Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2003, Qupperneq 27

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2003, Qupperneq 27
FÖSTUDAGUR 21. MARS 2003 Sport 27 Verður bara gaman - sagöi Eyjólfur Guðlaugsson, þjálfari Grindavíkur, um oddaleikinn gegn KR eftir 72-67 sigur í öörum leiknum í gær ' . Denise Shelton hjá Grindavfk lék vel gegn KR í gær og hér sést hún verja skot frá Helgu Þorvaldsdóttur, leikmanni KR, í fyrsta leik liðanna f DHL-höllinni á mánudag en liöin mætast þar f oddaleik næsta manudag. DV-mynd E. Ól. Dómarar (1-10): Helgi Bragason og Þröstur Ásþórsson (9). Gœdi leiks (1-10): 7. Á horfendur: 100. Maöur leiksins: Denise Shelton, Grindavík Fráköst: Grindavík 33 (11 í sókn, 22 í vörn, Shelton 10), KR 46 (20 í sókn, 26 í vöm, Stomski 12). KR tók 11 sóknafráköst í 2. leikhluta og alls 15 í fyrri hálfleik. Stoósendingar: Grindavík 13 (Shelton 6), KR 19 (Helga 9). Stolnir boltar: Grindavík 9 (Shelton 3), KR 10 (Hanna 5). Tapaöir boltar: Grindavík 15, KR 19. Varin skot: Grindavík 8 (Shelton 4), KR 7 (Stomski 3). 3ja stiga: Grindavík 15/3 (20%), KR 9/3 (33%). Víti: Grindavík 21/13 (62%), KR 25/12 (45%) . KR - Grindavík 1-1 RFUBQLTI J raiaa_____________ Úrslit í nótt: Detroit-Philadelphia..113-85 Billups 29, Okur 18 (6 frák.), Hamilton 15 - Coleman 19 (11 frák.), Snow 12, Buckner 10, Thomas 10 Dallas-San Antonio....110-112 Van Exel 35, Nowitzki 34 (12 frák.), Nash 18 (7 stoðs.) - Duncan 25 (18 frák.), Rose 22 (7 frák.), Parker 22 Sacramento-LA Lakers . . . 107-99 Webber 26 (11 frák.), Stojakovic 23, Bibby 19 - Bryant 34 (13 frák.), ONeal 28 (13 frák.), Fisher 14 Shaquille O'Neal hjá LA Lakers þurfti ll stig til aö verða 28. leikmaðurinn í sögu NBA til að skora 20 þúsund stig. O'Neal skoraði 28 stig í leiknum en hann kom inn í deildina veturinn 1992 til 1993 og hefur alls leikið 727 leiki með Orlando Magic (1992-96) og svo Lakers frá 1996. 0-2, 6-6, 12-12, 18-12, (23-16), 27-16, 29-18, 29-23, 32-27, (33-30), 37-30, 39-35, 46-39, 52-41, (55-46), 55-53, 61-55, 66-61, 68-61, 68-66, 70-67, 72-67. Stig Grindavikur: Denise Shelton 20, Stefanla Ásmundsdóttir 16, Sólveig Gunnlaugsdóttir 13, Sigríöur Ólafsdóttir 11, Guðrún Ósk Guðmundsdóttir 7, Jovana Stefánsdóttir 4, Ema Rún Magnúsdóttir 1. Stig KR: Hildur Sigurðardóttir 19, Jessica Stomski 16, Hanna Kjartansdóttir 11, Helga Þorvaldsdóttir 11, Gréta María Grétarsdóttir 8, Maria Káradóttir 2. „Ég er mjög sáttur við að vinna þennan leik. Það sem vantaði kannski í síðasta leik var trúin á að vinna KR en nú ætti hún að vera komin. Þannig að það verður bara gaman á mánudaginn þegar odda- leikurinn fer fram,“ sagði Eyjólfur Guðlaugsson, þjáifari Grindavíkur, eftir að hans stelpur jöfnuðu einvíg- ið gegn KR með 72 stigum gegn 67 í hörkuleik. Grindavíkurliðið mætti vel stemmt til leiks og ætlaði greinilega að kvitta fyrir tapið í KR-heimilinu fyrr í vikunni. Liðin byrjuðu á því að skora á víxl en góður kafli Grindavíkur i lok fyrsta leikhluta kom liðinu sjö stigum yfír. 11 stiga forysta Grindavík hélt áfram að bæta við forskotið í byrjun annars leikhluta og fór munurinn mest i 11 stig en þá fór KR loks í gang. Hildur Sigurðar- dóttir fór í gang og leiddi KR áfram. Staðan i hálfleik var 33-30 og virtust gestirnir vera komir í gírinn. Grindavík byrjaði seinni hálfleik- inn vel og byggði aftur upp 11 stiga forskot. Ekkert virtist geta komið í veg fyrir heimasigur, miðað við hvernig leikurinn þróaðist. KR byrjaði siðan fjórða leikhluta með látum og minnkaði muninn strax í fjögur stig en varð síðan fyr- ir áfalli þegar Gréta María Grétars- dóttir þurfti að yfirgefa völlinn meidd. KR fékk í lokin möguleika á að jafna, og þess vegna að komast yfir, en slæm hittni á vítalínunni kom í veg fyrir það. Grindavík var sterkari á lokasprettinum og fimm stiga sigur staðreynd og því þurfa liðin aö mætast í þriðja sinn á mánudaginn. Liðsheildin sterk Það sem gerir sigur Grindvíkinga merkilegan er að Denise Shelton bar ekki liðið á herðum sér heldur var það liðsheildin sem var sterk. Shelton hefur verið í strangri gæslu í báðum leikjunum og því þurfa leikmenn eins og Sólveig Gunn- laugsdóttir og Stefanía Ásmunds- dóttir að stíga upp og taka af skarið því þær hafa alla burði til þess. Lít- ið fór fyrir Sólveigu í fyrsta leikn- um en núna reyndi hún meira og liðið þarf á henni að halda. Hún þarf að reyna meira og hætta að vera til baka eins og svo oft í vetur. Stefanía hitti betur að þessu sinni en í fyrri leiknum og átti frnan leik. Sigríður Ólafsdóttir skilaði sínu hlutverki mjög vel og Ema Rún Magnúsdóttir og Jovana Stefáns- dóttir spiluðu góða vörn á boltann. Þá átti Guðrún Ósk Guðmundsdótt- ir fína innkomu af bekknum og stóð sig gríðarlega vel þann tima sem hún var inná. Gréta meiddist Grindavík tapaði Ula í baráttunni um fráköstin og fékk KR oft og tíð- um mörg skot í sömu sókninni. Þetta vandamál er ekki nýtt af nál- inni hjá Grindavík en erfitt er að vinna leiki þegar andstæðingarnir hafa mikla yfirburði í fráköstunum. Hjá KR gekk fátt upp nema að lið- ið fór á kostum í sóknarfráköstun- um. Hittnin hjá lykilmönnum var slök og meira að segja Jessica Stomski gat ekki keypt körfu lang- tímum saman. KR spilar mest á byrjunarliðinu og má ekki við því að missa Grétu í einhvern tíma en við fyrstu sýn gæti farið svo að hún _____ léki ekki meira á þessu i tímabili. -Ben Grindavík-KR 72-G7 \ l L V. 1 VERKTAKAR SPORTFiiSiil www.sporttours.is fer fram á Lágheiði við Olafsfiörð laugardaginn 22. mars kl. 14:00 Dagskrá: 10:00 Mæting keppenda I 1:00 Pit lokar og æfingar hefjast 14:00 2. umferð íWSA lceland Snocrossinu 16:00 Aætluð mótslok og verðlaunaafhending Mjög gott færi er á Lágheiði og gott aðgengi fyrir aiia bíia. Gott sleðafæri er í nágrenni við Ólafsfjöró og hvetjum við allt sleðafólk til að koma með fáka sína og njóta fegurðar Tröllaskagans Nánari upplýsingar á www.snocross.is eða í simum 464-4164 og 894-2967 ijJd-ilujj Mncriem POLRRIS OIYAX - RHPIMMn O S? .R,^\ F.\ N N r.sigmundsson -$§7* ng rHTTÍTT.fíí. M' Asorent MOTORSP OR TS y^SprCllt GPedíSmyndir' S2, sBHissisaii MOTUL u *- 4C' 0\ *

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.