Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2003, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2003, Qupperneq 6
6 MÁNUDAGUR 17. MARS 2003 Fréttir I>V íslenskir alþingismenn um íraksdeiluna: Stefnip því miður „Já, því miður sýnist manni fleira en færra benda til þess að það stefni í hernaðaraðgerðir," segir Einar K. Guðfmnsson, einn af fulltrúum Sjálfstæðisflokksins í utanríkismálanefnd Alþingis. „Það er auðvitað búið að leita póli- tískra leiða langtímum saman og árangurinn hefur því miður ekki orðið eins og menn hefðu kosið. Það er ljóst að það verður að fylgja alvara hótun þeirri sem menn hafa verið með í garð Saddams Husseins og auðvitað lá fyrir að ef hann brygðist ekki við gæti kom- ið til átaka.“ Einar vill ekki svara því nú hvort íslensk stjórnvöld ættu að styðja aðgerðir óháð afstöðu Sam- einuðu þjóðanna. „íslensk stjórn- völd verða auðvitað að taka sína ákvörðun þegar þar að kemur,“ segir Einar. „En það hefur komið fram af hálfu íslenskra stjórn- valda að það verður að vera full alvara á bak við það þegar refsi- vendinum er haldið yfir Saddam Hussein. Hann hefur brotið samþykktir SÞ og logið endalaust varðandi þessi vopn í írak. í 12 ár hefur hann reynt að komast fram hjá ákvörðunum alþjóðasamfélagsins og kúgað þjóð sína í ofanálag Einar K. Margrét Guöfinnsson. Frímannsdóttir. þannig að það er ekki við góðu að búast af þessum manni.“ Mikil andstaða „Ég tel svo vera miðað við hans máiflutning undanfarið, því mið- ur,“ segir Margrét Frímannsdóttir, varaformaður Samfylkingarinnar. „Það er mikil andstaða á íslandi gegn stríði, mikill meirihluti þjóðarinnar er andstæður átökum og óttast afleið- ingarnar. Fólk er ekki endilega að horfa til afleiðinga hér heldur til þess sem getur gerst annars stað- ar í heiminum, ekki síður úti í heimi, samkenndin er þannig.“ Vonum það besta „Það tel ég alls ekki vera útilok- að miðað við það hvemig mál hafa þróast og hvernig málflutningur Bush og Blair hefur verið. Þeir Ögmundur Jónasson. hafa alltaf haldið því opnu að fara þarna inn, með eða án stuðnings Sameinuðu þjóðanna,“ segir Siv Friðleifsdóttir, ritari Framsóknarflokksins. „íslenska þjóðin vonar það í lengstu lög að ekki þurfi til þess- arar ákvörðunar og átaka að koma. Það er ómögulegt að átta sig á því hvaða áhrif stríð kann að hafa fyrir íslendinga. Áhrifin verða eðlilega meiri ef þetta verð- ur langvinnt, og svo er þetta líka spurning um áhrifin á stöðugleik- ann í þessum heimshluta. Stutt stríð hefur ekki mikil áhrif út fyr- ir þetta svæði.“ Staðráðnir í árás „Ég held að það sé augljóst að Bandaríkjamenn séu staðráðnir í að ráðast á íraka,“ segir Ögmund- ur Jónasson, þingflokksformaður Gabbró til bjargar hringveginum „Framkvæmdir við styrkingu bakka Jökulsár á Breiðamerkur- sandi ganga samkvæmt áætlun," segir Reynir Gunnarsson hjá Vegagerðinni. „Grjót, hreint gabbró nýkomið undan jökli,“ seg- ir Reynir, „er tekið upp við Breiðamerkurjökul og flutt á 40 tonna trukkum niður að þjóðvegi þar sem það er losað af bílunum og síðan selflutt á minni bílum að ánni. Hafa veröur þennan hátt á þar sem vegirnir þola ekki álagið sem stóru grjótflutningatrukkarnir mundu valda. Vinnan við Jökulsá á Breiða- merkursandi miðar að þvi að bjarga hringveginum og línum sem fylgja honum. Þarna er mikið í húfí og menn vonast til að gabbróið, sem hefur verið hulið ís öldum og árþúsundum saman, komi að gagni. -JI Aðalfundur2003 AðalfundurTryggingamiðstöðvarinnar verður haldinn miðvikudaginn 19. mars 2003 í Sunnusal, Radisson SAS Saga Hótel, Reykjavík og hefst kl. 16:00. DAGSKRÁ 1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins. 2. Tillaga um heimild til kaupa á eigin hlutabréfum. 3. Önnur mál, löglega upp borin. Reikningar félagsins og tillögur liggja frammi á aðalskrifstofu hluthöfum til sýnis en verða slðan afhent ásamt fundargögnum til hluthafa á fundarstað. (g) TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs. „Nú eru Bandaríkja- menn að stilla Sameinuðu þjóðun- um upp við vegg: annars vegar vilja þeir beygja alþjóðasamfélag- ið undir sig og gera það samá- byrgt en einnig hitt, að þeir vilja að SÞ verði gerðar ábyrgar fyrir eftirleiknum og taki til eftir sprengjuregnið. Þetta er óhugnan- legt. Það er hins vegar ánægjulegt að almenningur í heiminum virð- ist vera að rísa upp gegn stríðsæs- ingum Bandaríkjamanna." Ög- mundur segir að ef fram heldur sem horfir sé bersýnilegt að neit- unarvaldi verði beitt í Öryggisráði SÞ en hann óttast að það geti ekki orðið til að koma í veg fyrir árás Bandaríkjamanna. íslensk stjórnvöld eiga ekki að styðja hernaðaraðgerðir gegn írak jafnvel þótt þær yrðu samþykktar í Öryggisráðinu að mati Ögmund- ar: „Ég styð SÞ og tel að þær eigi að vera sá vettvangur þar sem við leysum deilumál sem upp koma í heiminum. En þær verða að starfa lýðræðislega og það er greinilegt að það er verið að beita þvingun- um gagnvart þeim sem eiga sæti í Öryggisráðinu. Þetta eru ekki lýð- ræðisleg vinnubrögð,“ segir Ög- mundur. -ÓTG/GG Flökt á gengi dollars síð- ustu sex árin Miðgengi Bandaríkjadollars var í morgun nær óbreytt frá því á sama tíma fyrir mánuði. Hann er þó skráður um 22 krónum lægri en á sama tíma fyrir ári. Á sex ára tímabili hefur verið töluvert flökt á gengi Bandaríkjadollars ef miðað er við mars og fór það lægst árið 1999. Fyrir opnun markaða í morgun 17. mars 2003 var miðgengi doll- ars skráð hjá Seðlabanka íslands á 78,11 krónur. Á sama tíma árið 2002 var miðgengi dollars skráð á 100,25 krónur. Þann 19. mars 2001 var verðið á dollar 87,92 krónur og 73,6 krónur þann 17. mars árið 2000. Lægst fór gengi dollars í mars 1999, en þá var miðgengi skráð þann 17. mars á 71,77 krón- ur. Á sama tíma árið 1998 var gengi dollars örlítið hærra, eða 72,48 krónur. -HKr. Háar kröfur vegna byggingar Hótel Búöa: Verktakar krefjast riftunar kaupsamnings Kröfuhafar Byggingarfélags Búða og Hótels Búða komu saman til fundar á Akranesi á fímmtudag og var fundarefnið stórfelldar van- efndir félaganna beggja við fjölda verktaka og efnissala. Alls mættu 23 kröfuhafar á fundinn og eru kröfur þeirra á hendur félögunum 42,7 milljónir króna. Þormóður Jónsson, stjórnarformaður Hótels Búða, sagði, eftir að fjórir verktak- ar höfðu staðið fyrir mótmæla- stöðu við heimili hans í Garðabæ á þriðjudaginn var, að ekkert væri hæft í ásökunum þeirra um und- anskot eigna. Byggingarfélag Búða hefði frá upphafi staðið að byggingaframkvæmdum sam- kvæmt samningi við eignarhalds- félagið Hótel Búðir þar sem að kæmu fleiri hluthafar. Þetta fyrir- komulag hefði verið haft á frá upphafi framkvæmda á Búðum. „Þetta eru smáaurar sem við skuldum þessum mönnum. Stað- reyndin er sú að skuld hótelsins við verktakana nemur rúmri milljón króna en ekki 53 milljón- um. Lokaáfangi endurfjármögnun- ar hótelsins stendur nú yfir,“ sagði Þormóður Jónsson. I yfirlýsingu sem verktakarnir sendu frá sér eftir fúndinn segir m.a. að gífurleg vanskil hafi safn- ast upp vegna hótelbyggingarinn- ar allt frá byrjun framkvæmda. Vanskil séu yfir 40 milljónir króna sem þegar hafi haft alvar- legar afleiðingar fyrir fyrirtæki og einstaklinga í fámennu samfélagi á Snæfellsnesi. „Ljóst er aö kröfuhöfum er gert að grípa í tómt hjá eignarlausu Byggingarfélagi Búða sem seldi fasteign sína Hótel Búðum. Gefið var út afsal fyrir eigninni gegn greiðslu með m.a. 53 milljón króna skuldabréfi sem nú er „týnt“ og með því færð eign á milli kennitalna. Skráð hlutafé Hótels Búða er 500 þúsund krónur." Kaupverð samkvæmt kaupsamn- ingi var 153 milljónir króna.“ Óskað var eftir gjaldþrotaskipt- um hjá Byggingarfélagi Búða sl. mánudag hjá sýslumanninum í Stykkishólmi en embættið veitti forsvarsmönnum Byggingarfélags Búða mánaðar frest. Við aðfarar- gerð verktakafyrirtækisins Gólf- lagna gegn Byggingarfélaginu Búðum 7. febrúar sl. sagði stjórn- arformaður þess og núverandi hótelstjóri, Viktor Sveinsson, sér- staklega spurður um skuldabréf að fjárhæð 53.514.880 krónur, sem nefnt er í afsali fyrir nýbyggingu Hótels Búða, að hann geti ekki upplýst um tilvist þess! Fundarmenn ákváðu að taka höndum saman um málarekstur til að fá rift kaupsamningi á milli félaganna tveggja ef nauðsyn krefði. -GG

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.