Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2003, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.2003, Qupperneq 32
% m 75 ára afmælistilboö 20% afsláttur af PANORAMA ÞRIÐJUDAGUR 18. FEBRUAR 2003 ». miðstöö innréttinga 20 hurðartegundum Grensásvegi 8 • 108 Reykjavík ■i tfe \ mSmg. Wfmi h'WRik.. ‘ VVW , . ' I ÉfÍÍMP REUTER-MYM) Beckham ævareiöur eftir æöi Fergusons: Krefst afsökunarbeíðm Knattspyrnuhetjan David Beckham krefst afsökunarbeiöni af hálfu fram- kvæmdastjóra Manchester United eftir aö sá síðarnefndi sparkaöi takkaskóm í áttina til hans í búningsherbergi félags- ins á laugardag með þeim afleiðingum að skurður kom á ennið, rétt ofan við vinstra augað. Sauma þurfti nokkur spor í enni Beckhams sem er æfareiður þessa dagana. Alex Ferguson gerði lítið úr atvikinu í sjónvarpi í gær. Sagði hálf- glottandi að þetta hefði verið tilviljun ein og mundi aldrei gerast aftur. Er talið að samband þeirra verði aldrei samt nema Ferguson biðjist afsökunar. Ferguson missti gjörsamlega stjórn á skapi sínu eftir tapleikinn við Arsenal og tók Beckham sérstaklega fyrir. Fékk Beckham svokallaða hárþurrkumeðferð sem þýðir að stjórinn öskraði framan í hann dágóða stund. Vildi stjóri meina að slök frammistaða Beckhams á miðj- unni hefði leitt til annars marks erki- fjendanna. Reiði Beckhams er öllum Ijós en hann fór í verslunarleiðangur með konu sinni, Viktoríu, í Manchester í gær. Gerði hann ekkert til að skýla plástrum á enninu og gaf Ijósmyndurum nægan tíma til athafna. Viktoríu var skapi næst að segja Alex Ferguson til syndanna eftir atvikið, taka hann í karphúsið, en eiginmaðurinn fékk hana ofan af því, reynslunni ríkari. Alex Ferguson er frægur að endem- um fyrir skapbræði sína. Sjálfur lýsir hann Beckham hins vegar sem yfirmáta kurteisum manni og víst að hann getur eitthvað lært af lærisveini sínum í þeim efnum. Uppákoma þessi kemur á versta tima en Manchester United mætir Juventus í Meistaradeild Evrópu annað kvöld. -hlh Parvo-sýking: Bnaðsmitandi sýking í hundum Meira hefur borið á smáveirusótt hundum nú en áður, að sögn Þor- valdar Þórðarsonar, dýralæknis á Dýraspítalanum. Þessi veiki, sem nefnist öðru nafni Parvo-sýking, er bráðsmitandi og geta hundamir auðveldlega drepist úr henni. Þessi veiki er mjög alvarleg, einkum í ungum hundum og hvolpum. Vitað er um nýleg dæmi hér þar sem hundar hafa drepist af veikinni. í mjög ungum hundum veldur hún hjartabilun. Parvo-sýkingin kom fyrst til landsins 1993. Þá voru flestallir hundar bólusettir gegn henni og með því tókst að hefta útbreiðslu hennar. „Við höfum orðið vör við nokkur tiifelli núna,“ sagði Þorvaldur. „Þetta er óvanalegt í stöðunni. Þetta bendir tO þess að einhverjir hafi trassað að láta sprauta hundana með mótefni. Hundaeig- endur þurfa að vera á varðbergi og full ástæða fyrir þá til að láta bólu- setja hundana sína.“ -JSS Hvep týndi peningum? Lögreglan í Reykjavík auglýsti í fyrradag eftir eiganda „nokkurrar peningafjárhæðar" sem fannst á víðavangi fyrir fáeinum vikum. Eigandi peninganna er beðinn að gefa sig fram á lögreglustöðinni í Reykjavík. Enginn hafði gefið sig fram i morgun. Geir Jón Þórisson yfirlögreglu- þjónn sagði í samtali við DV að vissulega væri hér óvenjulegt mál á ferðinni. „Peninganir fundust fyr- ir nokkra en þar sem enginn hefur gefið sig fram tókum við það ráð að auglýsa," segir Geir Jón. Hann segir viðkomandi þurfa að gefa upp rétta upphæö fjárins, greina nákvæmlega frá því hvenær og hvar peningamir týndust auk þess að lýsa umbúðum. Geir Jón segir lögin virka þannig að ef eng- inn gefur sig fram innan árs og eins dags fái finnandinn þriðjung fjárins. Lögreglusjóður fái afgang- inn en hann styrkir margvísleg líknarmál í samfélaginu. -aþ , ‘Bónstöcfín IS-TEFLON Bryngljái - lakkvörn Hyrjarhöföi 7 • Sími 567 8730 112 EINN EINN TVEIR NEYÐARLÍNAN LÖGREGLA SLÖKKVIUÐ SJÚKRALIÐ I f Fyrir flottar 1 íLca boutique konur Bankastræti 1 1 • sími 551 3930 / / / / / / / / / / / / / / / ; ! / í / \

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.