Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2003, Page 24
48
MÁNUDAGUR 17. MARS 2003
Tilvera I>V
Mæögur
Tenma Bell, dóttir Louisu, setti upp sýninguna, ásamt dóttur sinni Ullu I. Kjarval.
Úr vinnustofu
látinnar Ustakonu
Pjölmenni var á opnim sýning-
arinnar Úr vinnustofu Louisu
Matthíasdóttur sem opnuð var í
Hafnarborg í Hafnarfírði sl. föstu-
dagskvöld. Málverkin og vatnslita-
myndimar sem þar blasa við eru
úr vinnustofu listakonunnar i
New York þar sem fjölskyldan bjó
lengst af og einnig úr vinnustofu
hennar hér í Reykjavík. Þetta er
þriðja sýningin á fáum árum sem
haldin er í Hafnarborg á verkum
Louisu.
DV-MYNDIR SIG. JÖKULL
Bæjarstjórinn
Lúövík Geirsson bæjarstjóri opnaöi
sýninguna formiega.
Borgar sig ekki að
móti Bush
ríkjum. Fengu útvarpsstöðvar svo
margar kvartanir að Dixie Chicks
voru teknar af lista yfir flytjendur á
mörgum útvarpsstöðvum. Um helg-
ina sá Maines að þetta myndi skaða
Söngkona hins vinsæla tríós, Dix-
ie Chicks, Natalie Maines, fékk held-
ur betur að súpa seyðið af ummæl-
um sem hún hafði um Bush forseta
og stríðsstefnu hans í síðustu viku.
Maines, sem er frá Texas, sagði við
áhorfendur á tónleikum í London:
„Bara svo að þið vitið það þá
skömmumst við okkar fýrir það að
forseti Bandaríkjanna skuli vera frá
Texas.“
Það var eins og við manninn
mælt - allt varð vitlaust í Texas, þar
sem Dixie Chicks búa, og í fleiri
Colin og Kate
Ólíkt mörgum
kvikmyndastjörn-
um sem allt í einu
fá þær fréttir að
þær séu að verða
pabbar, tók Colin
Farrell fréttum um
að fyrrum kærasta
hans, módelið Kim
Bordenave, tilkynnti að hann væri
að verða pabbi fagnandi og lét nokk-
ur vel valin orð fylgja að írskum sið.
Það er annars það nýjasta að frétta
af hinum stanslaust djammandi Col-
in að hann hefur nú sést í fylgd
hinnar nýfráskildu Kate Beckinsale
og það oftar en einu sinni.
Richard Gere
Steppar í Chicago.
veraá
þær verulega og sendi frá sér afsök-
unartilkynningu: „Sem ábyrgur
Bandaríkjamaður þá bið ég Bush
forseta afsökunar á ummælum mín-
um sem voru ekki við hæfi. Ég tel
að hver sem er í forsetaembættinu
eigi skilið að honum sé sýnd virð-
ing.“ Þetta dæmi sýnir að þegar
þjóðerniskenndin nær tökum á
bandarísku þjóðinni, eins og nú er
að gerast, þá er betra fyrir þá sem
vilja vera í sviðsljósinu að spara
stóru orðin.
Lopez kennir
Gere að dansa
Einhver vinsælasta japanska
kvikmynd síðari ára er Shall We
Dance sem fjallar um einmana
miðaldra mann sem hrífst af dans-
kennara og skráir sig í tíma hjá
henni. Nú á að fara að endurgera
myndina í Hollywood og það er
Jennifer Lopez sem fær það hlut-
verk að leika danskennarann og
Richard Gere mun leika lífsleiðan
gjaldkera sem skráir sig í tíma hjá
henni og fær áhuga á lífinu á ný.
Lopez og Gere eru bæði ágætir
dansarar og má sjá Gere sýna
snilli sína í steppdansi í Chicago.
Kvikmynd um
Brian Epstein
Nú er í undir-
I búningi að gera
kvikmynd um Bri-
an Epstein, um-
boðsmann Bítl-
anna, manninn
sem uppgötvaði þá
og kom þeim á
framfæri og dó síð-
an þegar þeir voru
á hátindi frægðar-
innar. Það er Jude
Law sem kemur til
smn uppfylltan meg ag jejjja
um að/a aö stein. Hann er
leika Brian
Epstein.
Jude Law
Fær draum
lengi búinn að
ganga með þann
draum í maganum
að leika Epstein og unnið með hlé-
um í sjö ár að undirbúningnum,
sem nú virðist vera á lokastigi.
Epstein var 32 ára þegar hann lést
vegna ofneyslu svefntaflna í ágúst
árið 1967. Að öllum líkindum var
um slys að ræða þó sögusagnir um
sjálfsmorð hafi alltaf verið á
kreiki. Þetta verður fyrsta kvik-
myndin sem gerð verður um ævi
Brians Epsteins, en Jude Law hef-
ur áður verið rödd Epsteins í
heimildarmynd um hann.
REUTERS
Gamanlelkari í góöum félagsskap
Steve Martin heimsótti „óskarana“
á dögunum en hann undirbýr sig nú
undir aö vera kynnir á Óskarsverö-
launahátíöinni sem fram fer þann
23. mars næstkomandi. Martin er
enginn nýgræöingur þegar kemur aö
Óskarnum - hefur veriö í hlutverki
stjórnanda í sex skipti.
Kaölar og líkamsmálning
Hún er skrautleg fyrirsætan þar sem hún sýnir nýjustu tískulínu Fatimu Lopez
i París á dögunum. Líkamsmálning var einkennandi fyrir tiskulínu Lopez aö
þessu sinni og fatnaöurinn heldur efnislítill eins og sést.
lim Allen skilinn
Einn einn hjónaskilnaðurinn
hefur nú átt sér stað í Hollywood.
Hinn vinsæli sjónvarps- og kvik-
myndaleikari, Tim Allen, sem
meðal annars gerði garðinn fræg-
an sem handlaginn heimilisfaðir,
hefur nú skilið við eiginkonu
sína, Lauru Leiber, en þau giftu
sig árið 1984. Það var eiginkonan
sem fór fram á skilnaðinn og eins
og vanalega þá er það ósætti sem
er ástæðan, þó
flestir viti að
ástæðan er fram-
hjáhald eigin-
mannsins. Þau
eiga eina dóttur,
sem er þrettán
ára, og verður
um sameiginlegt forræði að ræða
hjá þeim. Allen er 49 ára og á rétt-
um aldri til að fá gráa fiðringinn.
Eastwood gerir
mynd um Armstrong
Leikstjórinn og leikarinn Clint
Eastwood vinnur nú að undirbún-
ingi kvikmyndar um Neil Arm-
strong en Armstrong var, eins og
kunnugt er, fyrsti maðurinn sem
steig fæti sínum á tunglið. Myndin
verður byggð á ævisögu hans eftir
James R. Hansen en hún var til-
nefnd til Pulitzer-verðlaunanna.
Myndin byrjar
þegar Armstrong
er flugmaður í
Kóreustríðinu og
endar þegar hann stígur á tunglið.
Ekki mun Clint Eastwood leika í
myndinni heldur lætur hann sér
nægja að framleiða og leikstýra
henni.
Clint Eastwood
Julia brjálaðist
Julia Roberts er
ekki ánægð með eig-
inmanninn, kvik-
myndatökumanninn
Danny Moder, þessa
dagana. Þau eru sam-
an að vinna að tökum
á kvikmyndinni Mona
Lisa Smile. Mótleik-
kona Juliu er Kirsten Dunst og dag
einn kom Julia að henni og eigin-
manninum saman í húsbíl og á nú
bágt með að trúa að ekkert hafi ver-
ið að gerast þeirra í millum. Kirsten
kom fljótt til Juliu og sagði að ekk-
ert hefði skeð en Julia á víst bágt
með að trúa því og einn vinur henn-
ar sagði að miðað við fyrri afrek
hennar á karlasviðinu þá gæti hún
allt eins rekið eiginmanninn frá sér
á morgun.
Tökumá
Sopranos
frestað
Það verður eng-
inn fimmta sería
um Sopranos-fjöl-
skylduna ef James
Gandolfini verður ekki í hlutverki
Tonys Sopranos. Eins og kunnugt
er hótaði hann verkfalli ef hann
fengi ekki kauphækkun. Ástæðan
fyrir þessari hótun var að fram-
leiðandi þáttanna og hugmynda-
smiður, David Chase, fékk víst
mikla kauphækkun en Gandolfini
ekki. Tökur á nýju þáttröðinni
áttu að hefjast 24. mars. Þeim hef-
ur nú verið frestað um óákveðinn
tíma eða þar til sættir takast.
a
James Gand-
olfini hefur
hleypt öllu t
háaloft.
Á sýningu
Gunnar Örn Gunnarsson myndiistarmaöur opnaö sýningu á nýjum verkum i Listasafni
ASÍ á laugardaginn. Gunnar Örn, sem er meöal þekktustu málara okkar, á að baki
farsælan feril og hefur hann haldið 42 einkasýningar, þar af 7 erlendis, meöal annars
i Kaupmannahöfn, New York og Haag. Auk þess hefur hann tekiö þátt í samsýningum
úti um allan heim. Margir voru viöstaddir opnunina á laugardaginn og er listamaöur-
inn til vinstri á myndinni ásamt Stefáni Erlendssyni.