriðjudaginn 14. janúar 2003, kl. 10.00. Nýlendugata 18, Reykjavík, þingl. eig. Angelica Cantu Davila, gerðarbeið- endur íbúðalánasjóður og Tollstjóra- embættið, þriðjudaginn 14. janúar 2003, kl. 10.00. Rauðalækur 31, 0001, 50% ehl. í 3ja herb. kjallaraíbúð, Reykjavík, þingl. eig. Gunnhildur Birgit Wessman, gerð- arbeiðendur Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis og Tryggingamiðstöðin hf., þriðjudaginn 14. janúar 2003, kl. 10.00. Reynimelur 84, 0101, 50% ehl. í 4ra herb. íbúð á 1. hæð t.v., Reykjavík, þingl. eig. Hrafnhildur Óskarsdóttir, gerðarbeiðandi Tollstjóraembættið, þriðjudaginn 14. janúar 2003, kl. 10.00. Síðumúli 33, 0302, Reykjavík, þingl. eig. ísbyggð ehf., gerðarbeiðendur Líf- eyrissjóður verslunarmanna, Mynd- höfundasjóður íslands og Tollstjóra- embættið, þriðjudaginn 14. janúar 2003, kl. 10.00. Sólvallagata 41, 0301, 3ja herb. risí- búð, Reykjavík, þingl. eig. Páll Skúla- son, gerðarbeiðandi íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 14. janúar 2003, kl. 10.00. Starengi 78, raðhús, Reykjavík, þingl. eig. Margrét Rögnvaldsdóttir, gerðar- beiðendur Frjálsi fjárfestingarbank- inn hf., íbúðalánasjóður, Lífeyrissjóð- ur verslunarmanna, Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis, útibú, og Tollstjóraembættið, þriðjudaginn 14. janúar 2003, kl. 10.00. Suðurlandsbraut 20, 0201, 201,3 fm skrifstofurými á 2. hæð m.m., Reykja- vík, þingl. eig. íslenska útgáfufélagið ehf., gerðarbeiðendur Prentsmiðjan Oddi hf., Tollstjóraembættið og Trygg- ingamiðstöðin hf., þriðjudaginn 14. janúar 2003 kl. 10.00. Tryggvagata 4, 0305, Hamarshúsið, íbúð á 3. hæð, Reykjavík, þingl. eig. Vatnsiðjan Lón ehf., gerðarbeiðandi Tollstjóraembættið, þriðjudaginn 14. janúar 2003, kl. 10.00. SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK Þingmenn styðja Chavez 19 bandarískir þingmenn komu í gær þeim skilaboð- um til Hugo Chavez, forseta Venesúela, að þeir styðji hann í starfi og að hann eigi ekki að svara kalli andstæðinga sinna og víkja úr starfi. I gær fóru bankar landsins í tveggja daga verkfall og matvöru- verslanir voru einnig lokaðar í gær. Alls hafa verkfallsaðgerðir í land- inu staðið yfir í 5 vikur. Bílasprengja drepur 4 4 fórust og 15 slösuðust í austur- hluta Kólumbíu í gær þegar bíla- sprengja sprakk í bæ nálægt her- búðum þar sem bandariskir sér- sveitarmenn munu koma til með að þjálfa liðsmenn kólumbíska hersins. Það er talið að vinstrisinnaðir upp- reisnarmenn hafi staðið fyrir sprengjutilræðinu. Upplýsingum safnað Flugriti og hljóðupptökutæki hafa fundist í braki flugvélarinnar sem fórst í Norður-Karólínuríki í gær. 21 lést. Samkvæmt upplýsingunum lýsti flugmaðurinn yfir neyðarástandi fljótlega eftir flugtak en eitthvað varð til þess að flugvélin reis um of upp á við áður en hún missti kraft. Flugvélar saknað í Perú Flugvél með 42 farþega innan- borðs hvarf í Amasonregnskóginum í gær og leituðu björgunarsveitir að henni. 4 voru í áhöfn vélarinnar sem er af gerðinni Fokker F-28. Hermanninum skilað Sýrlenska hermanninum sem ísraelskir hermenn fonguðu í fyrra- dag eftir að hafa skotið félaga hans til bana á Gólanhæðum var í gær skilað aftur til sýrlenskra yfirvalda ásamt líki hins hermannsins. Tilraunir gagnrýndar Richard Boucher, talsmaður banda- riska utanríkisráðu- neytisins, kom í gær til skila gagn- rýni bandarískra stjómvalda á Agni-1 eldflaugatilraunir Indverja. Eldflaug- amar geta borði kjamorkuvopn og era fremur skammdrægar, um 800 km. Þær era sagðar hafa gengið vel. Konum hleypt á pallana Fótboltafélag í Iran hefur ákveðið að hleypa konum aftur á áhorfenda- palla sína, eftir margra ára hlé. Litl- um hópi kvenna var hleypt á leik i höfuðborginni Teheran í gær þar sem liðið Paykan lék á heimavelli. Ein þeirra sagði við fréttamann að draumur sinn hafi með því ræst. 12 létust í Ekvador Minnst 12 fórust og 27 slösuðust í rútuslysi í Ekvador í gær. Rútan keyrði út af veginum til að forðast árekstur en féll þá í djúpt gil. Sameiginlegt boð? Ríkisstjóri Quebéc í Kanada greindi frá því í gær að uppi væru hugmyndir um að fylkið byðist til að halda Vetrarólympíuleikana árið 2014 eða 2018 ásamt New York-ríki. Yrði af því væri það í fyrsta sinn sem tvö lönd byðu sig í hlutverk sameiginlegs gestgjafa.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.