Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2003, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2003, Síða 18
18 ___________________________________FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 2003 Tilvera I>'V' Tré og Hafsýn Tvær sýningar verða opnaðar í Hafnarborg í Hafnarfirði kl. 15 á morgun. Bandaríska myndlistar- konan Joan Backes opnar sýning- > una Tré og beitir þar ýmsum miðl- um til að koma til skila vangavelt- um sínum um tré og skóga og á sunnudaginn, 12. janúar kl. 15.00 verður hún með fyrirlestur og leið- sögn um sýninguna. Hin sýningin nefnist Hafsýn og er af verkum átta færeyskra listamanna. Annlis Bjarkhamar, menntamálaráðherra Færeyja, mun opna sýninguna og Jens Frederiksen, forstjóri Lista- safns Færeyja, flytur ávarp. Allar listir sam- einaðar í menningarmið- stöðinni Gerðu- bergi verður á morgun kl. 15 opn- uð ljósmyndasýn- ing frá Bauhaus- skólanum í Weimar í Þýskalandi. Þar eru 124 ljósmynd- ir frá árunum 1921-1981 og eru ljós- myndararnir 41 talsins. Allt eru það myndir byggðar á stefnu Bauhaus en hún var að sameina iðnhönnun, byggingarlist og myndlist, þ.e. að byggingarlist sameinaði allar listir. Handan góðs og ills Myndlistarmaðurinn Amar Her- bertsson opnar málverkasýningu í Galleríi Sævars Karls á morgun, 11. janúar. Hún er nokkurs konar hug- leiðing um ævisögu heimspekings- ins Friedrich Nietzsche, „Handan góðs og ills“ þar sem Amar leitast við að myndgera texta bókarinnar með 32 olíumyndum máluðum á tré. ^ Hér og hér Þrjár einkasýningar verða opnað- ar í Listasafni Kópavogs, Gerðar- safni, á morgun kl. 15. í austursal sýnir Hallgrímur Helgason málverk af GRIM en frá árinu 1995 hefur hann unnið með þann tannhvassa gosa. I vestursal opnar Bjargey Ólafsdóttir sýningu sem hún nefnir FLYING/DYING. Verkin fjalla ann- ars vegar um bílslys sem listakonan lenti í og komst næst því að drepast. HÉR OG HÉR nefnir Húbert Nói einkasýningu sína í salnum á neðri hæð safnsins. Sýningin er sérstak- lega unnin fyrir salinn og áhorfand- inn upplifir mótífið um leið og mál- verkið. *" ■ ? # Olíulakk og gólfbón Tvær sýningar verða opnaðar í Gall- erí Skugga, Hverfísgötu, á morgun kl. 17. Á jarðhæð verður opnuð málverka- sýning Ásgeirs Jóns Ásgeirssonar sem ber yfirskriftina „neo-naive“ og það er hans fyrsta einkasýning en Ásgeir hef- ur unnið að myndlist og hönnun. í kjallara gallerísins opnar Hans Alan Tómasson sýninguna „Undir- myndir". Um er að ræða lágmyndir sem unnar eru með blandaðri tækni, s.s. bíla spartli, olíulakki, gólfbóni og ^ öðrum tilfallandi efhum. Umræðufundur í Nýlistasafninu: Straumar og stefnur í myndlist í tilefhi af síðasta degi á sýningum JBK Ransu og Giovannis Garcia- Fenech, Ex-Geo og Sbc Heads, Indoors í Nýlistasafninu verður efht á sunnudag- inn kl. 15 til umræðufúndar á 2. hæð safnsins um strauma og stefhur í mál- aralist/myndlist samtímans. Á fundinum flytur Halldór Bjöm Runólfsson, listfræðingur og lektor við LHÍ, stutta framsögu og mun svo, ásamt JBK Ransu, Bjama Sigurbjöms- syni og Einari Garibalda Eiríkssyni, velta upp nokkrum spumingum um málverkið fýrir frjálsar samræður. Myndlistarumræða samtímans snýst ekki lengur um hreintrúarstefn- ur eða skóla innan málaralistar. Hún snýst heldur ekki um það hvort mál- verk eigi meiri rétt á sér en aðrir tján- ingarmiðlar, sbr. málverk gegn öðrum miðlum. Þó eimir ef til vill enn eftir af því viðhorfi að málverkið sé sérstakt og frábragðið annarri myndlist. Þeir sem því trúa geta m.a. vísað til listasög- unnar. Og listasagan, sá baggi, það góss, vekur upp ýmsar spumingar: Er eitthvað nýtt að gerast í málverkinu, er málverkið að steöia eitthvað annað eða er ekki hægt að komast undan skugga listasögunnar? Og er það æskilegt? Er listasagan, og vísun til hennar, for- senda listsköpunar í málaralist? Þessar og margar aðrar spumingar verða til umræðu á fundinum í Nýlista- safninu, ekki síst spumingin um það hvort hægt sé að efha til umræðu um málverkið í dag án þess að verða tugg- unum að bráð. -HK Fiskimjöl og lýsi fagnar tímamótum og býöur til veislu: Biður nágranna að fyrirgefa fnykinn DV-MYND ÞORSTEINN G. KRISTJÁNSSON Góðir grannar Fiskimjöl og lýsi eiga góða granna sem mættu til teitis um áramótin. Þá var minnst á bræðslufnykinn sem hefur angrað ýmsa og orðið tilefni kærumáia. Hér eru menn að gæða sér á veitingum í verksmiðjusalnum. Starfsfólk Samherjafyrirtækis- ins Fiskimjöls og lýsis í Grindavík bauð bæjarbúum um áramótin að fagna með sér þeim áfanga að í fyrsta skipti í sögu fyrirtækisins hefur verið tekið á móti yfir 100 þúsund tonnum af hráefni, eða alls 111 þúsund tonnum. Er það mesta magn hráefnis sem tekið hefur verið á móti í sögu fyrirtækisins og eru bætt hafnarmannvirki ein aðalástæða þess. í hópi gesta voru ýmsir bæjarbúar sem kvartað hafa undan ólykt frá starfseminni, pen- ingalyktinni sem kölluð hefur ver- ið svo, en fyrirtækið harmar ónæðið og vinnur markvisst að því að útrýma lyktinni, til dæmis með byggingu „Eiffel-turnsins“ svokallaða. Starfsemi fyrirtækisins spilar geysistórt hlutverk í tilveru Grindavíkur og færir höfninni miklar tekjur. Má segja að það sé grundvöllur þeirra hafnarfram- kvæmda sem átt hafa sér stað und- anfarin ár og fram undan eru. Enda þótt verksmiðjan sé umdeild, þar sem henni fylgir misgóð lykt, þá gera flestir bæjarbúar sér grein fyrir mikilvægi starfseminnar fyr- ir viðgang atvinnulífs bæjarins. Skiljanlega kemur fyrir að fólk hringir og kvartar undan bræðslu- fýlu og hefur það gerst að verk- smiðjan hefur misst starfsleyfið tímabundið og hafa framkvæmdir við verksmiðjuna miðast við að draga sem mest úr lykt og endar vonandi með viðunandi ástandi. Meðal þess sem gert hefur verið er reykháfurinn hái sem daglega er kallaður „Eiffel-tuminn“. Þá hafa verið reistir lokaðir hráefnisgeym- ar og nú síðast var steypt yfir gólf- in i verksmiðjuhúsinu. Grindvík- ingar mættu vel á þennan fagnað og nutu góðra veitinga og þeir sem vildu fengu leiðsögn hjá Óskari Ævarssyni verksmiðjustjóra um verksmiðjuna og vinnsluferlinu var lýst í þaula. -ÞGK Fiim-Undur/Háskólabíói - Disco Pigs: ★ Of náin kynni & Hilmar Karisson skrifar gagnrýni um kvikmyndir. Disco Pigs fjallar um tvö ungmenni, stelpu og strák, Runt og Pig, sem fæð- ast sama dag og haldast í hendur upp frá því. Þau eiga heima í samfóstum húsum og eru í herbergi sitt hvorum megin við útvegg, bijóta gat á húsvegg- inn svo þau geti haldist í hendur áður en þau fara að sofa. Þau leika sér sam- an, fara saman í skólann og vilja ekki umgangast aðra nemendur, nema til að stríða þeim og sýna fram á að þau hafi yfirburði yfir aðra, enda ætla þau að verða kóngúr og drottning þegar þau verða stór. Þetta er hugljúft á pappímum, óraunverulegt um leið og það gæti ver- ið uppbygging á fallegu ástarævintýri. Það er þó alls ekki ætlun leikskáldsins og handritshöfúndarins, Enda Walsh, heldur tekur hún af fullri hörku á þeim vandamálum sem hljóta að koma upp á yfirborðið þegar Runt og Pig nálgast sautján ára afmælið. Ljóst er að þetta nána samband hefur ekki haft góð áhrif á þau, sérstaklega Pig, sem finnur fyrir kynþörf gagnvart Runt, sem vill að samband þeirra haldist platónskt. Hún gefúr öðrum strákum hýrt auga. Þetta þolir Pig ekki og þar sem segja má að uppeldi þeirra hafi ekki verið Tvö á sömu línu Eiaine Cassidy og Cillian Murphy í hlutverkum Runt og Pig. eðlilegt þá er stutt í öfgafullar aðgerðir af hans hálfu. Fallegt upphaf endar sem hryllingur. Þetta er vandasamt viðfangseftii sem leikstjórinn Kirsten Sheridan ræður ekki við. Leikritið sem myndin er gerð eftir á víst að hafa farið sigurfór um heiminn. I leikritinu hlýtur að fást meiri samkennd með táningunum heldur en fæst í myndinni. Hér em Pig og Runt fráhrindandi og leiðinleg. Það er ekkert í fari þeirra sem kallar á sam- kennd með þeim. Reynt er að fara ótroðnar slóðir og tekst það ágætlega, en skapar um leið óraunsæi. Það er til dæmis með ólíkindum hvað Pig kemst upp með án þess að til þess sé tekið af utanaðkomandi aðilum. Allar persónur fyrir utan Pig og Runt (undanskilin er Gerry sem Pig fær að slátra óhindrað á miðju dansgólfi með hundrað manns í kringum sig) era aðeins bakgrunnur og þjóna þeim eina tilgangi að auka áhrif af nánu sambandi Pigs og Runt. Það er aðeins í atriðum sem sýna þau mjög ung að einhver hlýja kemur fram í sambandi sem á að ná út yfir gröf og dauða. Það er ekki oft sem kvikmynd þar sem reynt er að fara metnaðarfulla leið í skýringu á sambandi karls og konu skilur mig eftir fúlan, en það gerði Disco Pigs, þrátt fýrir að hinir ungu leikarar, Elaine Cassidy og Cillian Murphy, sýni ágætan leik í erfiðum hlutverkum. Kirsten Sherridan. Handrlt: Enda Walsh. Kvikmyndataka: Igor-Jado-Lillo. Tónlist: Gavin Friday og Maurice Seezer. Aðallelk- arar: Elaine Cassidy, Cillian Murphy og Bryan F. O'Byrne. Grafík í Scala Anna Guðrún Torfadóttir mynd- listarmaður, sýnir verk unnin með blandaðri tækni, í Scala, Lágmúla 5 í Reykjavík. Anna starfraékir grafik- vinnustofuna „Áfram veginn", Laugavegi 1, bakhúsi, ásamt öðrum myndlistarmönnum. í útnordri Sýningin „Veiðimenning í útnorðri“ verður opnuð í Ketilhúsinu á morgun. Hún sýnir hvemig Islendingum, Græn- lendingum og Færeyingum tókst að viðhalda menningu og lífsháttum sem einkum tengjast hafmu og matarkist- unni þar, ekki síst sjávarspendýrum og fuglum. Sýningin var fyrst opnuð í júní sl. í Norðurlandahúsinu í Færeyjum. Þaðan fór hún til Shetlandseyja og síð- an Dublin. Hún var síðast í Norræna húsinu í Reykjavík. Frá Akureyri fer hún til Grænlands og að því loknu verður hún sett upp á íslandsbryggju í Kaupmannahöfh. Á réttri hillu Freygerður Dana er með sína fyrstu sýningu í Mojo á Vegamótastíg 4. Þar sýnir hún tvö verk. Annað er ádeila á orðu- veitingar og hitt verkið heitir „Á réttri hillu f lífinu? „ Þar eru ís- lenskar rollur I hlutverkum manna á hinum ýmsu hillum. Það er verk sem áhorfandinn tekur þátt í því hann getur fært rollurnar á þá hill- ur sem honum finnst passa Af samfélags- legum toga Þóroddur Bjarnason opnar sýningu í Listasafni ASÍ við Freyjugötu í Reykjavík laugardaginn 11. janúar nk. kl. 14. Þóroddur hefur boðið Ivari Val- garðssyni myndlistarmanni að sýna með sér í safninu. Umfiöllunarefni ívars á þessari sýningu er þurrktími málningar og verk Þórodds eru af samfélagslegum toga. Óboönir gestir Þuríður Sig- urðardóttir opn- ar sýninguna „Óboðnir gestir" í Gallerí Hlemmi í kvöld klukkan 20.00. Verk henn- ar birta gaumgæfilega skoðun og túlkun á hinu agnarsmáa og við- kvæma. Þau munu blasa við út um glugga Gallerí Hlemms og ef til vill koma flatt upp á vegfarendur. Þau eru nefnilega „óboðnir gestir" í ýmsu tilliti. Af samfélags- legum toga Þóroddur Bjarnason opnar sýningu í Listasafni ASÍ við Freyjugötu í Reykjavík laugardaginn 11. janúar nk. kl. 14. Þóroddur hefur boðið ívari Val- garðssyni myndlistarmanni að sýna með sér í safninu. Umfiöllunarefhi Ivars á þessari sýningu er þurrktími málningar og verk Þórodds em af samfélagslegum toga.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.