Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2003, Síða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2003, Síða 27
NAMSKEIÐ í MARS! MÁNUDAGUR 17. MARS 2003 DV Tilvera ln the Shadows ★★ W Leigumorðingi og áhættuleikari Það hefur lítið farið I fyrir þeim ágæta leik- ara, Matthew Modine (Birdy, Fuil Metal Jacket), undanfarin ár. Liggur við að ætla að hann hafi farið í | felur eftir hina hræði- legu útreið sem Cutt- hroad Island fékk árið 1995 en þar lék hann aðalhlutverkið á móti Geenu Davis. Hér er Modine í miðl- ungs sakamálamynd, In the Shadows. Saga myndarinnar er góð og í henni er hópur góðra leikara. Það sem vantar er góður leikstjóri. Sá sem er við stjórnvölinn heitir Ric Roman Waugh og er fyrrum áhættu- leikari. Það besta við mynd hans eru einmitt áhættuatriðin sem við fáum innsýn i hvemig eru framkvæmd. Modine leikur leigumorðingjann, Eric, sem fær það verkefni að drepa leikstjóra áhættuatriða þar sem mafíuforingi telur hann ábyrgan fyr- ir dauða frænda síns. Þegar aftök- unni er frestað fær Eric áhuga á áhættuleik í gegnum dóttur þess sem hann á að myrða en henni hafði hann kynnst. Það kemur fljótt í ljós að Eric hefúr hæfileika I starfið. Nú vill hann hætta morðum og fara að leika. Ekki gengur það upp, fortíðin ber að dyrum og samningur er samn- ingur. Auk Matthews Modine leika i In the Shadows, James Caan, Cuba Gooding jr. og Joey Lauren Adams og leysa þau öll hlutverk sín vel af hendi. Það nægir þó ekki að bjarga myndinni sem er heldur misjöfii að gæðum. Einstaka atriði em spenn- andi en ekki er hægt að segja það um myndina í heild. -HK Útgefandi: Myndform. Gefin út á myndbandi og DVD. Leikstjóri: Ric Roman Waugh. Bandaríkin, 2001. Lengd: 95 mín. Bönnuð börnum innan 16 ára. Leikarar: Matthew Modine, James Caan, Cuba Gooding jr. og Joey Lauren Adams. Nailed ★ Pabbasaga Það er staðreynd að I Hollywood framleiðir kvikmyndir sem síð- an em markaðssettar fyrir ákveðna kyn- stofna. Ef við tökum American Pie-mynd- l imar era þær fyrst og fremst fyrir hvíta unglinga. Á móti kemur að Friday-myndimar em gerðar fyrir svarta unghnga. Nailed, sem skartar stórleikanum Harvey Keitel í einu aðalhlutverkanna, fór beint á myndbandamarkaðinn vestan hafs og er það auöskiljanlegt. Myndin er þreytandi og einht úttekt á for- eldrahlutverkinu. Það hefði kannski verið hægt að bjarga henni ef hún hefði eingöngu verið markaðssett fyr- ir gyöinga þar sem í henni er gyð- ingafjölskylda í hávegum höfð og lít- ið gert úr öörum. Harvey Keitel leik- ur höfúö fjölskyldunnar sem ekki skilur af hveiju uppáhaldið, elsti son- urinn, hefúr sest að í Hollywood og ætlar aö gerast handritshöfundur. Þegar sonurinn hittir fyrir unga stúlku og bamar hana reynir fjöl- skyldan öll tiltæk ráð til að stía þeim í sundur. Stúlkan, sem hefúr átt erf- iða ævi og er hlédræg, er ekki nógu góð fyrir fjölskylduna. Sonurinn finn- ur fyrir ábyrgðinni og byijar að búa meö stúlkunni án þess þó að endur- gjalda ást hennar. Svo megið þið giska á hvor aðilinn heldur baminu í lokin... Hvað Harvey Keitel hefur séð við hlutverk heimilisfóðurins er erfitt að sjá. Það er ekkert í því sem gefúr honum tilefni til að sýna hvað í honum býr. -HK Útgefandi: Bergvík. Gefin út á myndbandi og DVD. Leikstjóri: Joel Silverman. Bandaríkin, 2001. Lengd: 90 mín. Leyfð öllum aldurshóp- um. Leikarar: Harvey Ke'rtel, Brad Rowe, Rachel Blanchard og Mary Kay Place. 7. MP í Víðistaöaskóla í heimsókn á DV Alexander Oddnýjarson, Arnar Gauti Guömundsson, Bergþóra Hannesdóttir, Björn Sverrisson, Elín Ósk Ellertsdóttir, Erla Arnardóttir, Gylfi Helgason, Heiörún Viktorsdóttir, Helga Margrét Ólafsdóttir, Ingibjörg Pálmadóttir, ingunn Árna- dóttir, Pétur Berg Linduson, Ragna Björg Friöþjófsdóttir, Siguröur Ágústsson, Sonja Thorberg Bergsdóttir, Þorsteinn Viöarsson. Kennarinn er Margrét Pálsdóttir. . Hvatningarverðlaun til Síldarminjasafnsins: Fjónöa viðurkenningin Ók 800 kflómetra á dráttarvél „Ég er búinn að reka þetta fyrirtæki í tíu ár og er alveg bærilega sáttur við ganginn í þessu,“ sagði Jóhannes Erlendsson sem rekur Bíla- og búvélasöl- una á Hvammstanga þegar fréttamaður leit við hjá honum á dögunum. Jóhannes selur bæði ný og notuð tæki, traktora og margs konar landbúnaðar- tæki og svo nánast allar gerðir bifreiða. Hann er með umboð fyrir Ingvar Helgason og Bújöfur/Bú- vélar en selur líka fyrir fleiri bílaumboð og einnig fyrir kaupleigufyrirtækið Glitni. Hann segir að mesta salan í nýjum trakt- orum hafi verið árin 1996 og 1997 en þá rýmkaðist einmitt um lánafyrir- greiðslu til kaupa á drátt- arvélum. Þá voru að selj- ast þetta 30-40 nýjar vélar á ári. Síðustu ár hefur salan verið tregari í nýjum vélum en alltaf selst reitingur af notuðum traktor- um og ýmsum heyvinnutækjum. Hvað nýja bíla varðar er alltaf hreyfing, svona 60-100 á ári, segir Jóhannes. Þrátt fyrir að Bíla- og búvélasalan sé á Hvammstanga er sölusvæðið allt landið og menn DV-MYND ÖRN ÞÓRARINSSON Fallegur Ferguson Jóhannes Erlendsson, eigandi Bíla- og búvélasölunnar á Hvammstanga, viö forláta Ferguson-vél, árgerö 1952, sem hann geröi upp í fyrravetur og lítur út eins og ný. hringja mikið víða að af landinu til að kanna málin og fá ráðlegg- ingar, ekki síst varðandi landbún- aðartækin. í þessu sambandi rifjar Jóhann- es upp að eitt haustið fyrir nokkrum árum kom bóndi akandi á dráttarvél noröan úr Öxarfirði til hans í þeim tilgangi að skipta á vél. „Þetta var um 800 kílómetra langur túr í kílómetrum og hann gisti tvær nætur á Akureyri í ferð- inni. En ég held að hann hafi samt haft ágætt kaup fyrir að keyra vél- amar þessa leið miðað við að kaupa flutning með bíl,“ sagði Jó- hannes Erlendsson bfiasali. -ÖÞ Síldarminjasafnið á Siglu- firði fékk á dögunum svokölluð hvatningarverð- laun Iðnþróunarfélags Norð- urlands vestra fyrir árið 2002. Þetta er í fjórða skiptið sem INVEST veitir þessi verðlaun en þau eru veitt fyrirtækjum eða einstakling- um sem þótt hafa skarað að einhverju leyti fram úr á liðnu ári. Uppbygging Síldarminja- safnsins í Siglufirði hefur vakið mikla athygli undan- farin ár. Það framtak að varðveita búnað og mann- virki frá þessum tíma, sem voru tvímælalaust uppgangs- ár í landinu og varðveita þannig hluta af þjóðarsög- unni, hefur mælst afar vel fyrir. Þannig var Síld- arminjasafnið nú að fá fjórðu viðurkenningu sína. Fyrsta viðurkenningin var Nýsköp- unarverðlaun Ferðamáíaráðs árið 1998. Næst var heiður- , DV-MYND ÖRN ÞÖRARINSSON í Bræðsluminjahúsi Örlygur Kristfinnsson t.h. ásamt aöstoöarmanni sín- um, Kanadamanninum Chris Bogan, viö skilvindurnar í Bræösluminjahúsinu. sviðurkenning Lýðveldis- sjóðs Alþingis árið 1999 og árið 2000 fékk safnið íslensku safnverðlaunin en þá voru þau veitt í fyrsta sinn. Örlygur Kristfinnsson safnstjóri var að vonum ánægður með þessa nýjustu viðurkenningu þegar frétta- maður hitti hann á dögunum. Hann sagði að í vetur væri unnið af fullum krafti í svokölluðu Bræðsluminja- húsi og standa vonir til að húsið og búnaður verði frá- gengið í vor. í Bræðsluminja- húsinu er fjöldi verkfæra sem tilheyrðu bræöslu á sUd- inni og hefur mikið af þess- um búnaði verið sótt í gaml- ar síldarverksmiðjur á Hjalt- eyri og að Eyri í Ingólfsfirði. Þannig hafa ýmsir munir, bæði stórir og smáir, verið sóttir út fyrir Siglufjörð enda er Síldarminjasafnið lands- safn um þessa fyrrum stór- iðju íslendinga. -ÖÞ 14. MARS 08.00 til 12.30 Þjónusta og sala Reykjavík Fullbókað 15. MARS 10.00 til 17.00 Gæðasala og listin að loka sölu Akureyri Fullbókað 17. MARS 09.00 til 12.30 Gæðasala (tveir morgnar (röð) Reykjavlk Skráning stendur yfir 17. MARS 19.30 til 22.45 (tvö kvöld í röð) GÆÐASALA Reykjavík Skráning stendur yfir 19. MARS 19.00 til 22.45 Gæðasala 1+1=3 Reykjavík Fullbókað 22. MARS 10.00 til 16.30 Listin að loka sölu Reykjavík Fullbókað 24. MARS 09.00 til 12.30 Gæðasala (tveir morgnar í röð ) Reykjavík Skráning stendur yfir 24. MARS 19.30 til 22.45 (tvö kvöld f röð ) GÆÐASALA Reykjavík Fullbókað 31. MARS 09.00 til 12.30 Gæðasala (tveir morgnar í röð ) Reykjavík Skráning stendur yfir Við höfum sameiginlegt markmið - að þér gangi vel Söluskóli Gunnars Andra (SGA) er fimm ára þekkingar- og þjónustu- fyrirtaeki sem sérhaefir sig I nám- skeiðum og fyrirlestrum fyrir einstaklinga og smaerri sem stærri fyrirtæki. Markmið SGA er að hjálpa viðskipta- vinum slnum að ná fram aukinni sölu, bættri þjónustu og laða fram hámarksárangur hjá starfsfólki. SCsAt SÖLUSKÓLI GUNNARSANDRA Sími 822 8855 WWW.iga.il

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.