Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2003, Qupperneq 26
1
DAGAR HL HM í HANDBOLTA
___________( ANDEBOL, PORTÚGAL 20 0 3
10
Eigum lið í
heimsklassa
Torben Winther, þjálfara danska
landsliðsins í handknattleik, er
lýst sem hógværum manni í
danska blaðinu BT. í sama blaði er
þó viðtal við hann þar sem hann
fer lofsamlegum orðum um sitt eig-
ið lið og telur það vera eitt besta
landslið heims.
„Við erum með heimsklassa lið,
frábært lið. Ég er ekki hræddur
við að segja það,“ segir Winther í
viðtali við BT í gær og hrósar sér-
staklega líkamlegu ástandi leik-
manna liðsins sem hann segir að
sé framúrskarandi.
„Ég er ótrúlega hrifinn af því
hvað stóru mennimir, sem vega á
annað hundrað kiló, eru snöggir.
Við gerðum áætlun fyrir þremur
árum um að líkamlegt ástand leik-
manna yrði orðið frábært árið 2003
og við það hafa leikmennimir stað-
ið. Við getum samt alltaf bætt okk-
ur og það ætti að hræða hin liðin,“
sagði Winther.
Hann segir að danska liðið geti
enn bætt sig í vamarleiknum.
„Við eigum í vandræðum þegar
sú staða kemur upp að varnar-
menn okkar þurfa að spila maður
á mann á stóran línumann. Við
þurfum að vera betri í að koma
fram fyrir leikmenn í stað þess að
standa fyrir aftan þá. Við eram
heldur ekki nógu fljótir að skipta
þegar sóknarmaður andstæðing-
anna dregur varnarmann með sér.
Þetta munum við æfa á mótinu um
helgina," sagði Winther.
Hann sagði jafnframt að liðið
myndi fylgja sömu uppskrift í
Portúgal og það gerði í Svíþjóð.
„Við tökum einn leik fyrir í
einu, jafnvel þó að hljómi asnalega.
Leikmennirnir vita að í svona
móti þýðir ekkert að fara að
dreyma um komandi leiki en
gleyma því sem er að gerast fyr-
ir framan þá. Við setjum okkur
háleit markmið og munum gera
allt til að uppfylla þau.“ -ósk
GÓ6 laun
fyrir gullið
Danska landsliðið í handknatt-
leik fær ágætis bónus ef því tekst
að hampa heimsmeistaratitlinum i
Portúgal. Hver leikmaður fær þá
rétt rúmar 500 þúsund íslenskar.
Ef liðið hafnar í öðru sæti þá fær
hver maður um 350 þúsund ís-
lenskar krónur. Þetta eru ná-
kvæmlega sömu upphæðir og
danska kvennalandsliðið fékk þeg-
ar það varð heimsmeistari í síð-
asta mánuði. -ósk
Sterkt mót
í Danmörku
Fjögurra landa mótið sem ís-
lendingar taka þátt í um helgina í
Danmörku er mjög sterkt. Auk Is-
lendinga taka Danir, Pólveijar og
Egyptar þátt í mótinu. íslendingar
mæta Pólverjum í fyrsta leik í
kvöld, Dönum á morgun og loks
Egyptum á sunnudaginn. Frá Dan-
mörku heldur liðið til Svíþjóðar
þar sem það leikur æfmgaleik við
Evrópumeistara Svía á fimmtu-
dag. -ósk
Þjóðverjar
mörðu Túnis
Þjóðverjar halda áfram undir-
búningi sínum fyrir heimsmeist-
arakeppnina í handknattleik í
Portúgal þar sem þeir eru meöal
annars í riðli með íslendingum.
Þeir eru staddir í Frakklandi þar
sem þeir spila á fjögurra landa
móti ásamt heimamönnum, heims-
meisturam Frakka, Asíumeistur-
um Japans og Afríkumeisturum
Túnis. I gær mættu Þjóðverjar
Túnisum og lentu í miklu basli.
Það fór svo að þeir mörðu sigur,
27-26, eftir að hafa verið undir í
hálfleik, 13-12. Samkvæmt þýska
netmiölinum sportl.de þá var
markvörðurinn Christian Ramota
besti maður liðsins og varði þrett-
án skot, þar af þrjú víti. Jan-Olaf
Immel, Markus Baur og Christian
Schwarzer voru markahæstir í
þýska liðinu með fjögur mörk.
Eitthvað hefur mótspyma Túnisa
farið í taugarnar á Þjóðverjum því
Stefan Kretzschmar, félagi Ólafs
Stefánssonar og Sigfúsar Sigurðs-
sonar hjá Magdeburg, fékk að líta
rauða spjaldið eftir fimmtán mín-
úma leik fyrir sérlega óíþrótta-
mannslega framkomu. -ósk
Stórsigur
Frakka
Frakkar léku gegn Japönum á
sama móti í gær og hreinlegu rúll-
uöu yfir gestina frá Asíu, 29-14.
Staðan í hálfleik var 15-10, Frökk-
um i vil, en i seinni hálfleik tóku
þeir leikinn gjörsamlega í sínar
hendur og unnu að lokum fimmt-
án marka sigur. Frakkar mæta
Túnisum í kvöld og Þjóðverjar
spila gegn Japönum en á morgun
mætast síðan Þjóðverjar og Frakk-
ar og Túnisar og Japanar. -ósk
Blóðtaka
Þjóðverja
Þjóðverjar urðu fyrir mikilli
blóðtöku í gær þegar þaö varð end-
anlega ljóst að hinn frábæri Dani-
el Stephan verður ekki með liðinu
á HM. Stephan er meiddur á hásin
og getur ekki spilað fyrr en í mars.
Þetta era góðar fréttir fyrir okkur
Islendinga en að auki er Frank
von Behren meiddur og fjarri góðu
gamni á HM. Nokkuð hefur verið
deilt á Heine Brand, landsliðsþjálf-
ara Þýskalands, fyrir að velja ekki
skyttuna Nenad Peranicic sem
fékk nýverið þýskan ríkisborgara-
rétt en Brand hefur látiö þá gagn-
rýni eins og vind um eyru þjóta og
sagt að Perunicic vilji ekki taka
sæti frá yngri mönnum. -ósk
Treystir Guðmundur of mikið á Einar Orn?
- fáir valkostir til að leysa hann af ef eitthvað fer úrskeiðis
Spumingin sem margir spyrja
sig, eftir að Guðmundur Guðmunds-
son, landsliðsþjálfari í handknatt-
leik, valdi 18 manna hóp fyrir fjög-
urra þjóða mótið í Danmörku sem
hefst í dag, er sú hvort hann hafi
valið rétt með því að velja aðeins
þrjá vinstri handar leikmenn í hóp-
inn.
Tveir þessara leikmanna, Ólafur
Stefánsson og Heiðmar Felixson,
eru hreinræktaðar skyttur og það
skilur aðeins eftir Einar Örn Jóns-
son sem eina hægri homamann
landsliðsins.
Guðmundur ákvað aö velja ekki
Valsmanninn Bjarka Sigurðsson í
hópinn en hann hefði getað leyst
Einar Örn af úti í Portúgal.
I Svíþjóð í fyrra var Guðmundur
með fjóra vinstri handar leikmenn,
áðumefnda þrjá og Halldór Ingólfs-
son. Halldórs nýtur ekki við núna
og því má ekki mikið út af bregða
til að upp komi vandamál hjá liðinu
í hægra hominu. Að vísu geta Heið-
mar og Ólafur báðir spilað þessa
stöðu en Ólafur er alltof mikilvægur
fyrir liðið til að kúldrast úti í homi
og Heiðmar hefur ekkert sýnt í þau
fáu skipti sem hann hefur spreytt
sig í hominu.
Þá getur Gústaf Bjarnason einnig
spilað þessa stöðu en hann er rétt-
hendur og því varla kostur í langan
tíma.
Einar Þorvarðarson, aðstoðar-
maðxu- Guðmundar Guðmundsson-
Mörk úr hornum
HM i Frakklandi 2001 (6 leikir)
Vinstra hom . 16 skot/7 mörk (44%)
Hægra horn .. 21 skot/8 mörk (38%)
EM í Sviþjóð 2002 (8 leikir)
Vinstra hom 25 skot/11 mörk (44%)
Hægra hom . 15 skot/9 mörk (60%)
Leikir við Slóvena 2003 (3 leikir)
Vinstra hom 15 skot/10 mörk (67%)
Hægra hom .. 8 skot/4 mörk (50%)
ar, sagði í samtali við DV-Sport að
þetta fyrirkomulag hefði reynst vel
á EMí Svíþjóð og því hefði verið
ákveðið að reyna þetta aftur.
„Það fylgir þessu ákveðin áhætta
og við erum meðvitaðir um hana.
Einar Öm hefur hins vegar verið að
spila mjög vel með landsliðinu og
við treystum honum fyllilega til að
standa undir þeirri ábyrgð sem er
lögð á hans herðar. Við höfum
ákveðnar lausnir ef eitthvað kemur
upp en vissulega er það rétt að við
emm þunnskipaðir hvað varðar
örvhenta leikmenn," sagði Einar
Þorvarðarson í samtali við DV-
Sport í gær. -ósk
keppni i hverju oröi
FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 2003
Rafpostur: dvsport@dv.is
Strachan stjóri mánaðarins
Gordon Strachan, knattspyrnustjóri
Southampton, var í gær valinn knatt-
spyrnustjóri desembermánaðar í ensku
úrvalsdeildinni.
Gengi Southampton hefur verið frá-
bært að undanförnu og er liðið í sjötta
sæti deildarinnar, flestum spekingum að
óvöram.
Dómnefndin sagði vera góða tíma hjá
Southampton og það væri ekki síst að
þakka hinum magnaða knattspyrnu-
stjóra liðsins, Gordon Strachan. -ósk
^ íslenska landsliðið tekur þátt í móti í Danmörku um helgina:
Ahersla á vörn
- stysta leiðin að bættum leik, sagði Einar Þorvarðarson
íslenska landsliðið í handknattleik
leikur í kvöld sinn fyrsta leik á fjög-
urra þjóða móti i Danmörku þegar lið-
ið mætir Pólverjum í Farum.
Þetta mót er liður í lokaundirbún-
ingi landsliðsins fyrir heimsmeistara-
mótið í Portúgal sem hefst eftir tíu
daga og DV-Sport ræddi við Einar
Þorvarðarson, aðstoðarmann Guð-
mundar Guðmundssonar, um mótið.
Á hvað verður aóaláherslan lógð í
Danmörku?
„Aðaláherslan hjá okkur í þessu
móti er fyrst og fremst að reyna að ná
vamarleik okkar almennilegum. Það
er algjört grundvallaratriði hjá okkur
i dag. Um leið og varnarleikurinn er í
lagi þá koma hraðaupphlaupin og
þessir tveir hlutir eru okkar sterk-
ustu atriði eins og sást í Svíþjóð. Það
er vopn sem viö verðum að hafa inni
í leik liðsins ef við ætlum að ná góð-
um árangri. Þessi vöm virkaði vel í
Svíþjóð og ég held að stysta leiðin til
að bæta leik liðsins sé að bæta vam-
arleikinn," sagöi Einar Þorvarðarson
í samtali við DV-Sport í gær.
Eru allir leikmenn liðsins heilir?
„Allir leikmenn liðsins eru heilir
nema að þeir hafi meiðst á leiðinni út
en auðvitað era ekki allir leikmenn
liðsins i sínu besta formi. Við þurfum
að fá Patrek, Sigfús og Dag í topp-
formi í keppninni og þeir þurfa helst
að spila sem mest á mótinu í
Danmörku til að komast i gírinn,"
sagði Einar og bætti við að þetta mót
væri mjög mikilvægt fyrir ísland því
að þama væri tækifæri til að ná
stjóm á leik liðsins sem var ekki til
staðar gegn Slóvenum og því yrði að
nýta það vel. -ósk