Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2003, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 17.03.2003, Page 28
52 MÁNUDAGUR 17. MARS 2003 Tilvera dv lífiö E F T I R V I N N U St. Patrick’s day á Kránni Það er St. Patrick’s day á ír- landi í dag og verður haldiö upp á daginn með viðeigandi hætti á Kránni við Laugaveg (áður Blús- barinn). írsk tilboð á barnum og írskt rokk í græjunum. Orðræða um stríð og kon- ur Vegna ástands heimsmála standa Rannsóknarstofa í kvennafræöum og UNIFEM á ís- landi fyrir málstofu kl. 16.15 í stofu 101 í Lögbergi, Háskóla ís- lands, um áhrif stríðsátaka á konur: nauðganir, kvenímyndir í stríðum. Rætt verður um her- fræðilegar orðræður sem taka fremur tillit til hins karllega en kvenlega. Jafnframt verður rætt um aukna áherslu og kröfu til þess að konur verði kallaðar til þátttöku í friðarumleitanir og lausn deilumála. Flutt verða fimm stutt erindi og sýnt verður brot úr heimildarmynd Grétu Ólafsdóttur og Susan Muska: Women, the forgotten face of war. Fundarstjóri er Rósa Erlingsdótt- ir. Erindin flytja: Kristín Ást- geirsdóttir, sagnfræðingur og framkvæmdastjóri mannréttinda- skrifstofu íslands, Steinunn Þóra Árnadóttir, BA í mannfræði og nemi í kynjafræði, Lilja Hjartar- dóttir stjórnmálafræðingur, Þor- lákur Einarsson, nemi í sagn- fræði, Birna Þórarinsdóttir nemi í stjómmálafræði. Pallborðsum- ræður. Staða leiklistarkennslu í grunn- og framhaldsskólum Fræðsludeild Þjóðleikhússins stendur fyrir opnum fundi um stöðu og framtíðarsýn leiklistar- kennslu í grunn- og framhalds- skólum landsins kl. 20 í Smíða- verkstæðinu. Meðal frummæl- enda er menntamálaráðherra Tómas Ingi Olrich. Á liðnum ár- um hefur verið vaxandi áhugi á því aö styrkja stöðu leiklistarinn- ar í skólakerfinu en hún er ekki viðurkennd sem kennslugrein í dag nema að takmörkuðu leyti. Umræður verða að framsöguer- indum loknum. Aðgangur ókeyp- is. 0 UmSStUllUlMSie 2525 Wá (mitw: ntl 2 150-153, ROV 211,213 U 2M : vinnmsstoiur lausardasinn - vw miLUÖnumt 15. mars u2y 2D?i)”) W32) JökertöLur vlkunnar LfTTi AUtaÍ i iniðuikadogum | Vinnlngslölui mlftvikudaginn | 12. mars Aðaltöiur Bónuslölur ... lókerlölur vikunnar w. DDQDD lókertöiur vikunnar Bútarnir eru bæði margir og skrautlegir í teppunum henn- ar Jónu Val- gerðar Hösk- uldsdóttur sem eru til sýnis í fé- lagsmiðstöðinni Garðabergi á Garðatorgi i Garðabæ. Tepp- in eru líka mörg með handsaumi og ástungnum myndum, auk þess sem mynstur í efnunum eru undirstrikuð með stungusporum sem gefa þeim aukna dýpt. „Mesta vinnan er oft við að skipuleggja litasamsetningu, efnisval og mynstur og skapa með þvi þá sögu sem verkið á að segja,“ segir Jóna. Þetta er hennar fyrsta einkasýn- ing og auk bútasaumsins eru þar líka smíðisgripir, enda heitir sýn- ingin Bútað og tálgað. Það er gam- an að fá leiðsögn hennar og láta hana lýsa hverju stykki fyrir sig og þeim pælingum sem á bak við það eru. Saumaði oft úr gömlu Jóna heldur upp á sjötugsaf- mælið sitt með þessari sýningu. Hún fæddist á ísafirði og átti þar heima til 16 ára aldurs. Lærði hjúkrun og starfaði við hana bæði í Danmörku og Garðabæ, auk þess Kvikmyndagagnrýni í N&9I I TS - Hrífandi náttúra Saumaö meö „hentistungu “ þ.e. saumurinn er látinn und- irstrika mynstriö í efninu. að kenna hjúkrunarfræði sem hliðarstarf. Hún er líka húsfreyja og fimm barna móðir. Eiginmann og son hefur hún nú misst en á fjórar dætur og íjórtán bamabörn. „Það hefur oft verið dálítið um að vera á heimilinu," segir hún bros- andi og kveðst hafa passað yngstu barnabörnin mikið síðustu ár. Ein dóttir hennar býr þó í Danmörku við nám og önnur í Englandi. (Anna Hildur Hildibrandsdóttir, fréttaritari RÚV i London). Aðspurð kveðst Jóna snemma hafa lært að sauma. „Móðir mín dó þegar ég var sjö ára og hún var búin að kenna mér kontórsting, flatsaum og fleiri spor. Svo hef ég lært af fleiri góðum konum og far- ið á nokkur námskeið,“ segir hún. Hún kveðst hafa saumað allt á sín börn meðan þau voru að vaxa úr grasi og oft upp úr gömlu. „Það DV-MYNDIR E.ÓL. Ustakonan „Þaö er best ég stilii mér upp hjá sambýliskonu minni, “ segir Jóna glettin og bregöur sér bak við stand meö bútasaumsjakka sem er einn sýningargripanna. var bara eins og maður þurfti að gera á þessum árum,“ segir hún. Haf, fiskar og fjöll Rétt rúm níu ár eru frá því hún byrjaði að sauma bútasaumsteppi. „Þá varð bróðir minn sextugur og mig langaöi að gefa honum eitt- hvað sérstakt," segir hún og bend- ir á fyrsta teppið sem enginn byrj- endabragur er þó á. Þar er afmæl- isbarnið fellt inn í, ásamt konu og gullsmiðslógói. Annar bróðir fékk teppi í afmælisgjöf .JÉ^.sem Bútaö og tálgaö í Garöabergi: Ævin rammast Háskólabíó - The Pianist ★★★★ Tónlist, blóð og tár Hilmar Karlsson skrifar gagnrýni um kvikmyndir. Píanóleikari í gettóinu Adrian Brody í hlutverki gyöingsins og píanóleikarans, Wladyslaws Szpilmans. í upphafi myndarinar The Pian- ist heyrum við Wladyslaw Szpilm- an (Adrian Brody) leika verk eftir Chopin. Eru þetta síðustu tónam- ir sem Szpilman leikur næstu fimm árin. Sögusviðið er Varsjá, árið 1939. Síðari heimsstyrjöldin er að hefjast og þar með gyðinga- ofsóknir nasista sem hvergi voru eins ofstækisfullar og langvarandi og í Póllandi. Szpilman var gyð- ingur og daginn sem hann er að spila í ríkisútvarpi Pólands gerðu nasistar fyrstu loftárásina og ein sprengjan lenti á útvarpsbygging- unni. Innrásin kom í kjölfarið og nasistar söfnuðu öllum gyðingum saman í einn borgarhluta, samtals 320 þúsund manns. Þessi borgar- hluti gekk undir nafninu gettóið. Þegar striðinu lauk 1945 var talið að aðeins um tuttugu gyðingar hefðu verið innan þessa borgar- hluta. Það eru þessi sex ár í lífi Szpilmans, sem Roman Polanski gerir að umfjöllunarefni i bestu kvikmynd sinni frá því hann gerði Chinatown (1974). Szpilman er þungamiðjan í myndinni, en Pol- anski liggur meira á hjarta en lífs- hlaup hans. Polanski þekkir hel- fórina að eigin raun. Hann ólst upp í Varsjá og var sjö ára þegar nasistar hertóku borgina. Foreldr- ar hans lentu í útrýmingarbúðum nasista og móðir hans lést þar. Sjálfur lenti hann á vergangi og tókst að flýja gettóið. Var hann meira og minna í felum öll stríðs- árin. Þannig að ljóst er að Pol- anski er ekki aðeins að kvik- mynda ævi Szpilmans, heldur kaf- ar í eigin sál í leit að minningum og útkoman er ein allra besta kvikmynd sem gerð hefur verið um útrýmingarherferö nasista og skipar sér við hlið Schindler’s List. Tónlistarhæfileikar Szpilmans verða til þess að honum er bjarg- að frá þeim örlögum að lenda í út- rýmingarbúðum nasista. Fjöl- skylda hans er ekki eins heppin og er ekki nánar fjallað um afdrif hennar eftir að viðskilnaðurinn verður. Szpilman er um skeið í gettóinu þar sem hann fyllir flokk manna sem ætla ekki að láta lífið baráttulaust. Utan múra gettósins á hann vini sem koma honum i felur þegar hann flýr. Eftir þetta erum við nánast í návígi við eina persónu sem stendur í skugga ógnarinnar. Maður sem veit að ef hann fmnst þá verður hann drep- inn. Lífsviljinn er mikill og harmur- inn einnig. Hin samhenta fjöl- skylda Szpielmans er horfin og daglega fylgist hann með úr fjar- lægð þeim hörmungum sem yfir þjóð hans gengur. Trú hans á manngæsku minnkar með hverj- um degi þar sem hann er einnig svikinn af pólskum manni sem á að sjá honum fyrir nauösynjum. Það er ekki nema von að hann telji daga sína talda þegar hann stendur allt í einu augliti til auglitis við vopnum búinn þýskan foringja. í íbúðinni þar sem hann hefur dvalist í felum um skeið er flygill. Þegar þýski foringinn spyr hvað hann hafi gert fyrir stríð seg- ist hann hafa verið píanóleikari. Flygillinn bjargar honum. Þetta er á síðustu dögum stríðsins, borgin nötrar af sprengingum og nasistar undirbúa brottfor. Minningar Polanskis frá stríð- inu hljóta að vera daprar og hug- ur hans til nasista ekki hlýr. Þetta kemur ekki fram í neinum öfgum í mynd hans sem er, um leið og hún sýnir okkur hryllinginn, hlaöin mannlegum tilfmningum. Polanski er ekkert að hlífa Þjóð- verjum við þau grimmdarverkum sem þeir frömdu á pólsku þjóðinni en hann hann gefur þeim sénsinn. „Góði Þjóðverjinn" er til staðar og einnig „vondi Pólverjinn". í besta atriði myndarinnar sameinar tón- listin tvær aðkrepptar sálir. Grimmdin sem alltaf hefur verið í nærmynd hverfur þegar Szpi- elman leikur Chopin. Alveg eins og upphaflð að helfórinni hófst undir tónum Chopins þá er endir- inn í nánd undir tónum sama tón- skálds. Persónur koma og fara í The Pi- anist og hafa allar stutta viðveru fyrir utan Szpilman, sem Adrian Brody leikur á áhrifamikinn hátt. Leikur hans er hægur en um leið kraftmikill. Hann túlkar sjálfsör- uggan listamann í upphafi mynd- arinnar, mann sem talar ákveðið og hnitmiöað. í lokin er sami mað- ur nánast orðin að dýri, umlar setningar sem verða næstum óskiljanlegar. Þegar hann síðan sest við píanóið kemur reisnin smám saman aftur. Þetta er allt sýnilegt í mögnuðum leik Adrians Brodys og hjálpar leikur hans til að gera The Pianist að eftirminni- legri og sterkri kvikmynd. Leikstjóri: Roman Polanski. Hand- rit: Ronald Harwood. Kvikmynda- taka: Pawel Edelman. Tónlist: Wojciech Kilar. Aðalleikarar: Adri- an Brody, Thomas Kretschmann, Frank Finlay, Emilia Fox og Maureen Lipman.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.