Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2003, Page 26

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2003, Page 26
26 FÖSTUDAGUR 21. MARS 2003 Rafpóstur: dvsport@dv.is - keppni í hverju orði Guðmundur meistari Guðmundur Stephensen varð í gærkvöld Noregsmeistari í borðtennis með liði sínu B-72. Guðmundur og félagar hans unnu Modum í hörkuspennandi úrslitaleik, 5-4. Guðmundur vann alla sína leiki, tvo einliðaleiki og einn tvíliðaleik. Hann byrjaði á því að vinna Kínverjann Chen Yukie, 3-2, bar síðan sigurorð af Norðmanninum Roar Blikken, 3-0, og innbyrti loks sigur í tvíliðaleiknum með Joachim Sörensen, 3-2. -ósk Eggert Garðarsson, þjallari jR, spáir 3-1 fyrir Grindavík og 3-2 fyrir Marðvík ef Tindastóll nær að stoppa Pál Axel Vilbergsson og Helga Jónas Guðfmns- son gæti þetta farið í fimm leiki. Ef ekki þá klárar Grindavík þetta 3-1. Ég tel Antropov vera lykilmann Tinda- stóls í þessu einvígi en hjá Grindavík er það Helgi Jónas Guðfinnsson," seg- ir Ingi Þór. Hann spáir þvi að Keflvík- ingar græði fari hitt einvígið í funm leiki. Gerir alla í kringum sig betri „Þetta verður mjög spennandi enda unnu Njarðvíkingar báða deildarleik- ina en hafa að sama skapi ekki unnið Keflavík með Edmund Saunders inn- anborðs. Eins og ég þekki best sjálfur spiluðu Njarðvíkingar frábærlega á móti okkur og nýi útlendingurinn hjá Njarðvík hefur smellpassað inn í lið- ið. Hann skilar ótrúlegum tölum, án þess að menn taki mikið eftir því, og gerir alla í kringum sig betri. Keflvíkingar verða að fá mikið frá skyttunum sínum og þá verða þeir ill- viðráðanlegir. Lykilatriði fyrir Kefla- vík er að Guðjón Skúlason og Magnús Þór Gunnarsson séu í lagi og að sama skapi er það lykilatriði að Friðrik Stefánsson verði kletturinn í teignum hjá Njarðvík. Ég hugsa að ég veðji á Njarðvík sem er að mínu mati eina liðið sem getur stoppað Keflavík. Keflavíking- amir eru mjög góðir, eins og sást vel þegar þeir rúlluðu yfir ÍR, en ég held að þeir geti ekki klárað Njarðvíking- ana haldi þeir áfram að spila jafnvel og á móti okkur. Það skiptir samt öllu að Njarðvíkingar klári þetta 3-1 því ef þeir ná því ekki og einvígið fer alla leið í oddaleik mun breiddin líklega skila Keflvíkingum sæti í úrslitun- um,“ segir Ingi Þór að lokum. Körfuboltaveisla Eggert Garðarsson býst við veislu fyrir körfuboltaáhugamenn í undan- úrslitunum. „Ég spái því að Grinda- vík vinni seríuna 3-1 og held að þeir séu aðeins of sterkir fyrir Stólana. Grindvikingar hafa meiri reynslu og þó að Tindastóll hafi spilað mjög vel í vetur eru deildarmeistararnir of sterkir," segir Eggert um niðurstöðu einvígis Grindavíkur og Tindastóls. „Lewis hefúr verið að blómstra hjá Grindavík og ég sé ekki að hann verði stöðvaður af Stólunum frekar en öðr- um. Grindvikingar eru með vel skip- að liö í öllum stöðum, reynslubolta í bland við yngri stráka, og þrátt fyrir að ungir strákar á borð við Axel (Kárason) og Helga Rafn (Viggósson) hafi staðið sig mjög vel í liði Tinda- stóls í vetur tel ég að það verði ekki nóg gegn Grindavík," segir Eggert sem er ekki eins viss um hvemig hitt einvigið spilast. „Þetta verður rosaleg rimma og þar getur bmgðið til beggja vona. Hvern- ig sem maður spáir er maður langt frá því að vera ömggur með að sú spá gangi eftir. Ég er samt nokkuð viss um að þetta muni fara í fimm leiki og ætla að spá Njarðvíkingum sigri. Þeir unnu báða deildarleikina og vom óheppnir að vinna ekki bikarleikinn lika eftir að hafa verið yfir á löngum köflum. Ég held að það spili meira inn í þetta einvígi hvort liðið nær sínum leik fram. Njarðvíkingar era með stóra og sterka stráka en Keflvíkingar hafa svarið við þeim í Edmund Saunders. Veltur mikiö á Saunders Ég held að það velti mikið á því hvað Saunders stoppar mikið af áhlaupum stóm strákanna hjá Njarð- vík. Njarövíkingar era í uppsveiflu, þessi nýi Kani hefur haft góð áhrif á þá. Keflvíkingar munu eflaust reyna að ná tempóinu upp með pressunni en það er hætt við að nú þurfi þeir að nota Saunders meira og koma boltan- um meira inn í teiginn. Að sama skpai verður gaman að sjá hvernig Njarðvíkingar ætla að hægja á Damon og skyttynum. Það verður því nóg af athyglisverðum einvígjum í öllum stöðum og þar gætu þau öll skipt máli þegar upp er staðið. Þetta verður körfúboltaveisla og þó að maður vilji kannski fara að sjá einhver önnur lið þarna þá em þessi lið alltaf á þessum slóðum á þessum tíma árs og því bara um að gera sætta sig við það og njóta skemmtilegra leikja,“ sagði Eggert að lokum. -ÓÓJ Undanúrslit úrslitakeppni Inter- sportdefldarinnar í körfubolta hefjast á morgun þegar deildarmeistarar Grindavíkur fá Tindastól í heimsókn. Á sunnudag hefst siðan einvígi Reykjanesbæjarliðanna þegar Njarð- vik fer í heimsókn yfir í Kefavík. Bæði einvígi gefa góð fyrirheit um skemmtilegar körfuboltavikur. DV-Sport heyrði hljóðið í tveimur þjálfúmm sem fóra i sumarfrí eftir átta liða úrslitin, þeim Inga Þór Stein- þórssyni, þjálfara KR, og Eggerti Garðarssyni, þjálfara ÍR. Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari KR, hefur komið sínu Uði í undanúrslitin sðustu þrjú árin en þarf að fylgjast Ingi Þón Steinþópsson, þjálfari KR, spáir 3-1 eða 3-2 fynip GPindavík og 3-1 fypip Njapðvik með úr fjarlægð að þessu sinni. „Ég heyrði að Grindvíkingar hefðu verið ánægðir með að fá ekki Njarð- víkingana en þeir eiga ekki auðvelt verkefni fyrir höndum gegn Stólun- mn. Tindastófl er með vaxandi lið og Kristinn Frirðiksson hefur spilað æ betur með hverjum leik og steig upp i átta liða úrslitunum. Ég held að Stól- arnir verði að leggja ofúrkapp á að reyna að halda Rússanum Michail Antropov inni í leiknum því meðal hans helstu galla er hversu fljótur hann er að fá villur. Ekki meö eins stór nöfn Stólamir era ekki með eins stór nöfn og fara mjög mikið áffam á hjart- anu en Grindvíkingar fara þetta áfram á sínum hæflleikum enda með góðar skyttur sem þeir setja mikið upp fyrir. Það verður lika spennandi að sjá viðureign Darrels Lewis hjá Grindavík og Cliftons Cook hjá Tinda- stóli sem era feikilega góðir en jafh- framt ólíkir leikstjómendur. Ég held að þetta verði gríðarlega skemmtilegt einvigi og trúi því að þetta fari i fjóra leiki þó að sjálfsögu vonist maður eftir fimm leikjum. Það er allt með Grindvík þessa dagana en Undanúrslit Intersportdeildarinnar í körfubolta hefjast um helgina: Grndairik og lyjarðvh - fara í úrslitin ef marka má spá Inga Þórs Steinþórssonar og Eggerts Garöarssonar Lárus Jónsson fyrirliði Hamars Grindavík-Tindastóll 3-1 Keflavík-Njarövík 2-3 HerbertArnarson fypirlöi KR Grindavík-Tindastóll 3-1 Keflavík-Njarövík 1-3 Marel Guölaugsson fyrirlöi Hauka Grindavík-Tindastóll 3-1 Keflavík-Njarövík 3-2 Bríkur ðnundarson fyrirliði ÍR Grindavík-Tindastóll 2-3 Keflavík-Njarövík 3-2 Pálmi Freyr Sigur- geirsson, Breiftabliki Grindavík-Tindastóll 3-1 Keflavík-Njarðvík 2-3

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.