Dagblaðið Vísir - DV - 08.04.2003, Blaðsíða 34
34
_______________________________________________ÞRIÐJUDAGUR 8. APRÍL 2003
Tilvera DV
Alltaf dálítið stress að koma fram
- segir Elfa Rún sem spilar í Salnum í kvöld, ásamt fööur sínum
Neistarekki
á milli Bens og JLo
Framleiðendur bófamyndarinnar
Gigli, eða Tough Love, eiga ekki sjö
dagana sæla um þessar mundir. Þeir
veröa að reyna að lappa einhvem
veginn upp á stykkið ef myndin á að
eiga einhverja möguleika þegar hún
kemur til almennra sýninga. Aðal-
hlutverkin eru í höndum þeirra
skötuhjúanna Bens Afílecks og Jenni-
ferar Lopez.
„Það neistar ekkert á milli þeirra,"
segir heimildarmaður sænska Afton-
bladet.
Ótrúlegt, ef satt er, þar sem það
var jú við tökur myndarinnar sem
þau Ben og Jennifer felldu hugi sam-
an, eins og sagt er.
Lopezan leikur lesbískan bófa sem
fellur fyrir mafiukrimma sem hefur
fengið það verkefni að ræna ein-
hverjum. Leikstjóri herlegheitanna
og handritshöfundur er Martin Brest,
sem meðal annars gerði myndina
Kvennailm með AI Pacino, sællar
minningar.
Carrey krafinn
um meira meðlag
Melissa Womer,
fyrrum eiginkona
grínarans Jim
Carrey, hefur
farið fram á það
fyrir rétti i LA að
fá meðlag með
dóttur þeirra
Jane, hækkað til
muna svo hún
geti veitt
dótturinni svipaðan lúxus og faðir
hennar veitir sjálfum sér.
Hún segist lítið geta gert fyrir þau
sex þúsund pund sem hún fær
mánaðarlega og þar sem Carrey sé
múltímilli og hafi þénað að minnsta
kosti 30 milljónir punda árið 2000,
geti hann vel séð af meiru.
„Hann á sitt eigið listasafn,
heimaleikhús, tækjasal, tennisvöll og
fimm bíla bílskúr. Þar að auki hefur
hann nýlega keypt húsið og landið
við hliðina á sínu eigin og hefur
þegar ráðið hönnuði til þess að
skipuleggja landareignina. Þar að
auki á hann milljóna lúxusvillu í
Malibu en timir ekki að borga nema
sex þúsund pund á mánuði með
barninu sínu. Á sama tíma er hann
með einkaþjón og matreiðslumann,
einkaþjálfara, lífverði, þrjá aðstoðar-
menn, leiklistarráðgiafa og ritaralið,"
sagði Melissa
Dóttirin, sem er fimmtán ára,
hyggst feta i fótspor föður síns og að
sögn móðurinn þarf hún fullan
stuðning föðurins til þess og eitthvað
af þeim lúxus sem hann veitir
sjálfum sér.
Hún er aðeins átján ára en
er samt að ljúka diplomanámi
í fiðluleik frá Listaháskóla ís-
lands og heldur útskriftartón-
leika í kvöld í Salnum. Elfa
Rún Kristinsdóttir heitir hún
og er dóttir þeirra Lilju
Hjaltadóttm- fiðluleikara og
Kristins Arnar Kristinssonar
píanóleikara. Á því ekki langt
að sækja tónlistargáfumar og
ætlar greinilega að spila vel
úr þeim.
Faðir hennar ætlar að leika
undir hjá henni í kvöld og
ætla mætti að hæg væru
heimatökin fyrir þau að æfa
sig en Elfa Rún segir það
flóknara en í fljótu bragði
virðist. „Við erum aldrei
heima á sama tíma svo þetta
hefur verið hálfsnúið."
Tónleikamir hefjast kl. átta
i kvöld og efnisskráin er fjöl-
breytt, „allt frá barrokki til
nútímans," eins og Elfa Rún
orðar þaö. í huga hennar
skiptist á tilhlökkun og kvíði.
„Þaö er alltaf dálítið stress við
að koma fram. Ég held maður Elfa
losni aldrei við það. En þetta
verður gaman.“
Elfa Rún átti heima á Akur-
eyri fyrstu fimm árin sín. Hún var
farin aö læra á fiðlu fjögurra ára
við Suzukideild Tónlistarskólans
DVA1YND THTUR
Fiðlusnlllingurinn
Rún Kristinsdóttir hefur meöat annars lært hjá Auði Hafsteinsdóttur og Guönýju Guö-
mundsdóttur. Hún ætlar aö spiia á fiöluna hennar Guönýjar í kvöld.
á Akureyri, undir handleiðslu
móður sinnar. Eftir að fjölskyldan
flutti suður yfir heiðar tók við
nám í Tónskóla Sigursveins og
síðan Tónlistarskólanum í Reykja-
vík þar sem hún lauk 7. stigi áður
en hún dreif sig yfir í Listahá-
skólann fyrir tveimur árum.
Fiðlan hefur alltaf verið
hennar hljóðfæri en þó segir
hún sig hafa langað ótrúlega
mikið að læra á píanó á tíma-
bili. „Ég lærði slatta af lögum
hjá pabba en svo varð ekkert
meira úr því,“ segir hún. Eins
og gefur að skilja er takmark-
aður tími fyrir áhugamál með
fram náminu og í frístundum
finnst henni skemmtilegast
að vera með vinunum.
Elfa Rún lék einleik með
Sinfóníuhljómsveit íslands í
janúar sl. og nýlega hélt hún
tónleika á Akureyri. Nú er
hún á öðru ári í MH og ætlar
jafnvel að stunda fjarnám við
íslenskan framhaldsskóla
með fiðlunámi erlendis því
næsta vetur stefnir hún á að
fara í tónlistarháskóla annað
hvort til Austurríkis eða
Þýskalands. Að lokum er hún
spurð hvort foreldunum þyki
hún ekkert ung til að fara ein
síns liðs út í heiminn. „Nei,
þau þekkja þennan heim og
vita rnn hvað þetta snýst. Þau
hafa, held ég, meiri áhyggjur
af aðbúnaðinum en að ég
spjari mig ekki.“
-Gun.
Skógrækt áhugamannsins
Ánægðir nemendur
Björn Jónsson, fyrrverandi skólastjóri Hagaskóla, segir aö ræktunarmaöur
geti náö skjótum árangri ef hann kærir sig um og snýr sér aö skógrækt meö
svipuöu hugarfari og fólk sem gengur aö annarri ræktun.
Undanfarin vor hafa verið hald-
in fjölsótt skógræktamámskeið
með Birni Jónssyni, fyrrverandi
skólastjóra Hagaskólans, sem hef-
ur mikla reynslu af skógrækt.
Bjöm fjallar um ýmsa hagnýta
þætti fyrir áhugafólk um skóg-
rækt, ekki síst sumarhúsaeigend-
ur. Námskeiðin eru liður í
fræðslusamstarfi við Búnaðar-
banka íslands.
Bjöm nefhir námskeiðið „Skóg-
rækt áhugamannsins" og segir
svo í inngangi: „Oft er sagt að
skógrækt gangi hægt á íslandi, viö
búum svo norðarlega á hnettinum
að sumur séu stutt og svöl og trjá-
planta sem stungið er niður þurfi
býsna mörg ár til aö vaxa upp fyr-
ir mannhæð. Þetta þarf ekki að
Biógagnrýni
Smárabíó/Laugarásbíó - Shanghai Knights ★★
Kung fu í höllu dpottningar
vera svo. Ræktunarmaður getxn
náð skjótum árangri ef hann kær-
ir sig um og snýr sér að skógrækt
með svipuðu hugarfari og fólk
sem gengur að annarri ræktun.
Það sem skiptir máli er að við setj-
um okkur markmið og vinnum
skipulega. Þá mun árangur skOa
sér fljótt og vel.“
Fyrirhuguð era þrjú námskeið í
Reykjavík í vor; námskeið A) 7. og
10. aprO, námskeið B) 29. og 30.
aprU og námskeiö C) 6. og 7. maí.
Skráning á námskeiðin fer fram
hjá Skógræktarfélagi íslands, Rán-
argötu 18 eða skog@skog.is Verðið
er 5.900 kr. og innifalin eru vegleg
námskeiðsgögn. Félagar i
skógræktarfélögum fá afslátt, svo
og hjón.
Sif
Gunnarsdóttir
skrifar gagnrýni
um kvikmyndir.
í Shanghai Noon björguðu
Chong Wang - borið fram John
Wayne (Chan) og félagi hans Roy
O’Bannon (Wilson) kínverskri
prinsessu frá illmennum. Wang
(eða Wayne) leið svo vel í villta
vestrinu að hann er þar enn í
Snlon Ritz Salon Ritz Salon Ritz Salon Ritz Salon Ritz Salon Ritz
Við viljum á okkur minna
Já vaknaðu núna kvinna
heillaðu kallinn
og leidd'an á stallinn
láttu hann fyrir þér fínna
Framhald
2
Salon Ritz Salon Ritz Salon Ritz Salon Ritz Salon Ritz Salon Ritz
framhaldinu, Shanghai
Knigths, orðinn lögreglu-
stjóri og búinn að vegg-
fóðra heimili sitt með
myndum af mönnum sem
hann hefur handtekið. En
þegar faðir hans er drep-
inn af breskum níðingi
sem rænir í leiðinni keis-
aralega innsiglinu úr for-
boðnu borginni í Kína og
litla systir hans (Wong) elt-
ir hann tU Lundúna er Jackie
Wang ekki til setunnar
boðið. Hann drífur sig tU
Englands með viðkomu í New
York þar sem fyrrum félagi hans
Roy slæst í för með honiun, enda
tUbúinn í tUkomumeiri ævintýri
en þau sem hann lendir í sem
þjónn og fylgdarmaður. í London
leynast hættur við hvert hom og
þeir félagar verða að hafa hraðar
hendur að bjarga heiminum því
bæði á aö kála keisaranum í Kína
og koma Viktoríu Bretadrottningu
fyrir kattarnef.
Shanghai Knights er, þrátt fyrir
einstaklega götótt og gloppótt
handrit, ágætis skemmtun. Jackie
Tveir góöir
Chan og Qwen Wilson lenda i ævintýr-
um viö hirö drottningar.
Chan slær og sparkar svo imun er
á að horfa og svo er hann prýðis-
gamanleikari, þótt hann sé ennþá
ansi málhaltur á ensku. Owen
Wilson er óvenjulegur gamanleik-
ari með alveg sérstaka tjaldnær-
veru og ég bíð þess með óþreyju
að hann fái aftur jafnbitastætt
hlutverk og í The Royal Tenen-
baums. Fann Wong, sem ku vera
afskaplega vinsæl söng- og leikona
víðs vegar í Asíu er bæði sæt og
afar sannfærandi bardagakona.
GUlen og Yen í hlutverkum óþokk-
anna eru heldur litlausir þótt
reynt sé að púkka svo mikið upp á
útlit GiUen að hann líkist helst
samlanda sínum, glamúrpönkar-
anum Adam Ant.
Shanghai Knights er best í
glæsUega útsettum bardagaatrið-
unum þar sem Chan fer á kostum
- eins og í dásamlegu atriði þar
sem hann berst við hóp enskra
fanta einungis vopnaður regnhlíf
en undirspUið er lagið góða Sing-
ing in the Rain. Eða slagsmálin í
Big Ben sem hyUa gamla Harold
Loyd-klukkuatriðiö úr Safety
Last. Reyndar er vísað í kvik-
myndir, bækur og sögulegar per-
sónur stanslaust sem má vel hafa
gaman af. Þannig komumst við að
ýmsu um bæði Conan Doyle,
Kobba kviðristu og Chaplin sem
við vissum ekki áður. Eins og
venjulega eru mistökin sýnd í lok-
in og voru alveg grunsamlega
fyndin - líkt og þau væru sviðsett?
Leikstjóri: David Dobkin. Handrit: Alfred
Gough og Miles Millar. Kvikmyndataka:
Adrian Biddle. Tónlist: Randy Edelman.
Aóallelkarar: Jackie Chan, Owen Wilson
og Fann Wong.