Dagblaðið Vísir - DV - 17.01.2003, Page 10
Beck í samstarfshug
Beck er í miklum sam-
starfshug þessa dagana.
Tónleikaferðin með
Flaming Lips á síðasta ári
tókst það vel að nú er stefnt
á að þeir geri plötu saman.
Sú plata ætti að verða
spcnnandi fyrir marga þvf
að eins og kunnugt er voru
plötur þeirra beggja meðal
bestu platna síðasta árs að
áliti margra tónlistar-
áhugamanna. En Beck er
með fleiri samvinnuverkefni á borðinu. Hann er að sögn að
vinna að pönkplötu með Gorillaz-pródúsernum Dan The
Automator og svo er plata líka fyrirhuguð með öðrum upp-
tökusnillingi, sjálfum Timbaland en það hefur lengi staðið
til að þeir gerðu eitthvað saman. Þeir fjölmörgu sem fannst
Sea Change frábær ættu samt ekki að örvænta, henni verð-
ur fylgt eftir með annarri plötu í svipuðum stíl,jafnvel strax
á þessu ári.
Nóg að gera hjá Neptunes
Þeir Pharrell Williams og
Chad Hugo, öðru nafni Thc
Neptunes, eru eftirsóttustu
pródúserarnir vestanhafs
þessa dagana. Það verður nóg
að gera hjá þeim á nýju ári.
Meðal verkefna sem liggja
fyrir er lag á fyrstu sólóptötu
Beyoncé Knowles, lög á
næstu plötu Busta Rhymes,
tvö lög á væntanlegri plötu
Foxy Brown og a.m.k. tvö lög
á Limp Bizkit-plötunni sem er
í vinnslu, en þau eru sögð undir áhrifum frá asískri tónlist.
Neptunes koma líka við sögu hjá rokksveitunum Blink 182
og Sugar Ray og svo eiga þeir þrjú til fjögur lög á næstu
plötu Britney Spears, en hún hefur víst líka talað við bæði
Air og Daft Punk en óvfst er hvort eitthvað kom út úr því.
Auk þess eru þeir að vinna með Thc Clipse, Supercat og
Rosco P. Goldchain að plötum scm koma út hjá plötufyrir-
tækinu þeirra Star Tracks og loks ber að geta þess að þeir
eru að gera nýja N*E*R*D plötu til að fylgja eftir frumburð-
inum, In Search Of... sem kom út í fyrra ...
Air semur tónlist við skáldsögu
Næsta plata franska
dúósins Air verður með hetd-
ur óvenjulegu sniði. City
Reading (Tre Storie
Western) sem kemur út 25.
mars innihcldur tónlist sem
þeir félagar gerðu fyrir upp
lestur á skáldsögunni City
eftir ítalska rithöfundinn Al
essandro Baricco, en hún
fjallar um ungan stærðfræð-
isnilling með mjögsvo frjótt fmyndunarafl. Airvar boðið að
spila undir upplestri Bariccos í nóvember sl. og urðu félag-
arnir svo spenntir fyrir verkefninu að þeir ákváðu að gefa
það út á plötu. Það var Radiohead upptökumaðurinn Nigel
Godrich sem hljóðblandaði plötuna sem er rúmlega klukku
tími á lengd og inniheldur þrjú verk, La Putana Di Closing
Town, Caccia All’uomo og Bird. Næsta eiginlega Air-plata er
svo væntanleg seinna á árinu.
JACK WHITE I DI5KO-STELLINGUM
Það er nóg að gera hjá karlhelmingi The White Stripes
þessa dagana. í fyrsta lagi er fjórða White Stripcs platan, El-
ephant, væntanleg í apríl. í öðru lagi mun Jack White semja
hluta tónlistarinnar og leika
sem Anthony Minghella (sem
i' kvikmyndinni Cold Mountain
m.a. gerði The English Patient)
leikstýrir. Hann leikur þar eigin-
mann Renée Zellweger. í þriðja
lagi syngur Jack í laginu Dang-
er! High Voltage með hljóm-
sveitinni Electric Six, en hún er
skipuð gömlum vinum hans frá
Detroit. Lagið, sem er einhvers
konar rokk-diskó blanda, þykir
vera fyrsta frábæra lagið á ár-
inu 2003, en hljómsveitin hefur
starfað sfðan 1997.
Kvikmyndin 8 Mile með „reiðu Ijóskunní" Eminem er frumsýnd í
dag. Trausti Júlíusson leit á myndina, sem er lauslega byggð á ævi
Eminems, og hlustaði á plöturnar tvær sem komnar eru út í tengsl-
um við hana.
Battlað \ bílaborginni
„Þetta væri allt svo tómlegt án mín,“ syng-
ur Eminem í laginu Without Me. Það finnst
kannski einhverjum hann taka stórt upp í sig,
en hann hefur samt nokkuð til síns máls.
Eminem er tvímælalaust maður síðasta árs í
bandarísku poppi. Hann á langmest seldu
plötuna, Eminem Show, og líka fimmtu mest
seldu plötuna, 8 Mile sem er enn á toppnum
á Billboard-listanum og á örugglega effir að
seljast helling í viðbót. Myndbandið við Wit-
hout Me er þegar farið að vinna verðlaun og
þegar þetta er skrifað er lagið Lose Yourself af
8 Mile búið að vera 11 vikur á toppi banda-
rfska smáskífúlistans ...
Fyrir utan allt þetta lék Eminem í mynd-
inni 8 Mile sem var frumsýnd í Bandaríkjun-
um seint á síðasta ári og er ffumsýnd víða í
Evrópu í dag, m.a. á Islandi. Oft þegar popp-
arar reyna fyrir sér á hvíta tjaldinu verður út-
koman hræði-
leg (Britney
Spears er ný-
legt dæmi) eða
í besta falli
vandræðaleg
(Madonna ...)
en hvað
Eminem varð-
ar hefur hans
ffammistaða
alls staðar
fengið mjög
góða dóma og
menn eru í al-
vöru famir að
véífa því fyrir
sér hvort
hann verði til-
nefndur til
óskarsverð-
launa. En um hvað fjallar þá 8
Mile?
Rappeinvígi og lífið vitlausu
MEGIN VIÐ 8 MlLE
Kvikmyndin 8 Mile er lauslega
byggð á ævi Eminem sjálfs. Hún
gerist í Detroit þar sem Marshall
Mathers (öðm nafni Eminem eða
Slim Shady) byrjaði að rappa og
eins og hann býr aðalsöguhetjan
Jimmy Smith Jr. (öðm nafni
Rabbit eða B-Rabbit) með alvar-
lega vanstilltri móður sinni en fað-
irinn' er hvergi sjáanlegur.
Eminem var (og er) meðlimur í
rappgenginu D12 en Rabbit er í
rappgenginu 313. Hvomtveggja
er tilvísun í heimaborgina, D-ið í
D12 stendur fyrir Detroit og 313
er póstnúmerið. 8 Mile er gata sem
skiptir Detroit, öðrum megin búa fátækir, mest blökkumenn,
hinum megin er hverfi vel stæðra, þar búa aðallega hvítir.
Eins og Eminem elst Rabbit upp þeim megin við 8 Mile göt-
una sem svertingjamir búa. Myndin er ekki saga Eminem,
en hún styðst við atburði úr lífi hans, enda settist hann niður
með handritshöfúndinum Scott Silver og rifjaði upp með
honum sögu sína.
í upphafi myndarinnar sjáum við Rabbit taka þátt í rapp-
einvígi í helsta hip-hop klúbbnum f hverfinu. Þegar kemur
að honum frýs hann og kemur ekki upp orði. Myndin gengur
öðmm þræði út á líf Rabbits og áætlanir (hann vinnur í bíla-
partaverksmiðju) en um leið um ffama hans sem rappara.
Hann tekur þátt í ófáum einvígjunum í myndinni, en
Eminem sjálfur vakti fyrst
athygli í rímnaflæðikeppn-
um, m.a. á klúbbum eins og
Kitchen, Hip-Hop
og The Shelter sem
sjáum í myndinni.
Nokkrir frægir rapparar
fara með smáhlutverk í
myndinni og „battla“, þ.á
m. Proof úr D-12, Obie
Trice og Xzibit. Þeir koma
líka allir við sögu á plötunni
8 Mile sem eins og áður seg-
ir var fimmta mest selda
platan í Bandarfkjunum á
sfðasta ári.
Tvær ólíkar 8 Mile-plötur
Það eru tvær plötur komnar út í
tengslum við myndina. Fyrst skal
nefna 8 Mile, Music From & In-
spired By The Film sem kom út á
sama tíma og myndin var frumsýnd í
Bandaríkjunum. Hún inniheldur 16
ný lög með Eminem sjálfúm, Jay-Z,
Xzibit, Nas, Rakim, Gangstarr og
Macy Gray og svo með listamönnum
plötuútgáfúnnar Shady Records sem
Eminem rekur, D-12, Obie Trice og
50 Cent. Sá síðastnefndi er ein af
björtustu vonunum í bandarfsku hip-
hoppi þessa dagana. Fyrsta sólóplat-
an hans, Get Rich Or Die Trying, er
væntanleg í febrúar, en á henni
vinnur hann m.a. með Dr. Dre,
Eminem og Trinu. 50 Cent á lagið
Wanksta á 8 Mile-plötunni, en það
hefúr notið mikilla vinsælda í
Bandaríkjunum og á eins og Loose Yourself stóran þátt í vin-
sældum plötunnar.
Hin platan heitir More Music From 8 Mile og kom út
núna í vikunni. Hún er af allt öðru sauðahúsi. 8 Mile gerist
árið 1995 og More Music ... hefúr að geyma 13 lög sem voru
vinsæl í hip-hop partíum á þeim tíma, m.a. Shook Ones með
Mobb Deep, Juicy með Notorious B.I.G. , Feel Me Flow
með Naughty By Nature, Player’s Ball með Outkast, Shim-
my Shimmy Ya með Ol’ Dirty Bastard, You’re All I Need
með Method Man og Mary J. Blige og lög með Tupac, MC
Breed, Jr. Mafia, Pharcyde og Wu-Tang Clan. More Music
... hefúr fengið mjög góða dóma og þykir hafa náð að fanga
stemninguna í hip-hoppinu á þessum tíma sérstaklega vel.
17. janúar 2003
hva& f vrk skemmtileaar niðurstaða
hvern? staðreyndir
New York rapp-kóngurinn Sean Carter, ööru nafni Jay-Z, er hér mættur með 7. sólóplötu sína á jafn mörgum árum og í þetta skiptið er hún tvöföld. Afköst hans eru annáluð. Fyrr á árinu 2002 komu út með honum MTV Unplugged plata og svo dúóplatan The Best of Both Worlds sem hann gerði með R Kelly, en flestir eru reyndar að reyna að gleyma þeim mistökum. Jay-Z nýtur vaxandi vinsælda og virð- ingar úti um allan heim. Bæði er hann flottur rappari og svo er hann óhrædd- ur við að reyna nýja hluti í tónlist. Hér fær hann ofur-pródúserinn Timbaland enn einu sinni til liðs við sig en auk hans eiga Dr. Dre, Just Blaze, Kanye West o.fl. lög á plötunni. Ásamt Nas er Jay-Z aðalmaðurinn í New York-rappinu þessa dagana. Þessi plata er framhald plötunnar Blueprint sem kom út 2001 og fékk frábærar viðtökur. Þaö er hellingur af gestum hér, Faith Evans og Notorious B.I.G. (R.I.P.), Dr. Dre, Rakim, Big Boi úr Outkast, M.O.P., Beanie Sigel & Scarface, Memphis Bleek, Beyoncé Knowles úr Oestiny’s Child sem syng- ur á móti Jay-Z í laginu 03 Bonnie & Clyde og rokkarinn Lenny Kravitz. Þegar rapparar hafa gefið út tvöfaldar plötur hingað til þá hefur það ekki reynst vel. Hjá Jay-Z tekst þetta næstum þvi al- veg. Það eru engin uppfyllingarfög hér og platan er nógu fjölbreytt og vel gerö til þess að halda athyglinni í þessar rúmu 100 mín. Sumt virkar samt ekki alveg, Ld. lagiö Guns & Roses sem Jay-Z gerir með Lenny Kravitz. Vont. 1 heildina samt finn gripur. trausti Júliusson
Hér er á ferðinni ný safnplata frá Skint- útgáfunni I Brighton en hún er þekkt- ust fyrir að vera útgáfan sem gefur út plötur Fatboy Slim. Þetta er tvöfaldur diskur. Fyrri platan .That Was Then" inniheldur 12 af þekktustu lögum út- gáfunnar. Á þeim seinni, .This Is Now', er að fmna ný lög og sjaldgæf mix. Skint-útgáfan er þekktust fýrir big- beat-tónlist, en þegar maöur hlustar á þetta safn þá heyrir maður að fjöl- breytnin hefur alltaf veriö mikil. Meðal flytjenda eru Fatboy Slim, Bentley Rhythm Ace, Lo Fidelity Allstars, Mid- fiaeld General, Space Raiders, Cut La Roc, Indian Ropeman, Freq Nasty, Danmass og X-Press 2 með og án David Byme. Samhliöa hljómplötunni kemur út DVDdiskur með öllum helstu mynd- böndunum sem útgáfan hefur sent frá sér, sögu hennar og ýmsum öðru efni. Ég hef enn ekki séð diskinn en ef mað- ur miðar við myndböndin hans Fatboy sem mörg eru á meðal þeirra flottustu undanfarin ár þá ætti þaö að vera nokkuð þéttur pakki. Þetta er mjög vel lukkað safn og fínn vitnisburður um Skint-útgáfuna. Maður er að vísu búinn að fá leiða á sumum af gömlu lögunum (Santa Cruz, Bentley’s Gonna Sort You Out, Lazy...) en seinni diskurinn bætir það upp. Timo Maas mixið af Star 69 og Koma & Bones mixið af Smoke Machine eru t.d. bæði mikil snilld. trausti júlíusson