Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2003, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2003, Qupperneq 3
I>V HANDBOLTI J \j( GEl 0 P®tIMllQÆíLj/' ; Tíu efstu fara á HM í Túnis 2005 Tíu efstu sætin á HM í Portú- gal gefa sjálfkrafa þátttökurétt á heimsmeistaramótinu í Túnis 2005. Gestgjafarnir öðlast sjálf- krafa keppnisrétt en að auki munu þrjú lið frá Asíu, Evrópu og Ameríku og eitt frá Eyjaálfu taka þátt í mótinu sem fram fer í annað sinn í sögunni í Afríku en Egyptar héldu mótið árið 1999. Eins og áður hefur komið fram komast sjö efstu liðin sjálf- krafa á Ólympíuleikana í Aþenu 2004 en að auki verða þar gest- gjafar Grikkja og eitt frá Evrópu, Asíu og Ameríku. -ósk 8 milljónir til skiptanna Alþjóða handknattleikssamband- ið mun í fyrsta sinn veita verð- launafé fyrir þrjú efstu sætin á HM í Portúgal. Alls er verölaunaféð um átta milljónir íslenskra króna og skiptist þannig að liðið sem verður í fyrsta sæti fær fjórar milljónir í sinn hlut, liðið sem verður í öðru sæti fær 2,4 milljónir í sinn hlut og liðið sem krækir í bronsverðlaun fær 1,6 milijónir í sinn hlut. Þar með fetar Alþjóða handknatt- leikssambandið í fótspor evrópskra kollega sinna en Handknattleiks- samband Evrópu veitti peninga- verðlaun í fyrsta sinn á Evrópu- meistaramótinu í Svíþjóð í fyrra og mæltist það vel fyrir. -ósk segir Guðmundur Guðmundsson um M an heimsmeistarakeppnina sem hefst í dag Heimsmeistaramótið í handbolta hefst i dag. Guðmundur Guðmunds- son landsliðsþjálfari segir að í und- irbúningnum hafi komið upp að- stæður sem hann hafi ekki ráðið við. DV-Sport talaði við Guðmund að loknum síðasta undirbúnings- leiknum gegn Svium. Guðmundur segir að honum hafi verið skammtaður ákveðinn tími með liðið og hann hafi enn fremur haft færri leikmenn til ráðstöfunar nú en á sama tíma í fyrra. Það komi til vegna þess að fleiri leikmenn leika erlendis og skiluðu sér seinna til landsins á æfingar. Ég hafði Rún- ar Sigtryggsson og Einar Örn Jóns- son með í öllum undirbúningnum í fyrra en þá léku þeir báðir hér landi. Við byrjuðum í desember 2001 með stærri hóp fyrir EM en því var ekki við komið núna. Það er mjög mismunandi hvernig þessu er háttað hjá öðrum en það fer að sjálf- sögðu eftir því hve margir leikmenn eru að leika erlendis. Slóvenar hófu sinn undirbúning mun fyrr en við, enda leika flestir leikmenn þeirra í Slóveníu. Frakkar gerðu það sömu- leiðis. Eins er hægt að benda á Portúgala, Egypta og Túnismenn í þessu sambandi. Ég stend ekki ósvipað og margir kollega minna, eins og t.d sænsku og dönsku þjálfaramir, þar sem stór hluti leikmanna er á mála hjá þýsk- um liðum. Það sem gerði líka und- irbúninginn erfiðari en ella og er ekki í rauninni búið að bíta úr nál- inni með eru meiðsl lykilmanna frá því að við byrjuðum í upphafi þessa árs. Við höfum aldrei spilað með sterkasta lið okkar nema að hluta í nokkrum leikjum. Áttum misjafna leiki „Við áttum misjafna leiki fyrir Evrópumótið í fyrra. Leikimir við Þjóðverja og Frakka skáru sig nokk- uð úr en við lékum illa gegn Króöt- um og Dönum nokkrum dögum fyr- ir það mót. Munurinn núna og þá er sá að við lékum yfirleitt með sterkasta lið okkar fyrir EM og allir leikmenn liðsins sluppu við alvarleg meiðsl. í þessu liggur munurinn og eins að við fengum skemmri tíma til undirbúnings." - Finnst þér einbeiting leikmanna vera með öðm hætti nú en í fyrra? „Umfjöllunin er mun meiri fyrir þetta mót en fyrir Evrópumótið í fyrra og áreitið hvað leikmenn varð- ar og þá sem koma að liðinu er miklu meira núna. Það hefur alltaf áhrif á einbeitingu en þetta er samt ekki hlutur sem ég ætla að kvarta yfir. Það fylgir þessu meira áreiti þegar liðið stendur sig vel og menn em með væntingar til þess. Þetta fmnst mér bara af hinu góða en leikmenn og allir aðstandendur liðsins þurfa líka að læra að axla það og umgangast slíkt. Ég ætla alls ekki að fara að kvarta yfir þessu en menn mega bara ekki missa sjónar af því sem er aðalatriði, sem er að halda einbeit- ingunni og síðan einnig þegar út í keppnina er komið.“ - Er liöið tilbúinn í slaginn? „Eins og það getur orðið tilbúið. Ég er ekki enn kominn með sterkasta liðið í hendumar og liðið verður ekki tilbúnara eins og stað- an er í dag. Við emm búnir að renna í gegnum alla þætti og meiri tíma höfum við ekki til undirbúnings. Allir þjálfarar hefðu viljað fá meiri tíma. Það er verið að gera mikið á stuttum tíma en það þýðir ekkert að vera hugsa um það núna. Ég er ekk- ert að velta mér upp úr því og við höfum einfaldlega þurft að nýta þann tíma sem við fengum.“ Þurfum aö vera klárir - Er ekki kostur aö fá leikina við Ástrala og Grœnlendinga heldur en sterkari andstœðinga á borð við Þjóðverja og Portúgala? „Það má kannski segja það að mörgu leyti en ég segi líka að við þurfum að koma með ákveðnu hug- arfari í þá leiki. Það er auðvelt að falla í þá gryfju að vanmeta þessi lið. Þessa leiki þarf að klára af krafti en mér er enn í fersku minni þegar við mættum Bandaríkjamönnum á Ólympíuleikunum 1988. Þá hlógu all- ir að þeim en við vorum í strögli með þá framan af og vorum við þó með frábært lið. Það getur enginn leyft sér að mæta til leiks gegn þess- um andstæðingum með hálfum huga. Við þurfum að vera klárir og skiptir þá engu hvort andstæðing- urinn er Ástralía eða Grænland. Við verðum að vinna okkur inn í leik- inn og koma okkur í þá stöðu að geta hvílt leikmenn. Það er hættu- leg umræða að keyra á einhverju varaliði og svo á liðið að verða tilbú- ið í þriðja leik sem er einn af mik- ilvægustu leikjum okkar í keppn- inni.“ 14 frábærar þjóöir - Er styrkur liðsins sá að það eigi að geta farið langt í keppn- inni? „Það eru 14 frábærar handbolta- þjóðir í þessari keppni og sam- keppnin er gríðarlega hörð. Við eig- um möguleika á því, ef við stöndum okkur í þessum riðli, að skila okkur inn í einn af þessum fjórum milli- riðlum. Það er okkar fyrsta mark- mið áður en lengra er haldið þótt ég ætli ekki að vera með neinar yfir- lýsingar í því sambandi. Við tökum einn leik fyrir einu og bíðum með hástemmdar yílrlýsing- ar. Tilflnning mín fyrir keppninni er góð í sjálfu sér og það á einnig við um leikmennina. Það er tilhlökkun og ég er fullur eftirvæntingar. Þetta er spennandi verkefni og það er alltaf ákveðin spenna sem fylgir þessu og það tel ég nauðsynlegt. Maður er einbeittari og vinnur sína vinnu enn betur fyrir bragðið." Guðmundur segist þess fullviss að nokkur lið eigi eftir að koma á óvart. Hann spáir Júgólövum betra gengi en áður og að Túnis eigi eftir að setja mark sitt á þetta mót og jafnvel Slóvenar. Danir og Svíar eigi eftir að gera góða hluti og góðum liðum fjölgi þannig að samkeppnin sé alltaf að verða meiri og meiri. Liðin mega núna nota 14 leik- menn sem gefur stórum þjóðunum og þeim sem búa yflr mestu breidd- inni vissulega meira rými. Hand- boltinn er að taka breytingum. Liðin hafa fá tækifæri til að halda boltan- um vegna þess að ella er dæmd leik- töf. Þetta er tvímælalaust til hags- bóta fyrir þá bestu. - Sérðu fram á skemmtilega daga á HM í Portúgal? „Já, ég sé fram á spennandi daga og ég er fullur eftirvæntingar eins og ég sagði áðan,“ sagði Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari að lokum. -JKS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.