Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2003, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2003, Page 9
MÁNUDAGUR 20. JANÚAR 2003 23 HAHDBOLTI J .j raca 0 W Strákarnir okkar á HM Fœddur: 22. janúar 1965 (37 ára í íyrsta leik). Félag: Papillon Conversano á ítaliu. Hœð: 190 sra. Þyngd: 98 kg. Landsleikir: 356. Fyrsti landsleikur: Gegn Sovétmönn- um, 13. júlí 1986. Guðmundur Hrafnkelsson er leik- reyndasti landsliðsmaður íslands frá upphafi en hann er nú að hefja sitt 18. tímabil með íslenska landsliðinu. Með því jafnar hann met Sigurðar Vals Sveinssonar sem einnig var landsliösmaöur í 18 ár. HM i Portúgal verður jafnframt 10. stórmótið og sjötta heimsmeist- arakeppnin sem Guðmundur tekur þátt í. Auk þess hefur hann spilað með liðinu í tveimur B-keppnum og er eini leikmaður guliliðsins frá París 1989 sem er enn að spila með landsiiðinu. Guðmundur bætti landsleikjamet Geirs Sveinssonar fyrir ári og varði mjög vel í Evrópukeppninni þá. Guðmundur hefur leikið sem atvinnumaður, bæði hjá Nordhom í Þýskalandi sem og hjá Conversano á ítaliu þar sem hann leikur nú. Meöaltal Guðmundar á siðustu stórmótum Stórmót Varin fflutf. V. víti Haldið B.tap. EM 2002 13,9 40% 5/16 5,0 0 HM 2001 12,0 37% 1/10 2,8 0,3 EM 2000 15,2 42% 3/23 4,3 0,3 HM 1997 8,6 42% 7/24 2,9 0,1 Einar Þorvarðarson, 46 ára aðstoðarþjálfari landsliðsins Fœddur: 12. ágúst 1957 (46 ára í fyrsta leik). Landsleikir: 226 (1980-1990). Einar Þorvarðarson hefur verið aðstoðarþjálfari landsliösins hjá Guðmundi Guðmundssyni frá fyrsta leik en hann aðstoðaði einnig Þorberg Aðalsteinsson þegar hann var með landsliðið 1990-1995. Fáir hafa því komið að jafnmörgum leikjum og Einar í gegnum tíðina því sjálfur lék hann 226 landsleiki. Guðmundur Hrafnkelsson, 37 ára markvörður id Valur Eradze, árs markvörður Fceddur: 7. maí 1971 (31 árs í fyrsta leik). Félag: Valur, Reykjavík. Hœó: 190 sm. Þyngd: 85 kg. Landsleikir: 6. Fyrsti landsleikur: Gegn Slóvenum, 4. janúar 2003. Roland Valur Eradze gerðist íslenskur ríkisborgari um áramótin og lék sina fyrstu landsleiki gegn Slóvenum í byrjun janúar. Roland lék áður landsleiki fyrir Georgíu en hann var mikill happafengur fyrir Valsmenn sem fengu hann á Hlíðarenda haustiö 2000 í kjölfar markvarðavandræða hjá liðinu. Síðustu þrjá vetur hefur Roland síöan verið í sérflokki hvað varðar markverði í íslensku deildinni og enginn hefur varið fleiri skot eða hærra hlutfall skota i deildinni á þeim tveimur og hálfa tímabili sem Roland Valur hefur leikiö. Markvarsla Rolands i íslensku deildinni Tímabil Varin Hlutf. Haldið V. vld Hlutf. 2002-03 17,0 45% 8,3 18 28% 2001-02 17,9 44% 7,5 32 27% 2000-01 15,6 44% - 15 18% Næstu tvær vikurnar muna augu íslensku þjóðarinnar hvíla á 18 mönnum. Strákamir okkar í íslenska handboltalandsliðinu hefja leik í dag á heimsmeistaramótinu í Portúgal. DV-Sport mun fylgja hverju spori þeirra og fjalla ítarlega um keppnina. Það er ekki úr vegi að skoða aðeins þessa átján menn sem ráða örlögum íslenska liðsins. Guðmundur 43 ára þjálfari Fceddur: 23. desember 1960 (43 ára í fyrsta leik). Landsleikir: 226 (1980-1990). Guðmundur Guðmundsson tók við stöðu landsliðsþjálfara af Þorbirni Jenssyni vorið 2001 í kjölfarið á slöku gengi íslenska liðsins á tveimur stór- mótum í röð. íslenska liðið vann að- eins níu af 28 leikjum síðustu tvö ár- in undir stjóm Þorbjöms en undir stióm Guðmundar hefur liðið unnið 21 af 47 leikjum. Guðmundur hefur gjörbylt leikstíl íslenska liðsins á þessum tíma og ís- lenska landsliðiö hefur aldrei náð betri árangri á stórmóti undir stjóm nokkurs þjálfara en liðið var eins og kunnugt er í fjórða sæti á Evrópumót- inu í Svíþjóð í fyrra. Guðmundur vinnur mjög fagmannlega að öllum hlutum sem skilar sér út til strák- anna. Guðmundur lék sjálfur 226 leiki með íslenska landsliðinu á árunum 1980 til 1990 og skoraði í þeim 350 mörk en hann lék í vinstra horninu. jGengi landsliðsins undir stjórn Guömundar Ár Leikir Sigrar Jafnt. Töp. Hlutf. 2003 7 3 1 3 50% 2002 29 13 4 12 52% 2001 11 5 1 5 50% Samtals 47 21 6 20 51% ALLT UM HMÍ HANDBOLTA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.