Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2003, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2003, Síða 15
/>u ré-hha af *iau<t$t/ru*\ ? Þrír af hverjum fjórum nauðgurum eru vinir eða kunningjar... Pr* *■ -' ' Ertþú vinuríraun? VDAGUR OFBELDIÐ BURT 15 ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 2003 DV Andri Snær Magnason. Einar Már Guðmundsson. Guðrún Eva Mínervudóttir. Steinar Bragi. Tilnefningar til Menningarverölauna DV í bókmenntum: Ungir höfundar áberandi Friðrik Rafnsson. Michel Houellebecq. “Mér finnst þetta býsna góöur og þéttur listi hjá okkur, “ segir Jón Yngvi Jóhannsson, formaður dómnefndar menningarverölauna DV í bókmenntum. „Þarna eru þrír ungir höfundar sem endur- spegla aö mínu mati vel hversu áberandi þeir voru á síðasta ári. “ Þótt þetta séu allt skáldsögur telur Jón Yngvi aö það sé nokkuð góð breidd í þessu vali. „Þetta eru mjög ólíkar sögur og koma úr ólíkum átt- um. Þá er ánægjulegt að hafa þýð- ingu á meðal tilnefninga í fyrsta sinn í nokkum tíma. Áform var einhver besta bókin sem kom út hér á síðasta ári.“ Með Jóni Yngva sátu í nefndinni Vilborg Davíðsdóttir og Gauti Krist- mannsson. Eftirfarandi bækur eru tilnefndar til Menningarverðlauna DV í bókmenntum: Áform Friðrik Rafnsson er einn af ötulustu og bestu þýðendum landsins. Hann hefur bæði flutt inn sígildar franskar bókmennt- ir og auögað íslenskar bókmenntir með því sem er efst á baugi í evrópskum sam- tímabókmenntum. Þýðingar Friðriks á verkum franska rithöfundarins Michel Houellebecqs eru frábært dæmi um þetta. Áform er skáldsaga sem hefur vakið um- ræður og deilur um alla Evrópu, óvægin úttekt á Evrópubúanum, drottnunargirni_ hans og þeim öfgum sem heimskapítal-’ isminn getur leitt einstaklingana út i. Áhyggjudúkkur Á pínulitlum bletti í miðbæ Reykjavík- ur skapar Steinar Bragi heim sem er eins og breiðtjaldsmynd af samtímanum. í gegnum persónur sögunnar flæða orðræð- ur samtímans, jafnt hátimbraðar fræði- kenningar og ofbeldis- og klámdýrkun. Áhyggjudúkkur eru óvægin úttekt á reyk- vískum samtíma og menningarástandi, skrifuð af sjaldgæfri sannfæringu og krafti. Flestar persónanna birtast aðeins í augnabliksmyndum en vakna þó til lífsins á meðan lesandinn fær sýn inn í misgeð- felld hugskot þeirra. Lovestar í framtíðarsögu Andra Snæs Magnason- ar, Lovestar, leikast á vísindaskáldskapur og framtíðarsögur í anda Georgs Orwell og Aldous Huxley, íslensk bókmenntahefð og ýmis stef úr afþreyingarmenningu samtímans í sprellfjörugri og meinfynd- inni sögu sem þó er í grunninn alvarleg ádeila og gagnrýni á tæknihyggju og neyslusamfélag samtímans. Lovestar er í senn einfóld saga og flókin, hún er marg- föld í roðinu og kannski írónísk- ari en hún virðist við fyrstu sýn. Nafnlausir vegir Einar Már Guðmundsson heldur í Nafnlausum vegum áfram að segja þá sögu sem hófst með Fótsporum á himnum og hélt áfram í Draumum á jörðu. Hér eru sagðar sögur af lifandi fólki sem lifði einhverja mestu átakatíma síðari alda. Frásagnaraðferðin er Ijóðræn og epísk í senn og sækir innblástur í munnlega frásagnar- hefð jafht og rammíslenska sagna- þætti og frásagnir á mörkum skáld- skapar og fræða. í Nafhlausum vegum eru tveir bræður í aðalhlut- verki, Ragnar og ívar. Þeir eru báð- ir aldir upp hjá vandalausum að miklu leyti og hafa þolað ýmist harðræði. Fullorðnir verða þeir nær fullkomnar and- stæður, Ragnar alþýðuhetja en ívar aura- púki. List sögunnar felst ekki síst í því hversu djúpar persónulýsingarnar eru þótt þær séu dregnar fáum dráttum. Sagan af sjóreknu píanóunum Guðrún Eva Mínervudóttir fer sínar eig- in leiðir í Sögunni af sjóreknu píanóunum. Þar er sama sagan sögð tvisvar af aðalsögu- hetjunum tveimur, stúlkunni Sólveigu og vini hennar Kolbeini. Sjálf sagan af sjó- reknu píanóunum er svo leiðarstef í sög- unni, saga um svik og meinleg örlög sem þó byggjast á heiðarlegum fyrirætlunum og góðum vilja. Guðrún Eva er mestur sögu- maður þeirra ungu höfunda sem settu svo mjög svip á síðasta ár og Sagan af sjóreknu píanóunum er ekki síst saga um frásagnir og sögumenn, fólk sem segir sögur til að lifa af í hörðum heimi. Leiklist A baki risaskialdbökunnar Ugla er stjarna sýningarinnar Ugla Jóhanna Egilsdóttir, Halla Ólafsdóttir og Jóhanna Ósk Baldvinsdóttir sem nornirnar þrjár. Terry Pratchett hefur notið mikilla vinsælda fyrir Disk- heims-sögur sínar hér á landi sem annars staðar. Gunnar Freyr Steinsson lýsir Diskheim- inum svo: „Hann hvílir eins og jarðfræðiútgáfa af pizzu á baki fjögurra tröllvaxinna fila. Þeir standa hins vegar á baki hins Mikla A’Tuins, stjörnuskjald- bökimnar sem syndir um óend- anlegar víddir geimsins." Terry Pratchett leitar í verk- um sínum í hugarheim ævin- týra, riddarasagna og goðsagna. í Örlagasystrum, sem Leikfélag Menntaskólans við Hamrahlíð frumsýndi á fostudagskvöldið, leikur höfundur sér að verkum Williams Shakespeares, Macbeths og Hamlets. Sagan fjaliar um Ljónhall Felmet og lafði Felmet sem hafa ráðið af dögum Verens konung og tekið sér konungstign. Þeim mistókst þó aö drepa son Verensar því nornirnar þrjár, sem verkið dregur nafn sitt af, koma honum í fóstur hjá leikarahjónum. Verkið snýst síðan um það að Felmet-hjón- in (og þá sérstaklega lafði Felmet) reyna að koma höndum yfir barnið og nomimar. Leikarar í sýningunni eru 26 og stóð hópur- inn sig almennt vel. Ugla Jóhanna Egilsdóttir leikur nomina ömmu Veðurvax. Ugla skaust upp á stjömuhimininn fyrir leik sinn í Máva- hlátri og kemur ekki á óvart að hún er stjama sýningarinnar. Leikur hennar er öruggur og kraftmikiil og greinilegt að hún á eftir að koma meira við sögu í leiklist á næstu árum. Hinar nomimar tvær era leiknar af Jóhönnu Ósk Baldvinsdóttur og Höllu Ólafsdóttur og stóðu þær sig báðar meö prýði. Ámi Kristjánsson var gott fífl, Jakob Ómarsson var bráðskemmtileg- ur sem Ölver Vindhóll, Hjörtur Jóhann Jónsson var góður í hlutverki hins dauöa konungs, Antoine Hrannar Fons og Hildur Helga Kristjánsdóttir léku skemmtilepa saman sem Felmet- hjónin og Iris Stefanía Skúladóttir var finn sadómasókískur djöfuil. Örlagasystur er fyrsta leik- stjómarverkefni Atla Rafns Sig- urðarsonar og Brynhildar Guð- jónsdóttur. Verkefnið er viðamik- ið, persónur era fjölmargar og heimur þeima fuilur af furðum og ævintýrum. Ekki verður annað sagt en að fyrsta verk þeirra lofi góðu um framhaldið. Umgjörð sýn- ingarinnar er einfold: leikmynd er nær engin, leikmunir fáir en þeim mun meira lagt í búninga og lýs- ingu sem hvort tveggja er afar vel heppnað. Örlagasystur er skemmtileg sýning metn- aðarfulls leikfélags og einkennist af hug- myndaríkum lausnum, húmor og sköpunar- gleði. Sigtryggur Magnason Lelkfélags Menntaskólans vlö Hamrahlíó sýnlr í Austurbæjarbíó: Örlagasystur eftir Terry Pratchett, f leikgerö Stephens Briggs. Lýsing: Geir Magnússon. Tónlist: Guömundur Steinn Steinsson. Búningar: Brynhildur Guöjónsdóttir, Sigurlaug Gísladóttir og Helga Sigríöur Aradóttir. Þýöing: Gunnar Freyr Steins- son. Lelkstjórn: Atli Rafn Siguröarson og Brynhildur Guðjónsdóttir. __________________________Menning Umsjón: Silja Aöalsteinsdóttir silja@dv.is Eþos og Steindór á Myrkum Nú er langt liðið á tónlistar- hátíðina Myrka músikdaga 2003, aðeins eftir tvennir tón- leikar. Hinir fyrri verða í kvöld kl. 20 í Listasafni ís- lands. Þar leikur Eþos strengjakvartettinn Langan skugga eftir Hauk Tómasson, ..og í augunum blik minn- inga“ eftir Svein Lúövík Bjömsson og Kvartett nr. 2 eftir Þórð Magnússon. Annað kvöld kl. 20 veröa svo lokatónleikarn- ir í Borgarleikhúsinu. Þar verður íslenskt rokk og rímur í flutningi Lúðrasveitar Reykjavíkur, Bára Sigurjónsdóttur og Steindórs Andersens kvæðamanns. Öllu því stjómar Láras Haildór Grímsson. Fyrirlestur um Droog í hádeginu á morgun kl. 12.30 flytur Katrín Pétursdóttir hönnuður og umsjónarkennari þrí- víðrar hönnunar við Listaháskólann fyrirlestur um hollenska hönnunarfyrirbærið Droog í LHÍ, Skipholti I, stofu 113. Farið verður yfir lykil- verk sem unnin hafa verið undir merki og í samvinnu við Droog frá upphafi og leitast við að varpa ljósi á hugmyndafræði þá sem unnið er með. Kvöldskemmtun á þorra 4Klassískar flytja söng- skemmtun sína í Hafharborg annað kvöld kl. 20. Efnisskráin er saman sett af léttklassískum og klassískum lögum ásamt söngleikjatónhst og ljúfum kaftihúsatónum. 4Klassískar era söngkonurn- ar Björk Jónsdóttir, Jóhanna V. Þórhallsdóttir og Signý Sæmundsdóttir og pí- anóleikarinn Aðalheiður Þorsteinsdóttir. Gestur þeirra á tónleikunum er Tómas R. Einarsson bassaleikari. Carnegie breytt Myndlistarverðlaunin Carnegie Art Award eru fimm ára um þessar mundir og samkvæmt fréttatilkynningu frá aðstandendum þeirra, Carnegie fiárfestingarfyrirtækinu sænska, verða þau framvegis aðeins veitt annað hvert ár. Á móti kemur að sýningin mun standa í tvo mánuði á hverjum stað og einnig er í bígerð að halda málþing í tengslum við hana. Ekki hyggj- ast aðstandendur heldur spara verðlaunaféð því það verður tvöfaldað; 1. verðlaun verða 1 miilj- ón sænskar kr., 2. verðlaun 600 þúsund skr. og 3. verðlaun 400 þús. s.kr. Styrkur veittur ung- um myndlistarmanni verður 100 þús. s.kr. Camegie-sýningin 2002 hóf göngu sína í Reykjavík í október sL, hefur síðan farið til Ósíóar og Kaupmannahafnar og stendur nú yfir í Victoria Miro Warehouse í London. Þar verð- ur hún til 9. mars en fer þaðan til Helsinki og Gautaborgar. Meðal listamanna á þeirri sýn- ingu eru þrír íslendingar, Georg Guðni, Kristín Gunnlaugsdóttir og Katrín Sigurðardóttii’. Næsta Camegie-sýning verður opnuð í Stokk- hólmi í október í haust en sú næsta þar á eftir ekki fyrr en 2005. Sjávarsólin og kuldinn í kirkjunni ■ í bókinni Sjávarsólin og kuldinn í kirkjunni - Skynjun, sannleikur og Kristsmyndir í skáldsögunni Útlendingurinn eftir Albert Camus - eftir Þor- varð Hjálmarsson er fléttað saman heimspekilegri og bók- menntalegri hugleiðingu um tilvistarheimspeki Camus. Auk þess er gerð grein fyrir höfundinum og helstu viðfangsefmnn hans. Camus var í eðli sínu uppreisnarmaður og reis gegn algildum lausnum. Kúgun hinna und- irokuðu var honum þyrnir í augum. Þá heillað- ist hann af grísku goðsögunum og þaðan lá leið- in að Kristi, Kierkegaard og Nietzsche. Sam- tímaheimspeki og stjómmál vöktu áhuga hans alla tíð og hann tók þátt og fann til í stormum sinnar tíðar. Hið íslenska bókmenntafélag gefur bókina út. Tónleikar falla niður Fyrirhugaðir píanótónleikar Ingunnar Hildar Hauksdóttur sem vera áttu miðvikudagskvöldið 19. febrúar í TÍBRÁ, tónleikaröð Salarins, falla niöur af óviðráðanlegum orsökum. Miðaeigend- ur era vinsamlegast beðnir að hafa samband við miðasölu sem fyrst.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.