Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2003, Qupperneq 11
11
FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 2003
py_______________________________________ Útlönd
- hafa ákveðið að segja upp aðild að NPT-samkomulaginu gegn útbreiðslu kjarnorku
Stjómvöld í Norður-Kóreu til-
kynntu í morgun að þau hefðu ákveð-
ið að segja upp aðild að alþjóðlega
NPT-samkomulaginu um takmark-
anir á útbreiðslu kjamavopna en segj-
ast þó engar ráðagerðir hafa uppi um
framleiðslu kjamavopna.
„Kjarorkuframleiðsla okkar á
þessu stigi mun aðeins takmörkuð við
friðsamlegan tilgang eins og til fram-
leiðslu á raforku," segir í yfirlýsingu
stjómvalda.
Yfirlýsingin hefur þegar valdið
miklu fjaðrafoki og aukið á spennuna
á svæðinu og hafa suður-kóresk
stjórnvöld þegar boðað til skyndifund-
ar í öryggisráði þjóðarinnar í dag til
þess að ræða málið.
Að sögn talsmanns ráðuneytisins,
sem fer með sameiningarmál Kóreu-
ríkjanna, mun Jeong Se-hyun, ráð-
herra sameiningarmála, stjóma fund-
inum, en í yfirlýsingu Lýðræðislega
árþúsundaflokksins, sem heldur um
stjómartaumana í Suður-Kóreu, segir
Aukin spenna milli Kóreuríkjanna
Subur-Kóreumenn hafa boöað fund í öryggisráði þjóðarinnar til aö ræða
ákvörðun noröanmanna um að segja upp aöild aö NPT-samkomulaginu.
að suður-kóresk stjómvöld þurfi strax
að fá vitneskju um það hvað norðan-
menn vilji í raun til þess að hægt
verði að leita lausna í nánari viðræð-
um við fulltrúa Bandaríkjamanna,
Japans, Kína, Rússlands og Evrópu-
sambandslandanna.
Yfirlýsing Norður-Kóreumanna
kemur beint ofan í fund Bills Richard-
sons, ríkisstjóra í Nýju-Mexíkó, með
tveimur sendifulltrúum Norður-
Kóreumanna, en áðurnefndur Ric-
hardson er fyrrum sendiherra Banda-
ríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum og
var meðal annars í tveimur sendi-
nefndum sem sóttu Norður-Kóreu-
menn heim árið 1990 þegar hann var
enn þingmaður.
Háttsettur bandarískur embættis-
maður sagði í gær að bandarísk
stjómvöld hefðu þegar fallist á það að
Richardson fundaði með Han Song
Ryol, aðstoðarsendiherra Norður-
Kóreu hjá Sameinuðu þjóðunum, sem
þykir sýna samningsvilja þeirra.
Norður-Kóreumenn
ögra enn umheiminum
Látnir syrgöir
Fjöldi fólks beið milli vonar og ótta í
flughöfninni í Diyarbakir eftir fréttum
afættingjum og ástvinum.
Tvær herþotur
rákust saman
yfir Tyrklandi
Aðeins nokkrum klukkustundum
eftir að farþegaþota með áttatíu
manns innanborð brotlenti við flug-
völlinn i borginni Diyarbakir í suð-
austurhluta Tyrklands síðdegis í
fyrradag með þeim afleiðingum að 75
manns fórust, rákust tvær herþotur í
eigu tyrkneska hersins saman í lofti
yfir Malatya-héraði aðeins nokkra
tugi kílómetra ffá Diyarbakir.
Þotumar munu hafa verið á æf-
ingaflugi en í óstaðfestum fréttum frá
Tyrklandi segir að tveir flugmenn
hafi verið í hvorri vél, sem vora af
gerðinni F-4 og hafi þeir allir farist.
Ekki er vitað um orsök áreksturs-
ins en talið líklegt að slæmum flug-
skilyrðum í þykkri þoku sé um að
kenna eins og í slysinu í Diyarbakir.
Verkfalli afstýrt
í Þýskalandi
Opinberam launaþegum og at-
vinnurekendum í Þýskalandi tókst í
morgun að komast aö samkomulagi
um launakjör eftir nokkurt þref.
Þar með var yfirvofandi verkfalli
um 3 milljóna manna afstýrt en það
hefði lamað stærsta efnahagssvæði
Evrópu.
Samningurinn er þó ekki ódýr og
lítur út fyrir að hann muni ekki
koma sér vel fyrir illa staddan fjár-
hag ríkisstjómarinnar. Kostnaður
hans mun nema um 1,9 milljörðum
evra.
Það á nú eftir að leggja sáttina
fyrir launadeild Verdi, verkalýðsfé-
lags opinberra starfsmánna, en bú-
ist er við að þeir muni samþykkja
hann.
'•liaÉríVí
j|| V'.Zj |J ; _ i1™!
b i 'ph£Íj yj 0 iatd
REUTERSMYND
Kristnihátíö í Manilla
Þúsundir kristinna Filippseyinga tóku í gær þátt í árlegri kristnihátíð í Quiapo-hverfi í höfuöborginni Maniila til þess að fagna
komu kristninnar til eyjanna á sextándu öld. Þátttakendur safnast saman á aðaitorgi hverfisins umhverfis timburstyttu af
Kristi á krossinum, en fólkið trúir því að snerting við styttuna geti boðaö gæfu ogjafnvel framkallað kraftaverk.
Fyrstu merkin um ósætti milli
tyrkneska hersins og stjórnvalda
Hilmi Ozkok, hershöfðingi og yf-
irmaður tyrkneska hersins, gagn-
rýndi í gær ríkisstjóm landsins og
sakaði hana um að vinna að eflingu
múslímskra áhrifa í landinu.
Þetta eru fyrstu merkin sem
koma fram í dagsljósið um ósætti
milli hersins og nýrrar ríkisstjóm-
ar hins íslamska Þróunarflokks
Receps Erdogans, sem vann glæsi-
legan sigur í þingkosningunum í
nóvember sl. þar sem hann náði
hreinum meirihluta á þingi.
Þessi ummæli Ozkoks koma í
kjölfar þess að Abdullah Gul forsæt-
isráðherra hafnaði beiðni hersins
um að settar yrðu reglur sem heim-
iluðu herstjóminni að reka menn
úr hemum yrðu þeir uppvísir að
því að stunda íslamskan trúaráróð-
ur.
Ozkok sagði að með því aö hafna
beiði hersins um leyfilegan brott-
rekstur hefði Gul hvatt þá sem berj-
ast gegn veraldlegum gildum innan
Hilml Ozkok.
hersins til dáða, en herinn hefur í
áratugi staðið vörð um að veraldleg
gildi séu í heiðri höfö meðal stjóm-
valda og þrisvar sinnum staðið fyr-
ir valdaráni þess vegna síðan árið
1960.
Síðast gerðist það árið 1997 en þá
var fyrsta íslamska ríkisstjóm
landsins, undir forystu Virtue-
flokksins, sem Þóðarflokkurinn var
stofnaður upp úr, hrakin frá völd-
um fyrri þrýsting hersins.
Fyrir síðustu kosningar tilkynnti
Ozkok svo að herinn myndi áfram
standa vörð um veraldleg gildi og
verja þjóöina gegn hættunni sem
stafaði af íslamskri harðlínustefnu.
í gær ítrekaði hann þessa afstöðu
hersins og sagði að öllum tilraunum
stjómvalda til þess að afnema lög,
sem útiloka múslimska bókstafstrú-
armenn frá öllum áhrifa- og stjóm-
unarstörfum á vegum ríkisins,
verði mætt af fullri hörku, en sam-
kvæmt tyrkneskum lögum geta bók-
stafstrúarmenn ekki farið með
stjómun neinna ríkisstofnana og
þar með talið í skólakerfinu.
Fyrir kosningamar var það yfir-
lýst stefna Þjóðarflokksins að af-
nema þessi lög þar sem þau brytu í
bága við almenn mannréttindi en
síðan hefur Gul forsætisráðherra
dregið í land og sagt að það væri
ekki lengur forgangsmál.
Lögreglan ræöst tii atlögu
Umsátriö átti sér stað í Hackney-
hverfí í austurhluta London.
Lengsta umsátri
Bretlands lokið
Svo virðist sem lengsta umsátri lög-
reglu i Bretlandi hafi lokið í morgun
þegar lögreglan sagði að líklega væri
byssumaðurinn dáinn í ibúöinni sem
hann hafði haldið til í 15 daga.
Umsátrið hófst annan í jólum er lög-
reglan ætlaði að fjarlæga bíl fyrir utan
íbúðina til að afla sönnunargagna í
rEumsókn. Maðurinn, Eli Hall, skaut
þá á lögreglu og læsti sig inni og ann-
an karlmann sem hann tók í gíslingu.
Honum tókst þó að koma sér undan á
11. degi, á sunnudag.
Lögreglan hafði hætt að færa Hall
mat fyrir viku og lokað hafði verið
fyrir allt rafmagn, hita og vatn.
Talið er aö hann hafi brennt
húsgögn til að halda á sér hita.
Hall lést líklega af skotsárum
lögreglu eða reykeitrun.
Afbrýðisöm meri
fótbraut brúðina
Afbrýðisöm meri i eigu brasilíska
knattspymukappans Antunes
braust fyrr í vikunni inn í íbúð eig-
anda síns, þar sem hann eyddi brúð-
kaupsnóttinni með sinni heittelsk-
uðu.
Merin réðst umsvifalaust að
brúðinni með þeim afleiðingum að
hún fótbrotnaði, auk þess sem hún
hlaut aðra smærri áverka eftir bit
og spörk merarinnar, sem kölluð er
Juju.
Þegar brúðurin kom heim af spít-
alanum í fyrradag eftir aðhlynningu
fór hún strax fram á það við eigin-
manninn, sem spilar með liði San
Jose í bænum Roraima, að Juju yrði
tafarlaust aflífuð, en því neitaði
Antunes og sendi merina þess i stað
til bróður síns sem býr á nálægu
sveitabýli.
Kannabis tengt
heilunarkrafti
Jesú Krists
Rannsókn þess efnis að Jesús
Kristur og lærisveinar hans hafi not-
að olíu sem byggir á kannabisgranni
í heilunarskyni birtist í grein í
bandaríska timaritinu High Times. í
olíunni mun hafa veriö þykkni gert
úr kannabis er nefnist kaneh-bosem.
Höfundur greinarinnar, sem segir
rannsóknina byggða á ritningum
frá þessum tíma, efast ekki um gildi
þeirra kraftaverka sem Jesú framdi,
heldur hvort kristin kirkja hafi á
árdögum sínum notast við efni sem
hafa samstundis áhrif á sjúklinginn.
„Ef kannabis hefur verið eitt af
aðalhráefmmum í kristinni smum-
ingarolíu," segir höfundurinn, Chris
Bennet, „eins og sagan virðist gefa
til kynna og að fá smumingu er það
sem gerði Jesú Krist og fylgismenn
aö kristnum mönnum, þá hlýtur það
að þýða að ofsóknir á þeim sem nota
kannabis séu ókristilegar."
Þessu hefur vitanlega verið alfariö
hafnaö af kristilegum hópum í
Bandaríkjunum og lítið gefið fyrir
rannsókn Bennets. John Cunyus, höf-
undur bókar um kristilega heilun,
segir að þó svo að það sé talað um það
í biblíunni að menn hafi verið „grýtt-
ir“ (stoned), sem má einnig nota sem
lýsingarorð fyrir þá sem era í
hassvímu, hafi það vafalaust ekki
verið í svo tvíræðinni merkingu.