Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2003, Qupperneq 13
13
MÁNUDAGUR 17. MARS 2003
PV_____________________________ Útlönd
oituim grapíium ^
Smiðjuvegur 8 - Kóp S
Slmi: 577 6400 >
George W. Bush Bandaríkjaforseti
sagði í gær að í dag, mánudag, rynni
„stund sannleikans" upp en lengri
tíma fengi Öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna ekki til þess að finna frið-
samlega lausn á íraks-málinu með
nýrri ályktun. Lokaður fundur hefur
verið boðaður í ráðinu klukkan þrjú
í dag þar sem örlög íraks munu
væntanlega ráðast.
Þetta kom fram í ræðu sem Bush
hélt eftir fund með nánustu banda-
mönnum sínum, þeim Tony Blair,
forsætisráðherra Bretlands, og Jose
Maria Aznar, forsætisráðherra Spán-
ar, á Asoreyjum í gær. Sagði Bush
það niðurstöðu fundarins að Örygg-
isráðið fengi aðeins frest fram til
kvöldsins til þess að samþykkja nýja
ályktun sem fyrirskipaði Saddam
Hussein íraksforseta skilyrðislausa
afvopnun án tafar til þess að koma í
veg fyrir hugsanlegar hernaðarað-
gerðir leiddar af Bandaríkjamönn-
um.
Miðað við stöðuna er ólíklegt að
samkomulag náist um óbreytta sam-
eiginlega tillögu þríeykisins, Banda-
ríkjamanna, Breta og Spánverja, sem
kynnt var í ráðinu í síðustu viku og
því af mörgum talið líklegt að Bush
muni lýsa yfir stríði eða jafnvel til-
kynna að það sé þegar hafið í þjóðar-
ávarpi í nótt.
Aðrir halda því fram að Bush
muni gefa Saddam nokkurra klukku-
stund frest til þess að yfirgefa Irak
en að öörum kosti taka afleiðingun-
um.
Þríeykið
Blair, Bush og Aznar á Asoreyjum.
Hans Blix, yfirmaður vopnaeftir-
litsins í írak, sem undanfarna daga
hefur unnið að lokatímaáætlun
vopnaeftirlitsins í írak, sagði í sjón-
varpsviðtali í gær að staðan væri
mjög ógnandi. „Hver svo sem niður-
staðan verður munum við halda
áfram störfum okkar í írak en svo
gæti þó farið að vopnaeftirlitinu yrði
fyrirskipað að yfirgefa landið," sagði
Blix.
Á sama tima hafa Bandaríkja-
menn og Bretar fyrirskipað öllum
ónauðsynlegum sendifulltrúum sín-
um og fjölskyldum þeirra að yfírgefa
Kúveit, ísrael og Sýrland og þykir
það renna stoðum undir að stríð sé
yfirvofandi fyrr en seinna.
Brottflutningur eftirlitssveita
Sameinuðu þjóðanna frá landamær-
um íraks og Kúveits þykir einnig
renna frekari stoðum undir það að
stríð sé í aðsigi og að ekki sé búist
við því að friðsamleg lausn náist í
Öryggisráðinu.
Viðbrögð íraka við stríðshótunum
Bush Bandaríkjaforseta voru að þeir
væru tilbúnir að mæta hvers konar
árásum en vöruðu einnig við því að
stríðið yrði ekki aðeins háð innan
íraks heldur um allan heim. „Alls
staðar í heiminum, í lofti, á landi og
á sjó, verður barist,“ sagði Saddam í
viðtali í gær.
Jacques Chirac Frakklandsforseti
sagði í gær eftir að Bush hafði kynnt
niðurstöður Asoreyjafundarins að
Frakkar væru enn staðráðnir í því
að beita neitunarvaldi gegn hvers
konar álykun sem gerði ráð fyrir
hernaðaraðgerðum. „Við eigum fyrst
að láta reyna á samningaleiðina,"
sagði Chirac.
Fyrir fund Öryggisráðsins í dag
hefur þríeykið aðeins tryggan stuðn-
ing Búlgara fyrir nýrri ályktun en
þurfa stuðning níu af fimmtán
fulltrúum til að ná meirihluta, svo
framarlega sem engin fastaþjóðanna
beitir neitunarvaldi. Bush notaði
tækifærið í gær til þess að segja álit
sitt á afstöðu Frakka og sagði að
heima í Texas töluðu menn um að
sýna spilin sín. „Það hafa Frakkar
reyndar gert en í dag fáum við að sjá
hvernig þeir spila úr þeim,“ sagði
Bush.
REUTERS-MYND
Forsætisráðherra jarösettur
Útför Zorans Djindjics, myrts forsæt-
isráðherra Serbíu, var á iaugardag.
Umbótastefnu haldiö
áfram í Serbíu
Flokkur Zorans Djindjics, for-
sætisráðherra Serbíu, sem myrt-
ur var í síðustu viku, hefur til-
nefnt Zoran Zivkovic til að halda
merki umbóta í stjórnkerfinu á
lofti. Nýi forsætisráðherrann hét
þegar í stað að halda áfram bar-
áttunni gegn skipulögðum glæpa-
samtökum sem sökuð hafa verið
um morðið á Djindjic. Lögregla
hefur handtekið hundruð manna
í leitinni að morðingjanum.
Snjókeðjur fýrir
öll farariæki....
* Aðeins vara frá
viðurkendustu
framleiðendum
Bush Bandaríkjafonseti segin
stund sannleikans renna upp í dag