Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2003, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2003, Blaðsíða 28
ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRÚAR 2003 Rafpóstur: dvsport@dv.is Einar Gunnar hættur Einar Gunnar Sigurösson, þjálfari meistaraflokksliðs FH í karlaflokki í handknattleik, lét af störfum í gær en þetta var niðurstaða stjórnar hand- knattleiksdeildar félagsins og Einar Gunnars sjálfs. Eflaust má rekja þessa ákvörðun til óviðunandi gengis FH-liðs- ins í Essó-deildinni í vetur en liðið er í 9. sæti deildarinnar. Einar Gunnar tók við liðinu fyrir yflrstandi tímabil en ekki er vitað hver tekur við af honum. Bergsveinn Bergsveinsson hefur verið aðstoðarmaður Einars Gunnars í vetur. -JKS Enska bikarkeppnin: Arsenal mætip Chelsea t gær var dregið í fjórðungsúr- slitum ensku bikarkeppninnar í knattspymu og er nú ljóst að Arsenal mætir Chelsea í átta liða úrslitum, en leikirnir fara fram helgina 8.-9. mars næstkomandi. Aðrar viðureignir eru að Shefíield United fær Leeds United í heimsókn, en ShefField sló Leeds einmitt út úr deildar- bikarnum fyrr í vetur. Fyrstu- deildarlið Watford fær annað hvort Fulham eða Bumley, sem geröu jafntefli um helgina og þurfa því að mætast að nýju og Southampton fær Úlfana í heim- sókn. Þess má geta að Arsenal og Chelsea áttust við í úrslitaleik bikarkeppninnar í fyrra á þús- aldarvellinum í Cardiff og fór Arsenal með sigur af hólmi, 2-0. -PS Patrekur f er til Spánar Patrekur Jóhannesson, lands- liösmaður í handknattleik, stað- festi það í samtali við DV i gær- kvöld að það væri öraggt að hann léki á Spáni á næsta timabili. Það myndi skýrast síðar í þessari viku við hvaða félag hann myndi semja. Portland San Antonio, Ademar Leon og Bidasoa vilja öll fá Patrek í sínar raðir. „Ég er mjög spenntur að fara til Spánar og þetta var síðasti séns fyrir mig að breyta til. Spuming- in var sú að leika áfram í Þýska- landi eöa fara til Spánar sem verður ofan á.“ Þrír íslenskir leikmenn eru á mála hjá spænskum liðum. Rúnar Sigtryggsson hjá Ciudad Real, Heiðmar Felixsson leikur með Bidasoa og Hilmar Þórlindsson með Cangas. Ólafur Stefánsson gengur eins og kunnugt er í raðir Ciudad Real í sumar. Flest bestu lið Spánar eru nú að sanka að sér sterkum leik- mönnum og því er ljóst að deildin þar verður öflug. -JKS Skúli með slit- in krossbönd Skúli Eyjólfsson, tvítugur mið- vallaleikmaður hjá knattspyrnu- liði KA, sleit krossband í hægra hné á æflngu í hinu nýja íþrótta- húsi, Boganum, á Akureyri á dögunum. Skúli er einn efnilegasti leikmaður liðsins, lék 6 leiki í efstu deild síðastliðið sumar auk þess sem hann á að baki einn landsleik með undir 19 ára lands- liöi íslands. Miklar vonir voru bundnar við frammistöðu hans á vellinum í sumar og var hann m.a. einn fjög- urra ungra leikmanna sem síðast- liðið haust skrifuðu undir samn- ing til þriggja ára við félagið. Gert er ráð fyrir að hann verði frá æf- ingum í 6 mánuði og því ljóst að hann mun ekki leika með liðinu í símadeildinni í sumar. -ÆD Fram Reykjavíkurmeistari -bar sigurorö af Fylkismönnum eftir vítaspyrnukeppni í úrslitaleik í Egilshöllinni í gærkvöld Fram varð í gær Reykjavíkur- meistari í knattspyrnu í 23. skipti þegar liðið lagði Fylki í úr- slitaleik þar sem þurfti að knýja fram úrslit í vítaspyrnukeppni. Þar reyndust Framarar sterkari á svellinu eftir að átta leikmenn í hvoru liði voru búnir að spreyta sig. Staðan eftir venjulegan leik- tíma var 1-1 og var engu 'marki bætt við í framlengingunni. Framarar urðu síðast Reykjavík- urmeistarar 1998. Það var Jón B. Hermannsson sem kom Fylki yfir í fyrri hálf- leik með þrumuskoti af 25-27 metra færi og knötturinn söng í nærhominu. Gunnar Sigurðsson, markvörður Fram, átti ekki möguleika á að verja. Fylkismenn voru mun betri aðilinn í fyrri hálfleik og sóttu stíft á meðan Framarar beittu skyndisóknum. Það var Kristján Brooks sem jafnaði fyrir Fram í byrjun seinni hálfleiks eftir varnarmistök hjá Fylki. Leikurinn jafnaðist og bæði lið fengu sín tækifæri til að komast yfir en ávallt vantaði herslumuninn. Vítaspyrnukeppn- in byrjaði ekki gæfulega hjá Fram því fyrsta spyrnan fór fram- hjá markinu. Gunnar varði síðan aðra spyrnu F,ylkis. Andri Steinn Birgisson fékk síðan tæikifæri til að tryggja Fylki sigur eftir að Kjartan Kjartansson hafði varið frá Andrési Jónssyni en Andri Steinn skaut hátt yfir markið. Það var síðan Ingvar Ólason sem skoraði sigurmark Fram. Athygli vakti að ungur og efnilegur strák- ur að nafni Kristján Hauksson tók eina spyrnu Fram í víta- spyrnukeppninni. Kristján, sem er nýorðinn 17 ára, skoraði af miklu öryggi og sýndi stáltaugar. Kristinn Jónsson, þjálfari Fram, var ánægður með áfangann þegar DV-Sport heyrði í honum í leiks- lok. Framtíöin er björt „Það er strax orðið fjör í febrú- ar. Það er frábært að geta verið að spila á þessum tíma við þessar aðstæður. Oft hafa menn verið að spila í 8-9 vindstigum á Reykja- víkurmótinu en núna er umgjörð- in allt önnur. Hvað leikinn varð- ar er ég ekki ánægður að þessu sinni. Við spiluðum mun betur á föstudaginn. Það er spilað þétt og menn eru ekki alveg komnir í sitt besta stand. Fylkir spilaði vel í fyrri hálfleik, sérstaklega fyrsta hálftímann. Þá áttum við undir högg að sækja en síðan jafnaðist þetta í síðari hálfleik. Það er svo sem margt jákvætt sem hægt er að taka út,“ sagði Kristinn Jónsson. „T.d. vörðumst við vel og ég var ánægður með það. Það fengu margir ungir strákar að spila í dag og það er alltaf jákvætt. Und- anfarin tvö ár höfum við gefið ungum og efnilegum strákum tækifæri og við munum halda því áfram. Það er mikill efniviður á leiðinni þannig að framtiðin hjá Sex sigurleikir í röð - KR vann Grindavík, 77-60, og hélt Shelton í 16 stigum og 27% skotnýtingu Eftir erfiða byrjun og fjarveru lykil- manna vegna meiðsla hafa KR-konur safhað liði sínu saman á ný og unnið sex leiki í röð eftir áramót. Útlitið verður því betra með hverjum leik. KR-liðið vann 17 stiga sigur á Grinda- vík í gær, 77-60, og er í framhaldinu búið að ná fjögurra stiga forskoti á þær grindvísku í baráttunni um 2. sætið. Það var aðeins í lok fyrri hálfleiks sem Grindavíkurliðið ógnaði eitthvað Vesturbæjarliðinu en þær unnu síð- ustu 2 mínútur hálfleiksins, 11-2, og minnkuðu muninn í 38-30 fyrir hlé. KR-liðið gerði hins vegar út um leikinn og skoraði 13 stig í röð um miðjan þriðja leikhluta þegar Grinda- vík hafði minnkað muninn í sex stig. Hanna B. Kjartansdóttir skoraði 6 af fyrstu átta stigum þess góða kafla og átti mjög góðan leik í vörn og sókn. Auk hennar nýtur Jessie Stomski æ meira góðs af því að félagar hennar í KR-liðinu eru duglegri að flnna hana undir körfunni. Stomski er með 25,1 stig og 17,6 fráköst að meðaltali í vet- ur. Þá áttu þær Hildur Sigurðardóttir og Helga Þorvaldsdóttir góðan alhliða leik. KR-liðinu tókst samt að tapa 33 boltum í leiknum og það er eitthvað sem þjálfarinn, Ósvaldur Knudsen, þarf að laga fyrir úrslitakeppnina nú þegar heildarbragur liðsins minnnir á meistaralið á nýjan leik. Hjá Grindavik átti Denise Shletin slakan leik, skoraði aðeins 16 stig og misnotaði 16 af 22 skotum stnum. Shelton hefur aðeins skorað 33 stig samanlegt í síðustu tveimur ieikjum en var með 33,7 að meðaltali fyrir þá leiki. Bestan leik áttu þær Sólveig Gunnlaugsdóttir, Stefanía Ásmunds- dóttir og Ema Rún Magnúsdóttir. Stig KR: Jessie Stomski 21 (17 fráköst, 7 varin skot), Hanna Björg Kjartansdóttir 16 (5 stoðs., 4 stolnir boltar), Hildur Sigurðar- dóttir 14 (13 fráköst, 5 í sókn, 6 stoðs., 4 stolnir), Helga Þorvaldsdóttir 13 (7 fráköst, 7 stoðsendingar), Gréta María Grétarsdóttir 5, Guðrún Arna Sigurðardóttir 4, María Kára- dóttir 2, Kristin Ama Sigurðardóttir 2. Stig Grindavikur: Denise Shelton 16 (10 fráköst), Sólveig Gunnlaugsdóttir 13 (7 frá- köst), Stefanía Asmundsdóttir 10 (7 ffáköst), María Anna Guðmundsdóttir 9 (hitti úr 3 af 5 þriggja stiga skotum), Ema Rún Magnús- dóttir 7 (6 stolnir, 3 stoðs.), Guðrún Ósk Guðmundsdóttir 5. -ÓÓJ Fram er mjög björt. Það er erfitt að meta liðið í samanburði við önnur lið svona löngu fyrir mót þar sem margt getur gerst í milli- tiðinni. Við getum staðið í öllum liðum og þurfum bara að nýta tímann vel fram að íslandsmót- inu sjálfu," sagði Kristinn Jón. -Ben Myndband ekki notað Phil Don, yfirmaður dómara- mála í ensku úrvalsdeildinni í knattspymu, segir að mynd- bandsupptaka verði ekki notuð til að ákvarða um það hvort mark hafi verið skorað í leik Crystal Palace og Leeds á sunnu- dag. Það þótti sýnt í sjónvarpi að knötturinn hefði farið yflr marklínuna hjá Leeds, auk þess sem Michael Duberry, varnar- maður Leeds, varði knöttinn greinilega með hendi. Ástæðan er að alþjóða knatt- spyrnusambandið hefur tekið af allan vafa um að notkun mynd- banda í tilvikum sem þessum sé algerlega óheimil og að ekki standi til að breyta því. -PS KÓRFUBOLTI J öo ©BDDJi) KVENN'/* Keflavík 17 15 2 1346-887 30 KR 17 10 7 1063-1085 20 Grindavík 17 8 9 1183-1241 16 Njarðvík 16 7 9 1057-1125 14 ÍS 17 5 12 987-1155 10 Haukar 16 5 11 932-1075 10 Næstu leikir: Njarövík-Haukar ......mið 19. feb. Haukar-KR...........lau. 22. feb. Keflavík-Njarðvík .... sun. 23. feb. ÍS -Grindavík..........mán 24. feb. KR-ÍS .................lau 1. mars Haukar-Keflavík.......sun 2. mars

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.