Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2003, Qupperneq 8
22
MÁNUDAGUR 20. JANÚAR 2003
Heíner Brand, þjáifarj þýska liös-
ins, gat ekki annað en veriö sáttur
viö sína menn eftir leikinn gegn
Rússum. Hér sést hann krjupa fyr-
ir framan bekk sinna manna í leik
gegn íslendingum í Laugardals-
höll fyrir rúmu ári. DV-mynd PÖK
Helstu andstæðingar Islendinga í B-riðli HM í Portúgal í miklum ham:
Rulluðu yfir Russa
- Þjóðverjar spiluðu frábærlega í síðasta leik sínum fyrir HM
Þjóðverjar munu mæta til leiks á
HM í Portúgal með sjálfstraustið í
lagi eftir sigur á Rússum, 34-27, í
síðasta leik þjóðanna fyrir heims-
meistaramótið á fóstudagskvöldið.
Þeir gátu ekki kvartað undan litlum
stuðningi áhorfenda því að alls
lögðu rúmlega ellefu þúsund áhorf-
endur leið sína í höllina i Dort-
mund.
Þjóverjar voru í miklum ham í
leiknum, léku geysilega hraðan
handknattleik og létu Rússa sitja
eftir með sárt ennið. Þeir kláruðu
leikinn i fyrri háifleik og fóru með
sjö marka forystu, 19-12, til bún-
ingsherbergja í leikhléi.
Zerbe með á ný
Þeir fögnuðu endurkomu hinnar
hávöxnu skyttu, Volker Zerbe sem
mun styrkja liðið gífurlega á HM.
Zerbe hafði reyndar hægt um sig
gegn Rússum og skoraði aðeins tvö
mörk.
Þjóðverjar keyrðu á sínu besta
liði í fyrri hálfleik en Heiner Brand,
þjálfari liðsins, gat leyft sér þann
munað að skipta mikið inn á í síð-
ari hálfleik án þess að Rússar
kæmust eitthvað nær.
Christian Schwarzer var marka-
hæstur hjá Þjóðverjum með sex
mörk. Stefan Kretzschmar, Christi-
an Zeitz og Florian Kehrmann skor-
uðu fimm mörk hver og Heiko
Grimm skoraði fjögur mörk.
Línumaðurinn Dimitri Torgowa-
now var markahæstur hjá Rússum
með sex mörk og gamla brýnið Al-
exander Tutschkin skoraði fimm
mörk.
Viljum spila hraðan bolta
Heiner Brand, þjálfari þýska liðs-
ins, var sáttur eftir leikinn og hafði
þetta um hann að segja í viðtali við
þýska netmiðilinn sportl.de.
„Byrjunin var okkur erfið en það
lagaðist þegar við náðum að keyra
upp hraðann í leiknum. Leikurinn
var mjög hraður og skemmtilegur
og þannig handbolta viljum við
spila. Ég held að leikirnir gegn
Frökkum og Rússum hafi sýnt það
að við getum unnið hvaða lið sem er
ef við spilum okkar leik,“ sagði
Brand.
Sigur þýska liðsins var kærkom-
inn þvi að nokkur hræðsla greip um
sig í herbúðum liðsins í síðustu
viku þegar í ljós kom að þeirra besti
maður, Daniel Stephan hjá Lemgo,
myndi missa af heimsmeistaramót-
inu vegna meiðsla. Það var ekki að
sjá í leiknum gegn Rússum að
Stephans væri sárt saknað en vitan-
lega væri liðið enn sterkara með
hann innanborðs.
Gífurleg bjartsýni ríkir meðal
þýskra handknattleiksáhugamanna
um gengi sinna manna á heims-
meistaramótinu og telja flestir að
liðið komi heim með gullið í fartesk-
inu. Þýskir veðbankar keppast við
að spá liðinu sigri og er svo komið
að leikmönnum liðsins frnnst nóg
um.
Eitt af átta fyrstu markmiðiö
Línumaðurinn Klaus Dieter Pet-
ersen, sem leikur með Kiel, segir að
markmið liðsins eigi að vera 5.-8.
sæti. Hann segir að fjarvera Daniels
Stephan muni hafa mikil áhrif á lið-
ið þar sem staðgengill hans, hinn
ungi Pascal Hens, hafi ekki þá
reynslu eða stöðugleika til að fylla
skarð hans í heilu móti.
Petersen, sem leikur sinn 300.
landsleik gegn Ástralíu á þriðjudag-
inn, segist þrátt fyrir þetta hafa
mikla trú á liðinu en varar við því
að fólk hafi miklar væntingar.
Dreymir um titil
Hornamanninn litríka, Stefan
Kretzschmar, sem er félagi Ólafs
Stefánssonar og Sigfúsar Sigurðs-
sonar hjá Magdeburg, dreymir um
heimsmeistaratitil en segir jafn-
framt að það sé ekkert lið sem eigi
eftir að vera með yfirburði.
„Mig dreymir um að vinna
heimsmeistaratitil með Þjóðverjum.
Ég hugsa um það reglulega og ég hef
trú á því að við getum unnið þetta
mót. Þetta verður síðasta heims-
meistaramótið mitt og því ekki
seinna vænna fyrir mig að vinna
eitthvað. Það eru hins vegar mörg
lið sem koma til greina sem sigur-
vegarar. Rússar og Frakkar eru með
mjög sterk lið eins og reyndar Svíar
líka. Danir gætu orðið það lið sem
kemur mest á óvart á mótinu og sið-
an má ekki vanmeta Spánverja,"
sagði homamaðurinn snjalli, Stefan
Kretzschmar, í viðtali við þýska
netmiðilinn sportl.de. -ósk
Þrjú lið í Asíu keyptu sæti á HM:
Komust inn
með mútum
- olíufurstarnir borguðu bestu liðunum
Svíinn Olle Olsson, sem hætti sem
landsliðsþjálfari hjá handknattleiks-
landsliði Sádi-Arabíu eftir HMárið
2001, segir að Sádar, Kúveitar og Kat-
arar hafi keypt sér sæti á HM í hand-
knattleik sem hefst i dag.
Olsson segir að þessi lið hafi borg-
að bestu liðum Asíu, Japans og Suð-
ur-Kóreu fyrir að stilla ekki upp sínu
besta liði í undankeppninni í Asíu
síðasta sumar.
Óhreint mjöl
„Það sér það hver heilvita maður
að það er einhver með óhreint mjöl í
pokahorninu þegar Katarar, sem eru
byrjendur í handknattleik, vinna
Suður-Kóreu, 38-23, í undankeppn-
inni. Ég get staöfest að þeir em ekki
svo góðir," segir Olsson í viðtali við
sænska blaðið Aftonbladet.
Olsson sagði að fyrir heimsmeist-
arakeppnina I Frakklandi hefði allt
verið heiðarlegt og þá hefði Sádi-Ar-
abía verið með næstbesta lið Ásíu á
eftir Suður-Kóreu.
Sjálfhætt
„Ég sá það hins begar fljótlega eft-
ir HMaö forráðamenn handknatt-
leiksmála þar á bæ hafa engan metn-
að nema til þess að borga öðrum fyr-
ir sæti á HM. Það segir sig sjálft að
þá er sjálfhætt enda ekki vinnandi í
slíku umhverfi." -ósk
Mikill munur á fjárhagsstyrk sambanda:
Borga með sér á HM
- grænlensku leikmennirnir leggja mikið á sig
Leikmenn grænlenska handknatt-
leikslandsliðsins hafa þurft að
leggja mikið á sig til að gera draum-
inn um þátttöku á HM í Portúgal að
veruleika.
Aðeins þrir leikmanna liðsins eru
atvinnumenn en aðrir vinna venju-
lega vinnu í Grænlandi.
Kostar 170 þúsund á mann
Á milli æfingabúða í Álaborg í
Danmörku og ferðarinnar til Frakk-
lands á dögunum þar sem lokaund-
irbúningurinn fór fram þurftu
margir leikmanna grænlenska liðs-
ins að snúa heim og vinna í nokkra
daga. Þeim þótti það ekkert tiltöku-
mál og kippa sér heldur ekki upp
við það að sennilega mun þátttaka
þeirra í HMkoma til með kosta
hvern einasta leikmann um 170 þús-
und íslenskar krónur.
Það er því engan bilbug að finna
á grænlenska liðinu og þeirra besti
maður, Jacob Larsen, segir að
stuðningur grænlensku þjóðarinnar
hafi mikið að segja.
„Við vitum að rúmlega hundrað
Grænlendingar ætla að koma og
styðja okkur á HM í Portúgal. Við
erum hrærðir yfir þeim stuðningi
sem fólkið sýnir okkur og höfum
reiknað að 0,1% af öllum Grænlend-
ingum muni vera i Portúgal á með-
an á mótinu stendur. Það er stór-
kostlegt," sagði Larsen.
Ætlum okkur fjórða sætið
Larsen er sannfærður um að
grænlenska liðið geti náð fjórða
sætinu í B-riðli en þar leika einnig
Þýskaland, Island, Portúgal, Katar
og Ástralía.
„Katarar hafa ekki mikla reynslu
af alþjóðlegum handknattleik en við
vitum að lið frá þessum heimshluta
eru óútreiknanleg. Við höfum reynd-
ar ekki mikla reynslu heldur en við
ættum samt að vinna Katar og Ástr-
alíu,“ sagði Larsen og bætti við að
það yrði sérstakt að mæta gestgjöf-
unum, Portúgölum, í fyrsta leiknum
þar sem möguleiki væri fyrir Græn-
land að koma á óvart. -ósk
HANDBOLTI J
DGCZl 0 %
Grœnlenska landsliðið í handknatt-
leik, sem leikur með íslendingum í B-
riðli á HM í Portúgal, lék síðasta leik
sinn fyrir keppnina á fimmtudags-
kvöldiö. Þá mætti liðið franska liðinu
Marseiile og fóru Grænlendingar meö
sigur af hólmi, 23-18, eftir að hafa
verið yfir í hálfleik, 11-9. Jakob
Larsen, sem leikur með danska liðinu
GOG, var markahæstur í grænlenska
liðinu með níu mörk og Hans Peter
Motzfeld og Niels Poulsen skoruðu
fjögur mörk hvor.
Það munu faraframfjórar opnun-
arhátiöir á heimsmeistaramótinu í
Portúgal, ein í hverjum riðli. Mest
munu lætin verða í Madeira þar sem
heimsmeistarar Frakka munu spila
fyrsta leikinn en þar verður mótiö
formlega opnað. Skipuleggjendur
mótsins hafa ekkert gefið upp hvern-
ig lokahátíðin verður.
Mióaverð á leikina áHM 1 Portúgal
þykir vera nokkuð sanngjarnt. Ódýr-
ustu miðamir eru á leiki í riðla-
keppninni en þeir kosta rúmlega 600
krónur íslenskar. Dýrustu miöamir
em á úrslitaleikinn en þeir kosta á
bilinu 1250 tU 3800 krónur.
Alls hefur 421 blaðamaður sótt um
blaðamannapassa fyrir heimsmeist-
aramótið, 88 þeirra frá sjónvarpi, 217
frá dagblöðum, 54 frá útvarpi og 62
ljósmyndarar.
Heimsmeistaramótió i handknatt-
leik mun verða sýnt í 44 löndum. All-
ar 24 þátttökuþjóðimar sýna beint frá
mótinú en að auki munu Rúmenía,
Sviss, Noregur, Búlgaría og Taívan
sýna frá mótinu ásamt 15 löndum í
Ásíu.
Tveir kinverskir sérfrœðingar, Li
Zhiwen og Lui Jianming, munu sjá tii
þess að tölvumál mótsins séu í lagi.
Þeir sjá um að koma tölvuforritinu,
sem notað var á Ólympíuleikunum í
Sydney, upp fyrir Alþjóða handknatt-
leikssambandið í Portúgal en það á
að gera skipuleggjendum mótsins
kleift að koma tölfræðiupplýsingum
hratt og öragglega strax eftir leik til
fjölmiðla og þjálfara liðanna.
Lyfjanefnd Alþjóða handknatt-
leikssambandsins mun framkvæma
að minnsta kosti 88 lyfjapróf á meðan
á keppninni stendur. Einn leikmað-
ur úr hverju liði verður tekinn í lyfia-
próf í riðlakeppninni og milliriðlun-
mn og síðan tveir úr hverju liði síð-
ustu tvo keppnisdagana þegar leikið
verður um sæti. Það verða því fjórir
leikmenn sem fara í lyfjapróf úr
þeim liöum sem komast áfram úr
milliriðli.
Sviar og Rúmenar hafa oftast orðið
heimsmeistarar, fjórum sinnum. Sví-
ar unnu síðast í Egyptalandi áriö
1999 en Rúmenar hafa ekki unnið síð-
an 1974 en þá unnu þeir fjórar af
fimm keppnum á árabilinu 1961-1974.
Rússar hafa þrívegis borið sigur úr
býtum og Frakkar tvívegis en þeir
era núverandi handhafar titilsins.
Sœnsku markverðirnir Peter
Gentzel og Thomas Svensson, sem
báðir teljast með betri markvöröum
heims í dag, hræðast frönsku stór-
skyttuna Jerome Fernandez mest af
öllum leikmönnum heimsmeistara-
keppninnar í Portúgal.
„Hann er ótrúlega skotfastur. Það
er kannski ekki erfitt að reikna hann
út en það er mjög erfitt að komast fyr-
ir skot hjá honum," sagði Thomas
Svensson um Fernandez.
Fyrir utan Fernandez hræðast þeir
mest Rússann Alexander Tutchkin
sem þeir segja að viti upp á hár
hvenær og hvar eigi að skjóta. Einnig
telja þeir til Ungverjann Laszlo
Nagy, leikmann Barcelona, sem þeir
eru sammála um að geti orðið besti
handboltamaður heims.
Sœnska blaðið Aftonbladet gefur
öllum liðum heimsmeistaramótsins í
Portúgal einkunn. Fimm lið, Sviþjóð,
Danmörk, Frakkland, Rússland og
Spánn, fá hæstu einkunn eða fimm.
Þjóðverjar fá fjóra ásamt Júgóslövum
en Islendingar fá þrjá en þá einkunn
fá einnig Túnis, Króatía, Ungverja-
land, Egyptaland og Alsir.
í blaðinu kemur fram að íslenska
liöið eigi nokkuð í land með að ná
þeim bestu en aö liðið leiki mjög ag-
aðan handknattleik og hafi einn besta
handkanttleiksmann heims innan
sinna raöa, Ólaf Stefánsson.
íslenska landsliðinu gekk erfiðlega
að fá að æfa við komuna til Portúgals
á laugardaginn. Ekkert íþróttahús
stóð þeim til boða og það var ekki
fyrr en barið var í borðið í gær sem
hlutimir fóra að ganga og íslenska
liðið fékk æfingahúsnæði. -ósk