Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2003, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2003, Page 12
12 Útlönd MÁNUDAGUR 11. MARS 2003 DV REUTERSMYND Brosandi sgurvegari Anneli Jaatteenmaki, leiötogi Miö- flokksins, veröur líklega næsti for- sætisráöherra Finnlands. Kona á leið í forsætis- ráðhernastólinn Stjórnarandstæðingar í Mið- flokknum sigruðu naumlega í þingkosningunum í Finnlandi í gær. Þar með er næsta ljóst að kona verður í fyrsta sinn for- sætisráðherra landsins. „Ég held að finnska þjóðin hafi viljað breyta til. Ég er mjög glöö,“ sagði Anneli Jaatteenmaki, leiðtogi Miðflokksins, skælbros- andi, umkringd stuðningsmönn- um sínum í aðalstöðvum flokks- ins í Helsinki. Miðflokkurinn, sem er gamall bændaflokkur, fékk 24,7 prósent atkvæða og 50 menn kjöma, sjö fleiri en síðast. Jafnaðarmanna- flokkur Paavos Lipponens, fráfar- andi forsætisráðherra, fékk 24,5 prósent atkvæða. Jaatteenmaki bíður nú það verk að mynda nýja stjórn. Hún sagðist í gær vera reiðubúin í samstarf við jafnaðarmenn. Rífbjerg í vandræðum vegna hnmmasögu Danski rithöfundurinn Klaus Rifbjerg hefur valdið nokkru fjaðrafoki í Noregi með skáldsögu sinni „Nansen og Johansen" sem kom þar út nýlega. Bókin fjallar um landkönnuðina Friðþjóf Nan- sen og Hjalmar Johansen, sem á leið sinni á norðurpólinn árið 1895 láta vel hvor að öðrum ofan í svefnpoka. Skáldsagan hefur fengið svo kuldalegar viðtökur í Noregi að Rifbjerg sagði í viðtali við danska blaðið Berlingske Tidende að hommaóttinn þar væri meiri en annars staðar. Norsku blöðin hafa bent á fjölda staðreyndavillna. REUTERSMYND Jóhannes Páll páfi „Aldrei aftur stríö, “ sagöi páfi í gær. Páfi hvetur leiðtoga íraks til samvinnu Jóhannes Páll páfi sagði í gær að það væri skylda leiðtoga íraks að vinna með þjóðum heims að því að afstýra stríði. Páfi sagði deilendum beggja vegna borðsins að enn væri tími til að semja. Páfi vék út frá rituðum texta ræðu sinnar og sagði að vegna þess að hann heföi upplifað heimsstyrjöldina síðari teldi hann það skyldu sína að segja við umheiminn: „Aldrei aftur strið.“ Friðarákall páfa ber upp á sama tíma og leiðtogar Banda- ríkjanna og Bretlands virðast vera að leggja lokahönd á undir- búning að stríði gegn írak. Sex Palestmumenn féllu í að- gerðum ísraela á Gaza í morgun - bandaríkur friösarsinni lést eftir aö hafa orðið undir ísraelskri jaröýtu Friöarslnnar mótmæla Friöarsinnar úr ISM-samtökunum mótmæla aögerðum ísraela á Gazasvæöinu um helgina. Að minnsta kosti sex Palest- ínumenn létu lífið og allt að fimmtán lágu slasaðir eftir innrás ísraelskra hersveita í Nusseirat-flóttamannabúðim- ar á Mið-Gazasvæðinu í bítið í morgun. Að sögn sjónarvotta réðust ísraelar inn i búðirnar á um tuttugu skrið- og bryndrekum studdir árásarþyrlum og hófu skothríð í allar áttir eftir að hafa mátt þola harða mót- spymu palestínskra byssu- manna. Meðal hinna látnu voru tveggja ára gamalt stúlkubarn og þrettán ára gamall drengur en auk þess grunaður hryðju- verkamaður af aftökulista ísra- elsmanna. Innrásinni mun að- allega hafa verið beint að húsi í eigu fjölskyldu umrædds hryðjuverkamanns, sem var grunaður um að vera liðsmaður al-Áqsa-her- deildarinnar en hún tengist Fatah- hreyfmgu Yassers Arafats og var húsið sprengt í loft upp. Árásin í morgun er í beinu fram- haldi af nær daglegum aðgerðum fsra- elsmanna, sem beint hefur verið gegn meintum palestínskum hryðjuverka- mönnum á Gazasvæðinu síðustu daga en í gærmorgun var gerð innrás í Rafah-flóttamannabúðirnar með þeim afleiðingum að bandarísk 23 ára stúlka, Rachel Corrie, lét lifið eftir að hafa orðið undir ísraelskri jarðýtu. Að sögn sjónarvotta var Corrie, sem starfaði með hópi ungra friðarsinna úr ISM-sam- tökunum, að reyna að hindra það að ísraelum tækist að eyðilegga íbúðabyggingu í búðum við landamæri Egyptalands þegar hún varð undir jarðýtunni en sjö félagar hennar, þrír frá Bandaríkjunum og fjórir frá Bretlandi, mótmæltu einnig aðgerðum ísraela i búðunum. Talsmaður ísraelshers ásakaði friðarsinnana um óábyrgar aðgerðir með því stilla sér vísvitandi upp á miðju átakasvæði en alþjóðlegar friðarhreyfingar hafa í auknum mæli sent sitt fólk inn á átakasvæðin á Versturbakkanum og Gaza til þess að mótmæla og hindra aðgerðir fsraela. ísraelsk stjórnvöld lýstu um helg- ina yfir ferðabanni á palestínsku heimastjórnarsvæðunum vegna ótta við hryðjuverk í sambandi við Purim- trúarhátíð gyðinga sem hefst í dag og stendur fram á miðvikudag. REUTERSMYND Geispað á góöum degi í dýragaröinum Fátt er betra en aö geispa í upphafi hlýs dags I dýragaröinum. Þaö finnst aö minnsta kosti þessum myndarlega baví- ana sem býr í dýragaröi í indversku höfuöborginni Nýju-Delhi. Kaldur vetur er nú aö baki þessum slóöum. Mannskæö lungnabólga veldur áhyggjum: Heilbrigðisyfirvöld um allan heim vara við sjúkdóminum Heilbrigðisyfirvöld um heim all- an eru í viðbragðsstöðu vegna banvæns afbrigðis lungnabólgu sem breiðist hratt út og hefur þeg- ar orðið níu manns að aldurtila. Rúmlega eitt hundrað manns hafa smitast. Alþjóðaheilbrigðisstofn- unin (WHO) hefur sent frá sér við- vörun vegna sjúkdómsins. Útbreiðsla sjúkdómsins hefur skotið ferðamönnum skelk í bringu. Á flugvellinum í Hong Kong í morgun voru margir far- þegar sem komu frá Taívan, Singapore og ýmsum öðrum lönd- um með grímur fyrir vitunum. Talsmaður WHO í Genf sagði að fréttir hefðu borist um að tveir úr REUTERSMYND Hjúkrunarfólk ráöþrota Ekki er vitaö hvaö veldur banvænum sjúkdómi, sem er eins konar lungna- bólga, sem hefur skotiö sér niöur í Asíu og víöar. sömu fjölskyldunni hefðu látist af völdum sjúkdómsins í Kanada. Sjúkdómurinn, sem lýsir sér eins og lungnabólga, kom fyrst upp í Kína í febrúar. Ekki er vitað hvað orsakar hann. „Nú er hætta á þessum sjúk- dómi í öllum heiminum," sagði Gro Harlem Brundtland, fram- kvæmdastjóri WHO, í yfirlýsingu sem hún sendi frá sér. Sjúkdómurinn byrjar eins og flensa, með hósta og háum hita, en getur fljótlega breyst í lungna- bólgu. Tugir manna í Hong Kong og Víetnam eru smitaöir og meðal þeirra er fjöldi hjúkrimarfólks. Stuttar fréttir Howard skammar Chirac John Howard, forsætisráðherra Ástralíu og ein- dreginn stuðnings- maður Bandaríkj- anna í íraksdeil- unni, veittist í morgun að Jacques Chirac Frakklandsforseta fyrir andstöðu hans við fyrirhugað stríð gegn írak. Hann sakaöi Frakka um hræsni þegar þeir hótuðu að beita neitunarvaldi hjá SÞ. Danir gefa eftir Margir Danir eru reiðubúnir að falla frá heilögustu kúnni í umræðunum um ESB, nefnilega þeirri reglu sem meinar þegnum annarra ESB-landa að eignast sumarhús í Danmörku. Búist við ákæru í dag Búist er við að sjálfskipaði götuprédikarinn Brian David Mitchell verði ákærður í dag fyr- ir ránið á hinni 15 ára gömlu Elizabeth Smart í Salt Lake City í fyrrasumar. Amerískir arabar á móti stríði Yfirgnæfandi meirihluti um það bil 300 þúsund bandarískra araba og múslíma sem búa í Detroit og nágrenni er andvígur stríði gegn írak. Chirac aldrei verið vinsælli Jacques Chirac Frakklandsforseti er svo vinsæll meðal þjóðar sinn- ar vegna andstöð- unnar við stríðs- áform Bandaríkja- manna og Breta í írak að hann hef- ur slegið öil met. Forseti í Frakk- landi hefur ekki notið jafnmikilla vinsælda í þrjátíu ár. Uppreisnarmenn taka völdin Uppreisnarmenn í Mið-Afríku- lýðveldinu hafa tekið öll völd í höfuðborginni Bangui. Forsetinn er í Kamerún og kemst ekki heim vegna uppreisnarinnar. Þjóðin styður Bush í stríði Meirihluti bandarísku þjóð- arinnar, eða 64 prósent, styður fyrirhugaðar stríðsaðgerðir Ge- orges W. Bush for- seta gegn írak og Saddam Hussein, að því er fram kemur í nýrri skoðanakönnun CNN-sjónvarps- stöðvarinnar. Skiptir þá ekki máli hvort stuðningur SÞ liggur fyrir eður ei. Rætt um vatnsbúskap heimsins Tíu þúsund fulltrúar frá um 150 löndum eru nú saman komnir í Kyoto í Japan til að ræða ástand og horfur í vatnsbúskap heimsins. Ljóst er að skjótra að- gerða er þörf til að tryggja að- gang að hreinu vatni. Nýp forsætisráðherra Kína Wen Jiabao hefur verið skipað- ur nýr forsætisráðherra Kína og tekur hann við af Zhu Rongji. Þá hefur Hu Jintao verið kjörinn forseti Kína. Mennimir voru kosnir í embætti á þinginu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.