Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2003, Page 26

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2003, Page 26
26 íslendingaþættir Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson 90 ára__________________________ Jónína Jðnsdóttir, Keldum, Hellu. 85 ára__________________________ Jóhann Pétursson, Tryggvagötu 6, Reykjavík. 80 ára__________________________ Jóhann H. Valdimarsson, Þinghólsbraut 43, Kópavogi. 75 ára__________________________ Heigi Sveinsson, Ósabakka 2, Selfossi. Kristján Ólafsson, Hraunbraut 43, Kópavogi. Sigfús Kristinsson, Hafnarstræti 47, Akureyri. 70 ára__________________________ Erna Guöbjörg Ingóifsdóttir, Knarrarstíg 1, Sauöárkróki. Sigurbjörg Gústafsdóttir, Grjótaseli 10, Reykjavík. Skúli Magnússon, Fossvbl. 13, Reykjavík. 60 ára__________________________ Gunnar Jónsson, Krosshömrum 29, Reykjavík. Jóhanna Steinþóra Gústafsdóttir, Smiöjustíg 6, Grundarfirði. Jón Magnús Björgvinsson, Goðatúni 16, Garöabæ. Jón Waage, Ásbúö 81, Garðabæ. Konráö Guömundur Eggertsson, Urðarvegi 37, ísafiröi. Sigríöur A. Sveinbjörnsdóttir, Garðavegi 9, Keflavík. 50 ára__________________________ Ásgrímur Einarsson, Klöpp, Bessastaöahreppi. Birgir Bjarnason, Hlynsölum 6, Kópavogi. Bjarnþór Gunnarsson, Markarflöt 45, Garðabæ. Bryndís Símonardóttir, Háuborg, Akureyri. Hallgrímur A. Hallgrímsson, Eikarlundi 29, Akureyri. Helen Gunnarsdóttir Jónsson, Baldursgötu 18, Reykjavlk. Jóhanna Ólafsdóttir, Drápuhlíð 33, Reykjavík. Kristinn Jón Kristinsson, Miðbraut 7, Seltjarnarnesi. Páll Gíslason, Bollagöröum 6, Seltjarnarnesi. Örn Óskarsson, Fannafold 85, Reykjavík. 40 ára__________________________ Alda Margrét Hauksdóttir, Furugrund 54, Kópavogi. Árni Þórisson, Stakkholti 3, Reykjavík. Bergrún Ingimarsdóttir, Mávahllð 28, Reykjavík. Björgvin Ragnar Emilsson, Nóatúni 32, Reykjavík. Grétar Þór Reynisson, Höli, 311 Borgarnesi. Guömundur Sigurbjörnsson, Víðimýri 8, Sauðárkróki. Guörún Sigurlaug Ólafsdóttir, Gautavlk 11, Reykjavlk. Gunnar Guöni Tómasson, Búlandi 1, Reykjavík. Haildór Sævar Halidórsson, Veghúsum 7, Reykjavík. Hjalti Árnason, Áslandi 4b, Mosfeilsbæ. Margrét Reynisdóttir, Boðagranda 12, Reykjavík. Ómar Óskarsson, Hraunstíg 7, Hafnarfirði. Ragnheiöur Bragadóttir, Reykjavegi 78, Mosfellsbæ. Sigrún Siguröardóttir, Skriðustekk 27, Reykjavík. Þorsteinn M. Jónsson, Laufásvegi 73, Reykjavlk. Jaröarfarir LiL-..:___________________ Kristbjörg Kristófersdóttir verður jarð- sungin frá Kópavogskirkju þriðjud. 18.2. kl. 10.30. Jón Jóhann Magnússon, Bólstaðarhlíö 25, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju þriðjud. 18.2. kl. 13.30. Marta Jóna Gelrsdóttir, Hátúni 12, verð- ur jarösungin frá Fossvogskirkju þriðjud. 18.2. kl. 13.30. Þórdís Sigurðardóttir, Víðihlíö, Grinda- vík, verður jarðsungin frá Grindavíkur- kirkju þriðjud. 18.2. ki. 14.00. Magnús Björgvin Gíslason bifreiða- smíðameistari, Hvassaleiti 56, Reykja- vlk, veröur jarðsunginn frá Neskirkju þriöjud. 18.2. kl. 15.00. Þóröur Árnason, áður Stórholti 31, sem lést á Droplaugarstöðum laugard. 8.2., verður jarðsunginn frá Fossvogskapellu miðvikud. 19.2. kl. 13.30. ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 2003 DV Fófk f fréttum Birgitta Haukdal Birgitta Haukdal Brynjarsdóttir söng sig inn i hjörtu landsmanna með sigurlaginu í undankeppni Söngvakeppni evrópskra sjónvarps- stöðva í Háskólabíói á laugardags- kvöldið. Lag hennar og Hallgríms Óskarssonar, Segðu mér allt, fékk 21.000 atkvæði en alls voru greidd 70.000 símaatkvæði. Starfsferill Birgitta fæddist á Húsavík 28.7. 1979 og ólst þar upp í foreldrahús- um. Hún var í Barnaskóla Húsa- víkur, Framhaldsskóla Húsavíkur og stundaði nám við Framhalds- skólann á Laugum. Á unglingsárunum starfaði Birgitta í bakaríi á Húsavík í eitt sumar og starfaði við leikskóla og á veitingastað á ísafirði. Þá stund- aði hún liðveislu ungrar stúlku á Húsavík tvisvar í viku í fjögur ár. Birgitta tók þátt í Söngvakeppni framhaldsskólanna fyrir hönd Laugaskóla. Hún kom til Reykja- víkur 1997 og söng þá á söngva- sýningum í Broadway. Þar söng hún á ABBA-sýningunni og Prímadonnasýningunni. Hún hef- ur verið söngkona með hljóm- sveitinni írafári frá 1999. Fjölskylda Unnusti Birgittu er Jóhann Bachmann, f. 10.2. 1976, trommu- leikari i írafári. Hann er sonur Ólafs Bachmann, starfsmanns Fasteignamats ríkisins á Selfossi, og Hrafnhildar Jóhannsdóttur, starfsmanns á sambýli á Selfossi. Dóttir Jóhanns er Embla Dögg Bachmann. Alsystir Birgittu er Sylvía Haukdal Brynjarsdóttir, f. 28.4. 1988, nemi í Borgarhólsskóla á Húsavík. Hálfbróðir Birgittu, samfeðra, er Reynir Garðar Brynjarsson, f. 14.10. 1974, flugvirki, búsettur á Seltjarnarnesi, kona hans er Sól- rún Jóna Böðvarsdóttir og eiga þau tvö börn. Foreldrar Birgittu eruBrynjar Víkingsson, f. 24.6. 1956, starfs- maður Eimskips á Húsavík, og k.h., Anna Haukdal Jónsdóttir, f. 9.8. 1957, húsmóðir. Ætt Brynjar er sonur Víkings, b. og verkamanns á Húsavík, bróður Sigmundar, föður Magnúsar Þórs, tónlistarmanns og tónskálds. Vík- ingur er sonur Baldvins, sjó- manns í Færeyjum, og Bryngerðar B. Frímannsdóttur. Móðir Brynjars er Erla Stein- grímsdóttir, rafvirkja á Húsavík, Jónssonar og Valgerðar Hall- grímsdóttur. Anna er dóttir Jóns Haukdals, lengst af vélstjóra á Skagaströnd, nú á Hrafnistu í Reykjavík, Þor- geirssonar, Einars vélstjóra Jóns- sonar, útvegsb. Þorgeirssonar. Móðir Þorgeirs vélstjóra var Guð- finna Bjarnadóttir. Móðir Jóns Haukdal var Bjarnhildur María Bjarnadóttir, sjómanns Bjarnason- ar. Móðir Bjarnhildar Maríu var Guðbjörg Kristín Guðmundsdótt- ir. Móðir Önnu er María Guðrún Konráðsdóttir, sjómanns, Klem- enssonar, og Ólínu Margrétar Sig- urðardóttur. Andlát Krístleifun Þorsteinsson ferðabóndi og hreppstjóri á Húsafelli Kristleifur Þorsteinsson, bóndi og hreppstjóri á Húsafelli, andaðist á Grensásdeild Landspítala 7.2. sl. Út- för hans fór fram frá Reykholts- kirkju á laugardaginn var. Starfsferill Kristleifur fæddist á Húsafelli 11.8. 1923, ólst þar upp og átti þar heima alla tíð. Hann stundaði nám við Bændaskólann á Hvanneyri 1942^4. Kristleifur hóf hefðbundinn bú- skap á Húsafelli 1958. Hann hætti kvikfjárbúskap 1968 og sneri sér þá að ferðaþjónustu. Hann varð þjóð- kunnur fyrir brautryðjendastarf á því sviði og hlaut fjölda viðurkenn- inga fyrir störf sín að ferðaþjón- ustu. Kristleifur var sæmdur riddara- krossi hinnar íslensku fálkaorðu. Fjölskylda Kristleifur kvæntist 3.5. 1958 Sig- rúnu Bergþórsdóttur, f. 8.8. 1927, húsfreyju og ferðabónda. Hún er dóttir Bergþórs Jónssonar og Krist- ínar Pálsdóttur, bænda i Fljóts- tungu í Hvítarsíöu. Börn Kristleifs og Sigrúnar eru Bergþór, f. 26.1. 1959, framkvæmda- stjóri á Húsafelli, kvæntur Hrefnu Guðrúnu Sigmarsdóttur, f. 10.3. 1962, rekstrarfræðingi, eru synir þeirra Unnar, f. 1986, Arnar, f. 1988, og Rúnar, f. 2000; Þorsteinn, f. 26.1. 1959, flugstjóri, kvæntur Ingveldi Jónsdóttur, f. 23.4. 1965, verkfræð- ingi, eru börn þeirra Kristleifur, f. 1988, Sigríður og Sigrún, f. 2000, og Einar, f. 2002; Ingibjörg, f. 27.3. 1961, leikskólastjóri, gift Halldóri Gísla Bjarnasyni, f. 11.6. 1957, kennara, eru synir þeirra Bjarni Þórður og Kristleifur, f. 1983, og Tómas og Daði, f. 1991, en sonur Ingibjargar og Bjöms Kristins Bjömssonar er Birkir Björns Halldórsson, f. 1981; Þórður, f. 21.7. 1963, skrifstofustjóri, kvæntur Eddu Arinbjarnar, f. 20.9. 1965, ferðafræðingi og eru börn þeirra Jakob, f. 1992, Matthildur, f. 1993, og Ragnheiður Kristín, f. 2002; Jón, f. 19.1. 1965, skrifstofustjóri, kvæntur Önnu Guðbjörgu Þor- steinsdóttur, f. 21.1. 1965, og eru börn þeirra Þorsteinn, f. 1986, Sig- rún Eva, f. 1991, og Jón Ingi, f. 1996. Systkini Kristleifs eru Magnús, f. 14.3. 1921, bóndi í Vatnsnesi í Grímsnesi; Þorsteinn, f. 1.4.1925, lif- efnafræðingur í Reykjavík; Ástríð- ur, f. 7.8. 1927, hjúkrunarfræðingur í Reykjavík. Foreldrar Kristleifs voru Þor- steinn Þorsteinsson, f. 6.7. 1889, d. 3.2. 1962, hreppstjóri og sýslunefnd- armaður á Húsafelli, og k.h., Ingi- björg Kristleifsdóttir, f. 28.11. 1891, d. 8.9. 1930, húsfreyja. Ætt Þorsteinn var bróðir Ástríðar, móður Þorsteins Jósepssonar, rit- höfundar og ljósmyndara. Bróðir Þorsteins var Magnús, pr. í Selár- dal. Þorsteinn var sonur Þorsteins, b. á Húsafelli, Magnússonar, b. á Vilmundarstöðum, Jónssonar. Móð- ir Þorsteins Magnússonar var Ástríður Hannesdóttir. Móðir Þorsteins hreppstjóra var Ástríður, systir Björns, föður Jóns, kaupmanns í Borgarnesi, föður Halldórs, arkitekts og stjórnarfor- manns, fóður Garðars, húsameist- ara ríkisins. Ástríður var dóttir Þorsteins, hreppstjóra á Húsafelli, Jakobssonar, smiðs á Húsafelli, Snorrasonar, ættföður Húsafellsætt- ar, Bjömssonar. Móðir Þorsteins Jakobssonar var Kristín Guð- mundsdóttir, litara I Leirvogstungu, Sæmundssonar. Móðir Ástríðar var Ingibjörg Jónsdóttir, b. í Deildar- tungu, Jónssonar, ættföður Deildar- tunguættar, Þorvaldssonar. Móðir Ingibjargar var Guðríður Jónsdótt- ir. Ingibjörg var systir Þórðar, menntaskólakennara og rithöfund- ,ar. Ingibjörg var dóttir Kristleifs, b. og fræðimanns á Stóra-Kroppi, Þor- steinssonar, bróður Ástríðar á Húsafelli. Móðir Ingibjargar Kristleifsdótt- ur var Andrína Guðrún, hálfsystir, sammæðra, Magnúsar Andrésson- ar, prófasts og alþm. á Gilsbakka, föður Péturs ráðherra, fóður Ás- geirs, fyrrv. bæjarfógeta í Kópavogi. Andrína Guðrún var dóttir Einars, hreppstjóra á Urriðafossi, Einars- sonar og Katrínar Eyjólfsdóttur, b. á Ketilvöllum, Þorleifssonar. Sigrún Marta Gunnarsdóttir ritari á Sauöárkróki Sigrún Marta Gunnarsdóttir rit- ari, Skógargötu 13, Sauðárkróki, varð fertug á sunnudaginn var. Starfsferill Sigrún fæddist á Sauðárkróki en ólst upp á Skefilsstöðum í Skaga- firði. Hún lauk stúdentsprófi frá MA 1983. Sigrún var húsfreyja á Borg í Mjóafirði 1985-92 og jafnframt stöðvarstjóri Pósts og síma í Mjóa- firði 1989-92. Hún var verslunar- maður hjá Kaupfélagi Skagfirðinga 1993-98, fulltrúi hjá vinnueftirliti ríkisins 1994-2000 og hefur verið skólaritari í Árskóla írá 1998. Sigrún var félagi í ITC - ÍFU 1993-96 og er félagi í Lionsklúbbn- um Björk á Sauðárkróki. Fjölskylda Sigrún giftist 7.11. 1986 Sævari Egilssyni, f. 22.3. 1961, vélstjóra. Þau skildu 1994. Synir Sigrúnar og Sævars eru Gunnar Egill, f. 12.4. 1987; Ómar Búi, f. 22.1. 1991. Alsystkini Sigrúnar eru Sigurður Viggó Gunnarsson, f. 9.6. 1956, skip- stjóri á Stokkseyri; Guðvarður Brynjar Gunnarsson, f. 11.11. 1960, vélamaður á Sauðárkróki; Guðrún Þórey Gunnarsdóttir, f. 16.6. 1966, sjúkraliði og nemi í Reykjavík; Ingi- björg Sigurlaug Gunnarsdóttir, f. 18.12. 1969, skrifstofumaður í Reykjavík. Hálbróðir Sigrúnar, sammæðra, er Gunnar Búason, f. 13.12. 1977, tölvusérfræðingur í Svíþjóð. Foreldrar Sigrúnar: Gunnar Guð- varðarson, f. 29.4. 1934, d. 8.5. 1973, bóndi og póstur á Skefilsstöðum og í Hafragili, og Margrét Viggósdóttir, f. 14.5. 1936, fyrrv. bóndi. Stjúpfaðir Sigrúnar er Búi Vil- hjálmsson, f. 9.1. 1934, hestamaður og bóndi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.