Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2003, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2003, Síða 14
14 ________________FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 2003 Menning_________________________________________________________________________________________________________________________DV Umsjón: Silja Adalsteinsdóttir silja@dv.is Þuríöur Siguröardóttir myndlistarmaöur og þjóö- þekkt söngkona býöur öll- um, boönum sem óboön- um, á málverkasýningu sína, „Óboðnir gestir“, sem verður opnuð í kvöld í Gallerí Hlemmi í Þverholt- inu fyrir ofan Hlemm og stendur til 2. febrúar. Á sýningunni eru ótrúlega litríkar blómamyndir sem svipta í einu vetfangi burt vetrarþunglyndinu og ættu aö fara beint á lyfja- skrá. Þar blómstra þrílit- ar fjólur, sólgular sóleyjar og fiflar, Ijósfjólubláar hrafnaklukkur, hvítar baldursbrár, smárablóm, maríustakkur og gleym- mér-ei. Þarna er meira aö segja biðukolla, Ijóslifandi í yfirstœrö. „Þau eiga það öll sameiginlegt þessi blóm að þau eru íslensk og við elskum þau þegar við erum J v , Á. DV-MYND HARI Þuríður Slgurðardóttir í „garðinum" sínum Blómin voru enn á sinni rót í vinnustofu Þuríöar þegar myndin var tekin er veita nú yndi gestum oggangandi á Hlemmi. Þú leggst í grasið - og sérð ekkert nema litrík blóm og grös í yfirstærð á sýningu Þuríðar Sigurðardóttur böm og fögnum þeim úti í náttúrunni sem full- orðið fólk en sláum þau miskunnarlaust, eitrum fyrir þau og rífum þau upp með rótum ef við finnum þau í garðinum okkar. Þar eru þau óboðnir gestir,“ segir Þuríður. „Við útrýmum þeim jafnvel af umferðareyjum og plöntum svo gulum túlípönum í staðinn! Það hef ég aldrei skilið.“ Sumar um vetur „Ég er ekki bara að hugsa um blómin með þessum verkum heldur mannlífið líka,“ segir hún þar sem hún stendur í „garðinum" sínum miðjum, „þvi við viljum staðsetja bæði blóm og fólk á ákveðnum stöðum. En við eitrum yfirleitt ekki fyrir fólk - nema þá óbeint!“ bætir hún við með sínum smitandi hlátri. „Ég hugsaði mér alltaf að halda þessa sýningu á þessum tíma árs,“ heldur hún áfram. „Hún á ekki við yfir sumartímann þvi ég kæri mig ekk- ert um að keppa við náttúruna, og ég vildi held- ur ekki keppa við jólaljósin.“ Þuríður sýnir þessar myndir í Gallerí Hlemmi vegna þess að það er gluggagallerí og auðvelt að skoða sýninguna að utan. Þarna býður hún fólki stefnumótsstað í blómagarði um hávetur. „Margir þora ekki inn á söfn eða sýningar," segir hún, „finnst þeir ekki eiga erindi eða halda að það kosti inn. En á Hlemmi þarf fólk ekkert að koma inn. Fólk leitar líka félagsskapar á Hlemmi og ég vonast til að það hittist fyrir utan galleríið. Ég ætla að lýsa salinn vel þannig að gróðurinn njóti sín - þama verður sumar um vetur.“ Þuríður útskrifaðist frá Listaháskóla Íslands vorið 2001 og hefur síðan sýnt verk sín viða um land, meðal annars á Borgarfirði eystra við opn- un Kjarvalsstofu, í Slúnkaríki á ísafirði og Menn- ingarmiðstöðinni Skaftfelli á Seyðisfirði. Margir minnast ævintýralegrar sýningar hennar á kjólklæddum raflínumöstrum í Tjarnarsal Ráð- hússins í Reykjavík á Vetrarhátíð í fyrra, og nú síðast sýndi hún sjálfsmynd í Gallerí i8 - undir stiganum þar sem hún sást klöngrast upp úr gólf- inu. Hún tekur virkan þátt 1 Opna galleríinu, sem stendur fyrir eins dags sýningum í til- fallandi auðu rými i miðborg Reykjavíkur, enda er hún ein af stofnendum þess. Málverkið skilar tímanum - Þetta eru ekki „venjulegar" blómamyndir ef maður miðar við blómavasamyndir fyrri alda, og þær eru líka gerólíkar örsmáu blómjurtunum hans Eggerts Péturssonar því þó að þær séu ná- kvæmar eru þær svo rosalega stórar. Þó hafa þær allt önnur áhrif en stækkaðar ljósmyndir. Hveiju viltu ná fram? „Þegar maður liggur úti í grasi í návígi við þessi blóm þá sér maður þau svona stór - maður sér ekkert annað,“ segir Þuríður. „Það er sú til- fínning sem ég er að reyna að ná, og ég held að allir þekki hana sem þekkja náttúruna á annað borð. Maður leggst í grasið og andar að sér jörð- inni og blómailminum og skoðar alltaf neðar og neðar. Þegar ég mála þessar myndir þá finnst mér vera eitthvað þarna undir - þetta eru ekki bara blóm og það sem birtist við fyrstu sýn. Ég er að eiga við dýpt líka og vona að fólk gleymi sér við að skoða myndirnar og fái sína eigin tilfinn- ingu fyrir þeim. Myndmáliö er auðskilið og það er það sem ég stefndi líka að, ég vil að allir skilji myndirnar mínar en þó hver á sinn hátt. Það sér hver með sínum augum og sumarið sem rifjast upp er ólíkt eftir einstaklingum. Ljósmyndin skilar augnablikinu en ég vonast til að málverk- ið skili tímanum." - Málverkið getur líka valið hvað kemur með á myndinni og hvað ekki. Til dænjis eru engar pöddur á myndunum þínum ... „Nei, þær skildi ég eftir fyrir áhorfandann, all- ir verða að hafa möguleika á að bæta við!“ segir Þuríður með klingjandi hátri. „Svo má líka bæta litlum blómálfum við í huganum, þeir eru svo fallegir. Mig langar til að fóik hugsi um eitthvað fallegt!" Sýningunni lýkur sem sagt sunnudaginn 2. febrúar og Gallerí Hlemmur verður opinn mið- vikudaga tO sunnudaga frá kl. 14-18. Sköpun með nýjum miðlum - Prix Möbius Nordica gerir norrænar þjóðir sýnilegri á alþjóðlegum vettvangi nýrrar hönnunar Á þessu ári skráðu 44 þátttakendur sig í sam- keppnina Prix Möbius Nordica, þar af voru 3 frá Danmörku, 31 frá Finnlandi, 2 frá íslandi, 4 frá Noregi og 3 frá Svíþjóð. Möbius-keppnin er frönsk að uppruna og var einn íslendingur, sem þá var við nám í Frakklandi, á meðal þátttak- enda í fyrsta sinn sem hún var haldin árið 1992. Þetta er í fyrsta sinn sem Prix Möbius Nordica nær til allra Norðurlanda en henni er ætlað að vera lyftistöng fyrir sköpun með nýjum miðlum á Norðurlöndum og gera norrænar þjóðir sýni- legar á alþjóðlegum vettvangi. Tíu þátttakendur hafa verið valdir til að taka þátt í úrslitakeppninni og munu þeir kynna verk sín á Zapping-viðburðinum sem hefst kl. 12 laug- ardaginn 25. janúar 2003 í Media Center Lume í Lista- og hönnunarháskólanum í Helsinki. Nor- ræna dómnefndin tilkynnir sigurvegara sama kvöld. Sýning á verkum þátttakenda í úrslita- keppninni verður opnuð í Lume Gallery fimmtu- daginn 16. janúar. Margrét Elísabet Ólafsdóttir fagurfræðingur situr í dómnefnd úrslitakeppn- innar. Verðlaunahafar Prix Möbius Nordica munu síðan taka þátt í alþjóðlegu keppninni Prix Möbi- us Intemational i Aþenu í september. Val á þátttakendum í úrslitakeppnina miðast við að kynna sköpunargleði og nýjungar sérstak- lega á sviði gagnvirkni þar sem saman fara hár Margrét Elísabet Ólafsdóttir íslenski dómnefndarmaöurinn. gæðastaðall á sviði fagurfræði og tæknilegrar út- færslu sem og vísindalegt gildi og möguleikar til fræðslu. Samband tjáningaraðferðar við innihald og markhóp var mikilvægt viðmið við valið og líka staða verksins í samhengi við áður útgefið efni á sama sviði. Meðal verkefna sem valið stendur um í úrslita- keppninni má nefna Futuro-húsið sem hannað er af Matti Suuronen, finnskt sýnishom af geimald- ar-byggingarlist ásamt DVD-diski með heimildar- myndinni Futuro - A new Stance for Tomorrow eftir Mika Taanila, www.chiIdbooks.dk sem er vefsíða um danskar barnabókmenntir á 6 tungu- málum, Rölli ja metsánhenki frá Finnlandi sem er ólínulegur, persónuknúinn ævintýraleikur á margmiðlunardiski fyrir aldurshópinn 7 til 10 ára. Leikurinn er laus við ofbeldi, menntar og skemmtir og segir að þótt við séum ólík ættum við að geta búið saman. Fleiri netleikir eru til- nefndir, einnig spjallþjónusta fyrir unglinga. Flestir hinna tilnefndu eru finnskir en með þeim er einn danskur hópur og einn norskur. Veitt verða verðlaun í flokkunum vísindi og boðskipti, fræðslu- og barnaefni, menning og list- ir og sköpun og skáldskapur. Að auki hefur dóm- nefndin rétt á að veita aðalverðlaun (Le Grand Prix) og sérstök dómnefndarverðlaun. Síöustu forvöð Á miðvikudaginn kemur, 15. jan- úar, lýkur í Listasafni íslands sýn- ingunni „Islensk myndlist 1980-2000“, stærstu sýningu á is- lenskri samtímalist sem efnt hefur verið til. Flest listafólkið er fætt eft- ir 1950. Sýnd eru tæplega 100 verk eftir 53 listamenn i sölunum en 317 verk eftir 97 listamenn í gagna- grunni safnsins i tölvum. Verkin eru öll í eigu safnsins en fæst þeirra hafa verið sýnd þar áður. Sýningar- stjóri er dr. Ólafur Kvaran safn- stjóri. Viðamikil fræðsludagskrá hefur verið í tengslum við sýninguna en síðasta leiðsögnin verður á sunnu- daginn kl. 15-16. Um hana sér Rakel Pétursdóttir, deildarstjóri fræðslu- deildar safnsins. Tvö píanó og Benda Á sunnudagskvöldið kl. 20 verða Tíbrártónleikar í Salnum í Kópa- vogi undir fyrirsögninni Tvö píanó og slagverkshópurinn Benda. Pí- anóleikararnir eru þau Hrefna Egg- ertsdóttir og Jóhannes Andreassen frá Færeyjum og slagverkshópinn Bendu skipa þeir Steef van Ooster- hout, Eggert Pálsson og Frank Aarnink. Verkin sem leikin verða eru In- troduction og Rondo alla Burlesca og Marzuka Elegiaca eftir Benjamin Britten, Tríó fyrir þrjá slagverks- leikara og Forever and sunsmell fyrir söngrödd og slagverk eftir John Cage og Sónata fyrir tvö píanó og slagverk eftir Béla Bartok. Þórarinn í Þjóð- menningarhúsi Þórarinn Eldjám er „skáld mánaðar- ins“ í Þjóðmenning- arhúsinu við Hverf- isgötu og verður sýning á ljóðum hans opnuð í dag. Hún stendur út febrúar og fyrirhug- að er að halda málþing í tengslum við hana og upplestur. Húsið er opið daglega kl. 11-17 og er frítt inn á sunnudögum, annars er aðgangur kr. 300 fyrir fólk 16 ára og eldra á allar sýningarnar í hús- inu. Söngfólk, athugið Nýliðið ár var viðburðaríkt hjá Söngsveitinni Fílharmóníu. Meðal annars flutti hún í mars sl. Messu heilagrar Sesselju eftir Joseph Haydn sem sjaldan hefur verið flutt hér á landi áður og í september fór kórinn með liðsauka frá Selkómmn til Pétursborgar í Rússlandi og flutti íslenska kórtónlist frá 20. öld og Sálumessu Mozarts undir stjórn Bernharðar Wilkinsonar, stjórn- anda Söngsveitarinnar. Sálumessan var síðan á dagskrá á tónleikum Sinfóniuhljómsveitar íslands 10. og 11. október og var húsfyllir báða dagana. Áfram verður haldið í stórverk- efni því fram undan er flutningur á Messíasi, hinu ástsæla verki Georgs Friedrichs Handels. Hándel fæddist í Þýskalandi árið 1685 og var því samtímamaður J.S. Bachs - þeir voru raunar fæddir sama ár en Handel lifði níu áram lengur. Eftir hann liggur fjöldi verka af ýmsu tagi en Messías samdi hann á nokkrum dögum árið 1741. Textinn er byggður á ritningagreinum úr Biblíunni og fjallar um ævi Krists. Æfingar á Messíasi hefiast á mánudaginn kemur í Melaskóla. Enn þá eru nokkur laus pláss í öll- um röddum og er áhugasömum bent á að hafa samband í síma 898 5290. Tónleikarnir verða í Lang- holtskirkju 6. og 8. apríl nk.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.