Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2003, Side 28

Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2003, Side 28
28 FÖSTUDAGUR 21. MARS 2003 * Sport r>v & M 1. "S. John Hartson faqnar hér markl slnu cjogn livorpool i gærkvöld. Frd skúrkl til hetju á fjoiuni dógum! gæti ævisaga hans holtlö ct hon yrftl skrifuö a morgun. Reuters Guömundur Guömundsson landsliösþjálfari: Dunanona ekki klár í slaginn „Ég talaöi við Julian [Róbert Duranona] um daginn og athugaöi stöðuna á hon- um. Hann hefur nánast ekkert æft frá áramótum enda átt í meiðslum og ég mat það þannig að hann væri ekki klár í slaginn." Spurður sagðist Guðmundur ekki hafa lokað neinum dyrum á Duranona og sagðist hafa eitt grundvallarmarkmið í vali á hópnum: „Ég setti mér það markmið þegar ég byrjaði sem landsliðsþjálfari að velja alltaf besta hópinn hverju sinni. Ef sú staða kemur upp að Julian [Róbert Dura- nona] er í þeim hópi verður hann að sjálfsögðu valinn," sagði Guðmundur í samtali viö DV-Sport í gær. -ósk Leikmönnum Celtic tókst það sem fæstir höfðu trú á að þeir gætu - þeir lögðu Liverpool, 2-0, á Anfield Road í seinni leik liðanna í 8-liða úrslitum Evrópukeppni fé- lagsliða í gærkvöld og tryggðu sér sæti í undanúrslitum keppninnar. Ömurleg vika enskra liða Sigurinn var virkilega verð- skuldaður, leikmenn Liverpool sá aldrei til verulegrar sólar í leikn- um og ósigur liðsins batt enda á ömurlega viku enskra liða í Evr- ópukeppnunum þar sem aðeins eitt lið, Manchester United, komst áfram en Arsenal, Newcastle og Liverpool duttu út. Leikmenn Celtic komust yfir á lokamínútu fyrri hálfleiks þegar Alan Thompson skoraði beint úr aukaspymu. Boltinn fór í gegnum vamarvegg leikmanna Liverpool, álíka götóttan og svissneskan ost, og þaðan í homið án þess að Jerzy Dudek, markvörður Liver- pool kæmi nokkrum vömum við. í síðari hálfleik virtist Celtic alltaf vera líklegra til að skora og þeir uppskám laun erfiðsins á 81. mín- útu, þegar John Hartson þnunaði knettinum efst í markhomið á Liverpool-markinu eftir fallegan samleik við Henrik Larsson. Stað- an orðin, 2-0, sigurinn gulltryggð- ur og skoska liðið stóð uppi sem sigurvegari í einvíginu hvert gekk undir viðumefninu „Barátt- an um Bretland". Frá skúrki til hetju John Hartson, framherji Celtic, var hamingjusamur maður eftir leikinn enda búinn að breytast úr skúrki i hetju á fjórum dögum. Hann brenndi af vítaspymu á lokamínútu úrslitaleiksins gegn Rangers í skoska deildabikarsins, vítaspyrnu sem gerði það að verk- um að Rangers fór með sigur af hólmi en honum var fyrirgefið í gær - markið sem hann skoraði sá til þess. „Ég var stuðningsmaður Liver- pool þegar ég var yngri þannig að það var frábært að skora hér á Anfield," sagöi Hartson eftir leik- inn. „Ég held að þetta sé, án nokk- urs vafa, besta frammistaða okk- ur í Evrópukeppninni á þessu tímabili. Við byijuðum vel og réð- um ferðinni frá byijun. Okkur tókst að koma í veg fyrir að Mich- ael Owen og Emile Heskey, sem era með bestu framheijum í Evr- ópu, fengju mörg færi og mér fannst vamarmennimir fjórir hjá okkur standa sig frábærlega. Ég brenndi af víti á sunnudaginn og var niðurbrotinn stuðningsmann- anna vegna en ég vona að markið í kvöld hafi bætt vonbrigðin að einhveiju leyti upp.“ -ósk íslendingar mæta Þjóöverjum á morgun: Ættam að standa okkur Kynþáttafordómar í Valencia: HveQa Arsenal til aö kæra móti - Celtic vann „Baráttuna - segir Steindór Gunnarsson landsliösþjálfari um mótiö í Vestmannaeyjum Innanhússmeistaramót íslands í sundi hefst í dag í Vestmannaeyj- um. Þetta er i þrettánda sinn sem mótið fer fram í Vestmannaeyjum enda laugin þar sú eina boðlega fyr- ir mót af þessari stærðargráðu á landsbyggðinni. 135 keppendur 135 keppendur mæta til leiks frá sextán félögum og munu allir sterk- ustu sundmenn landsins, að undan- skilinni Láru Hmnd Bjargardóttur, synda í Vestmannaeyjum. Öm Amarson keppir í níu grein- um og verður fróðlegt að fylgjast með því hvemig honum reiðir af. Alltaf sérstakt Steinþór Gunnarsson, þjálfari ÍBR og íslenska landsliðsins, sagði í samtali við DV-Sport í gær að hann væri mjög spenntur fyrir þessu móti og að hann væri bjartsýnn á góðan árangur í mörgum greinum. „Það er alltaf sérstök stemning að keppa á Innanhússmeistaramótinu og ég á ekki von á því að það verði nein breyting á í ár. Það hefur reyndar verið mikið um veikindi í vikunni þannig að það er ekki víst að allir verði með en þetta verður skemmtUegt mót. Landsliðið fyrir Smáþjóðaleikana verður valið eftir mótið þannig að það er að miklu að keppa,“ sagði Steindór. Aðspurður um Örn Amarson svaraði Steindór að hann væri í fmu formi. Örn hefur æft mjög vel „Öm hefur æft mjög vel það sem af er þessu ári. Hann hefur lagt mesta áherslu á fjórsund og flugsund og það eru þær tvær grein- ar sem ég tel að hann eigi mesta möguleika á að setja íslandsmet í. Hann hefur hvUt sig á baksundinu að mestu að undanfornu þannig að við leggjum litla áherslu á það að þessu sinni.“ Allir í góðu formi Um aðra keppendur sagði Stein- dór að þeir væru allir í góðu formi. „Mér sýnist að keppendur eins og Jakob Jóhann Sveinsson og Kol- brún Ýr Kristjánsdóttir séu í fínu formi. Þau eru létt og úthvUd og ættu að eiga góða möguleika á því að slá íslandsmet, sérstaklega Kol- brún Ýr. Samkeppnin að aukast Annars er það jákvæðast fyrir sundgreinina í heUd sinni að sam- keppnin er að aukast í flestum greinum og það þarf betri tíma tU að komast í verðlaunasæti núna, sem er mjög jákvætt,“ sagði Stein- dór Gunnarsson. -ósk - segir Guömundur Guömundsson landsliðsþjálfari Knattspyrnusamband Evrópu hvetur nú forráðamenn enska liðsins Arsenal tU að leggja fram kæru, telji þeir að leikmenn liðsins hafa orðið fyrir aðkasti vegna litarháttar síns þegar liðið sótti Valencia heim í meist- aradeUd Evrópu á miðvikudaginn. Nokkuð ljóst þykir að framkoma stuðn- ingsmanna Valencia meðan á leiknum stóð hafi verið tU skammar og tók hinn norski framheiji Valencia, John Carew, sig tU og bað leikmenn Arsenal afsökunar þegar honum ofbauð aðkastið. LUdegt þykir að Arsenal kæri atvikið en aganefnd Knattspyrnusam- bands Evrópu getur ekkert aðhafst nema henni berist kæra. -ósk L", noi um Bretland“ íslenska landsliðið í handknattleik mætir því þýska í vináttulandsleik í Berlín á morgun. Mikil hátíð verður þar á morgun og æUar þýska hand- knattleikssambandið að heiðra vest- ur-þýska liðið sem sigraði á HM1978 og það austur-þýska sem bar sigur úr býtum á ólympíuleikunum árið 1980. Guðmundur Guðmundsson valdi hópinn fyrir viku og vom tveir ný- liðar í honum, Jaliesky Garcia, nýorðinn íslenskur ríkisborgari, og Ásgeir Örn Hallgrímsson. DV-Sport ræddi við Guðmund í gær, skömmu áður en liðið fór á sína fyrstu æfingu í Þýskalandi. Breyttur hópur „Það em allir heilir og klárir í slaginn. Hóp- urinn er að vísu tölu- vert breyttur frá heims- meistarakeppninni í Portúgal en það eru ungir strákar í hópnum sem fá sína eldskírn. Við munum taka þennan leik alvarlega og þó að það sé kannski ekki mikill tími til að fara í flókna hluti þá ætlum við að renna í Guðmundur Guð- mundsson. gegnum ákveðna hluti eins og það hvað við gemm þegar Ólafur Stef- ánsson er tekinn úr umferð. Þjóð- verjar hafa gert það í síðustu tveim- ur viðureignum gegn okkur og ég tel okkur vera í stakk búna til að leysa það. Þetta verður hörkuleikur, þýska liðið er gífurlega sterkt en það er al- veg klárt að við ætlum að standa okkur í leiknum." Gefum Garcia tíma Aðspurður sagðist Guðmundur fagna því að hafa möguleika á að velja Jaliesky Garcia í hópinn en varaði þó við of mik- illi bjartsýni í byijun. „Þaö mun ailtaf taka hann einhvem tima að komast inn í leik liðsins. Hann sprettur ekki fram sem fullskapaður landsliðsmaður strax í fyrsta leik en hann mun klárlega styrkja liðið. Menn verða að sýna þolinmæði til að byrja með og ekki bú- ast við of miklu. -ósk E V R 6 P A J fc F^j 8-liða úrslit - Seinni leikir Panathinaikos-Porto'..........0-2 0-1 Vanderlei Derlei (16.), 0-2 Vander- lei Derlei (103.). Porto vann samanlagt, 2-1. Liverpool-Celtic..............0-2 0-1 Alan Thompson (45.), 0-2 John Hartson (81.). Celtic vann samanlagt, 3-1. Besiktas-Lazio................X-2 0-1 Stefano Fiore (5.), 0-2 Lucas Castroman (9.), 1-2 Yalcin Sergen (83.). Lazio vann samanlagt, 3-1. Boavista-Malaga ..............1-0 1-0 Soares Luiz Claudio (83.). Bœöi liðin unnu leiki sina, 1-0, á heimavelli en Boavista vann í vita- spyrnukeppni, 4-1, í seinni leiknum. Innanhússmeistaramót Islands í sundi fer fram um helgina: Bjartsýnn á góðan arangur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.