Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2003, Side 13
MÁNUDAGUR 20. JANÚAR 2003
27
DV
ÚrsUt:
Man. Utd-Chelsea ...........2-1
0-1 Eiður Smári Guðjohnsen (30.), 1-1
Paul Scholes (39.), 2-1 Diego Forlan
(90.).
Aston Villa-Tottenham ......0-1
0-1 Teddy Sheringham (69.).
Blackbum-Birmingham........1-1
1-0 Damien DufT (19.), 1-1 Stem John
(83.).
Charlton-Bolton.............1-1
1-0 Mark Fish (47.), 1-1 Youri
Djorkaeff (85.).
Everton-Sunderland .........2-1
0-1 Kevin Kilbane (34.), 1-1 Brian
McBride (51.), 2-1 Brian McBride
(57.).
Leeds-West Brom..............0-0
Newcastle-Man. City..........2-0
1-0 Aian Shearer (1.), 2-0 Craig
Bellamy (64.).
Southampton-Liverpool . . . .'. 0-1
0-1 Emile Heskey (14.).
Arsenal-West Ham.............3-1
1-0 Thierry Henry, víti (13.), 1-1
Jermain Defoe (40.), 2-1 Thierry
Henry (71.), 3-1 Thierry Henry (86.).
Fulham-Middlesbrough........1-0
1-0 Sean Davis (39.).
Staðan:
Arsenal 24 16 4 4 52-25 52
Man. Utd 24 14 5 5 4(Á24 47
Newcastle 23 13 3 7 39-31 42
Chelsea 24 11 8 5 41-23 41
Everton 24 11 6 7 30-29 39
Liverpool 24 10 8 6 32-23 38
Tottenham 24 11 5 8 35-34 38
Southampt. 24 9 9 6 27-23 36
Blackbum 24 8 10 6 30-26 34
Man. City 24 10 4 10 32-34 34
Leeds 24 9 4 11 31-29 31
Middlesbr. 24 8 6 10 27-24 30
Charlton 23 8 6 9 26-30 30
Aston Villa 24 8 5 11 22-25 29
Fulham 23 7 6 10 24-27 27
Birmingh. 24 6 8 10 20-32 26
Bolton 23 4 9 10 24-38 21
Sunderland 24 4 7 13 16-34 19
West Ham 23 3 8 12 24-43 17
West Brom 23 4 5 14 17-35 17
m ff IT "5“ 7“ 3»
| BKKS CLZ^CÍICÐ 391 B
Úrslit
Sheff. Utd-Sheff. Wed.........3-1
Brighton-Portsmouth...........1-1
Crystal Palace-Bumley ........1-1
Gillingham-Leicester..........3-2
Grimsby-MUlwaU ...............0-2
Ipswich-Preston...............3-0
Nottm. Forest-Coventry........1-1
Reading-WalsaU................0-0
Rotherham-Bradford............3-2
Stoke-Derby...................1-3
Wolves-Wimbledon .............1-1
Watford-Norwich...............2-1
Staðan:
Portsmouth 29 17 9 3 56-29 60
Leicester 28 16 7 5 43-27 55
Sheff. Utd 27 15 7 5 42-26 52
Nott. Forest 28 12 8 8 43-28 44
Norwich 28 12 8 8 39-26 44
Coventry 29 11 10 8 36-32 43
Reading 27 13 4 10 28-24 43
Wolves 28 11 9 8 45-30 42
C. Palace 28 10 12 6 42-30 42
Watford 29 12 6 11 35—45 42
Ipswich ,28 11 8 9 44-34 41
Rotherham 29 11 8 10 48-39 41
Millwall 29 11 7 11 37-43 40
Gillingham 27 10 9 8 36-36 39
Derby 29 11 5 13 35-39 38
Burnley 28 10 8 10 41-50 38
Wimbledon 27 9 8 10 43-43 35
Preston 28 7 10 11 41-48 31
Walsall 29 8 6 15 40-46 30
Bradford 27 7 7 13 31-48 28
Grimsby 28 6 7 15 33-54 25
Stoke 29 5 9 15 32-52 24
Sheff. Wed 29 5 8 16 27-48 23
Brighton 28 4 8 16 26-46 20
Stoke er enn í faUsæti eftir slæmt tap
gegn Derby á heimaveUi á laugardag-
inn í ensku 1. deUdinni.
Sport
Gerard Houllier. knattspyrnusljori
Liverpool, hefur leitaö mikíö til æöri
máttarvalda aö undanförnu. Um helg-
ina var hann bænheyröur þegar Liver-
pool vann Southampton á útivelli og
þar meö sinn fyrsta sigur siðan 2.
nóvember. Á innfelldu myndinni sést
hetja Liverpool í leiknum, framherjinn
Emile Heskey. Reuters
Martröð Liverpool endaði um helgina með sigri á Southampton:
Höfuð Heskeys
- kom heilsu Houlliers og stuöningsmanna Liverpool til bjargar á laugardaginn
Liverpool komst aftur á braut þá er
kenncf er viö sigur með því að leggja
Southampton að velli, 1-0, á útivelli.
Sigurinn var sá fyrsti i rúma tvo mán-
uði en liðið hafði gengið í gegnum
versta tímabil Liverpool í fimmtíu ár.
Jafnframt var þetta fyrsta tap Sout-
hampton á heimavelli i vetur.
Emile Heskey skoraöi sigurmarkið
með skalla en þetta var fyrsta mark
hans síðan í september.
Gerard Houllier, knattspymustjóri
Liverpool, var sáttur eftir leikinn.
„Við kunnum að meta þessi úrslit
sérstaklega eftir gengi undanfarinna
tveggja mánaða. Við höfum verið
óheppnir á þeim tíma og oft fengið
óréttmæta gagnrýni. Mér fannst við
ekki eiga skilið að leika ellefu leiki í
deildinni í röð án þess að sigra en það
er ekki spurt að því. Við spiluðum vel
í dag og það var gott jafnvægi á milli
sterkrar vamar og góðrar sóknarknatt-
spyrnu."
Houllier hrósaði einnig Emile
Heskey fyrir góða frammistöðu en
hann hefur verið harðlega gagnrýndur
fyrir frammistöðu sína í vetur.
„Ég hef alltaf sagt að Emile myndi
spila vel eftir jól. Hann hefur verið
óheppinn með meiðsli í vetur en í dag
sáum við hinn rétta Emile Heskey,"
sagði Houliier.
Gordon Strachan, knattspymustjóri
Southampton, sagði að betra liðið heíði
unnið.
„Þeir voru betri en við, svo einfalt
er það. Þetta var besta frammistaða
þeirra í langan tíma og það sýnir styrk
minna manna að það þurfti frábæra
frammistöðu hjá Liverpool til að leggja
þá að velli. Strákamir mínir hafa stað-
ið sig stórkostlega undanfarið og ég get
ekki farið aö fetta fingur út í þennan
eina leik. Þetta eru strákar sem hafa
komið úr neðri deildunum og varalið-
um frá útlöndum og þeir hafa gefið fé-
laginu allt sem þeir eiga,“ sagði Strach-
an eftir leikinn.
Mark eftir tíu sekúndur
Alan Shearer, framherji
Newcastle, skráði nafn sitt í sögu
ensku úrvalsdeildarinnar þegar
hann skoraði mark eftir aðeins tíu
sekúndna leik gegn Manchester
City á laugardaginn.
Shearer getur þó þakkað Carlo
Nash, markverði Manchester City,
fyrir góða hjálp því að hann var
ótrúlega lengi aö koma boltanum
burtu frá marki sínu sem gerði það
að verkum að Shearer gat pressað
hann, unnið af honum boltann og
rennt knettinum í autt markið.
Bobby Robson, knattspymustjóri
Newcastle, hrósaði Shearer fyrir
dugnað og sagði að það hefðu fáir
aörir leikmenn skorað þetta mark.
„Auðvitað var þetta heppnismark
en það er ekki hægt annað en að
hrósa Alan (Shearer). Hann elti
boltann til baka þegar hann hefði
getað sleppt því og uppskar í stað-
inn mark með vinstri fæti sem ger-
ist nú ekki oft,“ sagði Robson eftir
leikinn.
Hann sagði einnig að leikurinn
hefði verið mjög skemmtilegur á að
horfa því aö bæði lið hefðu spilað
sóknarleik.
„Leikurinn var jafn og spennandi
en ég held að við höfum átt sigurinn
skilið,“ sagði Robson.
Kevin Keegan, knattspymustjóri
Manchester City, hrósaði einnig Al-
an Shearer en Keegan keypti hann
til Newcastle frá Blackburn árið
1996.
„Hann er sá besti. Það er ekki af
þvi að hann er með mikla tækni eða
gífurlega fljótur heldur af því að
hver einasti leikmaður sem þarf að
mæta honum um hverja helgi veit
að hann á von á erfiðum níutíu mín-
útum,“ sagði Keegan og bætti við að
hann væri vonsvikinn með frammi-
stöðu sinna manna.
„Við náðum okkur ekki á strik og
Newcastle átti sigurinn fyllilega
skilið."
Bandarískur bjargvættur
David Moyes, knattspyrnustjóri
Everton, getur þakkað Bandaríkja-
manninum Brian McBride, sem er
hjá liðinu í láni frá Columbus Crew,
fyrir stigin þrjú gegn Sudnerland
um helgina.
McBride skoraði bæði mörk liðs-
ins eftir að Sunderland hafði komist
yfir og Moyes jós lofsyrðunum yfir
McBride að leik loknum.
„Frammistaða hans var frábær.
Hann er ótrúlega duglegur og sam-
viskusamur. Það eru leikmenn eins
og hann sem gefa af sér tO liðsins og
vinna leiki fyrir þig.
Viö spiluðum mjög vel á köflum
og heíðum átt að vera búnir að
skora mikið fyrr. Við hleyptum
þeim síðan inn í leikinn þegar við
komumst yflr en sem betur fer tókst
okkur að halda og vinna leikinn,"
sagði Moyes eftir leikinn.
Howard Wilkinson, knattspyrnu-
stjóri Sunderland, var ósáttur við úr-
slitin og grét glötuð tækifæri sem
hefðu getað gert út um leikinn.
„Við fengum tækifæri til að gera út
um leikinn en nýttum þau ekki. Við
þurfum hins vegar að reyna að halda
boltanum betur innan liðsins ef gengið
á að batna,“ sagði Wilkinson en
Sunderland er í fallsæti þessa stund-
ina. -ósk
Alan Shearer skoraöi mark eftir aöeins tíu sekúndur gegn Manchester City
sem er met í ensku úrvalsdeildinni. Reuters