Dagblaðið Vísir - DV - 21.03.2003, Blaðsíða 32
V
FRETTASKOTIÐ
SIMIIXIIM
SEM
ALDREI
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um
frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir
hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö
í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotiö í hverri viku greiöast 7.000.
Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum
við fréttaskotum allan sólarhringinn.
F0STUDAGUR 21. MARS 2003
sefur 550 55 55
ItrfPWílir—nriTinriiinw ií n hm ...
k' ..
www.gulalinan.is
Láttu.
okkur leita
......t
Meirihlutasamstapfi í
Eyjum slitið - eða hvað?
Framsóknarfélag Vestmannaeyja
styður ekki þá ákvörðun bæjarfull-
trúa flokksins, Andrésar Sigmunds-
son, að slíta meirihlutasamstarfi
Framsóknarflokksins og óháðra og
Sjálfstæðisflokksins.
Deiian snýst um samgönguáætlun
íyrir Vestmannaeyjar. í gær tilkynnti
samgönguráðherra að hann mundi
skipa nýja nefnd til að fara yflr málið.
„Við felidum tillögu samgönguráð-
herra á fundi bæjarstjómar í gær, en
hann vildi setja upp einn sauma-
klúbbinn i viðbót. Samgöngumálin
eru okkur mikilvæg, þetta er ekki
heimtufrekja, við komumst ekki burt
þegar við vfljum og flugið er það dýrt
að það er álíka dýrt að fara frá Vest-
mannaeyjum til Reykjavíkur og til
London. Þetta er min ákvörðun að
slíta meirihlutasamstarflnu. Við Lúð-
vík Bergvinsson, fulltrúi Vestmanna-
eyjalistans, tókum þá strax upp við-
ræður og höfum gefið út yfirlýsingu
þar sem meirihlutaviðræður eru
hafnar. Tilkynningin er svohljóðandi:
Við undirritaðir lýsum því yfir að
við fulltrúar V-listans og B-listans
höfum hafið meirihlutaviðræður í
bæjarstjóm Vestmannaeyja. Ég er
bjartsýnn á að þetta klárist, sé enga
hnökra á því. Hér er mikið verk að
vinna fyrir verkfúsar hendur," segir
Andrés Sigmundsson.
„Formaður Framsóknarfélagsins
sagði mér í gær að þeir ættu eftir að
halda fund. Slit á samstarfinu mundu
gerast á fulltrúaráðsfundi, ef það
gerðist. Auðvitað ræður formaður
Framsóknarfélagsins þessu. En auð-
vitað getur Andrés labbað í burtu,“
segir Guðjón Hjörleifsson, bæjarfull-
trúi Sjálfstæðisflokksins.
„Það er ekki búið að slíta meiri-
hlutasamstarfinu í Eyjum við Sjálf-
stæðisflokkinn. Það hefur ekki verið
boðaður neinn fundur um að slíta
meirihlutasamstarfinu. Yfirlýsingar
Andrésar Sigmundssonar um að
meirihlutasamstarfinu við Sjálfstæð-
isflokkinn sé lokið er ekki með vilja
fulltrúaráösins. Engin ákvörðun verð-
ur tekin nema eftir fund í okkar röð-
um og í samráði við Sjálfstæðisflokk-
inn. Það verður að reyna á það ef
Andrés vill ekki starfa með sjálftæðis-
mönnunum," segir Víkingur Smára-
son, formaður Framsóknarfélags
Vestmannaeyja. -GG
fyrir þig
Atökin í Irak:
Utanríkismála-
nefnd fundar
Utanrikismála-
nefnd Alþingis kem-
ur saman klukkan
fimm í dag tii þess
að ræða átökin í
írak. Halldór Ás-
grímsson utanrikis-
ráðherra verður á fundinum og
skýrir afstöðu og aðgerðir ís-
lenskra stjómvalda í málinu.
„Ég get ímyndað mér að það
verði einhverjar bókanir á fundin-
um en að öðru leyti munum við
bara fara yfir þessi mál,“ segir Sig-
ríður Anna Þórðardóttir, formaður
nefndarinnar.
Ákvörðun stjómvalda um að
styðja aðgerðir gegn írökum verða
efst á blaði hjá fufltrúum stjómar-
andstöðunnar. „Af minni hálfu
verður óskað eftir því að samskipti
nefndarinnar við ríkisstjórnina
verði rædd fyrst. Ég tel eðlflegt að
nefndin láti það koma fram að
þetta eru ekki samskipti sem við
getum sætt okkur við,“ segir Stein-
grimur J. Sigfússon.
„Þessi fundur er haldinn of seint
því að því fer fjarri að íslensk
stjómvöld hafi skýrt afstöðu sína í
málinu í þinginu eða í nefndinni,"
segir Rannveig Guðmundsdóttir.
„Mér finnst líklegt að við knýjum á
um svör við því hvernig ríkis-
stjórnin hefur haldið á málum og
leggjum væntanlega fram bókun í
kjölfariö." -ÓTG
flrnar heim
Amar
Gunnlaugsson,
sem æft hefur
með
Islandsmeisturum
KRað
undanfórnu, mun
að öflum
líkindum leika
heima í sumar.
Hann hefur
fengið staðfestingu frá KSÍ um að
hann megi leika hérlendis frá
fyrsta leik í Símadefldinni.
Amar segist vera orðinn
þreyttur á atvinnumannalífmu.
Hann og fjölskyldan eru því farin
að leita að húsnæði hér.
Aðspurður sagði Arnar enn
óákveðið með hvaða liði hann léki
hér en vissulega væri gaman að
leika með Bjarka bróður í KR.
DV-SPORT BLS. 29
5L3. f
I a
Ertu á leið til útlondo?
Afnemum 24,5% vsk.
við kaup á gleraugum
gegn framvísun á farseðli
Glerau
588-9988
Kringlunni
ycn
112
EINN EINN TVEIR
NEYÐARLlNAN
LÖGREGLA SLÓKKVILIÐ SJÚKRAUÐ