Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2003, Qupperneq 24

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2003, Qupperneq 24
24 íslendingaþættir Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson 85 ára__________________________ Árni Ingólfsson, Víöivöllum 4, Akureyri. Maja Gréta Briem, Kleppsvegi 64, Reykjavík. 80 ára _________________________ Guðmundur Árnason, Holtagerði 14, Kópavogi. Herdís Antoníusardóttir, Skúlagötu 20, Reykjavík. 78 ára__________________________ Davíð Guðbergsson, Kirkjusandi 5, Reykjavík. Hannes Sigurðsson, Álfheimum 68, Reykjavík. Hilmar B. Jóhannsson, Austurbrún 6, Reykjavík. Pálína Þorláksdóttir, Rfumóa 9, Njarðvík. 70 ára__________________________ Davíð Davíðsson, Bræðratungu 18, Kópavogi. Jóhannes Guðmundsson, Veghúsum 31, Reykjavik. 60 ára__________________________ Björn Ágústsson, Laufskógum 6, Egilsstöðum. Edda Bragadóttir, Hraunbæ 154, Reykjavik. Rnnur Örn Marinósson, Norðurbyggð 5, Akureyri. Herdís Ósk Herjólfsdóttir, Mýrargötu 10, Vogum. Ingvar Baldursson, Freyvangi 14, Hellu. Lillian B. Nielsen, Vesturhúsum 5, Reykjavík. 50 ára__________________________ Ásgerður Þórisdóttir, Birkigrund 54, Kópavogi. Bjarni Þórðarson, Bjarnarstig 9, Reykjavík. Guðbjörg A. Magnfreðsdóttir, Sundstræti 25a, ísafirði. Guðrún Magnúsdóttir, Ballará, Búðardal. Halldóra Björk Bergmann, Grettis|ötu 45, Reykjavík. María Ármannsdóttir, Heiðarvegi 47, Vestmannaeyjum. Ragnhildur Þórarinsdóttir, Vesturbrún 15, Flúðum. Stanica Markovic, Týsgötu 8, Reykjavík. 40 ára__________________________ Bergþóra Þorkelsdóttir, Reyrhaga 20, Selfossi. Guðmundur Rafn Svansson, Grenibyggð 8, Mosfellsbæ. Guðrún Birna Smáradóttir, Álftarima 5, Selfossi. Hafdís Jóhanna Vlðarsdóttir, Háabergi 1, Hafnarfirði. Helga Freysdóttir, Noröurtúni 11, Siglufirði. Margrét Birna Auðunsdóttir, Hagamel 43, Reykjavík. Páll R. Valdimarsson, Smyrlahrauni 24, Hafnarfirði. Rósa Björg Ólafsdóttir, Skólagerði 11, Kópavogi. Sigurlaug L. Svavarsdóttir, Brún, Húsavík. Víkingur Þór Gunnarsson, Nátthaga 14, Sauðárkróki. Hólmfríður Þorvaldsdóttir aðalbókari, Arnartanga 17, Mosfellsbæ, andaöist á Landspitalanum þriðjud. 18.3. Árni Kristjánsson píanóleikari, Hávalla- götu 30, Reykjavík, andaðist á hjúkrun- arheimilinu Sóltúni aðfaranótt 19.3. Björn Einarsson frá Mýnesi andaðist á Landspítalanum við Hringbraut 17.3. Jóna Svanfríður Ingibergsdóttir Svana. Freyjugötu 45, Reykjavík, lést á hjúkrun- arheimilinu Eir miðvikud. 19.3. Friðþóra Stefánsdóttir, frá Nöf við Hofs- ós, er látin. Jarðarför Dósóþeusar Tímótheussonar fer fram frá Fossvogskapellu föstud. 21.3. kl. 15. Otför Ellerts Rögnvalds Emanúelssonar, Faxabraut 36c, Keflavík, fer fram frá Keflavíkurkirkju föstud. 21.3. kl. 11. Sigurður Frlðrik Sigurðsson verður jarð- sunginn frá Hallgrímskirkju föstud. 21.3. kl. 14. Sigríður Jeppesen verður jarösungin frá Frikirkjunni í Reykjavík 21.3. kl. 13.30. Anna Petersen, Flókagötu 25, verður jarðsungin frá Háteigskirkju föstud. 21.3. kl. 15. Ingólfur Sigurðsson, Þingskálum, verður jarðsettur frá Keldnakirkju á Rangárvöllum, laugard. 22.3. kl. 14. Haukur Böðvarsson, Baldursbrekku 6, Húsavík, verður jarðsunginn frá Húsavík- urkirkju laugard. 22.3. kl. 14. FÖSTUDAGUR 21. MARS 2003 DV Sjötugur Þorvaldur S. Þorvaldson borgararkitekt í Reykjavík Þorvaldur Sigurður Þorvaldsson borgararkitekt, Hábæ 39, Reykjavík, er sjötugur í dag. Starfsferill Þorvaldur fæddist í Reykjavík en ólst upp í Hafnarfirði. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1954 og prófi í arkitektúr frá Konunglegu listaakademíunni í Kaupmanna- höfn 1961. Þorvaidur starfaði hjá arkitekt- unum Hans Erling Lagkilde og Ib Martin Jensen í Kaupmannahöfn 1960-61, var Sagsarkitekt hjá Erik Moller í Kaupmannahöfn 1961-63, arkitekt hjá húsameistara ríkisins 1963-67 og starfrækti arkitekta- stofu i samvinnu við Manfreð Vil- hjálmsson 1967-84. Þorvaldur varð forstöðumaður Borgarskipulags 1984 og gegndi því embætti til 2001 er hann varð borgararkitekt. Þá var Þorvaldur stundakennari í húsagerð við verkfræði- og raunvísindadeild HÍ 1969-75. Þovaldur var Inspector scholae í MR 1954, sat í stjóm Arkitektafé- lags íslands 1965-72, var formaður þess 1969-71, sat í stjórn Sjálfstætt starfandi arkitekta 1978-81, í stjórn Norræna sumarháskólans 1966-71, í stjórn Skógræktarfélags Reykjavíkur frá 1979 og var for- maður þess frá 1987, í stjórn Skóg- ræktarfélags íslands og Land- græðslusjóðs frá 1983 og formaður Landgræðslusjóðs frá 1990. Þorvaldur hefur hannað margar þekktar opinberar byggingar, skóla og kirkjur, s.s. Kjarvalshús, Þjóðarbókhlöðuna, Lýðháskólann í Skálholti, Árbæjarkirkju, menn- ingarmiðstöð Þingeyinga, íbúðir fyrir aldraða og heilsugæslustöð á Egilsstöðum. Hann hefur skrifað flölda greina í tímarit um arki- tektúr og skipulagsmál og haldið fjölda fyrirlestra. Þorvaldur hlaut fegurðarverð- laun fyrir húsið Fáfnisnes 3 og Menningarverðlaun DV 1980 fyrir húsagerðarlist. Auk þess hefur hann hlotið viðurkenningar í ýmsum samkeppnum. Fjölskylda Þorvaldur kvæntist 25.9. 1955 Steinunni Jónsdóttur, f. 6.11. 1933, stúdent og húsmóður. Hún er dótt- ir Jóns Jónssonar, f. 25.10.1908, d. 13.8. 2002, framkvæmdastjóra Hraðfrystihússins í Innri-Njarð- vík, og Bjömeyjar Jakobínu Hall- grímsdóttur, f. 26.4. 1904, d. 22.4. 1995, kennara og húsmóður. Börn Þorvalds og Steinunnar eru Jón Þór Þorvaldsson, f. 2.12. 1956, arkitekt, búsettur í Reykja- vík, kvæntur Guðrúnu Önnu Ing- ólfsdóttur og eru dætur þeirra Steinunn, f. 20.6. 1980, og Elín María, f. 19.8.1996; Herdís Sif Þor- valdsdóttir, f. 22.2. 1962, landfræð- ingur og flugfreyja, gift Finni Orra Thorlacius Sigurðssyni og eru börn þeirra Sindri Snær Thor- lacius, f. 24.6. 1990, og Sædís Sunna Thorlacius, f. 23.2. 1997; Þorvaldur Bjarni, f. 3.3. 1966, tón- listarmaður, kvæntur Þórunni Geirsdóttur, flugfreyju og sýning- arstjóra og er dóttir þeirra Herdís Hlíf Þorvaldsdóttir, f. 26.4. 1999. Systkini Þorvalds eru Dóra, f. 14.8. 1922, húsmóðir í Kópavogi, var gift Þóri Hall, f. 19.3. 1922 en þau skildu og eiga þau Þóri Jón Hall og Hrafnkel Hall; Herdís, f. 15.10. 1923, leikkona, búsett í Reykjavík, var gift Gunnlaugi Þórðarsyni lögfræðingi sem er lát- inn en þau skildu og eru börn þeirra Hrafn, Þorvaldur, Snædis og Tinna Þórdís; Þóra, f. 18.2.1925, húsmóðir í Reykjavík, gift Niku- lási Má Nikulássyni, f. 8.8. 1923 og eiga þau Má Viðar, Maríu Erlu, Þorvald Tómas, Nikulás Úlfar, Höllu Þóru, Hafstein og Sigríði; María, f. 16.6. 1928, húsmóðir og saumakona í Bandaríkjunum, var gift Joseph Edward Bradwell en þau skildu og eiga þau Joseph Ed- ward en fyrir átti María Bjarna Örn með Þóri Jónssyni; Sigríður, f. 1.8. 1926, d. 1.5. 1931. Foreldrar Þorvalds voru Þor- valdur T. Bjarnason, f. 6.11. 1895, d. 29.9. 1932, kaupmaður í Hafnar- firði, og María Víðis Jónsdóttir, f. 14.12. 1895, d. 4.5. 1982, húsmóðir og bóksali í Reykjavík. Ætt Þorvaldur kaupmaður var son- ur Bjarna, b. og bátaformanns á Fagurhóli í Höfnum Tómassonar, frá Teigi í Fljótshlíð Guðmunds- sonar, útvegsb. á Flankastöðum. Móðir Þorvalds kaupmanns var Herdís Nikulásdóttur, útvegsb. í Nýlendu í Leirhöfn Björnssonar, í Vörum í Gerði Jónssonar. Systkini Maríu Viðis voru Sig- ríður, kona Jóhanns Skaftasonar sýslumanns en þau Jóhann og Sig- ríður voru systrabörn frá Arn- heiðarstöðum á Fljótsdal, og Jón Víðis landmælingamaður. María Víðis, var dóttir Jóns, Þveræings, b. á Þverá í Laxárdal Jónssonar, bróður Snorra á Þverá, föður Ás- kels tónskálds. Annar bróðir Jóns Þveræings var Benedikt á Auðn- um, faðir Huldu skáldkonu. Jón Þveræingur var sonur Jóns, b. á Þverá Jóakimssonar, b. á Mýlaugsstöðum Ketilssonar, b. á Sigurðarstöðum i Bárðardal Tóm- assonar. Meðal afkomenda Ketils á Sigurðarstöðum voru þeir bræð- ur Hallgrímur og Sigurður Krist- inssynir, forstjórar SÍS og Aðal- björg Sigurðardóttir, móðir Jónas- ar Haralz bankastjóra. Bróðir Jóns Jóakimssonar á Þverá var Hálfdán, faðir Jakobs, stofnanda Kaupfélags Þingeyinga, fyrsta kaupfélagsins. Móðir Maríu var Halldóra Sig- urðardóttir frá Arnheiðarstöðum Guttormssonar, en meðal frænd- fólks Þorvalds í þeirri ætt er Hjör- leifur Guttormsson, fyrrv. alþm. og ráðherra. Þorvaldur er að heiman. Sextugur Vigfus R. Jóhannesson skipstjóri á Dalvík Vigfús R. Jóhannesson skipstjóri, Öldugötu 1, Dalvík, er sextugur í dag. Starfsferill Vigfús fæddist á Hauganesi á Árskógs- strönd. Hann ólst upp í foreldrahúsum í Ásbyrgi á Hauganesi. Á unga aldri fór hann að sækja sjóinn með föður sínum sem rak útgerð, ásamt bróður sínum, Sigurði. Segja má að sjómennskan hafi verið honum i blóð borin og Vigfús hafl kynnst flestum veiðiháttum íslendinga frá miðri síðustu öld. Fimmtán ára fór Vigfús til Njarð- víkur á vetrarvertíð sem beitaingar- maður. Sama ár fór hann á línu-úti- legu á Akraborg EA-50. Áfram var hann á Akraborg á síldveiðum, einu af síðustu skipum sem var með tvo nótabáta og doríu. Eftir það var Vig- fús á ufsaveiðum með nót á Gylfa og Garðari EA. Eftir að hafa lokið stýrimanna- prófi frá stýrimannaskóla Reykja- víkur 1967 var Vigfús stýrimaður á Bjarma II frá Dalvík sem stundaði súd-, loðnu- og þorskveiðar í nót, bæði við ísland og allt norður að Svalbarða. Vigfús var stýrimaður á Björgvin EA-311 frá 1974-77. Eftir það hefur hann verið skipstjóri á Björgvin gamla og nýja til 2001. Fjölskylda Vigfús kvæntist 25.12. 1966 Svanhildi Ámadótt- ur, f. 18.6. 1948, hár- greiðslumeistara. For- eldrar hennar: Þórgunn- ur Amalía Þorleifsdóttir, f. 7.10. 1916, d. 19.12. 1993, og Ámi Guðlaugsson f. 10.6. 1912, d. 7.11. 1987. Börn Vigfúsar og Svanhildar eru Kristján, f. 26.8. 1965, staðgengill siglingamálastjóra, búsettur í Hafn- arfirði, kvæntur Þórdisi Sigurðar- dóttur, f. 2.2. 1968, lektor við HR og eru börn þeirra Jökull Sólberg Auð- unsson, f. 18.3. 1986, nemi við MH, Svanhildur Gréta, f. 8.12. 1993, og Vigdís, f. 30.7. 1998; Þórgunnur Reykjalín, f. 29.7. 1969, skólastjóri Gagnfræðaskólans í Ólafsfirði, bú- sett á Ólafsfirði, gift Amari Guð- mundssyni, f. 2.2. 1972, sjómanni og er dóttir þeirra Andrea Sif Hilmars- dóttir, f. 15.11.1991, en dóttir Amars af fyrri sambúð er Arna Dögg, f. 31.12. 1996; Hrafnhildur Reykjalín, f. 4.3. 1976, förðunarfræðingur, búsett á Dalvík en maður hennar er Jó- hann Magnússon, f. 29.7. 1966, vél- fræðingur og er sonur þeirra Jakob Máni, f. 6.10.2002, en dóttir Jóhanns af fyrri sambúð er Sólveig Eir, f. 13.10. 1992. Systkini Vigfúsar eru Hanna Guðrún, f. 6.7. 1934, búsett í Eyja- firði en maður hennar er Þór Hjalta- son; Trausti Hafsteinn, f. 1.4. 1940, búsettur í Kópavogi en kona hans er Ásthildur Inga Haraldsdóttir; Elísa- bet, f. 30.1. 1946, búsett á Dalvík en maður hennar er Þorsteinn Skafta- son; Ragnar Reykjalín, f. 25.9. 1948, búsettur á Hauganesi en kona hans er Helga Haraldsdóttir; Elvar Reykjalín, f. 26.12. 1954 en kona hans er Guðlaug Carlsdóttir. Foreldrar Vigfúsar: Jóhannes Reykjalin Traustason f. 26.7. 1913, d. 24.1. 1985, og Hulda Vigfúsdóttir, f. 16.8. 1914. Ætt Jóhannes Reykjalín var sonur Trausta Jóhannessonar, b. á Kuss- ungsstöðum í Fjörðum Jónssonar Reykjalín, pr. á Þönglabakka Jóns- sonar, pr. á Ríp Jónssonar, pr. á Breiðabólsstað í Vesturhópi Þor- varðarsonar. Móðir Trausta var Guðrún Sigríður Hallgrímsdóttir, á Hóli í Fjörðum og Ingveldar Árna- dóttur frá Sveinsströnd við Mývatn. Móðir Jóhannesar Reykjalín var Anna Guðrún Jónsdóttir, búsett á Hrafnagili í Þorvaldsdal og Jónínu Jóhannesdóttur frá Selá á Árskógs- strönd. Hulda Vigfúsdóttir er dóttir Vig- fúsar, smiðs og útvegsb. í Litla Ár- skógi á Árskógsströnd Kristjánsson- ar, b. á Litlu-Hámundarstöðum Jónssonar, frá Stóru-Hámundar- stöðum Hallgrímssonar. Móðir Kristjáns var Þuríður Helga Stef- ánsdóttir. Móðir Huldu var Elísabet Jó- hannesdóttir, formanns á Hinriks- mýri á Árskógsströnd Jóakimsson- ar, húsmanns í Höfðahverfi Þor- steinssonar. Vigfús verður að heiman. Smáauglýsingar bílar og farartæki húsnæði markaðstorgið atvinna einkamál 550 5000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.