Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2003, Side 8
8
Útlönd
FÖSTUDAGUR 21. MARS 2003
Mótspyrna íraka mun öflugri
en fyrirfram var búist við
Bandarískar og breskar her-
sveitir héldu í bítið í morgun
áfram sókn sinni Iandleiðina inn í
suðurhluta íraks í viðleitni sinni
til þess að leggja undir sig og
vernda olíuvinnslusvæðin frá
hugsanlegum árásum hersveita
Saddams Husseins.
Mótspyrna íraska hersins á ol-
íusvæðum hefur verið mun harð-
ari heldur en fyrirfram var búist
við og varð ein herdeild banda-
manna til dæmis fyrir öflugri árás
þegar hún var rétt komin inn fyr-
ir landamæri íraks frá Kúveit.
Að sögn talsmanns bandaríska
hersins beittu írösku hermennim-
ir aðallega léttvopnum og
sprengjuflaugum og tókst með því
að stöðva sókn bandamanna.
Það var ekki fyrr en breskt stór-
skotalið með aðetur í noðurhluta
íraks hafði gert öfluga stórskota-
hríð á hersveit íraka að vamir
þeirra brustu.
í morgun bárust einnig fréttir af
hörðum bardögum á olíusvæöun-
um í norðurhluta íraks en þar
gerðu bandarískar sérsveitir til-
raun til þess að brjótast í gegnum
varnir íraka og ná stærstu olíou-
lindunum á svæðinu á sitt vald.
Samkvæmt heimOdum frá olíu-
borginni Kirkuk er nú hart barist
í nágrenni borgarinnar og heyrð-
ust miklar sprengingar og drunur
í alla nótt og morgun. Þá mun
einnig barist í nágrenni borgar-
innar Masol, en hún er önnur
stærsta borgin á olíusvæðunum í
norðurhluta íraks og er haft eftir
talsmanni kúrdískra stjómvalda
að Bandaríkjamenn hefðu í nótt
gert harða loftárás á flugvöll í ná-
grenni borgarinnar.
Ein könnunarsveit er sögð hafa
náð að komast um tvö hundruð
kílómetra inn í land vestur með
ánni Efrat en þaðan sáust miklir
eldar og reykur frá olíusvæðunum
og óttast að írakar séu þegar byrj-
aðir að sprengja upp olíulindirn-
ar.
Á öðrum svæðum hafa hersveit-
ir bandamanna mætt lítilli mót-
spyrnu og hefur sést til langra
herflutningalesta víða um eyði-
mörkina á leiðinni í áttina til
Bagdad.
Að sögn BBC-fréttastofunnar
sást til íraskra hermanna sem
voru að gefast upp fyrir herjum
bandamanna í landamæri Kúveit
en talið er að hundruð þeirra hafi
þegar gefist upp.
REUTERSMYND
Landgönguliöinn og draumadísin
Rykugur bandarískur landgönguliöi stendur viö farartæki sitt í eyöimörkinni í sunnanveröu írak. Eins og sjá má veröa
hermenn aö hafa eitthvaö skemmtilegt til aö hugsa um áöur en þeir taka upp vopnin og skjóta.
Bush Bandaríkjaforseti segir
vmafyMnguna fara sístækkandi
Straw stendur
við skammir
í garð Frakka
Jack Straw, utanríkisráðherra
Bretlands, sagðist í morgun
standa við þær ásakanir sínar að
Frakkar hefðu komið í veg fyrir
friðsamlega lausn íraksdeilunnar.
Franskur starfsbróðir hans kvart-
aði sáran undan orðum Straws.
„Ég stend við þau orð sem ég
hef notað,“ sagði Straw við
breska fréttamenn á leiðtogafundi
Evrópusambandsins í Brussel,
eftir það sem hann kallaði erfiðar
viðræður leiðtoganna um stríð
Bandaríkjanna og bandamanna
þeirra í írak.
Frakkar voru eindregnustu
andstæðingar stríðs á vettvangi
Öryggisráðs SÞ og hótuðu að
beita neitunarvaldi sínu til að
koma í veg fyrir samþykki álykt-
unar sem heimilaði vopnavald.
„Ég harma það ekki að við
skulum hafa deilt, að við skyld-
um vera ósammála Frökkum, af
því að við erum það,“ sagði
breski utanríkisráðherrann.
Bóndinn í beinni
útsendingu
Bandaríska konan Stefanie Lyle
komst í nótt að þvi að hvaða störf-
um eiginmaður hennar gegnir hjá
Bandaríkjaher þegar hún sá hann
ráðast inn í frak á skriðdreka í
beinni útsendingu á sjónvarpsstöð-
inni CNN.
Stefanie kvaðst hæstánægð með
að hafa séð manninn sinn heilan á
húfi í sjónvarpinu. „Ég setti strax
spólu í tækið og hóf upptöku. Mér
finnst æðislegt að geta séð hvað er
að gerast hinum megin á hnettin-
um í gegnum gervihnetti. Nú get
ég sett spóluna í tækið og horft á
hann að vild,“ sagði Stefanie um
sinn ástkæra bónda.
Bandarísk stjórnvöld segja að
sífellt fleiri lönd hafi opinberlega
lýst yfir stuðningi sínum við hern-
aðaraðgerðimar í írak.
George W. Bush forseti sagði
eftir ríkisstjómarfund í gær að
rúmlææega fjörutíu þjóðir styddu
aðgerðimar.
„Við erum þakklátir fyrir stað-
festu þeirra, við kunnum að meta
sýn þeirra á málin og við fógnum
stuöningi þeirra,“ sagði Bush.
Fyrr um daginn hafði Ari
Fleischer, talsmaður Hvíta húss-
ins, sagt að í samfylkingunni
væru lönd í öllum heimsálfum þar
sem byggi fólk af öllum kynþátt-
um og aðhylltist öll trúarbrögð og
að samanlagður ibúaljöldi þeirra
væri 1,2 milljarðar.
Donald Rumsfeld landvarnaráð-
REUTERESMYND
Donald Rumsfeld
BAndaríski landvarnaráöherrann er
ánægöur meö vinafjöldann.
herra sagði að bandamannafylk-
ingin nú væri stærri en hún var í
Persaflóastríðinu 1991.
Ekki eru þó allir á því að þessar
yfirlýsingar ráðamanna vestra
standist nánari skoðun á þeim
gögnum sem þeir hafa sjálfir látið
frá sér fara.
í Persaflóastríðinu hinu fyrra
sendu 33 lönd hermenn sína til
Persaflóasvæðisins, þar af sextán
sendu sextán þjóðir bardagasveit-
ir, meðal annars nokkur
arabalönd.
Að þessu sinni taka aðeins þátt
í bardögunum hermenn frá þrem-
ur löndum, Bandaríkjunum, Bret-
landi og Ástralíu. Vitað er að tíu
önnur lönd hafa boðið fram litlar
sveitir sem ekki taka þátt í bar-
dögunum.
Saddam Hussein
Ekki er vitað hvort erkióvinurinn
sé lífs eöa liöinn.
Saddam Hussein og synir hans:
Lífs eða liðnip?
Forseti íraks, Saddam Hussein, og
hugsanlega báðir synir hans voru
staddir í neðanjarðarbyrgi sem varð
fyrir sprengjum þegar loftárásir
Bandamanna hófust í fyrrinótt. Þetta
segja ónafngreindir heimildarmenn
bandaríska blaðsins Washington Post
sem eru háttsettir innan ríkisstjóm-
ar Bush.
Sömu heimildir segja að ekki sé
vitað hvort Hussein hafi farist en
ýmislegt bendi þó til þess að hann
hafi orðið fyrir meiðslum. Allt eins
sé þó hugsanlegt að hann hafi slopp-
ið óskaðaður frá loftárásunum.
Irösk sjónvarpsstöð sýndi í gær
ávarp frá Hussein þar sem hann for-
dæmdi Bandaríkjamenn, en allt eins
er talið að þar hafi verið að verki
einn af hans fjölmörgu tviforum.
Ómetanlegar
minjar í luettu
Innrás Bandamanna í Irak gæti
orðið til þess að gríðarlega verð-
mætar fomminjar glatist, en í Irak
er að finna sögulega muni sem
fræðimenn víða um heim segja
hreinlega ómetanlega.
„Einhverjir munir eru vissulega
þýðingarlitlir ef vegið er á móti
mannslífum, en í írak er engu að
síður að finna hluti sem eru ómet-
anlegir í menningarlegu sam-
hengi," segir McGuire Gibson, pró-
fessor við Háskólann í Chicago.
Gibson og fleiri fræðimenn hafa
sagt yfirmönnum vamarinálaráðu-
neytisins frá þeim svæðum þar
sem verðmætustu minjamar eru og
beðið um að hermenn haldi sig
sem mest frá þeim svæðum.
Britney Spears
Hrapar niöur vinsældalistann
Klámið víkur
fyrip stpíðinu
„Stríð" var vinsælasta leitar-
orðið á internetinu í gær og
skellti orðinu „klám“ úr toppsæt-
inu. Slanguryrði tengd kynlífi
hafa löngum haft yfirburði hvað
varðar leit á veraldarvefnum en
nú virðist sem stríðið sé heitasta
afþreyingarefnið.
„Stríðið skaust framfyrir þessi
hefðbundnu orð eins og klám,
ferðalög og Britney Spears,“ segir
Nadia Schofield, talsmaður Frees-
erve intemetsfyrirtækisins, sem
er það stærsta sinnar tegundar í
Bretlandi.