Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2003, Page 4
4
FÖSTUDAGUR 21. MARS 2003
DV
Fréttir
Varaformaöur Félags íslenskra nuddara um erótísku stofurnar:
Getur komið óonði á stéttina
Flestir
venjulegip
feðup
Jmatíbífit i fcvéfcfi*. t*r* tíj*
*&&&&»» **w 4*»*», * '&li-t* |x<:s < »>"
i&ma »■#*». vst#t>gtMa
ilSstota.sanfctjöíiífcwieí tío» ttKn&ZKt íijfe sttíMiais rím; <
it< -i ‘ > w> ^na«w |mi tn n»ii ara.w tscn w «
Frétt DV um erótískar nuddstofur í gær.
„Viö óttumst vissulega að þetta
geti komið óorði á stéttina," sagði
Guðbrandur Einarsson, varafor-
maður Félags íslenskra nuddara,
um starfsemi tveggja erótískra
nuddstofa sem starfræktar eru
fyrir opnum tjöldum I Reykjavík.
DV hefur fjallað um starfsemi
umræddra stofa, X -nudds og Er-
osnudds, síðustu daga. Nuddarar
þeir sem þar starfa eru naktir við
vinnu sína, sé þess óskað. Mark-
miðið er að veita viðskiptavinun-
um „erótíska afþreyingu.“ Fyrr-
nefnda stofan veitir einungis karl-
mönnum þjónustu sína, meðan
hin síðarnefnda býður einnig
paranudd, útkallsþjónustu og
„sexý bi-show“. Það að starfsfólkið
skuli kalla sig nuddara fer fyrir
brjóstið á Félagi íslenskra nudd-
ara.
Guðbrandur sagði að enn lægju
engar staðfestingar fyrir um að of-
angreind starfsemi hefði komið
óorði á nuddarastéttina. Hins veg-
ar kæmi nú í ljós hversu bagalegt
það væri að starfsemi nuddara
væri ekki lögvernduð starfsgrein.
Þar hefðu stjórnvöld „dregið lapp-
imar“. Sjúkranuddið væri einung-
is lögverndað en hver sem væri
gæti kallað sig nuddara og starfað
sem slíkur, jafnvel fólk sem lokið
hefði einhvers konar helgarnám-
skeiði, meðan námið sjálft tæki
fjögur ár.
Guðbrandur sagði enn fremur
að nuddarar myndu á næstunni
senda efni í fjölmiðla til að kynna
starf sitt og koma í veg fyrir hugs-
anlegan misskilning vegna þessar-
ar nýju starfsemi, þ.e. erótísku
nuddstofanna, sem nú hefði skotið
upp kollinum hér á landi. Þá væri
fyrirhugaður aðalfundur Félags
íslenskra nuddara. Að honum af-
stöðnum yrði settur þrýstingur á
að fá atvinnugreinina lögvernd-
aða, sem brýn nauðsyn væri á
eins og málum væri nú komið.
-JSS
Kröftug og litrík mótmæli
Lögreglan í Reykjavík hefur enn
ekki haft uppi á þeim sem skvettu
rauðri málningu á framhlið Stjóm-
arráðsins við Lækjargötu í gærdag.
Húsbóndinn á staðnum, Davíð
Oddsson forsætisráðherra, kallaði
þá sem þetta gerðu „málaliða" en
vildi að öðm leyti lítið tjá sig um
þessa tegund mótmæla.
Lögreglan lítur hins vegar þetta
atvik alvarlegum augum og mun í
Sóðaskapur?
Lögreglunni var ekki skemmt á
Lækjartorgi í gær og því síöur
félögum þeirra sem þurftu aö þrífa
upp sletturnar.
dag skoða eftirlitsmyndavélar frá
staðnum sem ef til vill gefa vís-
bendingar um hverjir vora þarna á
ferð. Starfsmenn slökkviliösins
unnu að því að þrifa Stjómarráðið
síðdegis í gær en það gekk illa.
Kröftug mótmæli
Lögreglan áætlar að í gær hafi
hátt í tvö þúsund manns mætt á
mótmælafund á Lækjartorgi gegn
stríðsrekstrinum í írak og stuðn-
ingi íslenskra stjórnvalda við
stefnu Bandaríkjanna og Breta í
málefnum Miðausturrlanda. Mót-
mælin fóru friðsamlega fram.
Meðal ræðumanna var Ögmund-
ur Jónasson, þingmaður Vinstri
grænna, sem fór mikinn í ræðu
sinni og endurtók svo undir tók á
torginu að stríðsreksturinn í írak
væri „ekki í okkar nafni“. Áhersla
var lögð á að helstu fórnarlömb
þessa „ólöglega" stríðsreksturs
yrðu óbreyttir borgarar í landinu
sem hefðu þjáðst mjög á síðustu ár-
um vegna viðskiptabannsins á
írak.
Leikræn mótmæli
Á meðan ræðumenn lögðu
áherslu á mál sitt á Lækjartorgi í
gær lágu leiklistarnemar í „valn-
um“ framan við Stjórnarráðið.
Þeir vildu með leikrænum tilþrif-
um sínum minna á að stríðið
beindist, þegar allt kæmi til alls,
gegn saklausum borgurum í írak
Yflrheyrsla
Mótmælendur á Lækjartorgi útskýra mál sitt. Þessi heiöursmaöur kvaöst
ekki hafa skvett málningunni á veggi Stjórnarráösins. Hann væri einungis aö
mótmæla stríöinu meö táknrænum hætti.
og kváðust óttast að þúsundir þessa dagana væri beitt á bökkum
þeirra yrðu stráfelldir með full- Efrat og Tígris.
komnustu hertækni heims sem -aþ
„Ekkl í okkar nafni...“
Ögmundur Jónasson alþingismaöur mótmælti ákaft á Lækjartorgi í gær
ásamt stórum hópi landsmanna sem tetur stjórnvöld hafa farið gegn vilja
þjóöarinnar í málefnum Miöausturlanda.
Leikrænir tllburóir
Nemendur Leiktistarskóia íslands sýndu hæfileika sína framan viö
Stjórnarráöiö og vantaöi ekki leikmuni og búninga.
Hriplekur háskóli
Á sama tíma og stjórnmálamenn
ræddu málefni Háskólans í
hátíðarsal aöalbyggingar í gær
vætlaöi vatniö inn um glugga á
jaröhæð. Á fundinum var m.a. rætt
um fjárframlög til skólans og
nauðsyn þess aö hækka þau.
Rauði kross íslands:
Söfnun vegna hjálp-
arstarfs í írak
Rauöi kross íslands stendur
fyrir söfnun vegna hjálparstarfs í
írak Á annað hundrað starfs-
manna Alþjóða rauða krossins
eru nú í írak við hjálparstörf og
er megináhersla lögð á að aðstoða
almenna borgara, útvega drykkj-
arvatn og hjúkra særðum. Einn
sendifulltrúi Rauða kross íslands
er í Jórdaníu og fleiri eru í við-
bragðsstöðu ef á þarf að halda.
Söfnunarsími Rauða kross ís-
lands er 907-2020 og getur fólk
hringt og lagt fram þúsund krón-
ur af símreikningi. Einnig er
hægt að fara inn á vef félagsins,
www.redcross.is og setja framlag-
ið á greiðslukort. -EKÁ
Sex mánaða fangelsi
fyrir ölvunarakstur
Héraðsdómur Norðurlands
eystra dæmdi rúmlega tvítugan
mann í sex mánaða fangelsi, þar
af fimm mánuði skilorðsbundið,
fyrir að hafa ekið bíl réttinda-
sviptur og undir áhrifum áfengis.
Einnig var hann sviptur ökurétt-
indum í tvö ár. Maðurinn hefur
fjórum sinnum áður hlotið refsi-
dóma, m.a. vegna ölvunaraksturs
og rauf skilorð með broti sínu.
-EKÁ
Geðheilbrigðiskerfið:
Öllum tryggður
jafn aðgangur
„Öllum verði tryggður jafn að-
gangur að geðheilbrigðiskerfinu.
Þjónustan verði sniðin að þörfum
og á forsendum notenda þjónust-
unnar.“ Svo segir m.a. í ályktun fé-
laga og samtaka sem sammælst
hafa um sameiginlegar áherslur er
lúta að geðheilbrigðismálum. Enn
fremur segir að virðing veröi höfð í
fyrirrúmi í samskiptum meðferðar-
aðila við notendur þjónustunnar.
Aðstaða og umhverfi verði skapað
til að uppfylla þessi skilyrði.
Loks er undirstrikað að áhersla
verði lögð á breytta stefnu í ríkj-
andi meðferðarúrræðum þar sem
notkun og ávísun geðlyfja verði tek-
in til gagngerrar endurskoðunar.
Efld verði til muna aðkoma þver-
faglegra aðila að meðferðarúrræð-
um. Gengið verði frá samningum
varðandi greiðslur af hálfu al-
mannatryggingakerfisins fyrir sál-
fræðiþjónustu á sama hátt og fyrir
geölæknisþjónustu.
Að ályktuninni standa Geðhjálp,
Þroskahjálp, Blindrafélagið, MS-fé-
lag íslands, Félag heymarlausra,
Kraftur - Styrktarfélag, Sjálfs-
björg landssamband fatlaðra,
Áhugahópur um geðheilbrigðismál
og Umhyggja, styrktarfélag lang-
veikra barna. -JSS