Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2003, Blaðsíða 15
MÁNUDAGUR 20. JANÚAR 2003
29
Brian McBride, Everton
OKKAR MENN
Eidur Smári Guöjohnsen
var í byrjunarliði Chelsea
gegn Manchester United á
Old Trafford á laugardaginn.
Eiður Smári skoraði eina
mark Chelsea á glæsilegan
hátt og skoraði þar með aðra
helgina í röð. Honum var
skipt út af 84. mínútu eftir
góða frammistöðu.
ur á 77. mínútu.
Guóni Bergsson, fyrirliði Bolton, spil-
aöi allan leikinn í vöm liðsins þegar það
gerði jafntefli, 1-1, gegn Charlton á laug-
ardaginn.
Hermann Hreióars-
son lék allan leikinn
fyrir Ipswich sem
vann öruggan sigur á
Preston, 3-0, í ensku
1. deildinni á laugar-
daginn.
Lárus Orri Sigurósson sat
á varamannabekk West
Bromwich Albion sem gerði markalaust
jafntefli gegn Leeds á útivelli á laugar-
daginn. Hann kom inn á sem varamað-
Eiöur Smári
Guöjohnsen.
Heióar Helguson lék
allan leikinn fyrir
Watford sem vann
mikilvægan sigur á
Norwich, 2-1, í gær. Heiðar var hetja
liðsins en hann skoraði sigurmarkið í
leiknum þegar komið var fram yfir
Heiöar Helguson.
venjulegan leiktima.
Brynjar Gunnarsson lék allan leikinn
á miðjunni hjá Stoke sem tapaði illa fyr-
ir Derby á heimavelli, 3-1, í ensku 1.
deildinni á laugardaginn.
Bjarni Guöjónsson
var einnig í byrjun-
arliði Stoke í leikn-
um en honum var
skipt út af á 80. mín-
útu.
Pétur Marteinsson
sat sem fastast á
varamannabekk
Stoke í sama leik.
Amar Grétarsson.
laugardaginn.
Helgi Valur Danielsson var ekki 1 byrj-
unarliði Peterborough sem tapaði fyrir
Port Vale, 2-1, í ensku 2. deildinni á
laugardaginn. Helgi Valur kom inn á
sem varamaður á 88. mínútu.
Arnar Grétarsson lék allan
leikinn með Lokeren í gær
sem vann Genk, 4-1, i
belgísku 1. deildinni. Arnar
skoraði þriöja mark liðsins.
Arnar Þór Viöarsson lék
einnig allan leikinn fyrir
Lokeren.
ívar Ingimarsson var ekki í leik-
mannahópi Wolves sem gerði jafntefli
gegn Wimbiedon í ensku 1. deildinni á
Rúnar Kristinsson lék allan leikinn
fyrir Lokeren og fékk að líta gula spjald-
ið á 44. mínútu. Rúnar skoraði fjórða
mark liðsins á síðustu mínútunni. -ósk
Brian McBride
Fæddur: 19. júní 1972
Heimaland: Bandarikin
Hæð/þyngd: 183 cm/75 kg
Leikstaða: Framheiji
Fyrri lið: Columbus Crew, Preston
North End, Wolfsburg
Deildarleikir/mörk: 2/3
Landsleikir/mörk: 65/20
Hrós:
„Hann átti frábæran leik. Hann er ótrú-
lega duglegur og samviskusamur og
hefði átt skiliö að skora þrennu. Það eru
svona leikmenn sem vinna leiki fyrir
lið.“ David Moyes, knattspymustjóri Ev-
erton, um Brian McBride. -ósk
Sport
Miövikudagur 22. janúar
Charlton-West Ham
Newcastle-Bolton
Þriðjudagur 28. janúar
Middlesbrough-Aston Villa
Bolton-Everton
Chelsea-Leeds
Sunderland-Southampton
Miövikudagur 29. janúar
Manchester City-Fulham
Tottenham-Newcastle
West Ham-Blackbum
Liverpool-Arsenal
Laugardagur 1. febrúar
Arsenal-Fulham
Bolton-Birmingham
Chelsea-Tottenham
Everton-Leeds
Manchester City-West Brom
M iddlesbrough-Newcastle
Southampton-Manchester United
Sunderland-Charlton
fór ekki fram hjá neinum að hann
er gífurlega öflugur skaUamaöur,
mikill vinnuþjarkur og góður að
halda boltanum.
McBride var lánaður til Preston
tímabilið 2001-2001 og lék ellefu
leiki með liðinu og skoraði eitt
mark. Hann átti hins vegar við
slæm meiðsli að stríða í ökkla bæði
árin 2000 og 2001 og það var ekki
fyrr en rétt fyrir HMsem hann
komst í almennilegt form.
Ekki þykir ólíklegt að David
Moyes, knattspymustjóri Everton,
reyni að kaupa kappann frá Col-
umbus Crew ef fram heldur sem
horfir. -ósk
( Diego Forlan
(Dennis Bergkamp
Bandaríski framherjinn Brian
McBride hefur heldur betur siegið
í gegn með Everton síðan hann
gekk til liðs við félagið fyrir
skömmu á lánssamningi frá banda-
ríska liðinu Columbus Cew.
McBride skoraði gegn Tottenham
í sínum fyrsta leik um þarsíðustu
helgi og nú um helgina skoraði
hann bæði mörk Everton í 2-1 sigri
á Sunderland á laugardaginn.
McBride vakti mikla athygli í
heimsmeistarakeppninni í Kóreu
og Japan í sumar en þar var hann
einn af bestu mönnum bandaríska
liðsins sem kom mjög á óvart með
frábærri frammistöðu. Hann skor-
aði tvö mörk í fimm leikjum og það
Arsenal er enn með fimm stiga forystu á Manchester United á toppi ensku úrvalsdeildarinnar:
Þrenna frá Henry
- geröi út af viö tíu leikmenn West Ham sem áttu sér ekki viðreisnar von
Dennis Bergkamp er skúrkur
helgarinnar. Enn einu sinn sýndi
þessi frábæri knattspyrnumaður
hina ofbeldisfullu hlið á sér þegar
hann barði Lee Bowyer, leikmann
West Ham, í andlitið, áður en
hann gaf frábæra sendingu fyrir
markið á Thierry Henry sem skor-
aði með skalla og kom Arsenal í
2-1. Bergkamp hefur oft gert sig
sekan um ruddaleg brot á borð við
olnbogaskot í andlit og að traðka á
leikmönnum og er það svo sann-
arlega ljóður á annars glæsilegum
knattspyrnumanni. Hann mun
væntanlega fara fyrir aganefnd
enska knattspyrnusambandsins
þegar hún hefur horft á atvikið á
myndbandsupptöku og svo gæti
farið að Arsenal verði án hans í
mikilvægum leikjum á næstunni
verði hann dæmdur í bann fyrir
háttalag sitt. -ósk
Hlutimir ganga sinn vanagang
hjá tveimur Lundúnaliðum sem
eiga ólíku gengi að fagna þessa dag-
ana.
Arsenal og West Ham mættust á
Highbury í gær og kom fátt á óvart
í þeirri viðureign. Arsenal vann ör-
uggan sigur, 3-1, og er enn með
fimm stiga forystu á Manchester
United á toppi ensku úrvalsdeildar-
innar. Thierry Henry skoraði öll
mörk Arsenal og er orðinn marka-
hæsti maður deildarinnar með 17
mörk. West Ham er hins vegar í
bullandi botnbaráttu, er í
næstneðsta sæti með jafnmörg stig
og neðsta lið deildarinnar, West
Bromwich Albion.
Hafi möguleikar West Ham verið
litlir fyrir leikinn þá minnkuðu þeir
til mikiila muna strax á 13. mínútu
þegar Steve Lomas var rekinn af
velli fyrir að brjóta á Frakkanum
Robert Pires innan vítateigs. Thi-
erry Henry skoraði úr vítaspym-
unni og einum færri áttu leikmenn
West Ham aldrei möguleika. Jerma-
in Defoe jafnaði reyndar metin und-
ir lok fyrri háifleiks en í síðari hálf-
leik var bara eitt lið á veilinum og
aðeins tímaspursmál hvenær
Arsenal myndi skora. Það setti samt
ljótan svip á leikinn þegar Dennis
Bergkamp gaf Lee Bowyer olnboga-
skot áður en hann lagði upp annað
mark Arsenal en hann slapp fyrir
hom og var ekki einu sinni áminnt-
ur.
Sá besti í heimi
Arsene Wenger hrósaði Henry
eftir leikinn en venju samkvæmt
sagðist hann ekki hafa séð atvikiö
þegar Bergkamp gaf Bowyer oln-
bogaskot.
„Ég segi það enn og aftur. Henry
er besti framherji í heimi. Hann er
i frábæru formi og það skiptir engu
máii þótt andstæðingamir geri allt
til að stoppa hann. Hann skoraði
meira að segja með höfðinu í dag og
ég á von á því aö hann geri það oft-
ar hér eftir,“ sagði Wenger en
Henry er ekki beint þekktur fyrir að
vera mikill skallamaður.
Ósáttur viö dómarann
Glenn Roeder, knattspymustjóri
West Ham, horfði upp á lið sitt tapa
enn einum leiknum en honum
fannst Mike Dean, dómari leiksins,
ekki vera að standa sig í stykkinu.
„Mér fannst þeir fá ódýra víta-
spymu og ég er viss um að Robert
Pires hefði getað staðið á fótunum
ef hann hefði viljað. Ég ætla nú ekki
einu sinni að tala um rauða spjald-
ið í ‘kjölfarið. Ég skil síðan ekki
hvemig í ósköpunum honum tókst
að missa af olnbogaskotinu hjá
Dennis Bergkamp. Ég er samt
ánægður með mína menn, þeir
börðust eins og ljón en uppskáru
því miður ekkert,“ sagði Glenn
Roeder eftir leikinn.
Fjær fallsvæðinu
Fulham færðist f]ær fallsvæöinu
þegar liðinu tókst að bera sigurorð
af Middlesbrough, 1-0, á heimavelli
í gær. Fuiham er nú átta stigum frá
fallsvæðinu en Steve McClaren,
knattspymustjóri Middlesbrough,
hlýtur að spyrja sjálfan sig af
hverju framherjar hans geti ekki
skorað á útivelli en rúmir fjórir
mánuðir hafa liðið án þess sá
atburður hafi átt sér stað.
Það var miðjumaðurinn Sean
Davis sem skoraði sigurmark
Fuiham í leiknum en hann var að
öörum ólöstuðum besti maður
vallarins. Fulham er nú í
fimmtánda sæti deildarinnar meö
26 stig en Middlesbrough er í því
tólfta með 30 stig. -ósk
Lee Bowyer mótmælir hér rauöa spjaldinu sem Steve Lomas, félagi hans hjá
West Ham, fékk á 13. mínútu gegn Arsenal í gær. Reuters
Diego Forlan var hetja
Manchester United á laugardaginn
þegar hann skoraði sigurmark
liðsins þegar komið var fram yfir
venjulegan leiktima gegn Chelsea
á Old Trafford. Úrúgvæinn kom
inn á á 71. mínútu og var mjög
ógnandi allan þann tíma sem hann
lék. Markið var glæsilegt, fullkom-
in afgreiðsla og hann sýndi og
sannaði aö hann á eftir að reynast
félaginu mikilvægur í baráttu
komandi mánaða. Forlan hefur nú
skorað fjöldann allan af mikilvæg-
um mörkum fyrir Manchester
United eftir að hann komst á
bragðið en byrjunin á ferli hans
hjá liðinu lofaði ekki góðu. -ósk