Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2003, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2003, Síða 8
8 MÁNUDAGUR 17. MARS 2003 DV Fréttir Álverssamningar viö Alcoa undirritaöir á Reyöarfiröi - og framkvæmdir farnar af staö: Draumurinn afhjúpaður spennulínur útheimta 3850 árs- verk og búist er við að ársverkin við íbúðabyggingar í Fjarðabyggð og víðar á Austurlandi verði tæp- lega 800. Helmingsaukning Vænst er þess að álverið verði komið í gagnið 2007 og að fram- leiðslugeta þess verði 322 þúsund tonn á ári sem er meira en helm- ingsaukning á landsframleiðslu íslendinga á áli. Gert er ráð fyrir að alls muni 455 störf verða til við álverið, það er við sjálfa fram- leiðsluna. Afleidd störf á Austurlandi, svo sem í tengdum iðnaði, þjónustu og verslun, er gert ráð fyrir að verði hartnær 300. Forystumenn Fjarðabyggðar telja það þó vera Ráðherrann fær sneið Gestum og gangandi var boöiö upp á tertu sem bökuö var í tilefni af undirrit- un samningsins. Valgeröur nælir sér í sneiö. Risastór rjómaterta, fánar blaktandi við hún, lögregluþjónar í öryggisgæslu á gatnamótum. Úandi æðarkollur syndandi í tign- arlegri prósessíu. Full rúta af ráð- herrum, milljónurum úr útland- inu og þeirra nótum. Kauptúnið á Reyðarfirði var með hátíðarblæ á laugardag þegar þar voru undir- ritaðir samningar milli íslenskra stjómvalda og Alcoa um byggingu álvers þar eystra. Athöfnin fór fram í íþróttahúsinu á Reyðar- firði sem var fullt út úr dyrum. Talið er að um þúsund manns hafi verið á staðnum - allir í sparifötunum og bjartsýni skein úr andlitum. Kirkjukórinn söng ættjarðarlög. „Það er bjargföst trú mín að nú hafi verið stigið heilfa- spor,“ sagði Valgerður Sverris- dóttir iðnaðarráðherra við þetta tilefni. Virkilega gaman Á Austurlandi er að hefjast landnámsöld. „Vissa gagnvart því að framkvæmdir við álver séu aö hefjast getur varla verið meiri. Ég lít raunar svo á að undirbúningur sé að baki og nú taki framkvæmd- ir við af fullum krafti. Og þá fer að verða virkilega gaman,“ sagði Smári Geirsson, formaður bæjar- ráðs Fjarðabyggðar, við DV- menn. Hann eygir nú árangur af margra áratuga baráttu fólks í þessum fjórðungi fyrir því að fá innspýtingu í atvinnulífið sem stöðvaö geti flótta fólks suður. Landnámsmenn eru raunar þeg- ar komnir á fullan skrið. Inni á reginfjöllum er verið að beisla jötunafl Jöklu en væntanleg Kára- hnjúkavirkjun mun sjá álverinu við Reyðarfjörð fyrir rafmagni. Og víða sér bjartsýnisandanum stað. DVWYND GVA Undir skiltinu Eftir undirritun samninga hélt fólk út meö Reyöarfiröi, en á þeim slóöum þar sem álveriö mun rísa hefur skilti meö helstu staöreyndum veriö komið upp. Á myndinni eru, frá vinstri taliö, Friörik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, Geir H. Haarde fjármálaráöherra, James I. Gadsten, sendiherra Bandaríkj- anna á íslandi, Vaigeröur Sverrisdóttir iönaöarráöherra, Alain Belda, forstjóri Alcoa, Smári Geirsson, formaöur bæjarráös Fjaröabyggöar, Guömundur Bjarnason bæjarstjóri og Jóhannes Geir Sigurgeirsson, formaöur stjórnar Landsvirkjunar. Fjölgar um þúsundir í Fjaröabyggð hafa verið skipu- lagðar 350 byggingalóðir og er það í samræmi við þá miklu íbúafjölg- un sem búist er við. Á Reyðarfirði - sem er einn þriggja byggðar- kjarna í Fjarðabyggð - hafa verið skipulagðar 230 nýjar lóðir. Fyrir helgi var samþykkt að út- hluta íslenskum aðalverktökum 130 lóðum fyrir 185 íbúðir og verða þær fyrstu fullgerðar eftir tvö ár. Til samanburðar má nefna að í kauptúninu eru nú um 200 íbúðir þannig að byggðin nálægt því tvö- faldast með framkvæmdum ÍAV. Þá eru fleiri verktakafyrirtæki einnig að undirbúa framkvæmdir við íbúðarhúsnæði eystra. Reiknað er með að vegna ál- versframkvæmda muni íbúum á Austurlandi fjölga um allt að 2000 manns og að 65% þeirrar fjölgun- ar verði í Fjarðabyggð, þar af um helmingur á Reyðarfirði. „Vegna margvíslegrar uppbyggingar þurf- um við að fara út í miklar lántök- ur. Munum við fyrir vikið fara tímabundið yfir mörk varðandi Al - og skái Valgeröur Sverrisdóttir iönaöarráöherra og Alain Belda forstjóri skála fyrir undirritun samninga. „Bjargföst trú mín aö nú hafi veriö stigiö heillaspor," segir ráöherrann. skuldsetningu sveitarfélaga sem eru í gildi en hins vegar eigum við von á miklum tekjum í fram- tíðinni," segir Guðmundur Bjamason, bæjarstjóri í Fjarða- byggð. mjög varlega áætlað. Á blaða- mannafundi þeirra sl. föstudag sagðist Smári Geirsson trúa því að á landsvísu gæti álverið skap- að allt að 1100 ársstörf með marg- feldisáhrifum sínum. 84 milljarðar Fjarðaál reisir álverið og stend- ur að því. Byggingarkostnaður er áætlaður 84 milljarðar íslenskra kóna og dreifist hann á fjögur ár. Áætla má að 70% af því séu inn- flutt fjárfesting en leiki menn sér með tölur má setja dæmið þannig upp að milljón dollurum á dag verði næstu árin varið í verkefn- ið. Hámarki ná framkvæmdir árið 2006 og þá verða á þriðja þúsund manns yfir árið við framkvæmd- ir. Aðrir þættir verkefnisins munu þarfnast starfsfólks sem nemur um 5100 ársverkum fram til ársins 2006. Kárahnjúkavirkj- un og framkvæmdir við há- Hraðinn ævintýralegur Samningarnir sem undirritaðir voru á Reyðarfirði eru alls fjórtán talsins. Þeir lúta meðal annars að hafnaraðstöðu, álverslóðinni og rafmagnssölu. Þá var undirritað- ur sérstakur fjárfestingarsamn- ingur. Með undirritun samninganna má ætla að málið sé endanlega komið á beina braut, það er með því að tveir ráðherrar, bæjarstjór- inn í Fjarðabyggð, stjórnarfor- maður Landsvirkjunar - og stjórnendur Alcoa - eins stærsta fyrirtækis í heimi - setji nafn sitt undir samninga sem eru líklega um risavöxnustu fjárfestingu Is- landssögunnar fyrr og síðar. 9íið vinsœ.Cafermi'ngar6[aðfij (DV fimmtudaginn 20. mars. Þetta blað hefur þótt nauðsynlegt upplýsinga- og innkaupablaó fyrir alla þó sem eru að undirbúa fermingu og eru í leit að fermingargjöfum. Auglýsendum er bent ó að hafa samband við auglýsingadeild DV, í síma 5S0-S000, netfang: auglysingar@dv.is, fyrir 17. mars svo unnt reynist að veita öllum sem besta þjónustu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.