Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2003, Side 25

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2003, Side 25
25 FÖSTUDAGUR 21. MARS 2003 DV Tilvera DV-MYNDIR E.ÓL. A frumsýningu Árni Ibsen var á frumsýningu á Púntila og Matta ásamt eiginkonu sinni, Hildi Kristjánsdóttur. Meö þeim á mynd- inni eru Jón Viðar Jónsson leikhúsfræöingur og Kristbjörg Kjeld leikkona. Áfrumsýningu í Borgarleikhúsinu: og Matti lífiö E F T I . R V I N N 1J SSSól á Players Helgi Björns og félagar í SSSól skemmta á Players í kvöld. Fyrirlestur í HÍ Milli kl. 12 og 13 flytur Vilborg Jóhannsdóttir erindið Aukin gæði þjónustu: Þróun mæli- kvarða á árangur í félagslegri þjónustu við fólk með fötlun. Fyr- irlesturinn er í stofu 101 í Odda, Háskóla íslands, og er öllum op- inn. Erindið er byggt á niðurstöð- um starfendarannsóknar sem unnin var á árunum 1999-2001. Listadagar í Garöabæ Það eru listadagar barna- og unglinga í Garðabæ fram á sunnudag. Mikið um að vera í bænum alla dagana. Kíkið inn á www.gardabaer.is Mania Express á Gauknum Það er boðið upp á Mania Ex- press #2 á Gauknum í kvöld, þema kvöldsins er r&b og þau Svali og Sóley þeyta skífur í takt við eggjandi go-go-dansara. Rocky Horror í FG 1500-kall inn á sýningu FG á Rocky Horror í hátíðarsal skól- ans kl. 20. Fuglinn heitir Fótógen Leikfélag NFSU sýnir verkið „Fuglinn heitir Fótógen" sem varð til upp úr spunavinnu leik- hópsins sem hér stígur á fjalirnar í húsi Leikfélags Selfoss. Leikhóp- urinn samanstendur af nemend- um úr FSU. Sýningin hefst kl. 20. Þótt Þór Magnús Kapor sé kominn af fiskimönnum og sæ- förum í Dalmatíu og hafi reynd- ar sjálfur stundað bæði siglingar og sjóróðra þá er hann fyrst og fremst myndlistarmaður. í lista- sal Man á Skólavörðustíg 14 prýða olíupastelmyndir hans úr íslenskri náttúru veggina þessa dagana. Það er tíunda einkasýn- ing hans hér á landi en einnig hefur hann sýnt í Krótatíu, Aust- urríki, á Ítalíu, í Þýskalandi og Holiandi. Hrifinn af Björk Þór fæddist í Split í Króatíu og lauk prófi frá listadeild Kennara- Púntila Leikfélag Reykjavíkur frum- sýndi í gær eitt þekktasta verk Bertolds Brechts, Púntila og Matta, í leikstjóm Guðjóns Peder- sens, leikhússtjóra LR. Fullt hús vár og tóku leikhúsgestir leikrit- inu ákaflega vel og var mikið klappað í lokin. Titilpersónurnar eru bóndinn háskólans í Zagreb. Hann starfaði sem forvörður að varðveislu og viðgerð, ljósmyndun og skráningu gamalla listaverka og mannvirkja í gömlu Júgóslavíu. „Þegar stríðið var búið að standa í ár vildi ég ekki lifa og starfa lengur í landinu heldur fór í siglingar," segir Þór og lýsir því að hann hafi yfirgefið fleyið í Kanada, tekið flugið yfir til Evrópu, fyrst til Frankfurt, það- an til London og loks til Keflavik- ur. Þetta var árið 1992. „Ég bjó fyrst í Garðinum og Keflavík í nokkur ár og stundaði sjóinn," segir hann og bendir á eina mynd á sýningunni sem heit- ir Keflavíkurhöfn II. „Þetta er „takk fyrir mig“ til Keflavíkur," og vinnumaðurinn. Púntila er harðstjóri og ekki skemmtilegur maður þegar hann er edrú. Þegar hann er svo búinn að fá sér í glas, sem er æði oft, þá er hann orðinn hinn mesti mannvinur og sest að rabbi með vinnumanni sínum, Matta. Það er Theodór Júlíusson, sem segir hann og heldur áfram. „Hún er samt hugarsmíð en allar aðrar fyrirmyndir sæki ég beint í um- hverfið og náttúruna." Til Vopna- fjarðar flutti Þór 1996. „Einn vinur sagði mér að Austurland væri fal- legasti hluti landsins. Því fór ég þangað,“ segir hann og kveðst hafa á þessum tíma hafa oröið mjög hrifinn af diski Bjarkar Guð- mundsdóttur, Homogenic og þeirri náttúrusýn sem hún birti þar. „Þá fór ég að mála íslenskt landslag," segir hann. Hann kveðst hafa búið á Vopnafirði í þrjú ár og m.a. kennt myndlist við skólann. Ein myndanna heitir „Á leið til Vopnafjarðar". Þar er snjór í hlíð- um en vegurinn er samt auður. leikur Púntila og Bergur Þór Ing- ólfsson leikur Matta, dóttur Púntila leikur Nína Dögg Filipp- usdóttir og Björn Hlynur Haralds- son leikur sendiráðsfulltrúa sem Púntila vill að dóttir hans giftist. Ljósmyndari DV leit inn í hléi og myndaði nokkra ánægða leik- húsgesti. Ekki flóttamaður En hvernig í ósköpunum datt honum yfirleitt ísland í hug þar sem hann var að þvælast um heimshöfin á skipi? „Ég hafði alltaf haft áhuga á Islandi og vissi af hinni mögnuðu náttúru þess. Þess vegna varð það fyrir valinu þegar ég kaus mér framtíðarbú- setu. Þótt ég kæmi frá stríðs- hrjáðu landi kom ég ekki sem flóttamaður og hef aldrei haft þá tilfinningu sjálfur. Ég var strax ákveðinn í að lifa hér og búa,“ er svarið. Tákn setja svip á myndir Þórs. Hann segir þau vera gamlar íslenskar rúnir. Ekki nóg með það. Flestar þeirra merkja Guð blessi ísland. -Gun. Monica stjórnar veruleikaþætti Frægasti lærlingur úr Hvíta húsinu fyrr og síðar, Monica Lewinsky, hefur nú fengið ærlega vinnu. Hún mun stjórna raun- veruleikaþætti á Fox sjónvarps- stöðinni, að því er skemmtana- blaðið Daily Variety greindi frá. Monica er að sjáífsögðu fræg fyrir ástarævintýri sitt með Bill Clinton, þáverandi forseta Banda- ríkjanna, ástarævintýri sem næstum því kostaöi hann emb- ættið. Þáttur Monicu mun snúast um það að ósköp venjulegir karlar, með grímu fyrir andlitinu, reyna að vinna hylli ungrar og aðlað- andi konu. Blessuð konan fær aldrei að sjá framan í karlana heldur verður hún að byggja alla sína dóma á persónutöfrum þeirra. Þegar upp er staðið verð- ur aðeins einn eftir. Umboðsmenn slást um Posh Umboðsmenn skemmtikrafta vestur í Bandaríkjunum slást þessa dagana um að fá kryddpí- una Victoriu „Posh“ Adams og Beckham til liðs við sig og vilja gera hana að kvikmyndastjörnu. Victoriu hefur með klókindum tekist að beina sviðsljósinu að sér þótt sólóferill hennar í popptónlistinni hafi farið fyrir lítið eftir að Kryddpíurnar lögðu upp laupana fyrir tveimur árum. Umbamir fyrir vestan tóku eftir því og telja því að hún sé feitur biti að krækja í. Breska blaðið Mirror segir að umboðsmennirnir vestra telji fót- boltafrúna búa yfir þeim eigin- leikum sem prýða mega hverja kvikmyndastjömu. Leikhúsfólk Leikhúsfólk var margt mætt á Púntila og Matta og þar á meðal voru hjónin Stefán Baldursson þjóöleikhús- stjóri og Þórunn Siguröardóttir. Meö þeim á myndinni er Viöar Eggertsson leikstjóri. Fiottar í leikhúsinu Eva Sólan, sem margir þekkja úr sjónvarpinu, var á frumsýningu ásamt Bergþóru Þórsdóttur. Þór Magnús Kapor sýnir í Man: Runirnar merkja Guð blessi Island DV-MYND HARI Myndlistarmaðurinn Þór Magnús við mynd sína, í návist trölla. Allir íþróttaviðburáir í beinni á risaskjám. Pnol. Bóður matseðill. Tökum að okkur hópa, starfsmannafélög. Stórt og gott dansgólf. Bæjarlind 4 « 201 Kópavogur • 5ími 544 5514

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.