Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2003, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2003, Blaðsíða 29
FÖSTUDAGUR 10. JANÚAR 2003 29 Þrjú ár hjá Hrafnkeli Hrafnkell Helgason hefur skrifað und- ir nýjan þriggja ára samning við Fylkis- menn. Hrafnkell hefur leikið stórt hlut- verk i Fylkisliðinu undanfarin þrjú ár en ætíð þurft að fara út í nám til Banda- ríkjanna í ágúst þegar mikilvægustu leikimir hafa verið eftir. Fylkismenn hafa saknað hans mikið í síðustu leikjunum undanfarin ár en geta glaðst yfir því að Hrafnkell klárar skólann í vor og spilar því allt næsta timabil með félaginu. -ósk Rafpostur: civsport@dv.is < 50 hraðaupphlaupsmörk - Hanna G. Stefánsdóttir hefur skoraö fleiri slik mörk en 5 af tiu liðum deildarinnar Hanna Guðrún Stefánsdóttir hef- ur skorað flest mörk allra í Esso- deild kvenna í handbolta í vetur eða alls 125 mörk í 14 leikjum sem gerir 8,9 mörk að meðaltali í leik. Hanna hefur enn fremur nýtt 73,1% þeirra skota sem hún hefur skotið á mark- ið en 38 marka hennar hafa komið af vítalínunni. Um síðustu helgi, í leik gegn liði Fylkis/ÍR, náði Hanna að skora sitt 50. mark úr hraðaupphlaupi á tíma- bilinu en hún hefur skorað 14 mörk- um fleira úr hraðaupphlapum en næsti maður sem er Víkingurinn Guðrún Drífa Hólmgeirsdóttir. Þaö sem kannski er enn merki- legra er að fimm liða deildarinnar hafa skorað færri hraðaupphlaups- mörk en Hanna og það sjötta, FH, hefur aðeins skorað einu marki meira. Hanna hefur leikið frábærlega í vetur og hefur hún sex sinnum ver- ið kosin best á vellinum eða oftar en nokkur annar leikmaður í deild- inni. Haukaliðið hefur enn fremur verið að lifna við enda búið að vinna sex deildarleiki í röð og komiö 1 undanúrslit bikarsins. Tvö í sérflokki Tvö liða deildarinnar, ÍBV (114) og Haukar (105), eru i nokkrum sér- flokki þegar litið er á mörk skoruð úr hraðaupphlaupum en Víkings- stúlkur koma þar aðeins á eftir með 86 mörk. Eyjastúlkur skipta hraða- upphlaupsmörkunum mun meira á milli sín en Haukar þar sem Hanna skorað rétt tæpan helming hraða- upphlaupsmarka liðsins. Þannig hafa fjórir leikmenn ÍBV skorað 17 mörk eða fleiri úr hraða- upphlaupum en öll fyrmefnd þrjú lið eiga tvo leikmenn sem náð hafa að brjóta 20 marka múrinn. -ÓÓJ Hinn 59 ára gamli japanski ökuþór, Kenjiro Shinozuka, liggur nú nær lifi en dauöa á spftaia eftir alvarlegt slys í París/Dakar-rallinu í gær. Reuters Hanna G. Stefánsd., Haukum 125/38 Jóna M. Ragnarsdóttir, Stjöm. 121/56 Alla Gokorian, ÍBV............102/36 Inga Dís Sigurðard., KA/Þór . . 98/51 Dröfn Sæmundsdóttir, FH . .. . 81/20 Harpa Dögg Vífilsdóttir, FH . . 80/33 Harpa Melsted, Haukum..........75/1 Hekla Daðadóttir, Fylki/ÍR . . . 75/22 Þórdís Brynjólfsd., Gróttu/KR . 71/36 Anna Yakova, ÍBV................70/3 Drífa Skúladóttir, Val.........68/27 Ásdís Sigurðardóttir, KA/Þór ... 66 Guðrún Hólmgeirsdóttir, Vík. .. 65/4 Ingibjörg Jónsdóttir, IBV......62/3 Sylvia Strass, ÍBV .............59/5 Gerður Beta Jóhannsd., Vík. .. 57/18 Kolbrún Franklín, Val .........56/39 ^ Stórslys í París/Dakar-rallinu í gær: Ur lífshættu - Japaninn Kenjiro Shinozuka slasaöist alvarlega Stórslys varð á áttundu sérleið París/Dakar-rallsins í gær en þá voru eknir 727 kílómetrar í eyði- mörkinni í Túnis. Japanski ökuþórinn Kenjiro Shinozuka, sem vann Paris/Dakar- rallið árið 1997 og er þekktasti rallökumaður Japana, slasaðist mjög alvarlega þegar bíll hans flaug yfir sandhól á miðri sérleiðinni og lenti nokkrum tugum metra frá. Að- stoðarökumaður hans, Frakkinn Thierry Delli-Zotta, meiddist einnig en meiðsli hans em ekki jafn alvar- leg og hjá Shinozuka. Japaninn var fluttur í skyndi á sjúkrahús í Túnisborg og sögðu læknar þar að hann hefði hlotið slæm höfuðhögg en væri kominn úr lífshættu. Læknamir vildu ekkert gefa upp um batavonir Shinozuka en sögðu að næstu tveir sólarhringar myndu skera úr um hversu mikinn skaða hann biði. Þetta atvik skyggði mjög á keppn- ina í gær og virtist mönnum standa á sama hver væri efstur og hver væri neðstur þegar komið var í mark. Landi Shinozuka, Hiroshi Masu- oka, var fyrstur í bilaflokki, tæpum sex mínútum á undan Frakkanum Stephane Peterhansel sem er fyrst- ur í samanlagðri keppni. Annar Frakki, Jean-Pierre Fontenay, varð þriðji, flmmtán mínútum á eftir Ma- suoka og Belginn Gregory De Mevi- us varð fjórði. Peterhansel, sem ekur á Mitsubis- hi Pajero, er efstur eftir átta sérleið- ir í bílaflokknum og hefur rúmlega sex og hálfrar mínútu forystu á Ma- suoka. Þessir tveir ökumenn eru í miklum sérflokki því að rúmur klukkutími er síðan i næsta mann, Belgann De Mevius. ítalinn Giovanni Sala kom fyrst- ur í mark á áttunda sérleiðinni í mótorhjólaflokki. Hann varð rétt rúmum tveimur mínútum á undan Frakkanum Jean Brucy en tveir efstu mennimir samanlagt, Fabrizio Meoni frá Ítalíu og Richard Sianct frá Frakklandi, voru sjö og níu mín- útum á eftir Sala. Meoni hefur forystu samanlagt en er þó aðeins 34 sekúndum á undan aðalkeppinauti sínum, Richard Sainct. -ósk Staðan í deildinni: ÍBV 14 13 1 0 401-280 27 Haukar 15 11 1 3 406-328 23 Stjaman 15 10 3 2 343-290 23 Víkingur 15 8 3 4 319-283 19 Valur 15 8 1 6 308-324 17 Grótta/KR 15 7 1 7 307-314 15 FH 14 5 2 7 328-317 12 KA/Þór 15 3 0 12 314-353 6 Fylkir/ÍR 15 2 0 13 278-389 4 Fram 15 1 0 14 290-416 2 Næstu leikir: Fram-Stjaman . . . . í kvöld kl. 20.00 Haukar-Víkingur . í kvöld kl. 20.00 KA/Þór-Valur . . . . í kvöld kl. 20.00 Grótta KR-ÍBV . . . . í kvöld kl. 20.00 KA/Þór-ÍBV . ... á morgun kl. 16.00 FH-Fylkir/ÍR.........mið. 15. jan. Stjaman-Valur .......fos. 24. jan. Fram-Fylkir/ÍR.......fös. 24. jan. FH-Haukar............fös. 24. jan. KA/Þór-Grótta/KR .... fos. 24. jan. ÍBV-Víkingur ........fös. 24. jan. Fram-FH..............sun. 26. jan. Haukar-ÍBV...........sun. 26. jan. Grótta/KR-Stjaman .. . sun. 26. jan. Valur-Fylkir/tR......sun. 26. jan. Vikingur-KA/Þór......sun. 26. jan. Markahæstar: .•O/í/v íí-Ásti % . K O N U R J ^Cf Hraðaupphlaupsmörk Hönnu eftir leikjum: Gegn Fram (ú, 13/9, 33-18) ......7 Gegn KA/Þór (ú, 20/9, 29-24).....3 Gegn Val (ú, 22/9, 28-21)........3 Gegn Stjömunni (h, 29/9, 20-25) . . 3 Gegn Fylki/ÍR (h, 12/10, 38-16) ... 8 Gegn Víkingi (ú, 15/10, 19-19) . . . . 0 Gegn FH (h, 20/10, 26-24) .......4 Gegn IBV (ú, 23/10, 22-27).......1 Gegn Fram (h, 10/11, 34-21)......8 Gegn KA/Þór (h, 15/11, 24-19) .... 2 Gegn Val (h, 17/11, 29-24).......5 Gegn Stjömunni (ú, 24/11, 24-19) . 4 Gegn Gróttu/KR (h, 30/11, 26-23) . . 1 Gegn Fylki/ÍR (ú, 5/1, 29-22).....3 Hanna Guörún hefur leikið 14 af 15 leikjum Hauka í deildinni i vetur en hún missti af tapleik gegn Gróttu/KR á Seltjarnamesi. Haukar skoruðu þá aðeins 3 hraðaupphlaupsmörk en em með 7,3 að meðaltali í öðrum leikjum. Flest hraðaupphlaupsmörk: Hanna G. Stefánsdóttir, Haukum . 50 Guðrún Hólmgeirsdóttir, Víkingi. 36 Harpa Melsted, Haukum............25 Ingibjörg Jónsdóttir, ÍBV........25 Guðbjörg Guðmannsd., Víkingi .. 22 Sylvia Strass, ÍBV...............20 Anna Blöndal, Stjömunni.........19 Alla Gokorian, ÍBV...............17 Anna Yakova, ÍBV.................17 Kristín Jóhanna Clausen, Stjöm. . 17 Harpa Dögg Vífdsdóttir, FH......16 Díana Guðjónsdóttir, Val.........io Ama Grímsdóttir, Val..............9 Kristin Þórðardóttir, Gróttu/KR . . 9 Birgit Engl, ÍBV .................9 Hafrún Kristjánsdóttir, Val......8 Jóna Margrét Ragnarsd., Stjömunni 8 Arna Eir Einarsdóttir, Fram......8 Edda Björk Eggertsdóttir, ÍBV ... 8 Guðmunda Ósk Kristjánsd., Vikingi 8 Flest hraðaupphlaupsmörk liða IBV ............................114 Haukar .........................105 Víkingur.........................86 Stjaman .........................66 FH...............................51 Valur............................40 Fram.............................37 Grótta/KR........................36 KA/Þór...........................27 Fylkir/ÍR........................25 m x. *

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.