Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2003, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2003, Side 28
28 FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 2003 Sport ~ Austurriski skiöakappinn Her- mann Maier, sera hefur ekki keppt síðan hann lenti í mótorhjólaslysi ár- ið 2001, æfði í gær í fyrsta sinn með austurríska skíðalandsliðinu frá því í ágúst á síðasta ári en þá bundu önn- ur meiösli enda á endurkomu hans. Að sögn aðalþjálfara austurríska liðs- ins þá er Maier verkjalaus og hann vildi ekki útiloka það að Maier, sem var algjör yfirburðamaöur í heims- bikamum áður en hann meiddist, myndi keppa á heimsbikarmóti áður en timabilinu lýkur. Þýska knattspyrnuliðiö Kaisers- lautern á við mikinn fjárhagsvanda i að striða og íhuga forráðamenn liðs- ins nú að selja leikvang félagsins, Fritz Walter-leikvanginn, til aö koma í veg fyrir gjaldþrot. Kaiserslautem, sem er i næstneðsta sæti þýsku 1. deildarinnar, skuldar rúmlega 2,5 miiljarða íslenskra króna og eru for- ráðamenn liðsins að reyna að vinna að samningum við lánardrottna fé- lagsins. Franski miöjumaöurinn Oliver Dacourt, sem leikiö hefur með Leeds, hefur verið lánaöur til ítaiska iiösins Roma til loka þessa tímabils og geta Rómverjar keypt Dacourt að lánstím- anum loknum. Frakkinn hefur ekki verið í náðinni hjá Terry Venables, knattspymustjóra Leeds, sem lýsti þvi yfir um daginn aö hann væri orð- inn svo þreyttur á Dacourt aö hann myndi persónulega keyra hann til , » Italíu ef hann fyndi sér lið þar. Hollenski ökuþórinn Jos Ver- stappen mun aka fyrir Minardi-liðið í Formúlu 1 kappakstrinum á næsta tímabili eftir aö hafa ekki keppt á síö- asta keppnistímabili. Verstappen, sem 31 árs, mun verða samherji breska nýliðans Justin Wilson. Sam Allardyce, knattspymustjóri enska úrvalsdeildarliðsins Bolton, hefur neitað Tottenham um að fá sóknarmanninn Michael Ricketts lán- aðan til vorsins. Tottenham vildi láta einn af sínum leikmönnum fara til -y Bolton í staðinn en Allardyce sagði sama og þegið. „Þeir hafa reynt að fá hann lengi en hann er ekki leikmaður sem við vilj- um selja. Ég skil þá vel að gimast hann en hann er ekki til sölu, svo ein- falt er það,“ sagði Allardyce. Suöur-afriski kylfingurinn Jean Hugo hefur eins höggs forystu á landa sína Tim Clark og James Kingston eftir fyrsta hring á Opna suður-afríska meistaramótinu í golfi sem hófst í Jóhannesarborg í gær. Hugo lék hringinn á 66 höggum eöa sex höggum undir pari en Clark og Kingston léku á fimm höggum undir pari. Bretamir Ian Pyman, Andrew Coltart og David Drysdale, írinn Pet- er Lawrie og HoUendingurinn Rolf Muntz koma næstir á 68 höggum eða fjóram höggum undir pari. Danski þjúlfarinn Richard Möller Nielsen, sem stýrði danska landslið- inu í knattspymu tU sigurs á EM 1992, hefur verið ráðinn sem þjálfari hjá danska 2. deildar liðinu Kolding. Hann tekur við liöinu i byijun næsta mánaðar og mun stýra því til 30. nóv- ember. Nielsen þjálfaði áður ísra- elska landsliðiö en vildi ekki fram- lengja samning sinn þegar hann rann út inn mitt síöasta ár. -ósk Stúdínur á sigurbraut Stúdínur tryggðu sér sæti í undan- úrslitum bikarkeppni kvenna í körfu- bolta með 51 stigs sigri, 30-81, á Laug- dælum á Laugarvatni í gær. Laugdælir eru í toppbaráttu 2. deildar en Stúdínur sitja á botni 1. deildar en þrátt fyrir það var munur- inn mikill á þessum tveimur liðum i gær. Stúdínur unnu þama sinn annan leik í röð en liöið tapaði átta fyrstu leikjum sínum í vetur en nú horfír til bjartari tíma hjá liðinu. Laugdælir héldu aðeins í við Stúd- ínur í upphafi og það munaði átta stigum eftir fyrsta leikhluta. ÍS leiddi síðan 40-16 í hálfleik og var komið með 37 stiga forustu fyrir siðasta leik- hlutann. Lára Rúnarsdóttir og Steinunn Dúa Jónsdóttir áttu báðar góðan leik í liði ÍS og þær Jófríður Halldórsdóttir og Kristín Óladóttir skiluðu sínu. Alda Leif Jónsdóttir lék sinn annan leik eft- ir endurkomu sína úr krossbandaslit- um og lét sér nægja að spila í 14 mín- útur en gerði engu aö síður 17 stig. Eins spilaði Meadow Overstreet að- eins í 16 mínútur enda leyfði ívar Ás- grimsson þjálfari öllum sínum stúlk- um að spila í leiknum í gær. ÍS lék án Hafdísar Helgadóttur í gær sem glímir enn við bakmeiðsli sem ekki sér fyrir endann á. Hjá Laugdælum var Sigríður Guð- jónsdóttir sterkust en allar geta þær betur og þaö var ljóst á öllu að þær sýndu ekki sitt rétta andlit í þessum leik í gær. Stig Laugdœla: Sigríður Guðjónsdótt- ir 8 (11 fráköst, 3 stolnir), Anna Sigur- laugsdóttir 8, Guöbjörg Hákonardóttir 6, Áslaug Guðmundsdóttir 6 (6 fráköst), Helga Vala Ingvarsdóttir 2. Stig ÍS: Alda Leif Jónsdóttir 17 (3 stolnir á 14 min.), Lára Rúnarsdóttir 14 (6 stoðsendingar, 5 sóknarfráköst, 3 stolnir), Steinunn Dúa Jónsdóttir 12 (5 fráköst, 4 stolnir, hitti úr 5 af 8 skotum), Meadow Overstreet 11 (16 mín.), Jófríður Hall- dórsdóttir 9 (11 fráköst, 6 í sókn, 4 stoln- ir, 3 stoðs.), Kristín Óladóttir 9 (7 fráköst, 4 stoðs. á 20 mín.), Cecilia Larsson 4, Stella Rún Kristjánsdóttir 4, Svandís Anna Sigurðardóttir 1 (10 fráköst, 5 í sókn, 3 stoðs., 3 stolnir). -ÓÓJ Alkeflvískur leikur Haukar og ÍS tryggðu sér í gær sæti í undanúrslitum bikarkeppni kvenna í körfubolta og Grindavík tryggði sér sætið með sigri á Sauðárkróki í fyrrakvöld. Þrátt fyrir að einum leik sé ólokið í átta liða úrslitunum er samt orðið ljóst hvaða fjögur félög eiga lið í undanúrslitunum. Síðasti leikurinn er nefniiega viðureign A- og B-liðs Keflavíkur sem fer fram í Keflavík á morgun, laugardag, og hefst hann klukkan 17.00. Til stóö að tveir keflvískir dóm- arar myndu dæma leikinn og gera hann eflaust að fyrsta alkeflvíska leiknum í sögunni en svo fór að annar dómara leiksins kemur úr Njarðvík. -ÓÓJ Átta liöa úrslit bikarkeppni kvenna: Sanngjarnt hjá Haukum - Haukastúlkur komnar í undan- úrslit eftir sigur á KR á Ásvöllum Kvennalið Hauka sigraði KR, 61-56, á heimavelli í gærkvöld í átta liða úrslitum bikarkeppni KKÍ. Sigur þeirra var verðskuldaður þvi þær leiddu nær allan leikinn og uppskáru eins og til var sáð. Gríðar- leg barátta og liðssamvinna skilaði þeim sigrinum. Leikur liðanna hófst á því að Haukar tóku forystuna. Mikil bar- átta í vöm og beinskeyttari sóknar- leikur skilaði þeim fimm stiga for- ystu eftir fyrsta fjórðung. Hanna kom sterk inn Þær virtust síðan vera að skilja KR-stúlkur eftir í öðrum fjórðungi en þá kom Hanna Kjartansdóttir inn á í fyrsta skipti í leiknum og það ásamt sterkri vöm kom þeim aftur inn í leikinn. Þrjú stig skildu liðin í hálfleik. Baráttan var í hávegum höfð í þriðja fjórðungi og eftir hann var munurinn tvö stig. í fjórða leikhluta náðu gestirnir að komast yfir einu sinni er um þrjár mínútur vom eftir en þá tóku Stefanía Jónsdóttir og Helena Sverr- isdóttir til sinna ráða og tryggðu Haukum sigurinn og áframhaldandi vera í bikarkeppninni. Lifandi varnarleikur Helena og Stefanía ásamt Katrinu Kershaw og Egidiju Raubaite báru uppi sóknarleik Hauka í leiknum. Vamarleikur liðsins var einnig lifandi í leiknum og var Pálína Mar- ía Gunnlaugsdóttir sérlega áberandi þar. Hjá KR vora það Helga Þorvalds- dóttir og Jessie Stomski sem vora fyrirferðarmestar í sókninni. Töluverð barátta fylgdi Hönnu Kjartansdóttur en hennar naut bara ekki nógu lengi við því hún fékk sína fimmtu villu um miðjan fjórða fjórðung. Stig Hauka: Helena Sverrisdóttir 17, Katrina Crenshaw 13, Stefanía Jónsdóttir 12, Egidija Raubaité 10, Pálína María Gunnlaugsdóttir 6, Hafdís Hafberg 2, Ösp Jóhannsdóttir 1. Stig KR: Helga Þorvaldsdóttir 20, Jessie Stomski 20, Hildur Sigurðardóttir 8, Hanna Kjartansdóttir 4, María Káradótt- ir 4. -MOS Haukastúikan Egidija Raubaité skorar hér tvö af tíu stig- um sínum í leiknum gegn KR f gærkvöld án þess aö hin bandaríska Jessie Stomski komi nokkrum vörnum viö. Haukar unnu leikinn, 61-56, og er liöiö komiö í undanúr- slit bikarkeppninnar. DV-mynd E.ÓI. *• Leikmannahópurinn nánast klár hjá íslandsmeisturum KR: Arnar Jón og Valþór Leiðrétting vegna fréttar af Litlá í Kelduhverfi - skrifuðu undir nýja samninga við félagið í vikunni Tveir leikmenn íslandsmeistara KR endurnýjuðu í vikunni samn- inga sína við félagið. Þetta voru kantmaður- inn Amar Jón Sigurgeirs- son og markvörðurinn Valþór Halldórsson. Amar Jón, sem lék alla 18 leiki KR í Símadeildinni síðastliðið sumar og skor- aði eitt mark, skrifaði und- ir tveggja ára samning en Valþór, sem leysti Kristján Arnar Jón Finnbogason af í marki geirsson. KR í þrem leikjum síðastliðið sum- ar, skrifaði undir eins árs samning. Þar með hafa ailir þeir leikmenn KRsem voru með lausa samningu eftir nýliðið keppnistímabil skrifað undir nýja samninga við íslands- meistarana aö undanskildum Guð- mundi Benediktssyni, sem var reyndar með samning, en félagið sagði upp launalið samnings hans 1. desember siðastlið- inn. Kristinn Kjæmested, stjóm- armaður í KR- Sport, sagði í sam- tali við DV-Sport að það væri ekkert að þokast í sam- komulagsátt miili KR og Guðmundar og lítil sam- skipti væru miili aðila en hann von- aðist eftir að menn næðu saman á endanum. Kristinn sagði jafnframt að Bjarki Gunnlaugsson myndi mæta á æfingar á næstunni en það var óvíst Sigur- Valþór son. hvort hann væri í nægilega góöu líkamlegu ásigkomulagi til að spiia í Símadeildinni næsta sum- Ekki fleiri leikmenn „Það er ekki á stefnu- skránni að fá fleiri leik- menn til félagsins. Við telj- um að við höfum nægilega sterkan hóp núna eftir að allir leikmenn okkar end- Halldórs- umýjuðu samninga sina. Við erum einnig búnir að fá til okkar fjóra mjög öfluga leik- menn, Hilmar Bjömsson, Scott Mc- Kenna Ramsey, Kristján Öm Sig- urðsson og Garðar Jóhannsson, sem styrkja liðið mikið,“ sagði Kristinn Kjæmested í samtali við DV-Sport í gær. -ósk Þann 3. janúar 2003 birtist frétt Gunnars Benders í DV með yfirtitlin- um Sjóbirtingsparadísin Laxá í Kelduhverfi og undirtitlinum hverjir selja veiðileyfi í hana? Undirrituðum finnst ástæða til að leiðrétta nokkur atriði i fféttinni og þar ber fyrst að nefna misritun á nafni árinnar sem er að sjálfsögðu Litlá í Kelduhverfi en ekki Laxá. Annað atriði sem undirritaður viii leiðrétta eru upplýsingar um verð og veiðifyrirkomuiag. Því miður afiaði GB sér ekki upplýsinga hjá undirrit- uðum um verð og veiðifyrirkomulag í Litlá, heldur virðist hann hafa unnið fréttina upp úr póstiistabréfi Lax-a sem selur helming veiðileyfanna í Litlá í umboðssölu fyrir Erling Ingva- son. Þannig er málum háttað að undir- ritaður og Erling Ingvason eru með Litlá á leigu til ársins 2010 og skiptast veiðileyfi í ánni til helminga milli hvors aðila um sig. Um sölu á hluta undirritaðs sér íslenska fluguveiði- þjónustan, tiffs.is. Því vill undirritað- ur koma því á framfæri að upplýsing- ar GB um verð og veiðifyrirkomulag eiga ekki við um sölu íslensku flugu- veiðiþjónustunnar, tiffs.is á veiðileyf- um í Litlá. íslenska fluguveiðiþjón- ustan hefur ffá því hún hóf að selja veiðileyfi í Litlá boðið viðskiptavin- um sinum upp á ýmsa fleiri mögu- leika í verðum, þjónustu og daga- fjölda heldur en þá sem nefndir voru í frétt Gunnars Benders og mun halda því áfram. Aö lokum er ástæða til að leiðrétta aflatölur sem gefnar eru upp í frétt GB. Hið rétta er að áriö 2002 eru færðir til bókar 1000 urriðar, 225 bleikjur og 9 laxar. Viröingarfyllst, Pálmi Gunnarsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.