Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2003, Page 14
14
Menning
Snilld er huggun
í skugga yfirvofandi stríðsátaka í
írak voru haldnir tónleikar í Salnum
í Kópavogi síðastliðið miðvikudags-
kvöld. Fádæma aðsókn var að þess-
um atburði. Harmónikuleikarinn
Tatu Kantomaa lék á annan tug
verka fyrir hljóðfæri sitt, mörg hver
eftir finnsk tónskáld. Stærstu verkin
voru eftir kennara hans, Veikko
Ahvenainen, og hinn nafnkunna og
vinsæla Einojuhani Rautavaara.
Sem dæmi um vinsældimar fengu
gestir Sinfóníuhljómsveitar íslands
nýverið tækifæri til að hlýða á
flautukonsert eftir Rautavaara.
Á sama tíma og hermenn biðu víg-
búnir í startholunum, tilbúnir að
beita öllum hemaðarlegum ávöxtum
hugvits mannsins gegn öðrum mönn-
um í beinni útsendingu, sátu sem
sagt fjölmargir gestir í Salnum og
hlýddu á harmónikuleik. Þar var
ákveðið mótvægi að finna. Þar sátu
gestir sameinaðir og þáðu gjafír
hinnar hreinu gjafmildi. Snilld hljóð-
færaleikarans er afrakstur gífurlegr-
ar vinnu sem byggir á grunni nánast
ólýsanlegra hæfíleika. Þegar því er
deilt með samferðamönnum er það
viðburður sem hlýtur að teljast á
öndverðum enda við ljótleika stríðs.
Harmónikan reyndist í höndum
Kantomaa vera hljóðfæri sem ekki
DV-MYND HARI
Harmónikusnlllingurlnn Tatu Kantomaa
Vald hans á hljóöfæri sínu er algert og túlkun hans alltaf næm.
getur bara grátið og sungið heldur
geymir hún möguleika til sköpunar á
safni hljóðeffekta sem voru fagurlega
nýttir í vel völdum verkunum á efnis-
skránni. Dropahljóðið sem heyrðist í
fyrsta verkinu, vindar og stunur í öðr-
um og hreinlega heilt leikhús í Valsi
trúðsins. Dálítið Ives-leg samsetning í
óheflaðri skrúðgöngunni í fyrsta kafla
verksins eftir Rautavaara var sérlega
skemmtileg.
Kantomaa er tónlistarsnillingur. Vald
hans á hljóðfæri sínu er algert og túlk-
un hans alltaf næm og þannig unnin að
við engu ætti að hrófla. Það er ekki auð-
velt að lýsa snilld og verður ekki reynt
hér, samt er rétt að nefna eitthvað af
því sem gerir leik hans svo ómótstæði-
legan. Styrkleikabreytingar eru í leik
hans eins og birtubrigði eru í málverki
bestu málara. Hann getur t.d. leikið svo
örveikt og fínlega en þó svo hratt og ör-
ugglega að annað eins hefur varla
heyrst. Hann hefur líka slíkt vald á
hryn og hrynbreytingum að unun er að.
Sveiflan er grípandi í öllum hendingum
og þagnimar hlaðnar þessari spennu
sem fylgir einstakri hrynskynjun. Upp-
skrúfaðar lýsingar geta aldrei gefið
nema óljósa tilfinningu fyrir því sem
svona snillingar gefa gestum sínum.
Klappið sem dundi á Kantomaa í lokin
var tilraun til þakkar frá þeim sem
fengu að njóta.
Sigfríður Björnsdóttir
Spor í Höfn
- sýning opnuö á vegum Handverks og hönnunar í Sívalaturni í dag
í dag kl. 16 verður opnuð í Sívalaturninum
í Kaupmannahöfn sýning á íslensku hand-
verki og listiðnaði á vegum Handverks og
hönnunar. í turninum er fallegur sýningar-
salur sem margir þekkja enda er hann frá-
bærlega staðsettur í hjarta borgarinnar.
Þetta er sýningin Spor sem fyrst var sett upp
í Hafnarborg í nóvember sl.
í aðdraganda sýningarinnar var haldin
samkeppni sem var öllum opin og dómnefnd
valdi úr innsendum munum. Mikill áhugi
var á sýningunni og um eitt hundrað manns
sótti um þátttöku. Dómnefnd valdi verk frá
42 einstaklingum. í tengslum við sýninguna
er gefin út sýningarskrá þar sem allir
sýnendur eru kynntir. Sýningin stendur til
27. apríl, sjá www.rundetaam.dk.
Sýnendur eru: Anna Guðmundsdóttir,
Anna Þóra Karlsdóttir, Bára Kjartansdóttir,
Bjargey Ingólfsdóttir, Brita Berglund,
Dýrfinna Torfadóttir, Elín Jónína Ólafsdótt-
ir, Elísabet Haraldsdóttir, Erling Jóhannes-
son, Friða S. Kristinsdóttir, George Holland-
ers, Guðlaug Halldórsdóttir, Guðný Jónsdótt-
ir, Guðrún Gunnarsdóttir, Guðrún Indriða-
dóttir, Halla Ásgeirsdóttir, Hanna Stefáns-
dóttir, Helga Pálína Brynjólfsdóttir, Hrafn-
hildur Sigurðardóttir, Hulda B. Ágústsdóttir,
ína Salóme, Jóna A. Imsland, Jóna Sigríður
Jónsdóttir, Kolbrún Björgólfsdóttir, Kristín
Cardew, Kristín Sigfríður Garðarsdóttir,
Kristveig Halldórsdóttir, Lára Gunnarsdótt-
ir, Lára Magnúsdóttir, Lene Zachariassen,
Margrét Guðnadóttir, Margrét Jónsdóttir,
Oddný E. Magnúsdóttir, Philippe Ricart, Pia
Rakel Sverrisdóttir, Ragnheiður Ingimn
Ágústsdóttir, Rósa Helgadóttir, Sandra Borg
Gunnarsdóttir, Sigríður Ágústsdóttir, Sigríð-
ur Elfa Sigurðardóttir, Sigrún Ólöf Einars-
dóttir, Soren S. Larsen, Sólrún Anna Símon-
ardóttir, Valdís Harrysdóttir og Þórhildur
Þorgeirsdóttir.
íslenskt handverk í gömlu höfuðborginni
Skart eftir Dýrfinnu Torfadóttur, sjal eftir Önnu
Guömundsdóttur og pils eftir Báru Kjartansdóttur.
Samísk menningardagskrá
í minningu skáldsins Nils-Aslaks Valkeapáá
Á sunnudagskvöldið kl. 20 veröur þess
minnst í Norræna húsinu að þann dag eru
60 ár liðin frá fæðingu samíska skáldsins
og ijöllistamannsins Nils-Aslaks Val-
keapaa sem lést um aldur fram fyrir rúmu
ári. Þá gengst Norræna húsið, i samstarfi
við samísk-íslenska vináttufélagið SAMÍS,
fyrir dagskrá þar sem tveir þjóðkunnir
fulltrúar samiskrar menningar og nánir
vinir Nils-Aslaks, Harald Gaski, kennari í
samískum fræðum við háskólann í
Tromso, og rithöfundurinn John Gustav-
sen, flytja erindi um samísk menningar-
mál. Lesin verða ljóð eftir Nils-Aslak í
þýðingu Einars Braga úr bókinni Víðem-
in í brjósti mér sem kemur út þann sama
dag og sýndir verða valdir kvikmynda-
þættir úr samísku þjóðlífi.
Nils-Aslak Valkeapaa er víðkunnastur
samískra listamanna fyrr og síðar. For-
eldrar hans vom hreinbændur en sjálfur
gekk hann menntaveginn, var lærður
kennari en stundaði aldrei kennslu held-
ur lifði i listum manndómsævina alla.
Honum var allt til lista lagt: hann mynd-
skreytti og hannaði bækur sínar sjálfur,
Nlls-Aslak Valkeapáá skáld
Úrval Ijóöa hans kemur út á íslensku á sunnudaginn.
var snjall ljósmyndari, lék stórt hlutverk í
samísku kvikmyndinni Leiðsögumannin-
um og samdi tónlistina, hann var góður
gítarleikari, einn fremsti jojkari þjóðar-
innar, frábært ljóðskáld og mátti heita
fremsti málsvari og merkisberi samískrar
menningar í víðasta skilningi seinni
helming ævinnar.
Hann lést 26. nóvember 2001, nýkominn
til Helsinki eftir erfitt flug frá Japan. En
ljóð hans lifa eins og sannfærast má um af
lestri nýju ljóðabókarinnar í íslenskri
þýðingu Einars Braga. Svona líta víðern-
in hans út að vetrarlagi:
Hér er svo margt aó sjá
aö hafiróu opin augun
er óþarfi aó leita
Noróurljós braga
ísperlur kvikna
tófuspor prýöa víðernin
morgun hvern vaknaröu
viö rjúpnahlátur
Og þetta kalla menn skammdegi
FÖSTUDAGUR 21. MARS 2003
DV
Umsjón: Silja Aðalsteinsdóttir silja@dv.is
Viðarlist
í gær var opnuð i anddyri Norræna
hússins sýningin Viðarlist frá Dalsásen.
Þar má sjá verk átta listamanna sem hafa
notið þess að vinna verk sín fjarri ys og
þys stórborga í stórbrotnu umhverfi nor-
rænu listamannamiðstöðvarinnar
Dalsásen í Noregi. Listamenn hvaðanæva
úr heiminum geta sótt um að komast til
Dalsásen sem stuðlar að því að hlúa að al-
þjóðlegu samstarfsneti listamanna.
Þó að áherslan á sýningunni sé einkum
á tréð sem efnivið vinna listamennimir
einnig með annars konar efni og miðla. Á
sýningunni verða sýnd verk úr tré og
myndbandsverk eftir Guðjón Ketilsson
sem síðast vakti athygli fyrir fallega
Menningarverðlaunagripi fyrir DV, Lars
Wallsten frá Svíþjóð, Anu Laurila og
Jorma Lechtinen frá Finnlandi, Lars
Sture og Lillian Dahle frá Noregi, Christi-
an Finne frá Danmörku og Aeneas Wilder
frá Skotlandi. Sýningin stendur til 27. apr-
íl.
Hlutabréf í sólarlaginu
Á morgun kl. 17 opnar
listþing helgað Degi Sig-
urðarsyni skáldi og málara
í Nýlistasafninu, Vatnsstig
3. Til sýnis eru málverk og
grafík eftir hann frá ýms-
um tímum auk ýmissa for-
vitnilegra heimilda. Dagur-
inn er jafnframt útgáfudag-
ur veglegrar bókar um Dag sem Hjálmar
Sveinsson og Geir Svansson ritstýra.
Tékknesk tónverk
Á sunnudaginn kl. 17 flytur kirkjukór
Fella-og Hólakirkju ásamt kammersveit-
inni Jón Leifs Camerata og einsöngvurum
verk eftir tékknesku tónskáldin Jan
Dismas Zelenka (1679-1745) og Frantisek
Xaver Brixi(1732-1771) undir stjóm Lenku
Mátéová. Einsöngvarar eru Ólafía Linberg
Jensdóttir sópran, Jóhanna Ósk Valsdóttir
alt, Garðar Thór Cortes tenór og Davíð
Ólafsson bassi. Tónleikunum hefur verið
valin yfirskriftin Salve Regina - heil sért
þú, drottning því flest viðfangsefnin tengj-
ast þema tónleikanna, Maríu guðsmóður.
Rienzi
Þriðji fyrirlestur Reynis Axelssonar í
fyrirlestraröðinni Æskuverk Wagners hjá
Richard Wagner-félaginu verður á morgun
kl. 13 í Norræna húsinu. Þar kynnir hann
óperuna Rienzi, hið síðasta í hópi þeirra
verka, sem hafa verið flokkuð sem æsku-
verk tónskáldsins og ekki verið talin
standa síðari ópemm hans jafnfætis.
Reynir sýnir einnig hluta úr óperunni af
myndbandi frá uppfærslu í Prag.
Aðgangur ókeypis og öllum heimill.
Afmælishátíð
Á þessu ári em liðin 50
ár frá stofnun Kirkjukórs
Langholtskirkju eins og
hann hét er hann var
stofnaður 23. mars 1953.
Tímamótanna verður
minnst með margvísleg-
um hætti á árinu, og
verður stærsta verkefnið
frumflutningur á Messu
fyrir kór, einsöngvara og sinfóníuhljóm-
sveit eftir Hildigunni Rúnarsdóttur á
fostudaginn langa.
Á sunnudaginn, sjálfan afmælisdaginn,
býður kórinn til fagnaðar í Langholts-
kirkju. Hann hefst með hátíðarmessu kl.
11 þar sem eldri og yngri kórfélagar
syngja, u.þ.b. 150 manns. Séra Jón Helgi
Þórarinsson messar en séra Sigurður
Haukur Guðjónsson predikar. Klukkan 16
verða síðan tónleikar þar sem afmæliskór-
inn mun syngja sýnishom af verkum
sem sungin hafa verið í gegnum tíðina,
ættjarðarlög, íslensk og erlend kórverk
m.a. eftir Sarlatti, Schútz og Bruckner.
Einnig mun karlakórinn Stjúpbræður
taka lagið. Stjómandi er Jón Stefánsson
og aðgangur er ókeypis.