Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2003, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2003, Síða 16
+ Útgáfufélag: Útgáfufélagiö DV ehf. Framkvæmdastjóri: Örn Valdimarsson Aöalritstjóri: Óli Björn Kárason Ritstjóri: Sigmundur Ernir Rúnarsson Aóstoöarrltstjóri: Jónas Haraldsson Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaóaafgreiðsla, áskrift: Skaftahlíö 24,105 Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aðrar deildir: 550 5749 Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Akureyri: Kaupvangsstræti 1, sími: 462 5000, fax: 462 5001 Setning og umbrot: Útgáfufélagið DV ehf. Plötugerð og prentun: Árvakur hf. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins i stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgialds. DV greiðir ekki viömælendum fyrir viðtöl við þá eða fyrir myndbirtingar af þeim. Ranglœtinu Óréttlátt þungaskattskerfi hér á landi kemur i veg fyrir aukna notkun dísilbíla. Þróun- in hér er öfug miðað við það sem er að gerast i löndunum i kringum okkur. Stórstigar framfarir í gerð disilvéla hafa leitt til mjög aukinna vinsælda disilbíla í nálægum lönd- um en samdráttur hefur orðið í sölu slíkra bíla hér, meiri samdráttur en nemur heildarsamdrætti i bílasölu. Á áttunda ár hefur verið reynt að koma í gegn frum- varpi á Alþingi er kæmi í veg fyrir óréttlætið með því að fella þungaskattskerfið niður og taka upp olíugjald í stað- inn, likt og tiðkast í bensínsölu. Hvorki gengur né rekur i þeim efnum. Olíugjaldsfrumvarp var tilbúið síðastliðið vor en dagaði uppi. Ekkert bólar á endurflutningi þess. Fjármálaráðuneytið ber við önnum og stuttu þinghaldi vegna þingkosninganna í vor. Málið velkist árum saman í kerfinu þótt hagsmunaaðil- ar séu nánast á einu máli um hagkvæmni breytingarinn- ar. Ný könrnm FÍB sýnir að 95 prósent aðspurðra vilja af- nema þungaskattskerfið. Árið 1995 voru samþykkt lög um oliugjald en gildistöku var frestað í tvígang og þau síðan felld úr gildi 1998. Meðal annars var því borið við að nauð- synleg litun á olíu, til aðgreiningar olíu á bila frá skipaol- íu, væri of dýr. Olíufélögin stæðu því gegn breytingu á þungaskattskerfmu. Þessa fullyrðingu afsannaði sérfræð- ingur sem FÍB fékk til landsins í fyrra. Hann taldi kostn- að vegna litunar olíu til þeirra sem undanþegnir yrðu ol- íugjaldi mun minni en olíufélögin vildu vera láta. , í frumvarpi fjármálaráðherra síðastliðið vor var gert ráð fyrir að olíugjald yrði 36,50 á hvem lítra og kæmi í stað núverandi innheimtukerfis þungaskatts. Samkvæmt fmmvarpinu átti að lita olíu til gjaldfrirra nota og greiða kilómetragjald af bifreiðum og tengivögnum sem eru að heildarþyngd 10 tonn eða meira. Undanþegin gjaldskyldu átti að vera lituð olía til nota á skip og báta, húshitunar, notkunar í iðnaði og á vinnuvélar, dráttarvélar í landbún- aði, raforkuframleiðslu og á ökutæki, ætluð til sérstakra nota. Óheimilt átti að vera að nota litaða oliu á almenn skráningarskyld ökutæki. Hið úrelta þungaskattskerfi gengur á skjön við jafnræð- issjónarmið enda felur það í sér mismunun. Það er önd- vert umhverfisvemdarsjónarmiðum enda menga bensín- vélar meira en dísilvélar. Dísilvélarnar eyða færri lítrum en bensínvélar og eru því augljóslega hagkvæmari kostur. Úrelt og óréttlát skattlagning kemur þó enn í veg fyrir að landsmenn njóti þessarar hagkvæmni. Litlir, spar- neytnir dísilbílar þekkjast vart hér á landi þótt algengir séu i öðrum löndum. Hinar óréttlátu reglur dæma meðal- stóra disilbíla einnig úr leik. Engu virðast breyta þær stórstígu framfarir sem orðið hafa í þróun dísilvélanna. Eyðsla vélanna hefur minnkað um þriðjung um leið og afl þeirra hefur aukist um allt að þriðjung. Þá hefur þessi nýja gerð dísilvéla orðið þýðgengari, auk þess sem hún mengar minna en bensínvélin. Þingheimur virðist samstiga um gildi breytingarinnar. í könnun FíB-blaðsins svöruðu 23 alþingismenn þeirri spurningu hvort taka ætti upp olíugjald í stað þunga- skattskerfisins og allir játandi. Sú samstaða skiptir þó litlu í reynd þótt um sé að ræða hvort tveggja i senn, þjóð- hagslegan sparnað og hreinna andrúmsloft. Málið sefur áfram. Ekkert gerist. Óréttláta kerfið blífur. Sé spurt um afdrif olíugjaldsfrumvarpsins eða hugsan- legan framgang þess er aðeins fundin ný afsökun fyrir að- gerðaleysinu. Jónas Haraldsson viðhaldið ________________________________________FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 2003 DV Það er varasamt að láta hafa eftir sér orð opinber- lega og alveg sérstaklega ef þau eru loforð og marg- ir hlusta á. Sumir hafa af því áhyggjur að sannleikur og raunveruleiki séu hug- tök sem farin séu að týna merkingu sinni og að stöðugt rjátlist af henni; í staðinn eru komin önnur viðmið sem eru svífandi einhvers staðar inni á milli þils og veggjar, einhvers konar reköld í millivíddum og ekki bara í þeim þremur, sem nemendur læra um í rúmfræði; með þeim er unnt að tilgreina staðsetningar með ómisskiljanlegum hætti eins og í rúmfræðinni. Það er engin algild mæliaðferð til lengur fyrir sann- leika, orsakasambönd og ábyrgð; erfðasyndin á sér enga samsvörun lengur. Atburðir verða ekki staðsettir á mælikvarða sem sannir eða falskir. Þegar gefin er yfirlýsing um eitthvað verður hún sennilega svo lengi sem hún er ekki borin til baka; jafnvel þótt hún sé röng verður hún trúverð- ug áfram vegna þess að hún var tal- in rétt um sinn. Trúverðugleiki hef- ur engin endimörk, andstætt sann- leikanum; hann ber sjálfan sig ekki til baka því hann er sýndareigin- leiki. Bölvun okkar felst í því að geta ekki greint á milli sannleika og fóls- unar eða lygi. Tölfræði ósannsöglinnar í skák ríkir oft hálfgert pattástand eða óhreyfanleiki; allir menn á borð- inu eru þá fastir í tilteknum hlut- verkum í margslunginni stöðu, peð „Erfitt er að ímynda sér Össur formann sem prinsinn, sem frelsar Öskubusku úr álögum skítverkanna. “ valda riddara og biskup hrók; staðan er flókin og óviss. Ef einn maður er hreyfður fer hröð atburðarás af stað; borgarstjóri er eins og biskup, sem fer af völduðum reit og segir skák, beint ofan í vald hróks. Eftir augna- blik verða uppskipti manna og bisk- upinn liggur á hliðinni við skákborð- ið; hann hélt sig vera drottningu með tvær valdalínur, en lét hrók ryðja sér af borðinu; meta verður stöðuna upp á nýtt. í fyrstu var biskupinn kenni- maður og eftirlæti skoðanakannana, sem munu væntanlega gefa til kynna að leikurinn hafi verið 30% réttur en 40% rangur; aðrir eru óvissir og telja hann smekkleysu, svik við kjósendur munu fáir muna. Sífelldar skoðanakannanir hafa valdið öfughneigingum og skapað efahyggjufólk um allt og sem telur kosningar bara vera enn eina skoð- anakönnunina. Hinir nýju fagmenn eru einhverjir fræðingar sem túlka niðurstöður og lesa í tilfærslur; sjálf- ir hafa þeir sumir hverjir ákveðnar í gíslingu eigin Jónas Bjarnason efnaverkfræöingur Sandkom sandkorn@dv.is Tekist á um Tilhugalíf Á vef bókaútgáfunnar Eddu-miðlun- ar er brostin á skemmtileg umræða um „Tilhugalíf ‘ Jóns Baldvins Hanni- balssonar. Þrir valinkunnir menn gefa þar álit sitt á bókinni; þeir Sverr- ir Hermannsson, Eiríkur Bergmann Einarsson og Óskar Guðmundsson. Sverrir segir meðal annars að „upp- gjör Jóns Baldvins við bamatrú sína á byltingu öreiganna á sovéska vísu [sé] eitt það harkalegasta sem um getur.“ Óskar skrifar lærða ritgerð og telur Jón ganga of harkalega fram í palla- dómum - og veltir því upp hvort kannski sér fyrirgefningin væntanleg i næsta bindi. Meðal þess sem Óskar gagnrýnir eru ásakanir Jóns Baldvins á hendur Halldóri Laxness, um að hann hafi brugðist Benjamin Eiríks- syni eftir að hafa orðið vitni að hand- töku unnustu hans, Veru Hertz, og dóttur þeirra i Sovétríkjunum. Óskar vitnar í Benjamtn sjálfan sem segir í bók sinni, „Ég er“, að skömmu eftir að hann fór frá Sovétríkjunum hafl þeim Veru fæðst dóttir „sem örugg- lega er á lífi“. Óskar segir því augljóst að Jón Baldvin sé viðs fjarri sannleik- anum þegar hann fullyrðir að Halldór hafi hvorki hreyft legg né lið til að bjarga konu og dóttur kunningja síns „frá yfirvofandi örkumlun og dauða“ heldur horft á eftir þeim út í „opinn dauðann" ... Ummæli (Hr)einræktaö rugl! „Furðulegur er fréttaflutningur hefðbundinna fjölmiðla af meintri einræktun barns á vegum sértrúar- flokks. Enginn hefur séð nein sönn- unargögn um þetta, hvorki ritstjór- arnir né fréttamennirnir. Enginn hef- ur séð einræktaða barnið, hvorki rit- stjóramir né fréttamennimir. Enginn vísindamaður, sem spurður hefur verið álits, trúir orði um einræktun- ina. Samt halda fjölmiðlar áfram að tyggja ruglið rétt eins og nú sé fyrsti apríl og hafi staðið vikum saman.“ Jónas Kristjánsson á vef sínum. Hlutleysi fréttamanna „Fjölmiðlamenn eru ekki hlutlausir og sjálfsagt því hlutdrægari sem þeir tala meira um hlutleysi sitt. Eig- inlega væri eðlilegast að fréttamaður upplýsti um þær skoðanir sínar sem eru honum mest hjartans mál og þá vita áhorfendur af því. [...] Ef fréttakona er djúpur og einlægur aðdáandi tiltekins stjórnmálamanns þá er álitamál hversu vel fer á þvi að hún sjái um fréttir af þeim atburðum sem mest segja um trúverðugleika stjómmálamannsins. Og svo framvegis. Hér verða fréttamenn og yflrmenn þeirra að spyrja dómgreind sína ráða enda er henni ekki ætlað að liggja í dvala milli þess sem Ron Jeremy kemur til landsins." Vefþjóðviljinn á Andríki.is. Beggja vegna borðsins „Fyrir hádegi tók ég viðtöl. Eftir hádegi hitti ég fólk úr kjördæminu og undirbjó mig fyrir Morgun- blaðsviðtal og Kastljósviðtal." Siv Friðleifsdóttir í netdagbók sinni, miöviku- daginn 8. janúar. Óbreytt landslag? „Þeir sem kusu Framsóknarflokkinn sjá valkosti, séu þeir ekki sáttir við frammistöðu ríkisstjómarinnar, það gera kjósendur Sjálfstæðisflokksins ekki. Á meðan þeir kjósendur sjá ekki að þeir hafl valmöguleika í stöðunni munu þeir halda áfram að kjósa Sjálfstæðis- flokkinn, hversu óánægðir sem þeir kunna að vera. Á meðan þessir kjósendur hafa ekki valkosti hefur póli- tískt landslag ekki breyst." Svanborg Sigmarsdóttir á Kreml.is. FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 2003 Skoðun orða skoðanir í pólitik en hafa nú fengið í hendur tölvur með tölfræðiforritum og leiðbeiningum um notkun. Niður- stöður byggjast á slembivali og orða- lagi í spumingum sem stundum eru saumaðar fyrir hagsmunaaðila; nið- urstööur eru sagðar marktækar. Tölvutæknin hefur búið til fagmenn sem tala viturlega um tölfræði en ríf- ast um orðalag spuminga, en í regl- um HÍ stendur að kennarar eigi að verja helmingi tíma síns í rannsókn- ir sem engir peningar eru til fyrir. Dansi, dansi, dúkkan mín Efahyggjúmenn sáu einungis jafn- tefli í stöðunni, en hún er rifin upp með afleik. Borgarstjóri stóð skyndi- lega augliti til auglitis við sjálfan Mefistófeles og horfði í nakið vald stjórnmálanna sem sniðu henni of þröngan stakk; þess vígvallar sem virtist áður hafa verið henni eins og dansgólf á meðan allt lék í lyndi, en eftir að það var brostið stóð Ingibjörg Sólrún uppi eins og Öskubuska klukkan tólf á miðnætti. í ævintýr- inu varð hún prinsessa síðar meir eins og böm vissu áður fyrr; þá voru tölvurnar ekki famar að veita þeim aðgang að þeim sýndarheimi þar sem þau sífellt drepa hvert annað í leikjum, sem líkjast æ meir raun- veruleikanum. Erfitt er að ímynda sér Össur formann sem prinsinn, sem frelsar Öskubusku úr álögum skítverkanna. Þar sem óvissan felst í kapphlaupi staðfestingar og folsunar verður nið- urstaðan eins og í kauphöllum þar sem allt er breytingum háð; gengi hlutabréfa sveiflast stöðugt og eng- inn getur spáö fyrir um þróun mála og sífellt fleiri breytur koma fram; allir þeir sem fást við hlutabréf eru einhverjir fagmenn í bransanum; tæpast er nokkuð að marka það sem þeir segja því þeir hafa allir hag af líflegum viðskiptum. Eins er það í pólitíkinni; lítið sem ekkert er að marka það sem þeir segja. Svo prísar fyrrverandi leikhússtjóri framgöngu kynsystur sinnar, borgarstjórans, sem glæsilega framgöngu í glímu við ljóta karlfauska. Gott Það virðist vera enda- laust hægt að gera sér mat úr þeirri staðreynd að tekjur manna eru mis- jafnar. Mjög reglulega birtast niðurstöður kann- ana sem sýna að svo er. Nánast jafnreglulega eru svo settar fram skoðanir manna og fréttaskýringar um að munur á launum þeirra á vinnumarkaði sé launamunur kynjanna en ekki launamunur af annarri ástæðu en líf- fræðilegri. Fjölmiðlar þreytast ekki á því að birta fréttatilkynningar frá hinum og þessum sem á kostnað skattgreið- enda finna út, með því sem þeir kalla rannsóknir, að konur séu með lægri laun en karlar og að það þurfi að breytast. Undanfarin misseri hafa fjölmiðlar fjallaö um þessar 17 Vottar fyrir nýrri öld í stjómmálum á íslandi Kjallari________________J Allan lýðveldistímann höf- um við búið við það að aðeins einn stjórnmála- flokkur, Sjálfstæðisflokk- urinn, hefur getað stjórn- að íslandi. Allar svokall- aðar vinstristjórnir, án þátttöku hans, hafa lið- ast í sundur eftir þriggja ára setu í mesta lagi, og oft hefur brotthvarf þeirra vitað á kosninga- sigur sjálfstæðismanna. Margir ágætir menn hafa átt þátt í landstjóminni á vegum Sjálfstæð- isflokksins, og stundum hafa ríkis- stjómir hans ekki stýrt umtalsvert ólíkt kratastjómum í Evrópu, þeim tegundum ríkisstjóma sem hafa reynst einna skást í kapítalískum samfélögum. Engu að síður er sex áratuga valdatíð sjálfstæðismanna vanda- mál. Þrátt fyrir allt er Sjálfstæðis- flokkurinn í grunninn ójafnaðar- flokkur; hugmyndafræði hans bygg- ist á því að rækta mismun fólks. Honum hlýtur að vera fyrirmunað að skapa þegnum sínum í heildina eins gott líf og þeim sem hafa jöfnuð að æðsta markmiði. Og eins þótt það væri ekki skapar langvarandi eins flokks ríkisvald óhjákvæmilega for- réttindaklíku sem æ fleiri beygja sig undir og reyna að vingast við í stað þess að vinna sig upp á eigin verð- leikum. Tilgangur Samfylkingar Þegar hugmyndin um samfylk- ingu jafnaðarmanna kom upp gekk ég í lið með henni í von um að með henni mætti skapa raunverulegan valkost við Sjálfstæðisflokkinn og breyta þannig sjálfu stjómmálakerf- inu í landinu. Ég vissi vel að þar mundi bera mikið á fólki sem ég ætti takmarkaða pólitíska samleið með, en fannst samt ómaksins vert að prófa. Aðeins um helmingur flokksfélaga minna í Alþýðubanda- laginu reyndist á sömu skoðun, svo að tilraunin virtist mistakast í fyrstu umferð. En einmitt nú sjást teikn um að kannski sé eftir allt saman að skipta um í íslenskum stjómmálum. Eitt merki þess er auðvitað mikið fylgi Samfylkingarinnar í skoðana- könnunum, bæði í könnun Frétta- blaðsins sem sýndi hana með yfir 39% fylgi meðan Sjálfstæðisflokkur- inn losaði aðeins 37%, og könnun DV um fylgi flokkanna í Reykjavík (meira hefur ekki birst þegar þetta er skrifað), þar sem Samfylkingin „Kannski er það besti vitn- isburður sem Ingibjörg Sól- rún hefur fengið, ef það reynist svo, að samstarfið sem hún byggði upp í Reykjavík þurfi hennar ekki lengur með. “ fékk tæplega 36% fylgi en Sjálfstæð- isflokkurinn tæp 47%. Þar er vissu- lega nokkur munur en þó ekki ýkja- mikill þar sem áður var eitthvert sterkasta vígi Sjálfstæðisflokksins. Ég legg þó ekki afar mikið upp úr þessu, því reynslan sýnir að mikill öldugangur er oft á fylgi stjómmála- flokka samkvæmt skoðanakönnun- um, án þess að hann berist inn í sjálfar kosningamar. Hitt finnst mér miklu athyglisverðara sem DV sagði frá á mánudaginn var undir fyrirsögninni R-LISTINN FELLDUR, að R-listinn reynist halda 46,4% fylgi í Reykjavík, rétt eftir að stjóm- arsamstarfið þar hafði gengið í gegnum lífshættulega kreppu, ákveðið hafði verið að Ingibjörg Sól- rún hyrfi úr borgarstjórastóli, og forystumenn Sjálfstæðisflokksins höfðu étið það hver eftir öðrum í öll- um fjölmiðlum að R-listasamstarfið væri rjúkandi rúst. Þetta kom út úr skoðanakönnun með góðri þátttöku (82,6%), fylgi Frjálslyndra reynist hafa dalað síð- an í kosningum, og innan við 1% að- spurðra sögðust ætla að kjósa aðra en þá þrjá lista sem voru í framboði í síðustu borgarstjómarkosningum. Sjálfstæðisflokkurinn náði ekki hreinum meirihluta. Besti vitnisburöurinn í mínum augum em þessi úrslit skýrasta traustsyfirlýsing sem ég hef heyrt á vinstrasamstarfið í Reykjavík. Þau sýna mikinn vilja til að halda Sjálfstæðisflokknum frá völdum þar og væri undarlegt ef ekki mætti túlka þaö jafnframt sem vilja til að hrinda flokknum úr rik- isvaldastólnum og skapa nýtt stjóm- málakerfi á landsvisu. Þau sanna að R-listasamstarfið byggist engan veginn á svo ótraust- um grunni sem einni persónu. Kannski er það besti vitnisburður sem Ingibjörg Sólrún hefur fengið, ef það reynist svo, að samstarfið sem hún byggði upp í Reykjavík þurfi hennar ekki lengur með. að láta mata sig Hvemig er hægt að fullyrða nokkuð um launamun ef ekkert er vitað um t.d. vinnutíma launþeganna, starfsaldur þeirra og menntun? rannsóknir og skýrslur um launa- mun kynjanna nánast gagnrýnis- laust og fáir verið til aö andmæla þeim skoðunum og aðferöum sem rannsóknirnar byggja á. Kannski ekki nema von að menn hafi gefist upp á að leiðrétta vafasama útreikn- inga á þessu sviði eftir áratuga nöld- ur sem þar að auki telst ekki í dag i takt við pólitíska rétthugsun. Allt gleypt En við og við gerast þó undur og stórmerki og stundum blöskrar mönnum það sem fyrir þá er borið í umræðu um launamun kynjanna. Oft er það þó ekki nóg til að umræð- an skáni eitthvað örlítið, nú eða bara leggist af eins og helst þyrfti að gerast. í desember voru til að mynda kynntar niðurstöður úr enn einni rannsókn á tekjum kynjanna, eða á launamisréttinu eins og það heitir víst. Enginn fjölmiðill lét sitt eftir liggja í fréttaflutningi af þessari nýjustu launakönnun, enda var hún gerð af háskólamönnum í samstarfi við útlendinga í nokkrum ESB-ríkj- um. Það voru þó ekki þessir sömu fjölmiðlar sem höfðu sitthvað að at- huga við umrædda könnun og nið- urstöður hennar, en þeir mega eiga það að þeir birtu leiðréttingu sem loks barst frá rannsakendum. Mað- ur skyldi þá ætla að fjölmiðlar, sem sumir höfðu náð að líta afar kjána- lega út með fréttaflutningi sínum, drægju nú andann djúpt og hugs- uðu sig tvisvar um áður en nokkuð væri fullyrt um launamun, óréttlát- an eða ekki. Því er þó auðvitað ekki að heilsa. Morgunblaðinu finnst auðvitað upp- lagt að halda áfram á þeirri heima- tilbúnu jafnréttisbraut sem blaðið telur heppilegt að fylgja. Heil síða í blaöinu var í lok síðustu viku helguð nýjustu rannsókninni á þessu sviði, en þungamiðjan í henni eru póstnúmerin í Reykjavík. Er hverfi 105 gott eða vont? Sérfræðingur hjá ráöi sem kennir sig við jafnrétti hefur fundið það út, með rannsóknum sínum, að tekju- munur milli kynja sé minnstur í hverfi 105 en mestur í hverfi 112. Sér- fræðingurinn útskýrir í viðtalinu að í heildartölum yfir launamun karla og kvenna sé ekki litið til mismun- andi vinnutíma, en þar með er það líka upptalið sem hann kýs að út- skýra í heilsíðuviðtali. Sjálfsagt hef- ur það heldur ekki hvarflað að blaða- manninum að fá fleiri útskýringar. Það hefði náttúrlega verið dónaskap- ur að spyrja hverju þaö sæti að ekki sé litið tO vinnutíma í launakönnun- um. Það hefði líka kannski verið óþægilegt að spyrja að því af hverju i ósköpunum verið væri að kanna launamun kynja eftir póstnúmerum. Það hefði svo verið fráleitt af blaða- manninum að sinna þeirri skyldu sinni sem blaðamenn tala eilíflega um að á þeim hvíli, að draga fram í dagsljósið það sem er rétt en ekki það sem er rangt. Þeirri skyldu hefði mátt fullnægja með spurningu eins og; hvernig er hægt að fullyrða, að tekjumunur sé til staðar ef ekkert er vitað um a.m.k. vinnutíma manna? En nei, auðvitaö nægir að hafa eftir sérfræðingnum, að hann hafi hug á að vinna frekar úr þessum niðurstöðum sínum, til dæmis að kanna samspil tekna, vinnutíma og menntunar. Já, til dæmis. Svo er bara spurning hvort leiðrétting á þessari könnun Jafn- réttisráðs berst íbúum Grafarvogs áður en kvenfólkið þar flytur í Hlíð- arnar. - Það góða við svona fréttir er að þær upplýsa okkur um hvernig farið er meö fé almennings. +

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.