Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2003, Blaðsíða 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2003
){ r \ fr V : fe’" t (/ *fV.
■ |' jwmf
' 111 jg( / IPSMR ■ ! | 1 \
/;■ I r[ ■ 5 V: \
/ / , vjg 1 >V ’f" SH wvyHffHHV
rl:
Fréttir
DV
- öll stjórnun aðgerða sex aðila í einni samræmingarmiðstöð
í gær var undirritaður sam-
starfssamningur um starfrækslu
Leitar- og björgunarmiðstöðvar ís-
lands. Stöðin er til húsa í nýbygg-
ingu við hlið höfuðstöðva Slökkvi-
liðs höfuðborgarsvæðisins í Skóg-
arhlíð í Reykjavík. Þar verður í
fyrsta sinn á einum stað hægt að
stýra björgunaraðgerðum og leit
hvar sem er á og við landið. Álíka
samræmd kerfi munu einungis
tíðkast í þremur löndum í heimin-
um en þau eru, auk íslands, Sví-
þjóð og Finnland. Stöðin í Skógar-
hlíð verður að fullu komin í gagn-
ið á næstu vikum.
Aðilar að þeim samningi sem
undirritaður var í gær eru Flug-
málastjóm íslands, Landhelgis-
gæsla íslands, ríkislögreglustjór-
inn, Siglingastofnun íslands, Neyð-
arlínan hf. og Slysavarnafélagið
Landsbjörg. Er þessu samstarfi
ætlað að auka öryggi og fækka
hugsanlegum möguleikum á mis-
tökum og töfum við útköll eins og
mögulegt er.
í stjórnstöðinni, og þá ekki síst í
fjarskiptamiðstöð lögreglunnar og
stjórnstöð Neyðarlínimnar, er
mjög fullkominn tölvubúnaður.
Með mjög öflugu kerfi er hægt að
sjá á augabragði hvaðan hringt er
eftir aðstoð og sjá um leið með
hvað hætti hægt er að bregðast við
á sem skemmstum tíma. Meira að
segja er hægt að senda boð um
síma til íbúa heilu bæjarfélaganna
á sama augnabliki um stjómstöðv-
ar þessara aðila.
Breytt lög um Almannavarnir
Síðastliöinn föstudag tóku gildi
breytingar á lögum um almanna-
vamir sem fela í sér að verkefni
yfirstjórnar Almannavarna ríkis-
ins voru flutt til embættis ríkislög-
reglustjóra. Var embættinu um
leið falið verkefni á sviði almanna-
vama. Var nýtt almannavamaráð
skipað þegar lögin tóku gildi og er
hlutverk þess að vera ríkisstjóm-
inni til ráðgjafar um almanna-
vamir. Skal ráðið jafnframt starfa
með ríkislögreglustjóra þegar al-
mannavarnaástand skapast. Hefur
Jón Birgir Jónsson, verkfræðing-
ur og ráðuneytisstjóri í samgöngu-
ráðuneytinu, verið skipaður for-
maður ráðsins til eins árs.
Ný lög um björgunarsveitir
Síðastliðinn föstudag tóku
einnig gildi ný lög um björgunar-
sveitir og björgunarsveitarmenn. í
lögunum er íjallað um hlutverk,
réttindi og skyldur björgunar-
sveita og björgunarsveitarmanna.
Munu lögin skýra til muna réttar-
stöðu þessara sveita og björgunar-
sveitarmanna. Þá er til skoðunar
DVWVNDIR HARI
Ur stjórnstöð Neyöarlínunnar
/ gegnum síma 112 koma um 300.000 símtöl ð ári, eöa rúmlega eitt símtal á hvern íslending. Þaöan eru nauösynleg boö send út til lögreglu, slökkviliös,
sjúkraflutningamanna eöa annarra aöila sem eru beintengdir stjórnstöö Neyöarlínunnar.
Við undlrskrift um samræmda stjórnstöð í gær
Jón Friörik Bjartmarz yfirlögregluþjónn, Haraldur Johannessen
ríkislögreglustjóri, Jón Birgir Jónsson, formaöur almannavarnaráös, Sólveig
Pétursdóttir dómsmálaráöherra, Þórhallur Ólafsson, framkvæmdastjóri
Neyöarlínunnar, og Hafþór Jónsson, forstjóri Landhelgisgæslunnar.
Úr stjórnstöð lögreglu
Frá þessum staö er m.a. hægt aö fylgiast meö öllum feröum lögreglubíla um
höfuöborgarsvæöiö meö myndrænum hætti á skjá og öllum
eftirlitsmyndavélum í borginni sem tengdar eru stjórnstöö.
gerð formlegs samnings við Slysa-
varnafélagið Landsbjörg um trygg-
ingar björgunarsveitarmanna og
sagðist Sólveig Pétursdóttir dóms-
málaráðherra, við opnun björgun-
armiðstöðvarinnar í gær, vonast
til að þau mál skýrðust á næstu
dögum.
Samstarfssamningurinn um
björgunarmiðstööina gerir ráð fyr-
ir að hver hinna sex aðila samn-
ingsins hafi með höndum ákveðin
fyrir fram skilgreind hlutverk.
Þannig á Flugmálastjóm að annast
skipulagningu og stjómun leitar-
starfa þegar loftfars er saknað.
Landhelgisgæslan fer með yfir-
stjóm leitar og björgimar á hafinu
í samræmi við lög og starfrækir
sjóbjörgunarstöð (MRCC).
Lögreglustjórar fara með yfir-
stjóm leitar- og björgunaraðgerða
á landi, hver í sínu umdæmi. Kall-
ar lögregla út björgunarsveitir til
aðstoðar ef þörf krefur.
Siglingastofnun íslands starf-
rækir vaktstöð siglinga, en þar fer
samgönguráðherra með yfirstjóm
mála.
Það sem snýr að Slysavarnafé-
laginu Landsbjörg er aö björgunar-
sveitum er ætlað að vera hjálpar-
lið Flugmálastjómar, Landhelgis-
gæslu og lögreglu vegna leitar- og
björgunaraðgerða sem undir þær
stofnanir heyra. Landstjóm björg-
unarsveita hefur umboð af hálfu
Slysavamafélagsins Landsbjargar
til þess að samræma og stýra leit-
ar- og björgunaraðgerðum eigin
liðsafla undir yfirstjóm þar til
bærra opinberra yfirvalda. Mun
Slysavamafélagið Landsbjörg
starfrækja sjóbjörgunarstöð
(MRCC Costal) vegna leitar- og
björgunarstarfa meðfram strönd-
um landsins.
Neyðarlínan annast síðan neyð-
arsímsvörun vegna neyðamúm-
ersins 112 í samræmi við lög, svo
og boðun viðbragðsaðila. Neyðar-
línan starfrækir vaktstöð sam-
kvæmt sérstöku samkomulagi við
dómsmálaráðuneytið. -HKr.