Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2003, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2003, Side 11
11 FÖSTUDAGUR 21. MARS 2003 PV____________________________________________________________Útlönd Tugir þúsunda Bandaríkjamanna mótmæla hernaðaraðgerðunum - fjöldahandtökur í San Francisco Allt að 1400 voru handteknir í San Francisco í gær þegar tíu þúsund Bandaríkjamenn mótmæltu stríðs- rekstrinum í írak víða um land. Er það mesti fjöldi sem lögreglan hand- tekur í mótmælum í einstakri borg síðustu 22 árin. „Ef þetta er að gerast í öllum borgum Bandaríkjanna þá verða stjómvöld annað hvort tilneydd til að setja herlög eða binda enda á stríðið," sagði einn námsmanna frá Berkeley-háskóla, sem þátt tók í mót- mælunum en hann og sextán félagar hans höfðu hlekkjað sig saman á einu breiðstræta San Francisco. Stríðinu var mótmælt í fleiri stór- borgum og á mesta annatíma í morg- un höfðu meira en hundrað mótmæl- endur lokað Key Bridge, helsstu sam- gönguleiðinni frá Virginíu inn i Geor- getown í nágrenni Washington og voru þrír mótmælendur handteknir þar. Stuttu síðar komu um hundrað mót- mælendur saman í mikilli rigningu í nágrenni Hvíta hússins en áður höfðu um 350 manns truflað umferð um að- alsamgönguleiðina út úr miðborginni á mesta annatíma í gærkvöld. íbúar New York, sem báru þungar byrðar hryðjuverkaárásanna þann 11. september 2001, mótmæltu einnig og þar bar mest á hópi frá samtökum fjöl- skyldna fórnarlamba hryðjuverka- árásanna, sem berjast fyrir betri heimi, en þau fordæmdu hemaðarað- gerðimar og sögðu þær ólöglegar og siðlausar. Stór hópur kom einnig saman á Time Square á mesta annatima í morgun. Þar ruddust mótmælendur yfir hindranir lögreglunnar og lokuðu á alla umferð til og frá Broadway. Að sögn lögreglunnar var 21 handtekinn. í Pittsburg glímdi lögreglan við nokkra herskáa mótmælendur og voru flmmtíu handteknir, þeir yngstu aðeins fjórtán ára. Mikil mótmæli fóru einnig fram víða í Evrópu og í Aþenu gengu um tíu þúsund manns um götur borgar- innar að bandaríka sendiráðinu. Á Ítalíu urðu mótmælin mest í Róm en þar hópuðust námsmenn og verka- fólk saman við þinghúsið. í Tórínó tóku um tuttugu þúsund manns þátt í mótmælagöngu, sem endaði með mótmælafundi við aðalbrautarstöð- ina. Þar fór allt fram með friði og spekt en í Feneyjum var eggjum kast- að að breska sendiráðinu. í París hafði verið boðað til mót- mælastöðu við bandariska sendiráðið en óeirðalögreglan girti svæðið af og tók sér stöðu með skUdi og háþrýsti- dælur til að halda fólkinu frá svæðinu. í Þýskalandi urðu mótmælin mest í Berlin en þar gegnu um fimmtíu þúsund manns um miðborgina gegn- um Brandenborgarhliðið að Alex- anderstorgi þar sem mótmælastaða fór fram gengt bandariska sendiráð- inu. Þá kom einnig tU öflugra mótmæla á Spáni, en fjölmennust urði þau í Madrid þar sem safnast var saman framan við bandaríka sendiráðið. í Ástralíu var stríðinu einnig mót- mælt kröftuglega í öllum stærstu borgum landsins en Sölmennust urðu þau í Melboume þar sem um fjörtíu þúsund manns gengu um götur borg- arinnar á meðan fimmtán þúsund mótmæltu í Sydney. Sömu sögu er að segja frá Asíu en þar var stríðinu mótmælt í flestum stórborgum álfunnar. REUTERSMYND Hörð mótmæli í San Francisco Allt að 1400 voru handteknir í San Francisco í gær þegar tíu þúsund Bandaríkjamenn mótmæltu stríðsrekstrinum í írak víða um land. Það er mesti fjöldi sem lögreglan handtekur í mötmælum í einstakri borg síðustu 22 árin. Þyrla á vegum bandaríska hersins fórst skammt frá landamærum íraks: 14 bandamenn f órust Átta breskir og fjórir bandarísk- ir hermenn fórust þegar herþyrla á vegum bandamanna fórst rétt við borgina Umm Qasr í Kuwait, um 15 km sunnan landamæra írak i nótt. Þetta eru fyrstu hermenn Banda- manna sem falla siðan að hemað- araðgerðir gegn írak hófust, en all- ir þeir sem í þyrlunni voru létu líf- ið. Sögusagnir þess efnis að þyrlan hefði verið skotin niður komust fljótt á kreik en var fljótt vísað á bug. Talið er fullvíst að vélarbilun hafi ollið því að þyrlan, sem er af gerðinni CH-46 og var í eigu fót- göngusveita bandaríska hemaðar- flotans, hrapaði. „Enn er verið að rannsaka tildrö- d slyssins en við höfum enga ástæðu til að halda að andstæðing- DV-MYND REUTERS Hér sést þyrla af gerðlnnl CH-46 eins og sú sem fórst í Kúveit í nótt. 16 bandamenn létu lífið í slysinu. ar okkar hefðu verið að verki,“ sagði einn af talsmönnum fót- göngusveitarinnar i nótt. Vandræði með þyrlurnar Þetta er þriðja þyrlan sem ferst á vígvellinum síðan að striðið hófst síðustu nótt. Fyrst var það þyrla af gerðinni MH-53 Pave Low, sem til- heyrir bandaríska flæughemum, sem fórst en síðar í gær eyðilagðist einnig AH-64 Apache árásarþyrla. Báðar þessar þyrlur fómst vegna of harkalegrar lendingar en allir þeir hermenn sem í þeim voru sluppu óskaðaðir. Þyrluslysið í nótt átti sér stað á fjórða tímanum, þegar klukkan var 40 mínútur yfir miðnætti að ís- lenskum tima. um 15 km sunnan írösku landamæranna. Kjóladagar hjá Sissu tískuhúsi Ný sending af kjólum 20% afsláttur 21. og 22. mars (st.36-52) Sissá tískuhús mm.-m CVVA mPÆmjf vSwUvMp JILfEPiþ BÓHUSVÍDEÓ ÞARFASK ÞJÓNNINN!

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.