Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2003, Qupperneq 13
13
FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 2003
Fréttir
Undirbúningsframkvæmdir við Kárahnjúka:
Allt klárt
„Þetta veltur auðvitað á já eða nei:
Annaðhvort verður haldið áfram eða
hreinlega hætt við,“ segir Pétur Ing-
ólfsson, verkfræðingur og verkefnis-
stjóri Landsvirkjunar við Kárahnjúka-
virkjun. Eins og fleiri taldi hann í gær
að Alcoa mundi ákveða að reisa álver
í Reyðarfirði og enn fremur að Reykja-
víkurborg, sem stór eigandi Lands-
virkjunar, mundi samþykkja fram-
kvæmdina fyrir sitt leyti. Áralöngu
þófi um stóriðju og tiiheyrandi fram-
kvæmdir á Austurlandi er að ljúka.
DV var í gær við Kárahnjúka. Þar
er ótrúlega mikil vinna í gangi í
sannkölluðu sumarveðri um miðjan
vetur enda þótt ekkert hafi í raun
verið samþykkt endanlega i stóriðju-
eða virkjunarframkvæmdum. Við
Axará eru Arnarfellsmenn að undir-
búa aðkomugöng að aðalaðrennslis-
göngunum.
„Þeir eru að gera geil inn í fjallið
þannig að þegar Impregilo kemur,
sem við trúum að verði, þá geta þeir
byrjað strax á verkefninu," sagði Pét-
ur Ingólfsson í gær. „Þarna verður
mikil stöð hjá Impregilo því þarna
grafa þeir afrennslisgöng virkjunar-
innar í báðar áttir frá þessum af-
rennslisgöngum. Þá er líka verið að
gera plön handa þeim þannig að þeir
geti sett niður vinnubúðir. Búið er að
finna vatn og rotþrær eru komnar á
staðinn," sagði Pétur. Vega- og brúa-
vinnu lauk fyrir nokkru.
Verið er að gera aðkomugöng að
hjáveitugöngunum fyrir Kárahnjúka-
stíflu, göng inn í gljúfrið til þess að
geta grafið göng sem veita vatninu
fram hjá stíflustæðinu, eins konar
hjáveitu gegnum jarðgöng sem verða
DVA1VNOIR HAFDÍS ERLA BOGADÖTTIR
Gera klárt fyrir ítalina
Þetta eru þrír Arnarfellsmanna, þeir
Rafn Vilhjálmsson, Guömundur Axel
Grétarsson og Sigurbergur Konráös-
son, sem er einn af eigendum Arn-
arfells. Þarna er sköpuö aðstaöa fyr-
ir aðalverktakann, Impregilo S.p.a.,
við Axará. Svipuö framkvæmd var
gerö viö Teigsbjarg um áramót.
720 metra löng. Búið er að sprengja 85
metra göng.
Landsvirkjun bíður eftir að bind-
andi samningar verði í höfn. Þá taka
við samningar um ýmsa verkþætti og
þá má búast við vissri stígandi í verk-
efninu. „Þetta verður eins og þegar
losað er um tappa,“ sagði Pétur Ing-
ólfsson. -HEB/JBP
Byrjun framkvæmda
Júní 2003:
Framkvæmdir við Kárahnjúkastíflu og
aðrennslisgöng
Ágúst 2003:
Útboð á Hálslóni
September 2003:
Framkvæmdir við aflstöð,
smíði véla og rafbúnaðar hefst
Nóvember 2003:
Útboð Jökulsárveitu
Apríl 2004:
Framkvæmdir við Hálslón
Júní 2004:
Framkvæmðir viö Ufsarveitu
Desember 2004:
Uppsetning véla og rafbúnaðar
Desember 2005:
Útboð Hraunaveitu
Júní 2006:
Framkvæmdir við Hraunaveitu
Ágúst 2006:
Fylling lóns við Kárahnjúkastíflu
Lok framkvæmda
Febrúar 2006:
Smfði véla og búnaðar
September 2006:
Framkvæmdir við Hálslón
Nóvember 2006:
Fylling lóns viö Kárahnjúkastfflu,
framkvæmdir viö aðrennslisgöng
Mars 2007:
Jökulsárlón tekiö í notkun
Apríl 2007:
Afhending orku hefst
Ágúst 2007:
Framkvæmdir við Ufsarveitu
Október 2007:
Uppsetning véla og rafbúnaðar
Desember 2007:
Framkvæmdir viö aflstöð
Júní 2008:
Keldárgöng tekin f notkun
Apríl 2009:
Framkvæmdir viö Hraunaveitu
Framhjáhlaupsgöng
Á fyrirhuguöu virkjunarsvæöi viö Kárahnjúka er sköpuö aöstaöa vegna geröar framhjáhlaupsganga og miöar þeirri
vinnu ágætlega og verkiok veröa í apríl. Stóra verkið á aö geta hafist á fullu. íslenskir aöalverktakar vinna aö þessu
verki. Á myndinni eru þeir Rúnar Ág. Jónsson frá íslenskum aöalverktökum og Sverre Moáge frá NCC.
Framkvæmdaáætlun Kárahnjúkavirkjunar:
Virkjunin komin í fullan
rekstur í september 2007
Framkvæmdir við Kárahnjúkavirkj-
un hófust haustið 2002 með gerð Kára-
hnjúkavegar, sem er 24 km langur veg-
ur frá Fljótsdalshlíðarvegi að Kára-
hnjúkastíflu, og nokkurra vegslóða og
með lagningu rafstrengja til undirbún-
ings því að meginverkþættir gætu haf-
ist á útmánuðum 2003, bygging Kára-
hnjúkastíflu og gröftur aðrennslis-
ganga. Byggð verður brú á Jökulsá á
Brú innan við stæði Kárahnjúkastíflu.
Bygging Kárahnjúkastíflu tekur þrjú
og hálft ár og mun ljúka undir lok árs
2006. Framkvæmdir við Desjarárstíflu
og Sauðárdalsstiflu rúmast vel innan
þess tima. Söfnun vatns í Hálslón hefst
nokkru áður en stíflubyggingunum
lýkur. Gröftur aðrennslisganganna frá
Hálslóni að Teigsbjargi tekur álíka
langan tíma og bygging Kárahnjúka-
stíflu. Jökulsárveita verður gerð sam-
hliða þó að nokkru síðar verði byijað
á henni. Sömu sögu er að segja um fall-
göngin að stöðvarhúsinu. Fram-
kvæmdir við stöðvarhúsið, að meðtöld-
um aðkomugöngum og frárennsli, hefj-
ast haustið 2003 og er þá miðað við að
byrjað verði að setja upp vélar og raf-
búnað í lok árs 2004. Vatni verður
hleypt á til prófunar á fyrstu vélasam-
stæðum í ársbyrjun 2007 en gert er ráð
fyrir að byrjað verði að afhenda raf-
magn frá fyrstu vélasamstæðu virkjun-
arinnar í apríl 2007. Virkjunin verði
síðan komin i fullan rekstur í septem-
ber 2007.
Framkvæmdir við Kárahnjúka-
stíflu og aðrennslisgöng úr Hálslóni
eiga að hefjast í júníbyijun 2003, svo
framarlega sem ákveðið verði af Al-
þingi að reisa álver í Reyðarfirði og
virkja norðan Vatnajökuls. í fram-
kvæmdaáætlun virkjunarinnar er
gert ráð fyrir að byija að safna vatni
i Hálslón í september 2006. Gangi það
eftir verður hægt að afhenda orku-
kaupanda rafmagn til álversins í byij-
un apríl 2007 og Kárahnjúkavirkjun
yrði tekin formlega í notkun í byijun
júní 2007.
Jökulsá á Dal verður stífluð við
Fremri-Kárahnjúk og myndað miðlun-
arlón, Hálslón. í Jökulsá í Fljótsdal
verður myndað lítið lón meö stíflu,
Ufsarlón. Jarðgöng verða boruð úr
Hálslóni út á Teigsbjarg, ofan Fljóts-
dals. Á leiðinni tengjast þau öðrum
göngum úr Ufsarlóni. Vatnið fer um
tvenn fallgöng að stöðvarhúsinu inni í
fjallinu, rennur í gegnum sex aflvélar
og áfram um göng og skurð út i farveg
Jökulsár i Fljótsdal austur undan Val-
þjófsstað.
Stöðvarhúsið neðanjarðar í Teigs-
bjargi verður um 115 metra langt, 14
metra breitt og mesta hæð um 34 metr-
ar. í stöðinni verða sex vélasamstæður
með tilheyrandi búnaði og uppsett afl
630 MW. Hverflar verða af Francis-
gerð. Fyllingarefni í Kárahnjúkastíflu
verður alls 8.400 rúmmetrar. Hæð Desj-
arárstíflu verður allt að 60 metrar.
Ýmsar stærðir
Flatarmál Hálslóns verður 57 ferkm
og lengd 27 km en flatarmál Ufsarlóns
1 ferkm. Hæð Kárahnjúkastíflu verður
190 metrar, Desjarárstíflu 60 metrar,
Sauðárdalsstíflu 25 metrar og Ufs-
arstíflu 32 metrar.
Aðrennslisgöng frá Hálslóni verða
39,8 km, frá Ufsarlóni 13,3 km, aðgöng
í Teigarbjargi 1,4 km, við Axará 2,7 km
og frá Glúmstaðadal 2,8 km. Stálfóðruð
fallgöng verða 2x410 metrar. Aðgöng
að stöðvarhúsi og kapalgöng frá
spennasal verða 800 metrar og frá-
rennslisgöng 1.100 metrar en frárennsl-
isskurður alls 2.100 metrar. Síðast en
ekki síst: Orkuvinnslugeta verður
4.450 GW-stundir (GWh) á ári. Til sam-
anburðar er orkuvinnslugeta Búrfells-
virkjunar 2.093 GWh, Sigöldu 650
GWh, Sultartanga 880 GWh og Blöndu-
virkjunar 720 GWh. -GG
. DV-MYND JJAFDÍS ERLA BOGADÓTTIR
Aorennslísgong
Gröftur aörennslisganga vegna Kára-
hnjúkavirkjunar gengur vel og einnig er
veriö aö byggja brú á Jökulsá á Brú
(Jöklu) innan viö stæöi Kárahnjúkastíflu.