Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2003, Síða 7
Leikkonan Edda Björg Eyjólfsdóttir er kona eigi einsömui. Hún væntir síns fyrsta barns eftir rúma
tvo mánuði en hugsanlega er þar um að kenna frjósemisdansi sem dansaður var í brúðkaupi
hennar og tónlistarmannsins Stefáns Más Magnússonar síðastliðið sumar.
Frjósemisdansinn
bar órangur
„Það var dansaður frjósemisdans í brúðkaupinu okkar
og hann virðist hafa virkað,“ segir leikkonan Edda Björg
Eyjólfsdóttir og bendir á bumbuna en hún mun fæða
frumburð sinn og tónlistarmannsins Stefán Más
Magnússonar í mars, en parið gifti sig utandyra
síðasta sumar í Hellisgerði í Hafnarfirði við hátíð-
lega athöfn og hélt brúðkaupsveislu í tjaldi í
garði foreldra Eddu að athöfn lokinni. „Vð
tókum bara sjensinn á veðrinu, enda enginn
verri þó hann vökni. Reyndar vorum við
mjög heppin og fengum stillt og gott veður
þannig að gestirnir þurftu ekki að nota
regnhlífarnar sem þeir tóku með sér,“ upp-
lýsir Edda.
SUND, SÚKKULAÐI OC JÓCA
I vetur hefur Edda verið að leika í verkun-
um Sölumaður deyr og barnaleikritinu
Honk, hvorutveggja sýnt í Borgarleikhús-
inu, auk þess að undirbúa líkamann undir
fæðinguna með jóga- og sundiðkun. „Ég var
að spá í að biðja Nóa-Sfríus og Kjörís um að
sponsera mig um jólin, svo mikið borðaði ég
af ís og súkkulaði,“ segir Edda hlæjandi og
það er greinilegt að hún tekur hinu væntanlega
móðurhlutverki af stakri ró. „Nei, nei, við erum
ekkert með uppeldisaðferðirnar niðumjörvaðar,
við tökum bara einn dag í einu. Maður veit
ekkert hvað maður er að fara út í fyrr en maður
er komin út í djúpu laugina,11 segir Edda og
upplýsir um leið að það sé strákur sem hún ber
undir belti.
ÓLÉTT önd
En hvernig er það að ver'ða ófrískur sem leik'
kona, er það ekkert óheppilegt upp á starfið?
„Það hefur hentað mjög vel að vera svolítið
framstæður þegar maður er að leika endur og
gæsir (Honk) en ég verð að játa að ég var mjög
fegin þegar sýningum á Kryddlegnum hjört-
um lauk,“ segir Edda sem verið hefur alveg
stálslegin alla meðgönguna. Fram undan
hjá þeim hjónum er fæðingarorlof en Edda
hefur einnig verið við æfingar á verkinu
Púntila bóndi og Matti vinnumaður eftir
Brecht, en ekki er komin föst dagsetning
á því hvenær það verður frumsýnt.
Fókusmynd: Teitur
Förðun 6 stílisti: Elín Reynisdóttir
17. janúar 2003 fókus
7